Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1989, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1989. Fréttir Sandkom dv Aflatilflutningur innan kvótakerfisins: Þorskur og grálúða skipta höffuðmáli segir Jón Páll HaUdórsson, framkvæmdastjóri Norðurtangans - „Þorsk- og grálúðukvóti skiptir okkur höfuðmáli. Þó að við fáum nú meira af ufsa og karfa þá bætir það ekki upp hrunið í þessum tegund- um,“ sagði Jón Páli Halldórsson, framkvæmdastjóri Norðurtangans. í DV á föstudaginn kom fram aö Utill samdráttur hefur orðið í afla Vestfirðinga á bolfiski frá 1985 þrátt fyrir að þeir hafi haldið fram að þeir hafi komið illa út úr kvótakerfinu. Hins vegar er það rétt að hlutdeild þeirra í þorsk- og grálúðuveiðum hefur dregist saman. Jón Páll sagði þetta verið höfuðat- riðið í gagnrýni Vestfirðinga á kvóta- kerfið. Vestfirðingar yrðu að sækja karfa- og ufsaveiðar langt út fyrir sín heföbundu mið. Þær veiðar væru því ekki eins hagkvæmar fyrir Vestfirð- inga og til dæmis Sunnlendinga og Vestlendinga. Auk þess væru veiðar á loönu og síld nú mun mikilvægari en þær voru fyrir kvótakerfi. Þegar aflanum var skipt á milli landshluta hafi þess- ar veiðar því verið vanmetnar. Þeir landshlutar, sem nytu góðs af þess- um veiðum, heföu því komið betur út úr kvótakerfinu en Vestfirðingar. Sömu sögu væri reyndar að segja um ufsa- og karfaveiðar. Þeir sem gætu siglt með þessar tegundir gætu hagnast af þessum veiðum. Vestfirð- ingar létu hins 'vegar vinna þessar tegundir í landi þótt það væri ekki hagkvæmt til þess að halda uppi at- vinnu. -gse Komið hefur verið upp gámi við Skátaheimiliö á Snorrabraut þar sem tekið er við tómum öl- og gosdósum. Það eru samtökin Þjóðþrif sem aö þessu standa en bakhjarlar þeirra eru skátahreyfingin og þjóðkirkjan. Þarna getur fólk losnað við tómar dósir en Þjóðþrif mun síðan koma þeim til endurvinnslu þegar slík móttaka hefst. Ágóðinn rennur til styrktar skátahreyfingunni og æskulýðsstarfi þjóðkirkjunnar. Þessar ungu stúlkur úr Vinnuskólanum voru þarna í málningarvinnu þegar Ijósmyndara DV bar að. Þær heita, frá vinstri: Helga, Ásta og Áslaug. DV-mynd S Niðurstaða sakadóms HafnarQarðar: Endanlegur dómur í Svefneyjamálinu - málinu verður ekki áfrýjað til Hæstaréttar Grindavík: Ósprungin byssuskot fundustí ruslagámi Þijátíu og qö ósprungin vél- byssuskot ftmdust í ruslagámi í Grindavik síðastliölnn fimmtu- dag. Karlmaöur, sem var aö henda rusli, sá skotin og fór með þau til lögreglu. Skotin eru sams konar og þau vélbyssuskot sem fundust við herstöðina síöastliö- inn vetur. Talið er öruggt að skot- in séu komin frá Varaarliðinu. Ekki er vitaö hvemig skotin komust í gáminn. Einna helst er hallast aö því að einhver, sem hefur fundið þau á víðavangi, hafi komið þeim þar fyrir. Viö frekari leit í gámnum fundust ekki fleiri skot. Ekki þarf aö taka fram að skotin geta verið stór- hættuleg þar sem þau eru óspr- ungin. -sme Vestfiröir: Útgerðarsaga kvikmynduð Sigmján J. SSgurðœom, DV, ísafirft: Kvikmyndafyrirtækið Lifandi myndir hf. í Reykjavik hefur haf- ið gerð heimildarmynda um út- gerðarsögu íslendinga fyrir Landssaraband íslenskra útvegs- manna. Um er aö ræða tvær myndir. Önnur á aö ftalla um nútímafiskveiðar og útgerö en hin er söguleg mynd með leikn- um atriöum frá byxjun útgeröar á íslandi. Koma þar inn í meðal annars dagar árabátanna svo og skútuöldin og fleira. Stór hluti myndarinnar um eldri tlmann verður tekin í ver- búðinni að Ósvör við Bolungar- vík. Það verða leikin atriði sem eiga að gerast að vetrarlagi. Þá hefur fyrírtækið einnig óskað eft- ir aðstoð bæjarsjóðs ísafjaröar við nauðsynlega efiúsdrætti vegna sviðsetningar á hlaði við Neðstakaupstað. Þórarinn Guðnason hjá Lifandi myndum h£ sagði í samtali við biaðið að kvikmyndatökur 1 Ós- vör hefðu staðið til í allan vetur en vegna mikiJla spjóa heföi orðiö að fresta tökum þar til 1 haust í þeim von að sujór yrði minni þá. „Þó svo að þessi atriöi eigi að gerast á vetrarvertíð má nú öllu of]gera,“ sagði Þórarinn og átti þar við hinn mikla snjó sem hefur verið hér vestra í vetur. Samtals tekur sýning á þessum myndum á annan klukkutíma sem er álíka og venjuleg bíómynd og umfang þeirra er líkt og við gerð venjulegrar bíómyndar. Hvorki ríkissaksóknari né hjónin, sem dæmd voru í Svefneyjamálinu, ætla að áfrýja dómi sakadóms Hafn- arfjarðar til Hæstaréttar. Dómur sakadómsins verður því endanlegur dómur í þessu máli. Dómur sakadóms var kveöinn upp í mars síöastliðnum. Baldvin Bjöms- son var dæmdur í ellefu mánaða fangelsi. Þar af eru átta mánuðir skilorðsbundnir. Hálfs mánaöar gæsluvarðhaldsvist kemur til frá- dráttar. Sigrún Gunnarsdóttir var dæmd í átta mánaöa fangelsi. Þar af eru sex skilorðsbundnir. Þau voru dæmd fyrir að hafa átt kynferðismök, önnur en samræði, við unga stúiku - Baldvin tvisvar og Sigrún einu sinni. Þá voru þau dæmd fyrir aö hafa tekið vafasamar nektar- myndir af ungum stúlkum. Það voru myndimar sem urðu til þess að rann- sókn málsins hófst sumarið 1987. Starfsfólki framköflunarfyrirtækis þótti nóg um er það sá myndirnar og gerði lögreglu viðvart. Haustiö 1987 var ákæra gefin út og dómur sakadóms féll, eins og fyrr sagði, í mars síðastliðnum. Við ákvörðun refsingarinnar var tekið tillit til þess að hvorki Baldvin né Sigrún höföu áöur brotið lög og sakavottorð beggja voru hrein. Dóm sakadóms Hafnarfjaröar kvað upp Guðmundur L. Jóhannesson héraðsdómari. -sme Erlendir komniryfir miðjan aldur. Kanamir fóru meðal umsiðustu Ásgrimsson, semerdóms- ferðamenn hafaveriötíðir gestiríVest- mannaeyjumí sumar.Fyrir ekkilöngusíð- anvarþarhóp- urafBanda- ríkjamönnum semallirvoni annars í siglingu í kringum eyjarnar. Ein kvennanna var forvitnari eu aðr- ir samferðamenn hennar. Hún spurði leiðsögumanninn mikið og meðal annars spurði hun hvort ekki væri erfitt aö gefa öllum fuglunum að borða - sérstaklega þeim sem ættu heima efst 1 björgunum. Leiðsögu- maðurinn taldi að konan væri að grinast og svaraöi henni að það væri vissulega eríitt - sérstaklega á sunnudögum þegar fúglamir fengju hamborgara. Eflir þetta svar varð konan mjögundrandi ogstundi upp: „Er það ekki svakalega dýrt. “ rrar Þrírráðherr- arhaialenti vondum mál- malaráðherra, varsagðurhafa brotiðstjómar- skránaerhann vékMagnúsi Thoroddsen úr starfi hæstaréttar- dómara. Ólafur Ragnar Grímsson er sagður hafa brotið jaíhréttisreglu ís- lensks sljómarfars þegar hann mis- munaöi fyrirtækjum við innheimtu- aðgerðimar. Hagvirki, sem er eitt af allra stæstu fyrirtækjum í kjördæmi Ólafs og Steingríms forsætisráð- herra, fékk mun betri og þægilegri lausn en margir aðrir. Þá er það Jón Sigurðsson ríðskiptaráöherra._Hon- um er gefið að sök aö hafa selt Útvegs- bankann langt undir markaðsverði og þess vegna hafi ríkissjóður orðið af verulegum fiárhæðum. I>eir sem mest deila á ráðherrann tejja þetta vera afglöp í starfi. Hér á landi þykir þetta ekki neinum tíðindum sæta en hætt er við að viða erlendis hefðu ráðherrar þurfl að hafa meiri áhyggj- ur af frammistööu sinni en þeir ís- lensku. 120 krónur í söluskatts- aðgerðunum varvíðagengið hartfram. Eig- iindifyrinu-kis iVestmanna- eyjumfékklok- unarmenní heimsókn. Irm- sigla átti fyrir- tækiðvegna vanskila. Viö nánari skoðun kom i Ijós að skuldin var með öflum kosmaði 120 krónur. Atvinnurekandmn var ekki á því að láta innsigla fyrirtækið vegna skuld- arinnar og staögreiddi það sem hann skuldaði. Hann þurfti ekki að fara í banka til að veröa sér úti ura banka- ábyrgö - hann stakk annarri hendi í buxnavasann og reiddi fram þá tjár- hæð sem hann skuldaði. Vandræði með mslið Eigandi verslunari Reykjavíkvarð fyrirverulcg- umóþægindutn í síðustu viku. Þannigvarað fyrirtaskií næstahúsi hafðiveriðinn- siglaðvegna vangoldins söluskatts. Þeir sem innsigluðu höfðu greinilega verið aö flýta sér meira en lítiö. Lokunarmönnunum varö það á aö innsigla einnig dyr aö rusla- geymslu verslunarinnar. Víðkom- andi kaupmaöur, sem hefur alltaf staöið í skilum, gat þvi ekki komið frá sér ruslinu fyrr en hann hafði leitað til lögreglu - sem kom aó vörmu spori og rauf innsiglið. Umsjón: Slgurjón Egilsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.