Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1989, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1989, Blaðsíða 5
5 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1989. Vidtalið Ánægjulegt verkefni 7 Nafn: Sigríöur Margrét Guðmundsdóttir Aldur:38ára Starf: Aðstoðarleikstjóri „Það er sérstaklega ánægjulegt að spreyta sig á þessu verkefni og fá tækiíæri til aö vinna með svona góðum hópi,“ segir Sigríð- ur Margrét Guðmuudsdóttir sem aöstoðar við leikstjóm Kraftbirt- iugarhljómsins en það leikrit er annað tveggja sem frumsýnd veröa viö opnun Borgarleikhúss- ins i hausi , JÞetta er mitt fyrsta verk í leik- húsi eftir að ég lauk námi og stór- kosfleg reynsla að vinna með svo hæfu fólki undir sijórn Kjartans Ragnarssonar. Ég læri svo mikið af honum og öðrum í sýningunni aö líkja raá starflnu viö fram- haldsnám.“ Áhuginn varað í mörg ár Sigríður segist lengi hafa haft áhuga á leiklist og leikhúsi. .JLeikhússáhuginn hefur lengi blundað með mér - eða alit frá því ég tók þátt í uppfærslu á Spanskflugunni í Kennaraskó- lanura fyrir morgum árum. Hins vegar var enginn leiklistarskóli starfræktur hórlendis á þessum tíraa og ég haföi ekki þor til að hafa samband við SÁL-hópinn. Möguleiki til að gera alvöru úr leiklistaraárai kom upp 1 hend- urnar á mér þegar ég bjó í Kant- araborg á Englandi. Þar er starf- rækt leiklistardeild á háskóla- stigi og tók námið flögur ár.“ Sigríður sagði aö í náminu væru allir þættir leikhússins kynntir nemendum. Fyrstu þijú árin eru mjög almenn en á fjórða ári velja neraendumir ákveðnar greinar og valdi hún leikstjóm, sem að mestu leyti er verkleg. Þar leikstýrði hún Kveðjuskái, sem sýnt var hér á sama tíma, og öðru verki sem íjallar um síðustu sek- úndumar í lífi Marilyn Monroe, auk fleiri verka. Greip tækifærið strax Sigríður kom til starfa hjá Borgarleikhúsinu strax og æfing- ar hófust. Fram að því haföi hún starfaö hjá íslenska myndverinu við undirbúning fræðslueftiis og leyst af í 19:19 á Stöð 2. „Þegar mér bauðst þessi vinna var ég ekki lengi að hugsa mig um og grípa tækifærið. Við byrj- uðum á leit aö dreng i hlutverk Ólafs Kárasonar á unga aldri. Eftir það hefur vinnan faiist í því að létta undir með leikstjóra, sicja æflngarnar og skrá niður fýrir- mæli leikstjórans.“ í flmm ár, frá 1973 til 1978, var Sigríður umsjónarmaður Stund- arinnar okkar. Hún segir fjöl- miðlaáhuga hafa gripiö sig á þeim tíma en leiklistin varð yfirsterk- ari. „Að visu er leiklistin meiri lúx- us í þeim skilningi aö atvinnu- tækifærin eru mun færri en von- andi leggst mér eitthvað til á þessum vettvangi í framtíöinni.“ Sigríöur er gift Svavari Egils- syni hagfræðingi og eiga þau tvo syni; Svavar Orra, 10 ára, og GuðmundKarl,7ára. -JJ Fréttir Borgarráð mótmælir gjaldskrárbreytingu Pósts og síma: Hækkun í Reykjavík 30 til 40 prósent - segir Davíð Oddsson borgarstjóri gjöld meira hjá Reykvfldngum en „Viö höfum áður fylgst meö hækk- unum á undanfomum árum sem hafa meðvitaö komið þyngra niður á Reykvfltingum en öðrum. Því var mótmælt þegar skrefagjaldið var tek- ið upp og þá töldum við okkur hafa loforð fyrir því að skrefagjald yrði ekki notað tfl þess að hækka sím- öðrum. Það virðist hafa brugðist þvi að þessi síðasta hækkun leiðir til þess að raunverulega hækkar síminn um 30 til 40% h)á Reykvfltingum," sagði Davíð Oddsson borgarstjóri en borgarráð hefur samþykkt harkaleg mótmæli gegn þeim gjaldskrárbreyt- ingum sem Póstur og sími kynnti nýlega. Þessar breytingar þýða minni hækkun á langlínusímtölum en öðrum. „Það er ekki nokkur vafi á því að menn eru að leggja vaxandi þunga af símakostnaðinum á Reykvíkinga og aðra þéttbýlisbúa," sagði borgar- stjóri. Davíð sagði að ekki væru frekari aðgerðir framundan en hann sagðist vonast til þess að þetta mál fengi meiri athygh fulltrúa Reykvíkinga á Alþingi. -SMJ Yngstu öku- mennirnir bestir Baldur Daníelssan, DV, Blanduósi: íbúar Blönduóss flölmenntu tfl keppni í Ökuleikni þriðjudaginn 13. júní eins og þeirra var von og vísa. Áhorfendur uröu heldur ekki fyrir vonbrigðum því keppendur rööuðu sér þétt og var keppnin bæði jöfn og spennandi. Nokkuö óvænt sigraði tvítugur ökumaður, Jakob Bjömsson, í karla- riðh, á tíma sem er einn af þeim bestu sem sést hefur, 75 sek. Hann fékk hins vegar of margar villur í braut- inni til að heildarárangurinn væri með þeim bestu yfir landið. Heildarr- efsistigaflöldi var 185. Eingöngu strákar mættu til keppni í nýliðariðlinum og stóðu þeir sig allir hreint frábærlega. í fyrsta sæti var Jón Kristófer Sigmarsson. Hann fékk alls 169 refsistig sem heföi nægt honum til sigurs í karlariðli líka. Böðvar Sveinsson lenti í öðru sæti með 174 stig og Jón Ragnar Gíslason í því þriöja með 191 stig. Þessir ungu ökumenn mega allir vera mjög án- ægðir með árangurinn. í kvennariðh fór Sólveig Zophaniasdóttir með sig- ur af hólmi eftir tvísýna keppni. Reiðhjólakeppnin var ekíti síður spennandi og þurfti bráðabana í tví- gang til að skera úr um annað og þriðja sætið í eldri riðlinum. Sigur- vegari í þeim riðh var Jósef Stefáns- son, í öðru sæti Þorlákur Guðjónsson og í því þriðja Ingimar Einarsson. í riðh 9-11 ára barna sigraði Eysteinn Pétur Lárusson, Jón Guðmann Jak- obsson hreppti annað sætið og Krist- ín Björg Jakobsdóttir það þriðja. Ungu ökumennirnir á Blönduósi stóðu sig vel í ökuleikninni. Þessir hrepptu þrjú efstu sætin. Gamalt hús i fögru umhverfi, Húsmæðraskólinn á Laugum. Fengu húsmæðraskól- ann að Laugum að gjöf Jóhaimes Siguijónsson, DV, Húsavik. Þaö var mfltið um dýröir hjá kon- um í Kvenfélagasambandi Suður- Þingeyinga sunnudaginn 25. júní sl. en þá voru þær með opið hús í gamla Húsmæðraskólanum á Laugum í Reykjadal en húsnæðið fékk sam- bandið að gjöf frá ríkinu, Húsavík- urbæ og sýslunni. Þessi fallega bygging, með sínum tveim burstum, var reist árið 1928 og þar innan veggja hafa hundruð þingeyskra húsmæðra hlotiö upp- fræðslu í heimflishaldi í áranna rás.1 Innan dyra er flest með sama lagi og var á fyrstu árunum, gamlir mun- ir og húsgögn og myndir, m.a. Kjar- valsmálverk, og margt af því ómet- anleg verðmæti. Að sögn Jóhönnu Steingrímsdóttur í Ámesi, formanns sambandsins, verður reynt að nýta þetta húsnæöi eins og frekast er kostur, þannig aö þar verði áfram lifandi starfsemi. Þess má geta að Kvenfélagasam- bandið haföi forgöngu um stofnun Húsmæðraskólans á sínum tíma og byggingu hússins, þannig að segja má að gamli skólinn sé nú aftur kom- inn heim til „móðurhúsanna“, ef svo má að orði komast. BffllDORM 12. juli - Beint flug 1 solma 3ja vikna skemmtilegt sumarfrí á alveg sérstökum kjör- um. Frábær gisting á besta stað á Benidorm. Hú er tækifærið að komast í ódýrt sumarfrí. * Miðað við 2 fullorðna og 2 böm (2-12 ára). FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR sími 621490

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.