Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Side 41

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Side 41
MÁNUDAGUR 19. JÚNÍ 1989. 41 Valdsmenn í Úsbekistan ýttu undir fjöldamorð Lögreglumaður stendur yfir líki Meshketa á götu í Fergana, þeirri borg Úsbekistan þar sem manndrápin voru mest. Meðan Mikhail Gorbatsjof Sovét- leiðtogi baðar sig í fagnaðarlátum og aðdáun vesturþýsks almennings fæst Nikolai Ríshkof forsætisráð- herra hans við að stjórna aögerð- um til að heinja morðóðan skrO í Mið-Asíulýðveldinu Úsbekistan. Þetta varð að vera fyrsta verkefni forsætisráðherrans eftir að hann hlaut útnefningu til starfans á ný- kjörpu þingi. Hafði hann þó í stefnuræðu sinni í lok þinghalds FulltrúadeUdarinnar lýst því með áhrifamiklum hætti, hver stórvirki þyrfti að vinna á næstunni tO að rétta við hag ríkisins. Ríshkof og nánir samstarfsmenn hans gerðu grein fyrir áformi um að skera yfirbyggingu skrifræðis- kerfisins í ráðuneytum og ríkis- nefndum niður um helming. Ná verður tökum á ríkissjóðshalla sem vaxið hefur óðfluga, jafnframt því sem uppfylia þarf fyrirheit um verulega auknar bætur til 20 mUlj- ón lífeyrisþega, sem nú mega skrimta undir því sem í Sovétríkj- unum teljast fátæktarmörk. Kröppum kjörum þeirra veldur sér í lagi verðbólga, sem enginn veit reyndar nákvæmlega hver er, af því hagskýrslukerfið býr enn að fölsunum sem byggðar voru inn í þaö á tímum Stalíns. Stóri sparnað- urinn verður tekinn af útgjöldum tO hermála, þau skulu hafa lækkað um þriðjung frá því sem nú er á fjárlagaárinu 1995. Loks er viö að fást erlendar skuldir, svo háar að obbinn af útflutningstekjum Sovét- ríkjanna fer tO að standa straum af þeim. Frá öllu þessu varð forsætisráð- herrann að fara til að reyna að stifla tO friðar í Úsbekistan, þar sem óaldarflokkar Úsbeka hafa á hálfum mánuði myrt að minnsta kosti á annað hundrað Meshketa og sært yfir 1000. Við heimkomuna tfl Moskvu á miðvikudag hafði Ríshkof um aðfarirnar rússneska orðið „pógróm", sem notað er um skipulagðar þjóðernaofsóknir, og várð tO foröum þegar keisaraleg yfirvöld áttu það til að etja kristn- ) um múg á varnarlausa gyðinga. Og svipuð var raunin í Úsbekist- an nú, sagði Ríshkof. Starfsmenn flokks og ríkis lögðu morðsveitun- um til ökutæki og eldsneyti, vopn og vodka. Hér var því ekki um að ræða sjálfkrafa sprengingu í sam- búð þjóðema, heldur skipulega að- fór að minnihlutahópi. Ríshkof kvað útreið margra Mershketa, sem sluppu þó með lífi í flótta- mannabúðir, vera ólýsanlega, og hét því að komið yrði lögum yfir þá sem sekir hefðu gerst um morð, nauðganir, limlestingar, brennur og rán í ofsókninni. Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson Meshketar em ein af þeim þjóðum sem Stalín lét uppræta úr alda- gömlum heimkynnum í Kákasus og Svartahafshéruðum í lok heims- styrjaldarinnar og flytja nauðung- arflutningi, með skelíilegum hörm- ungum og miklu manntjóni, tfl Miö-Asíu lýðveldanna Úsbekistan og Kasakstan. Fyrri heimkynni Meshketa, sem mæla á tungu skylda tyrknesku og eru öðruvísi múslimar en Úsbekar, voru í Ge- orgíu. Ríshkof heitir því nú, að krafa þeirra um að fá að snúa aftur heim þangað verði tekin til með- ferðar í sérstakri nefnd. Þessir atburðir í Úsbekistan nú era nánast eftirmynd af því sem gerðist í öðru Sovétlýðveldi músl- imskrar þjóðar fyrir rúmu ári. Þeg- ar krafa kom upp meðal Armena um að armenska sjálfstjómar- svæðið Nagorno-Karabakh innan landamæra Aserbajdsan fengi að sameinast Armeníu, blossaði upp ofsókn af hálfu Asera á hendur armenskum íbúum borgarinnar Sumgait. Eins og í Úsbekistan þurfti utan- aðkomandi herlið tíl aö stilla tO friðar, bersýnOega af því að ein- hver hluti stjórnvalda flokks og ríkis stóð að baki hryðjuverka- sveitunum. Og bæði frá Aserbajds- an og Úsbekistan berast frásagnir af fjölskyldum Asera og Úsbeka sem lögðu sjálfar sig í hættu tfl að bjarga armenskum eða meskhetsk- um nágrönnum undan óaldarlýö af eigin þjóðerni. Aserbajdsan og Úsbekistan eiga það einnig sameiginlegt, að í þess- um lýðveldum gekk fjármálaspill- ing og valdníðsla á stjómarárum Bresnéfs í Moskvu einna lengst í öUum Sovétríkjunum. í Bakú, höf- uðstað Aserbajdsan, stendur marmarahöU mikil. Hana lét þá- verandi flokksforingi í lýðveldinu reisa tfl að hýsa Bresnéf og fylgdar- Uð í einni niu daga heimsókn. í staðinn fékk flokksforinginn með mönnum sínum að fara sínu fram, féfletta og kúga landsfólkið. í Úsbekistan var spfllingin svo alger, að flokksritarar hegðuðu sér opinskátt eins og lénsherrar. Einn sölsaði undir sig víðar lendur, hafði á herragarði sínum bæði þræla- búðir og kvennabúr auk neðan- jarðardýflissu til að varpa í hverj- um þeim sem ekki vUdi verða við kröfum hans tfl landa eða kvenna. Ósköpin í Úsbekistan viðgengust meðal annars vegna þess að bófa- flokkurinn sem þar réð kommún- istaflokknum átti sér vemdara á æðstu stöðum. í vetur var Júri M. Sjúrbanof, tengdasonur Bresnéfs, dæmdur í tólf ára fangelsi fyrir mútuþægni. Meðan hann var að- stoðar innanríkisráðherra þáði hann stórfé í mútur af ræningjalið- inu, sem læst hafði klær í Úsbekist- an, svo það væri ekki áreitt við iðju sína. Tveir saksóknarar, Nikolai Ivan- of og Telmen Gdljan, urðu kunnir fyrir skelegga framgöngu í rann- sókn á spiOingarhreiðrinu í Ús- bekistan. Þeir náðu báöir kjöri í FulltrúadeOd sovétþingsins, og komust í fréttir skömmu áður en þingið hófst, þegar ívanof sagði í sjónvarpsviðtali í Leníngrad, að rannsókn þráða spOlingarmálsins í Moskvu hefði verið tekin af þeim, þegar þar komu upp nöfn Egors Lígaséfs, fulltrúa í stórmálanefnd miðstjómar kommúnistaflokksins og foringja íhaldsaflanna í valda- hópnum, auk tveggja fyrrverandi stjórnmálanefndarmanna og fyrr- um hæstaréttarforseta. í staðinn hefði aðalsaksóknari fyrirskipað rannsókn á rannsóknaraðferðum þeirra. Skýrt hefur verið frá því að Liga- séf hafi borið af sér sakir í yfirlýs- ingu sem hann sendi Forsætis- nefnd Æðsta ráðsins. Við það situr. En það sem er deginum ljósara er að valdhafar á stöðum eins og Aserbajdsan og Úsbekistan efna ekki til þjóðemisofsókna þegar verst gegnir fyrir Gorbatsjof og umbótastefnu hans, nema þeir telji sig eiga einhvern bakhjarl í valda- miðstöðinni í Moskvu sem sjái svo um að þeir verði ekki látnir standa reikningsskap gerða sinna, hvað svo sem verður um hina sem hafö- ir em verkfæri til illverkanna. Andinn í íhaldsliðinu í flokks- fomstunni kom berlega í ljós, þegar fulltrúar þess í Æðsta ráðinu klöppuðu hástöfum fyrir ígor Ród- inof hershöíðingja. Fagnarefnið var að hann þverneitaði úr ræðu- stól þingsins að biðjast afsökunar á að hafa fyrirskipað aðgerðir her- sveita sem leiddu til að tugir óvopn- aðra andófsmanna voru nýlega stungnir til bana með spöðum eða kæfðir með taugagasi á aðaltorgi Tblisi, höfuðborgar Georgíu. ocrroB^ Veröld og bjóða þér lægstu fargjöldin til Austurlanda og Sudur-Ameríku Med sérsamningi \iö British Airways býdur Veröld lægstu farpldin til helstu borga Asíu og Suður- .fcR. 66-270 ..................63.000 1 HOMGfcOMG........^ KR 7o.450 SINGM,°RE...... rr70.A50 74.5oo kr.88.8'° ...;;;.«.6A.ooo C ÁRAOM.... KR. 66.50° 81O0t!AHf8° - w 6,000 gOGO I NáUHiÐ VERALOARRt Tii SUÐUR-^^' Ferö í 56 ^ Austurstræti 17, sími 622200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.