Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1989, Page 44
MÁNpDAGUR 19. JíjNj l989r Andlát Vigfús Jónsson, fyrrverandi oddviti, Garöbæ, Eyrarbakka, andaðist að morgni 16. júní. Sumarliði Eyjólfsson, Hrafnistu, Reykjavík, andaðist í Landakotsspít- ala fostudaginn 16. júní. Jarðarfor Guðmundar Þorsteinsson- ar gullsmiðs, Vífilsgötu 17, fer fram frá Fríkirkjunni í dag, 19. júní, kl. 13.30. Útför Péturs Gauta Péturssonar bónda, Gautlöndum, fer fram frá Skútustaðakirkju þriðjudaginn 20. júní kl. 14. Meiming__________________dv Fríða og dýrið Jarðarfarir Bjarni Rögnvaldsson, Álfaskeiði 78, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum 15. júní sl. Útfór hans verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju fóstudaginn 23. júní kl. 13.30. Runólfur Sveinn Sverrisson, er lést af slysfórum að kvöldi hins 10. júní, verður jarðsunginn frá Neskirkju riðjudaginn 20. júní kl. 13.30. tefanía Sigfúsdóttir frá Bóndastöð- um, Hvannavöllum 2, Akureyri, sem lést föstudaginn 9. júní, verður jarð- sungin frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 19. júní kl. 13.30. Jón Markússon, Laufvangi 16, Hafn- arfirði, verður jarðsunginn frá Víði- staðakirkju þriðjudaginn 20. júní kl. 15". Tilkyimingar Bridgesamband íslands: Bikarkeppnin Núverandi bikarmeistarar, sveit Pólaris, vann öruggan sigur á sveit Sveins Rúnars Eiríkssonar í fyrstu umferð bikarkeppninnar, en leikur- inn fór fram fimmtudagskvöldið 15. júní. Sveit Pólaris hafði 3ja impa for- ystu eftir tuttugu spil, en bætti við um 60 impum í næstu tuttugu spil- um. Sveit Pólaris á heimaleik við sveit Ingvalds Gústafssonar í annarri um- ferð. Sveitir í bikarkeppninni eru beðnar um að gefa upp úrsht hið fyrsta eftir að þau liggja fyrir, svo hægt sé að birta þau og skipuleggja framhaldið. Þakkarávarp Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Snorra Ásgeirssonar rafverktaka, Þinghólsbraut 37, Kópavogi. Þökkum sérstaklega forstjóra og starfsfólki Vífilfells hf. fyrir hlýhug og virðingu við hann. Kristjana Heiðberg Guðmundsdóttir, Björgvin Gylfi Snorrason, Guðfinna Skagfjörð, Ásgeir Valur Snorrason, Hildur Gunnarsdóttir, Karen Lilja og Eva Björk Björgvinsdætur. Edda Jónsdóttir er meðal áræðn- ustu grafíkhstamanna hér um slóð- ir, ófeimin við nýbreytni og til- raunir, jafnt í tækni sem efnisvali. Eftir hana Uggja meðal annars grafík-samkUpp, grafíkverk upp- hleypt með blindraletri og þrívíð grafíkverk, það er grafísk þrykk á sívalningum. Út af fyrir sig kemur því ekki á óvart að Edda skuli nú hlaupa út- undan sér með vatnsUta- og krítar- myndum eins og þeim sem nú eru til sýnis í Nýhöfn við Hafnarstræti (til 21. júní). Löngunin til að losna undan „pressunni“ og kríta Uöugt og án ábyrgðar hlýtur stöku sinnum að sækja á jafnvel bestu grafíklista- menn. Þessar nýju myndir eru frjálsleg- ar stemmur, mest tilbrigði um „Fríðu og dýrið“, það er konuna og erótíska vitund hennar, hverrar fuUtrúar eru ránfuglar eða annars konar flygildi sem gogga í konuna, halla sér að henni, setjast á opin hné hennar eða gaumgæfa hana úr hæfilegri fjarlægð. Baðmyndir Flestar eru þessar myndir unnar í Kjarvalsstofu í París síðastUðinn vetur, sem ef til vill skýrir þau sterku áhrif frá baðmyndum Deg- as, sérstaklega skúlptúrum hans, sem fram koma í nokkrum mynd- um listakonunnar, en þær bera aU- ar samheitið Draumhygð. Jafnframt eru þessar myndir Edda Jónsdóttir: Draumar, vatnslitir, 1988. DV-mynd JAK Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson sennilega þær bestu á sýningunni, ef til viU vegna þess hve vendilega kompóneraðar þær eru. Ég er nefrúlega ekki viss um að hraðteikning eða spuni henti Eddu sérstaklega vel, nema í hráefnisöfl- un, þar sem hæfileikar hennar Uggja fyrst og fremst á huglægu sviði myndUstar, gaumgæfilegri út- setningu á snjöUum hugmyndum. Því get ég ekki neitað því að mér þótti flestar þessara mynda fremur losaralegar og ómarkvissar, ekki síst ef önnur verk hennar eru höfð tU viðmiðunar. Hins vegar efa ég ekki að þær eiga eftir að reynast listakonunni hinn ágætasti hugmyndabanki. -ai Kennarar Kennara vantar til starfa við Vopnafjarðarskóla næsta skólaár. Kennslugreinar: Kennsla yngri barna, mynd- menntakennsla og almenn kennsla. Húsnæðisfríð- indi í boði fyrir réttindakennara. Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 97-31218 eða yfirkennari í síma 97-31108. Skólanefnd Nauðungaruppboð Að kröfu ýmissa lögmanna og fleiri aðila verða haldin uppboð til sölu á eftirtöldu lausafé: Við lögreglustöðina á Hvammstanga þriðjudaginn 20. júní kl. 17.30: Bifreiðir: X-4061, H-2024, H-817, R-15385. Litasjónvörp: Nordmende, Finlux, Orion, 5-6 ára, 20", Nordmende video- tæki, sambyggð hljómflutningstæki, Toshiba, 5-6 ára. Vörubifreið: H-2315, vörubifreið, Benz m/tengivagni. Við lögreglustöðina á Blönduósi föstudaginn 23. júní kl. 15.00: Bifreiðir: R-70508, H-1859, H-3740, H-3116, H-2534, H-2599, H-1942, Ö-5451, H-1541, H-2042. Litasjónvörp: Grundig 22", Sony, Sanyo, Hitachi, Fisher VHS myndbands- tæki. Uppboðsskilmálar eru til sýnis á sýsluskrifstofunni, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, s. 95-24157. Munir seljast í því ástandi sem þeir eru í við upp- boðið. Greiðsla við hamarshögg. Blönduósi, 12. júní 1989, Sýslumaðurinn í Húnavatnssýslu. Aðalfundur Gerplu íþróttafélagið Gerpla í Kópavogi heldur aðalfund sinn 1989 þriðjudaginn 20. júní kl. 20 í húsi félagsins að Skemmuvegi 6. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Stafrænt minn- ingarmark Jean-Pierre Jacquillat á æfingu með Sinfóníuhljómsveit íslands. Jean-Pierre Jacquillat & Sinfóniuhljóm- sveit íslands, Einleikur á klarinett: Einar Jóhannesson W.A. Mozart: Klarinettkonsert i A-dúr, K. 622 César Franck: Sinfónia í d-moll Si & Skifan, 1989, SCD-46 Nýlega gáfu Skífan og Sinfóníu- hljómsveit íslands út geisladisk í minningu Jean-Pierre Jacquillat sem var aðalstjórnandi hljómsveit- arinnar á árunum 1980-86 en lést í bílslysi árið 1986, tveimur mánuð- um eftir að hann stjómaði hljóm- sveitinni á listahátíö. Er þetta fyrsti geisladiskur með leik hljómsveitarinnar sem gefinn er út og ekki seinna vænna fyrir ábyrga aðila að hefja slíka útgáfu. Það er við hæfi að á þessum geisladiski skuli vera tvö verk sem voru Jacquillat kær og vöktu sér- staka hrifningu á tónleikaferð hljómsveitarinnar í Frakklandi árið 1985, Klarínettkonsert Moz- arts, þar sem Einar Jóhannesson leikur einleik, og Sinfónía í d-moll eftir César Franck sem er eina sin- fónía tónskáldsins. Upprunalega átti Jacquillat þátt í undirbúningi þessarar geisla- disksupptöku og var þá áformað að hafa klarínettið í aðalhlutverki og spyrða saman Mozart og nýtt íslenskt verk fyrir klarínett og hljómsveit. Hlýr og skýr Hins vegar tókst ekki að ljúka upptöku nútímaverksins fyrir Geisladiskar Aðalsteinn Ingólfsson dauða Jacquillats og var þá ákveðið að hafa sinfóníu Francks með. Einar Jóhannesson hefur hlotið mikið lof fyrir leik sinn á þessum diski, meðal annars í erlendum blöðum, og ekki að ófyrirsynju. í túlkun sinni hefur hann tileink- að sér tón sem er í senn hlýr og skýr. í umsögn í The Times líkir Hilary Finch Einari við hinn ljóðræna jap- anska píanóleikara Mitsuko Uc- hida sem er vel við hæfi. Sjálfur vil ég hafa minn Mozart enn skarpari í mótun og tærari en hér kemur fram og öllu hraðari í Adagio þætti klarínettkonsertsins. En vitaskuld á rómantísk túlkun Jacquillats fullan rétt á sér. Sinfóníu Francks þekkti ég ekki fyrir og get því lítið um hana sagt á þessu stigi málsins. En mér þótti leikur hljómsveitarinnar í alla staði frískur og átakamikill. Geisladisknum fylgir greinargóð- ur bæklingur með öllum þeim upp- lýsingum sem máli skipta. SjáLFar upptökurnar eru ekki stafrænar nema að einum þriðjungi (AAD) sem rýrir gildi þeirra eilítiö fyrir þá sem vanir eru algjörlega staf- rænum upptökum. Engu að síður er mikill fengur að þessum diski fyrir fíölmennan áheyrendahóp Sinfóníuhljómsveit- arinnar. -ai.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.