Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1989, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1989, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR.4. JÚLl 1989. Úflönd LHríkur ferill stjórnmálamanns Andrei Gromyko, fyrrum utanríkisráöherra Sovétrikjanna og forseti, lést á sunnudag. Símamynd Reuter Andrei Andreevich Gromyko gegndi embætti utanríkisráöherra í 28 ár, en aldrei hefur nokkur annar stjómmálamaður samtímans gegnt því embætti lengur. Hann starfaði með öllum leiðtogum Sovétríkjanna, aö Lenin undanskildum, og hitti að máli alla forseta Bandaríkjanna frá valdatíma Roosevelt að telja fram á okkar daga. Hann átti mikinn þátt í mótun utanríkisstefnu Sovétríkj- anna síðari starfsár sín í embætti. Árið 1985, þá 75 ára að aldri, var hann settur í embætti forseta Sovét- ríkjanna og var það lokapunktur langrar og viðburðaríkrar starfsævi. Gromyko lést á sunnudag, nær átt- ræður. Dánarorsök er ekki kunn en líkur benda til að hann hafi látist af völdum hjartaáfalls. Diplómat fyrst og fremst | Andrei Gromyko var fyrst og i fremst diplómat. Hann vék aldrei af þeirri línu er sovésk stjómvöld settu þegnum sínum og tryggði sér því áframhaldandi setu á valdastóli á meðan pólitískir keppinautar hans féllu í valinn. Hann var án efa meðál fremstu sérfræðinga Sovétríkjanna í sam- skiptum austurs og vesturs, á fyrstu dögum kalda stríðsins, tímabili slök- unar á áttunda áratugnum og á fyrstu ámm níunda áratugarins þeg- ar aukinnar spennu gætti í samskipt- unum. Hann hafði á aö skipa mikilli reynslu í samskiptum þjóða á milii og hikaöi ekki við að ræða við starfs- félaga sína eða fréttamenn á Vestur- , löndum. Hann var talinn kjamyrtur í máli og var um sig en jafhframt . húmoristi og beitti gjaman beittu háði þegar færi gafst. Gromyko átti mikinn þátt í að móta Evrópu eftirstriðsáranna og tók þátt í öllum helstu ráðstefnum er lögðu stefnu meginlandsins, í Potsdam, ' Yalta og Teheran. Hann átti virkan þátt í að semja stofnskrá Sameinuðu þjóðanna og var fyrsti fastafulltrúi Sovétríkjanna hjá samtökunum á dögum kalda stríðsins. Þar fékk hann viðumefnið Mr. Nyet, eða Herra Nei, eftir að hafa beitt neitunarvaldi 25 sinnum í öryggisráöinu á sjötta áratugnum. Það var ekki fyrr en Nikita Krústsjov komst til valda í Sovétrikjunum aö Gromyko tók við embætti utanríkis- ráöherra. Hér sjást Gromyko og Krústsjov á mynd frá árinu 1960. Símamynd Reuter Viöburðarik starfsævi Gromyko fæddist í þorpinu Gro- myki, skammt frá borginni Minsk, 18. júlí árið 1909. Hann gekk til liðs við Kommúnistaflokkinn ungur að árum, aðeins tuttugu og tveggja ára. Fljótlega eftir nám í stjómmála- og hagfræði lagði hann alla áherslu á stjómmálin og átti eftir að eiga við- burðaríka starfsvævi á þeim vett- vangi. Þegar Gromyko var þrítugur út- nefndi Vyacheslev Molotov, þáver- andi utanríkisráðherra og sá maður er líklega setti hvað mestan svip á afstöðu Gromykos til alþjóðasam- skipta, hann til formannsembættis Bandaríkjadeildar utanríkisráðu- neytisins. Síðar starfaði Gromyko sem sendiherra Sovétríkjanna í Bandaríkjunum, Bretiandi og hjá Sameinuðu þjóðunum. Svo virðist sem Gromyko hafi fyrst á síöari hluta ferils síns í embætti utanríkisráðherra átt þátt í mótun og uppbyggingu utanríkisstefnu þjóðarinnar auk þess að hrinda stefnu hennar í framkvæmd. Hann var varautanríkisráðherra á valda- tímabili Staiíns og það var ekki fyrr en árið 1957, þegar Nikita Krústsjov rak Molotov, að hann tók við emb- ætti utanríkisráðherra. Við valdatöku Leonids Brezhnevs sat Gromyko sem fastast í embætti utanríkisráðherra. Hann hóf þolin- móður að byggja upp eigin valdaferil sem áríð 1973 náði hápunkti er hann var gerður að fullgfidum félaga í stjómmálaráðinu. Gromyko lagði rækt við kunnings- skap sinn viö Dimitri Ustinov sem tók við embætti vamarmálaráðherra árið 1976. Vestrænir fréttaskýrendur telja að þessi kunningsskapur hafi átt þátt í að tryggja útnefningu Júrí Andropovs í embætti formanns Kommúnistaflokksins í kjölfar láts Brezhnevs árið 1982. Þá er tahð að vinátta Ustinovs og Gromykos hafi einnig átt þátt í útnefningu Konstant- íns Tsjemenkos sem arftaka An- . dropovs er hann féll frá áriö 1984. Á meðan á valdatíma Andropovs stóð hafði Gromyko töglin og hagld- imar í mótun og framkvæmd utan- ríkisstefnu Sovétstjómarinnar til margra mála, s.s. afvopnunarvið- rseðna við Bandaríkjastjóm. í kjölfar hinnar stuttu starfsævi Konstantíns Tsjemenkos sem for- manns sovéska kommúnistaflokks- ins léði Gromyko ungrnn stjóm- máiamanni, Mikhaii Gorbatsjov, stuöning sinn í baráttunni á topp valdastigans innan flokksins. Gro- myko lagöi til að Gorbatsjov, sem þá var tiltöluiega óþekktur, tæki viö stjómartaumum flokksins. Niður- staðan er kunn, Gorbatsjov er nú valdamesti maður Sovétríkjanna. Gromyko víkur Þegar Gorbatsjov afréð að axla sjálfur ábyrgð forsetaembættisins var Gromyko látinn víkja. Þá missti hann einnig sæti sitt í stjómmálaráð- inu og í apríl síðastiiðnum var hann látinn víkja úr miðstjóm flokksins. Ljóst er að Gromyko var látinn draga sig í hlé í áfóngum. Þykir það sýna þá virðingu er borin var fyrir stjómmálaferli hans sem og þvi mik- fivæga hlutverki er hann átti í valda- töku Gorbatsjovs. Gromyko verður borinn tfi grafar á morgun, miðvikudag. Hann verður grafinn í kirkjugarði fyrrum klaust- urs í Moskvu, ekki Kremlarmúr eins og margir bjuggust við. Gorbatsjov, sem er í heimsókn í Frakklandi, verður ekki viðstaddur útforina. Gromyko lætur eftir sig eiginkonu og tvö böm. Reuter KAUPMEm ATHUQIÐ! HAFIÐ ÞIÐ OPIÐ Á LAUGARDÖGUM í SUMAR? HELQARMARKAÐUR DV verður birtur á fimmtudögum í sumar. í HELQARMAKAÐI DV eru upplýsingar um afgreiðslutima verslana á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum, sértilboð og annað það sem kaupmenn þurfa að koma á ffamfæri. Þeir aðilar, sem áhuga hafa á að auglýsa í HELGARMARKAÐI, vinsamlega hafi sam- .band við auglýsingadeild DV fyrir kl. 16 á þriðjudögum. AUQLÝSIHQADEILD Sími 27022 Grunaðir um Gizur Helgaaosv DV. Reeisnæs: Ákæmvaldiö í Múnchen hefur nú hafið forrannsókn á meintum fiárdrátti hjá Franz Schönhuber, hinum mjög svo umtalaöa for- manni flokks repúblikana, sem er yzt á hægri væng v-þýskra stjóm- mála. Máliö snýst um 300 þúsund þýsk mörk sem Schönhuber hefur sjálf- ur haft umráð yfir en upphæð þessi er hluti af 1,3 milljónum v-þýskra marka sem flokkurinn fékk frá hinu opinbera eftir þingkosning- amar 1987. Þá fengu repúblikanar 1,3 prósent atkvæða. Það dugöi þeim ekki til þess að þeir kæmu manni á þing en varð þó nægjan- legt til þess að hiö opinbera bætti flokknum upp útgjöldin við kosn- ingamar. Ein milljón þýskra marka fór til að greiöa skuldir fiokksins. Af- gangurinn var settur í fbrsjá for- mannsins án þess að hann þyrfti síöar aö standa skil á upphæöinni. MáMð er til komið vegna kæm frá nafnlausum aðila til lögregluyfir- valda. Hún var send inn síðastlið- þar sem fjallað var um áðumefnd atriði Schönhuber segir málið vera stjómmálalegar ofsóknir. Við kosningarnar til Evrópu- þingsins i júni fékk flokkurinn 14,6 prósent af atkvæðunum í Bæjaral- andi, aðallega frá CSU, systurflokki kristilegra demókrata, en þeir hafa farið með öll völd í Bæjaralandi síðan í síöari heimsstyrjöldinni. Schönhuber og fimm aörir flokksbræöur hans vora valdir á EvrópuþingiÖ. Innanríkisráðherra Bæjaralands lýsti þvi yfir í hita kosningabaráttunnar að hann hefði beðið sljómmálalögregluna í Stofnuninni til vemdar sambands- sljómarskránni að athuga stjóm- málaiegt réttmæti repúblikananna með stjómarskrána í huga. Hér var um beina hótun að ræða um bann við flokknum. Það bar þó ekki til- ætlaðan árangur. CSU missti meirihlutann og fékk aðeins 45,6 atkvæða í kosningunum i júní og nú óttast kristilegir demó- kratar frekara tap til repúblikana við sveitar- og fýlkiskosningarnar til sambandsþingsins í Bonn á næsta ári. inn miövikudag eftir sjónvarpsþátt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.