Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 1989.
Umsjón: Gylfi Krlstjánsson
Á hálfa byssu
ÍSportveiöi-
blaöinu.semcr
nvkomiö Ut.er
m.a. fróölegt
viötal viðStein-
grím Sigfússon
ráðherra, þar
sem hann ra-ð
irumvciöiskap
sinnogýmis-
legtsemtengist
honum. Þar kemur fram að Stein-
grímur ólst nánast upp meö by ssu í
hendi, og segist hafa veriö svo ókristi-
iega ungur þegar hann fór að hand-
leika þannig vopn aö hann geti ekki
sagt frá þvi á opinberum vettvangi.
Hins vegar segir hann svo illa komið
fyrir sér nú aö hann eigi ekki nema
hálfa byssu í dag, eða hlut i sliku
vopni með bróður sínum. Steingrím-
ur segist ekki veiða fyrir sunnan,
hann fai ekkert út úr veiöiskap nema
vera í sínu rétta umh verfi i Þistilfirð-
inum. Þar mun víöa vera gott til
fanga og segir ráðherrann m.a. aö
hann fari á hverju ári í litla á þar
fyrir austan og fái þar oft lax. Nafh
árinnar segist Stcíngrimur ekki láta
uppi,néhvarhún sé.
Kastaði stönginni
Enekkieru
aliar veiðiferð-
irtilQár.það
: fékkhann að i
reynaGunnar
nokkur Níels-,
sonsemer
þekkturmaður
áAkurcyri.
H;um háfði far-
ið í veiöiferð
ineð nýju „græjurnar" sínar, nýtt
hjól og nýja stöng, vöðlur og floira
að því er fregnir herma, en laxinn
vildi ekki þýðast hann samt. Gunnari
leist illa á aö fara heim meö önguhnn
í rassg... og kallaði því í félaga sinn
um það bil að þeir voru að halda
heim á leið: „Nú ætla ég að taka eitt
kast til viðbótar, síðasta kastiö, og sjá
hvort þetta gengur ekki upp.-‘ - Hann
sveiilaði stönginni flmlega aftur, síð-
an fram, og stöngin með nýja dýra
veiðihjólinu flaug í fallegum boga út
í ána þar sem hún sökk og hefur ekki
séstsíðan!
Reiðir knatt-
spymumenn
Knattspymu-
menníÞórá
Akureyríog
íörsvarsmenn
félagsinsvoru
vanast sagt
reiðirfyrir
belginaerþeim
varmeúíaðað:
spiia l.deildar
leiksinnviðFH
á aðalvellinum í bænum, en sá völlur
verður ekki tekinn í notkun fyrr en
26. júni. Þórsarar vilja meina að vöE-
urinn hafl verið fullgóður U1 þess að
spila á honum en forstöðumaður vall-
arins segist hafa unnið þar í 20 ár og
hann viti hvenær völlurinn sé tilbú-
inn fyrirsparkiöoghvenærekki.
Þórsarar léku því við PH á grasvelli
sinum í Glerárhverfi en KA-menn,
sem hafa fengið fyrsta leikinn á aðal-
vellinum undanfarin ár, glottu út í
annað.
Dagurámorgun
DVerblað
semkemurút
fyrirhádegi,
Moggiogfleiri
bloðentmore-
unblöðog
lcoma í hendur
lesenda
snemmamorg-
uns.endag-
iilaðiö Dagur
viröist hafa tekið upp þá stefnu að
blaðið á morgun sé blaðið í dag, eða
þannig! Blaðiö fyrir föstudaginn
síðasta hrökk t.d. inn um bréfalúg-
una á fimmtudagskvöld og laugar-
dagsblaðið kemur oftar en ekki inn
um lúguna á fóstudagskvöldi. Ekki
munu allir á ritstjóm blaðsins á-
nægöir með þessa þróun mála enda
er það sennilega einsdæmi að dagblað
komi í hendur lesenda daginn áöur
en þaö er dagsett. Hugsanlega er
þama þó möguleiki fyrir Dagsmenn
að gefa út að nýju mánudagsblað, þaö
gæti t.d. komiö út á laugardegi eða
sunnudegi.
BifRif l’Drgifcistm. forðamíb-s
.Missur“ogíþr(í
afrek heilla
erfenda ferðam
, tu. /SnwHhi iiofMrf tA. anl
17. júní:
Óhappalaus á flest-
um stöðum landsins
Þjóðhátíðardagurinn fór vel fram
um allt land að sögn lögreglu á helstu
þéttbýlisstöðum landsins. Flestir lög-
reglumenn voru sammála um að 17.
júní heföi veriö svipaður og venjuleg-
ur laugardagur. Sums staðar voru
hátíðahöld færö inn í hús vegna veö-
urs en annars staðar, t.d. á Aust-
fjörðum, var glampandi sól og gott
veður. Engin óhöpp eöa slys urðu um
helgina en á flestum stööum var
nokkur ölvun aö kvöldi þjóöhátíöar-
dagsins.
-ELA
Fréttir
Sandkom dv
Hátíðahöld á Akureyri fóru vel fram í 18 stiga hita á þjóðhátiðardaginn.
Margt var til skemmtunar og margt manna fylgdist með. DV-mynd gk
Akureyri:
Hátíðahöld í
sól og blíðu
5 Kristjánsaon, DV, Akureyri:
Vljög mikil þátttaka var í hátíöa-
dunum á 17. júní á Akureyri, enda
• veður mjög gott, sól og blíða og
hitcimælamir gældu við 20 stigin.
Allt fór vel fram, að sögn lögreglu,
og ekld uröu nein óhöpp í bænum.
Ölvun var ekki mikil en 7 vora þó
teknir grunaöir um ölvun viö akstur.
60 ara afmæli Neskaupstaðar:
Hátíðahöldin vel sótt
Þorgerður Malmquist, Neskaupstað:
Hátiðahöld laugardagsins hófust
með skrúögöngu sem fjöldi fólks tók
þátt í og endaði hún í Lystigarðinum
þar sem ávörp voru flutt.
Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi
forseti bæjarstjómar, flutti hátíða-
ræöu, skólahljómsveit Neskaupstað-
ar lék, Rauða kross deild Norðfjarðar
afhenti fjóröungssjúkrahúsinu nýja
sjúkrabifreið, síöan var upplestur og
fleira.
Konur úr kven- og slysavarnafélag-
inu grilluðu 5.000 pylsur og báru
fram með tilheyrandi og skátamir
vom með alls kyns þrautir og leik-
tæki í gamla hluta garðsins. Síödegis
var leikin knattspyma á íþróttavell-
inum þar sem nemendur Knatt-
spymuskólans léku listir sínar
ásamt fleimm. Um kvöldið voru
dansleikir í Egilsbúð og úti á planinu
þar fyrir austan. Ekkert aldurstak-
mark var á þessum dansleikjum svo
að úr varö einn allsherjar fjölskyldu-
dansleikur.
Veöriö var þokkalegt, skýjað en
þurrt að mestu.
Sunnudagurinn hófst með útsýnis-
siglinu með Berki NK, sigling þessi
var sérstaklega ætluð gestum og var
hún vel sótt enda veðrið upp á sitt
besta, glaðasólskin og hlýtt.
Eftir hádegið hófst sundmót Þrótt-
ar auk boðsunds milli innbæinga og
útbæinga. í eftirmiðdaginn vom tón-
leikar í Egilsbúð, norðfirsldr lista-
menn komu fram. Um kvöldið var
matur í Egilsbúð og tónlistaruppá-
komur yfir borðhaldi. Hátíöahöldun-
um lauk svo með dansleik sem stóö
til klukkan eitt.
Mikill mannflöldi 17. júní
Góður dagur þrátt
Talið er að á bilinu þrjátíu og fjör-
tíu þúsund manns hafi komið saman
í miðbæ Reykjavíkur á þjóðhátíðar-
daginn. Er það mun fleira en búist
var við. Hátíðahöldin fóru í alla staöi
vel fram að deginum og var lögreglan
mjög ánægö meö hversu öll umferð
gekk vel.
Meira var um aö vera að kvöldi
þjóðhátíðardagsins. Mikill fjöldi ung-
menna safnaðist saman í miöbænum
og vom drykkjulæti talsverð. Búist
hafði verið við að ungmennin færu í
Laugardalshöll en sú varö ekki raun-
in. Fámenni var í Laugardalnum en
því fleiri í miðbænum. Talsvert var
um óspektir á almannafæri og var
lilkynnt um þrettán rúöubrot. Allar
fangageymslur lögreglunnar voru
fullar.
Lögreglan tjaldaði öllu því liði sem
til var og var nóg að gera. Hins vegar
sagði varðstjóri lögreglunnar að mið-
að við oft áöur væri helgin ekki svo
slæm. „Við erum orðnir vanir mik-
illi ölvun í miöbænum, sérstaklega á
föstudagskvöldum, þannig aö þjóð-
hátíðarkvöldið var ekki sem verst.
Hins vegar var fólk á ráfi langt fram
á morgun," sagöi varðstjórinn.
Átta voru teknir ölvaöir við akstur
og sagði varðstjórinn að það væri
margt miðað við að lögreglumenn
höföu ekki tíma til að sinna þeirri
hlið mála. „Ætli við séum ekki
þokkalega ánægðir með þessa helgi
þegar á allt er litið.“
-ELA
Rigningin demdist yfir borgarbúa þegar kvöldaði en ungmenni létu það
ekki á sig fá og fóru á eitt alsherjarfyllerí sem stóð til morguns. Þrettán
rúður voru brotnar í miðbænum og fangageymslur lögreglunnar fylltust fljótt.
DV-myndir Hanna
Mikill mannfjöldi var samankominn i miðbæ Reykjavikur á þjóðhátíðardag-
inn og giskar lögreglan á að allt að þrjátiu til fjörutíu þúsund manns hafi
verið þegar mest var. Búist var við færra fólki þar sem spáð hafði verið
leiðindaveðri. Um miðjan dag var þó ágætisveður og það notfærðu Reykvík-
ingar sér.
fyrir mikla ölvun