Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Qupperneq 10
10 MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 1989. Útlönd_______________________dv Hermenn halda frá Peking Pekingbúar sáu í morgun lest um hundraö herbíla halda í noröurátt frá miðhluta höfuðborgarinnar. Um tuttugu herbílar héldu í vestur frá Torgi hins himneska friöar þar sem blóðbaðið varð hinn 4.júní síð- astliðinn. Vestrænir stjórnarerindrekar segja að hermennirnir hafi nú haldið til nálægra bækistöðva en álíta samt að enn séu um hundrað og tuttugu þúsund hermenn í og umhverfis Pek- ing. Stjórnarerindrekarnir búast við að bráölega veröi haldinn fundur mið- stjórnarinnar eða framkvæmda- stjórnarinnar, ef til vill í þessari viku, þar sem tilkynnt verði hverjir séu hinir nýju leiðtogar. Umbótasinnanum og flokksfor- manninum Zhao Ziyang, sem ekki hefur sést síöan hann bað námsmenn að fara frá torginu þann 19. maí síð- astliöinn, verður skipt út eftir aðeins tvö ár í embætti. Zhao hefur verið sakaður um að hafa stutt kröfur námsmanna en talsmaður stjórnar- innar gaf í skyn í síðustu viku að Zhao yrði ekki leiddur fyrir rétt. í morgun var tilkynnt í opinberum fjölmiðlum um nýjar reglugerðir sem gætu gert Kínverjum erfiðara um vik að yfirgefa landið. Þeir Pekingbúar sem vilja fara til erlends sendiráðs til að sækja um vegabréfsáritun þurfa nú fyrst sérstakt leyfi frá lög- reglunni. Að minnsta kosti tuttugu starfs- menn kínverskra sendiráða hafa sótt um hæli í vestrænum löndum. Tíu menn og ein kona bíða nú aftöku í Kína eftir að hafa verið dæmd til dauða í síðustu viku fyrir skemmd- arverk og að hafa efnt til uppþota. Reuter Lest rúmlega hundrað herbila hélt frá Peking i morgun til nálægra bækistöðva. Simamynd Reuter Græningjar vinna á Stjómarflokkarnir í Bretlandi, V- Þýskalandi og Frakklandi missa fylgi en umhverfisverndarsinnar virðast á uppleið ef marka má fyrstu tölur og tölvuspár um úrslit kosninga til Evrópuþingsins sem birtar voru snemma í morgun. í gær fóru fram kosningar í sjö aðildarríkjum banda- lagsins en síðastliðinn fimmtudag gengu kjósendur að kjörborðinu í fimm aðildarríkjanna. í Bretlandi reyndust niðurstöður kosninganna einn mesti ósigur fyrir stjóm Margrétar Thatcher forsætis- ráðherra á tíu ára valdatíma hennar. Verkamannaflokkurinn og Græn- ingjar unnu á, á kostnað íhalds- manna. Talið er að Verkamanna- flokkurinn muni ná 13 sætum frá íhaldsmönnum á þinginu. Þegar búið var að telja mikinn hluta atkvæöa var Verkamannaflokknum spáð 44 sætum en íhaldsflokknum 33 sætum. Hægri sinnaður miðflokkur undir forystu Valery Giscard d’Estang, fymim forseta, vann sigur í Frakk- landi með 29,5 prósent atkvæða sam- kvæmt fyrstu spám. Franskir sósíal- istar fengu 23 prósent, græningjar 11 prósent og Þjóðarfylking Le Pen 11 prósent eins o| búist var við. Simone Veil, fyrrum ráðherra, fékk átta pró- sent og kommúnistar sjö prósent. Þessar niöurstööur eru byggðar á spám samkvæmt fyrstu tölum. Öfgafullir hægri flokkar virtust hafa náð eyrum sumra kjosenda í Belgíu og V-Þýskalandi. Rúmlega sjö prósent kjósenda kusu Repúblikana- flokkinn í V-Þýskalandi, öfgasinnað- an hægri flokk undir forsæti Franz Schoenhuber, fyrrum nasista, og hlaut flokkurinn sex sæti. Fylgi Schoenhuber var talið vera á kostnað kristilegra demókrata, flokks Kohls kanslara. Kristilegir demókratar hlutu samt flest sæta V-Þýskalands á þinginu eða 32. Sósíaldemókratar hlutu 31 sæti, grænfriðungar átta og frjálsir demókratar fjögur. Þegar búið var aö telja hluta at- kvæða í Belgíu bentu líkur til að Vla- ams Blok, öfgasinnaður hægri flokk- ur, myndi taka atkvæði frá stjórnar- flokkunum. Tveimur flokkum um- hverfisvemdarsinna var spáð 14 pró- sent fylgi. Spár bentu einnig til að flokkur Wilfried Martens forsætis- ráðherra, Kristilegir demókratar, myndi auka við sig. A Ítalíu bentu allar líkur til þess að Kristilegi demókrataflokkurinn biði afhroð en kommúnistar juku fylgi sitt í fyrsta sinn í fimm ár. Tveir flokkar umhverfisverndarsinna hlutu alls 6,2 prósent atkvæða og eru þar með orðnir fjóröa stærsta stjórn- málaafliö á Ítalíu. Þegar búið var að telja meirihluta atkvæöa kom í ljós að Kristilegi demókrataflokkurinn hafði hiotið 32,8 prósent en kommúnistar 27,8 prósent. Léleg kjörsókn var víðast hvar. Búast má við lokaniðurstööum í dag. Reuter og TT IBM SKÓLADAGUR 23. JÚM1989 FYRIR Ki ;\\\R \. SKÓLASTJÓRA OG AÐRA ÁHUGASAMA UM \OTKl \ TÖLVA í KEIWSLL IBM á íslandi er meginstyrktaraðili lokaðrar ráðstefnu um menntamál á vegum alþjóða- samtaka um gagnavinnslu (International Fe- deration for Information Processing - IFIP) sem haldin er í Kennaraháskóla íslands dag- ana 19.-22. júní. Á þessari ráðstefnu sitja margir erlendir fræðimenn sem eru í farar- broddi á þessu sviði. í framhaldi af ráðstefnunni er opið hús hjá IBM á íslandi föstudaginn 23. júní nk. Þar munu fjórir erlendir fyrirlesarar af ráðstefnunni fjalla um notkun tölva í kennslu og sýndur verður hugbúnaður og vélbúnaður fyrir skólakerfið. I 9:00 Opnun í Tónabæ Stjórnendur: BERNARD CORNU prófessor við háskólann í Grenoble. PETER BOLLERSLEV námsstjóri menntamálaráðuneyti Danmerkur. Fyrirlesarar: DR. ROBERT AIKEN Prófessor Temple háskóla, Bandaríkjunum. Efni: What concerns do teachers have with respect to using computers in the classroom. BJARNE BELHAGE Lektorvið N. Zahles kennaraháskólann Danmörku. Efni: Improvement of Spatial Understanding in Art. BEVERLY HUNTER Kennari við kennaradeild háskólans í San Fransisco. Efni: Some lessons are learned from students use of an interactive adviser built into a data- base for learning science inquiry skills. DERYN WATSON Kennari við Kings College London. Efni: Involving teachers in software Development, focusing on the Humanities. Fyrirlestrarnir verða fluttir á ensku. 12:30 Boðið er upp á hádegismat í Tónabæ gegn vægu gjaldi. 13.30 Kennsluhugbúnaður og verkefni fyrir íslenska skóla. Fjallað verður um og sýnd eftirfarandi verkefni: • Jón Guðmundsson kennari Flallorms- staðaskóla og Kristinn Jónsson kenn- ari Melaskóla segja frá reynslu sinni og nemenda sinna af tölvusamskipta- verketni IBM á Islandi og grunnskól- anna víð nemendur og kennara í Danmörku. • Islenskur kennsluhugbúnaður fyrir sérkennara skrifaður í gluggakerfinu Windows af nemendum Tölvuhá- skóla Verslunarskóla íslands. • Isbliss. Tjáskiptahugbúnaður fyrir fatlaða byggður á hinu alþjóðlega BLISS táknmáli. • Kennsluhugbúnadur á islensku fyrir stærðfræði og samfélagsfræði. M.a. IBM Flermilíkön, Tölvuflóra, Prósent- ur, Flutningar, Flatarmyndir og Eftir- liking sem gefin eru út af Náms- gagnastofnun. • OS/2 stýrikerfið og möguleikar þess t.d. i fjölvinnslu. i því sambandi sýn- um við teikniforritið Teiknisem skrifað er af nemendum Tölvuháskóla Versl- unarskóla Islands. Teiknir er jafnvel fyrsta teikniforritið í heiminum sem skrifað er undir Presentation Mana- ger fyrir OS/2. • Sýnum í fyrsta sinn „SpeechViewer“ frá IBM sem er hjálpartæki fyrir tal- kennara til að nota við talþjálfun fatl- aðra og fyrir fólk með talörðugleika. 16.00 Lok. STAÐSETNING: Húsnæði IBM á íslandi, Skaftahlíð 24 og Tónabær. Væntanlegir þátttakendur vinsamlega tilkynni þátttöku og hvort óskað er eftir hádegismat hjá IBM í síma 687373 eigi síðar en miðvikudag- inn 21. júní. Nánari upplýsingargefur Kristín Steinarsdóttir í síma 697700. FYRST OG FREMST SKAFTAHLÍÐ 24 105 REYKJAVÍK SÍMI 697700

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.