Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1989, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1989, Síða 17
16 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1989. ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLl 1989. 17 Iþróttir íþróttir Luca Kostic valinn DV- leikmaður júnímánaðar - Sigurður Lárusson besti þjálfarinn og Ólafur Lárusson besti dómarinn Luca Kostic, júgóslav- neski vamarmaöurinn í liði Þórs á Akureyri, hef- ur veriö útnefndur „DV-leikmaður júnímánaöar" í 1. deildinni í knattspyrnu af íþrótta- fréttamönnum DV. Luca Kostic er þrítugur aö aldri og kom til Þórsara í vetur en hann hefur leikiö sem atvinnumaður í heimalandi sínu, síðast með Osijek í 1. deild. Kostic hefur verið kjöl- festan í liði Þórsara það sem af er íslandsmótinu, bundið vöm þeirra saman og stjómað leik liðsins. Kostic er eini leikmaður 1. deild- ar sem fékk góðar umsagnir í DV fyrir alla fjóra leiki sína í júnímán- uði. Hann var tvívegis valinn „maður leiksins", í leikjum Þórs við KA og FH, og lék einnig vel gegn Keflavík og Fram. Sigurður Lárusson þjálfari júnímánaðar Sigurður Lámsson, þjálfari Akumesinga, er „DV-þjálfari júnímánað- ar“. Hann er 35 ára gam- • Sigurður Lárusson, ÍA, er DV- þjálfari júnimánaðar. all og á að baki 17 ára feril í knatt- spyrnunni, nær óslitinn í 1. deild, en þar lék hann fyrst með Akur- eyringum árið 1971 og síðast með Akumesingum á síðasta sumri. Hann hefur nú lagt skóna á hilluna og einbeitir sér að þjálfun liðsins, en hann hafði hana einnig með höndum á síðasta ári. Skagamenn byijuðu júnímánuð ekki vel. Þeir töpuðu fyrir Víking- mn í þriðju umferð, 0-2, og sátu þá í neðsta sæti deildarinnar um tíma. En síðan unnu þeir þrjá leiki í röð, Fylki 1-0 í Árbænum og skor- uðu þar sigurmarkið manni færri, KA 2-0 á Akranesi og loks ÍBK 3-1 í Keflavík. Að þessum leikjum loknum var lið ÍA komið afla leið uppí 2. sætið. Þjálfarar á Akranesi hafa löng- um haft orð á sér fyrir að gefa ungum leikmönnum tækifæri og Sigurður er ekki undantekning á því. Hann hefur tekið komunga pilta inn í lið sitt í ár, fyrst hinn 17 ára gamla Bjarka Pétursson og síðan tvíburana Amar og Bjarka Gunnlaugssyni, sem em aðeins 16 • Ólafur Lárusson, KR, er DV- dómari júnímánaðar. • Luca Kostic, varnarmaðurinn öflugi úr Þór, er DV-leikmaður júnímánaö ar -jafnbesti leikmaður 1. deildar í 3. til 6. umferð. DV-mynd Gylf ára en stóðu sig frábærlega í sín- um fyrsta 1. deildar leik í Keflavík. Olafur Lárusson dómari júnímánaðar Ólafur Lámsson úr KR er „DV-dómari júnímán- aðar“. Ólafur hefur dæmt í 1. deildinni nokk- ur undanfarin ár en á ámm áður lék hann sjálfur með KR og varð markahæsti leikmaður 1. deildar árið 1968, ásamt tveimur öðrum. Ólafur dæmdi þijá leiki í 1. deild í júnímánuði og stóð sig vel. Það vom Þór-KA á Akureyri, Valur- Víkingur á Hlíðarenda og ÍBK-ÍA í Keflavík. Fyrir leik Vals og Vík- ings fékk hann þrjár stjörnur í DV, hæstu einkunn, og var eini dómar- inn sem hlaut hana í júní. Hann fékk tvær sljömur fyrir hvorn hinna leikjanna. Þrír halda sætinu í DV-liðinu DV-lið júnímánaðar hef- ur- verið valið sam- kvæmt frammistöðu leikmanna í 3., 4., 5. og 6. umferð 1. deildar. Þrír sem vom valdir í DV-liðið í mai halda sætum sínum, KA-mennirnir Þorvaldur Örlygsson og Antony Karl Greg- ory og Víkingurinn Goran Micic. Liðið skipa þeir tíu leikmenn sem eru á litlu myndunum og sá efleftí. er að sjálfsögðu DV-leikmaður júnímánaðar, Luca Kostic. Guðm. Hilmarsson Pétur Amþórsson FH (1) Fram (1) Rúnar Kristinsson Hilmar Sighvatss. KR (1) Fylki (1) Þorvaldur öriygs. Halldór Áskelsson KA (2) Val (1) Antony K. Gregory Goran Micic KA (2) Vikingi (2) Bjöm Rafnsson KR (1) „Við Þórsarar getum betur“ - segir Luca Kostic, leikmaður júnímánaðar Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii „Ég er ekki ánægður með leiki Þórsliðsins í síðasta mánuði, við get- um betur," segir Júgóslavinn Luca Kostic, leikmaður júnímánaöar hjá DV. Kostic hefur verið yfirburðamaður í liði Þórs í leikjum liðsins og væri Þórsliðið í enn meiri vanda en ella af hans nyti ekki viö. Hann er ákaf- lega traustur leikmaður og mikill „stoppari". „Við Þórsarar höfum gert mistök í leikjum okkar og verið refsað fyrir það. Liðið leikur alls ekki nógu vel sem liðsheild.“ - En fellur Þór í 2. deild? „Nei, alls ekki. Við eigum eítír að leika við þau lið sem ég tel sterkust í dag, eins og KR, Val, Fram og Akra- nes, og við eigum vonandi m.a. eftir að sýna það gegn þessum liðum að við getum meira en við höfum sýnt og við getum velgt þessum liðum undir uggum með toppleik,“ sagði Kostíc og vildi nota tækifærið og þakka fyrir þessa útnefningu DV. • Sigfried Held, landsliðsþjálfari íslands, kann að vera á förum til Tyrklands. Sam- kvæmt heimildum DV hefur hann fengið til- boð um að þjáffa tyrkneska stórliðið Galatas- aray. Sigi Held er væntaniegur til íslands : dag og hefur farið fram á fund með Ellert B. Schram, formanni Knattspyrnusambands íslands. Líkur eru á að af þeim fundi verði strax i dag. miklar flkur á því aö hann taki að sér þjálfun tyrkneska liðsins Galatasaray í haust Miklar líkur eru á því að Vestur-Þjóð- yerjinn Sigfried Held, landsliðsþjálfari Islands í knattspyrnu, hætti með ís- lenska landsliðið í haust. Samkvæmt upplýsingum, sem DV fékk frá Tyrklandi og Þýskalandi, hafa borist fyrirspurnir til íslands þess efnis hvort Held fáist laus frá íslenska landsliðinu mjög fljótlega. Samkvæmt heimild- um DV hefur Held fengið tilboð um að gerast þjálfari hjá tyrkneska liðinu Galatasaray, sem er eitt besta felagslið Evrópu 1 dag. Sigfried Held er væntanlegur tíl landsins í dag og samkvæmt heimfld- um DV hefur hannfarið fram á fund með formanni KSÍ í skyndi og er reiknað með að fundur þeirra Helds og Ellerts B. Schram verði í dag. Galatasaray er þekkt lið í Tyrk- landi og hefur gert garðinn frægan þar í landi um áratugaskeið. Liðið hefur 7 sinnum orðiö tyrk- neskur meistari, síðast árið 1987, og unnið bikarinn 8 sinnum, síðast árið 1985. Talið er aö Vestur-Þjóðveijinn Jupp Derwall, sem gerði Galatasaray síðast að meisturum, hafi á marga vegu mótað það lið sem fór sigurfór um Evrópu á síðasta tímabifl. Derwall var um langt skeið æðst- ráðandi maður hjá v-þýska landslið- inu og vann það marga frækna sigra undir hans stjórn. Fyrir skömmu tók Mustafa Denizfl, fyrrum landsliðsþjálfari Tyrkja, við stjórnvelinum af Derwall og kom Galatasaray í undanúrslit í Evrópu- keppni meistaraliða. Liöið beið þar lægri hlut fyrir Steaua Búkarest. í Evrópukeppninni vann liöið mörg afrek, sló meðal annars svissneska flðiö Neuchatel Xamax úr leik og hið stjömum prýdda lið Mónákó í kjöl- farið. Þess má geta að Tanju Colak, mestí markahrókur Evrópu, leikur með flöinu. Mörg félagsflð hafa borið víumar í þann leikmann í kjölfar afreka hans í fyrra og nú á nýflðnum vetri. Hann geröi 39 mörk í fyrra og varð þá markakóngur Evrópu. Heimavöllur Galatasaray, Afl Sami Yen, er í Miklagarði og tekur hann um 35 þúsund áhorfendur. -SK/JÖG/JKS Sigfried Held hefur óskað eftir fundi með formanni KSÍ í dag: Kuwaitmenn skrópuðu - og íslenska hðið átti náðugan dag á NM u-18 ára í handknattleik Islenska drengjalandsliðið í handknattleik áttí náðugan dag þegar það átti að mæta Kuwait í síð- asta leik undankeppninnar á opna Norðurlandamót- inu. Kuwait mættí of seint til leiks og var íslending- um því dæmdur sigur. Báru þeir þar af leiðandi sig- ur úr býtum í sínum riðli með fullt hús stiga. Auk íslendinga tryggði Danmörk, Svíþjóð, Noreg- ur, Finnland og Tékkóslóvakía sér rétt tfl þess að leika um sex efstu sætin. Liðunum er skipt í tvo þriggja flða riðla og lenti ísland í riðfl með Svíþjóð og Tékkóslóvakíu en í hinum riðflnum eru Dan- mörk, Finnland og Noregur. Efstu lið hvors riðils leika síðan til úrsflta um Norðurlandatitilinn. Alsír, Kuwait, Eistland, Belgía, Pólland og Skotland leika um sex neðstu sætin. Að sögn Lárusar H. Lárussonar, fararstjóra is- lenska liðsins, var leikur íslendinga gegn Noregi einn sá besti sem hann hefði séð íslenskt ungflngalands- lið leika og hefði sóknarleikur liðsins verið óað- finnanlegur í fyrri hálfleik. Sagði hann að mikill áhugi væri á keppninni og væri húsfyllir á flestum leikjum hennar. íslendingar mæta Svíþjóð og Tékkóslóvakíu í dag og ræðst þá um hvaða sæti þeir leika í keppninni en á fostudaginn fara úrsfltaleikirnir fram. -HR/BS • Gunnar Andr- ésson, fyrirliði is- lenska liðsins. HSÞ-b vann Þrír leikir voru í D-riðfl 4. deildar í gærkvöldi. HSÞ-b vann Eflingu, 4-2, og gerðu Þórarinn Jónsson og Svav- ar Viðarsson mörk Efflngar en Stef- án Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir HSÞ-b og Viðar Sigurjónsson og Hinrik Bóason eitt hvor. Neistinn og TBA gerðu 2-2 jafntefji á Hofsósi. Oddur Jónsson skoraði bæði mörk heimamanna en þeir Friðjón Jónsson og Sigurpáll Aðal- steinsson gerðu mörk TBA. Þá sigraði UMSE-b flð Æskunnar, 3-2. -RR/KH MANCHESTER UNITED FC • Saga Manchester United er saga frægasta knattspyrnuliös í heiminum. • „101 Great Goals“ er sneisafull • Saga Liverpool er saga sigra af glæsimörkum í 65 mínútur. og aftur sigra. Sýningartimi er 90 mínútur. • Bob Wilson segir Sögu Arsenal 1886-1986 á mjög skemmtilegu myndbandi. • John Garner, landsliðsþjálfari íslands, er meðal kennara í „Leiktu betra golf“. Myndbönd fyrir íþróttafólk - Út eru komin myndbönd um Arsenal, Manchester United, Liverpool, markasúpu og golf Knattspyrnuunnendur geta glaðst þessa dagana því að nú streyma íþróttamyndbönd á markaðinn hér á Islandi. Það er fyrirtækið Bergvík sem gefur spólumar út en þær koma frá BBC. Fimm spólur eru þegar komnar á markaðinn, eru fjórar þeirra með efni úr ensku knattspyrnunni en að auki er frábær kennslumynd í golfi. • Saga Englandsmeistara Arsenal, sem nú heldur upp á aldarafmæli sitt, er mjög skemmtileg spóla sem allir Arsenal-aðdáendur ættu aö geta skemmt sér yfir. Það er hinn góðkunni markvörður Arsenal, Bob Wilson, sem er þulur í myndinni en hún er fram- leidd af þeim Mark Scofield og John Ravflnson. Sýningartími er 90 mínút- ur. • Önnur spólan er saga Liverpool, liðsins sem notið hefur mestrar vel- gengni í breskri knattspymu. Marga eftirminnilegustu sigra Liverpool er að finna í myndinni en handrit er skrif- að af John Matson. íslenskt tal og texti er í höndum Bjarna Felixsonar og sýn- ingartími er 90 mínútur. • Saga Manchester United er saga frægasta knattspymuliðs í heiminum í dag. Liðið á fjölda aðdáenda hér á landi og í myndinni er á skemmtilegan hátt rakin saga félagsins. Bjami Felix- son sér um tal og texta. • Fjórða knattspyrnuspólan sem komin er út hjá Bergvík er „101 frá- bært mark“ og er sannkölluð marka- súpa. 65 mínútur af viðstöðulausri spennu og sýnt er frá mörgum söguleg- um leikjum úr ensku knattspymunni, Evrópukeppninni og heimsmeistara- keppninni. Þýðandi og þulur er Bjami Felixson. • Fimmta myndbandsspólan er kennslumynd í gofli þar sem margir þekktustu og bestu golfkennarar heims taka lærlinga í kennslustund. Myndin er 116 mínútur að lengd og sneisafull af fróðleik fyrir kylfmga, byijendur sem aðra. • Golfmyndin kostar 2.980 krónur en knattspymumyndimar 2.680 krón- ur hver. Myndirnar er aðeins hægt að kaupa hjá Bergvík í Reykjavík. -SK SPORTKORN I.............1 Dómarinn með lögguna á hæf unum Kyndugt atvik átti sér stað á Austur- landi fyrir skömmu þegar knatt- spymu- dómari á leiö milli staða þar eystra til að dæma 4. deildar leik var kominn með lögregluna á hælana á miðri leið. Honum tókst að stinga laganna verði af og þegar hann var kominn í námunda við keppnis- staðinn fékk dómarinn annan línuvörðinn til að fara með bifreið- ina að vallarsvæðinu og fela hana þar. Þetta gekk vel og leikmenn og áhorfendur uröu ekki varir við neitt óeðlilegt. Rautaði aff og var handtekinn Síðan hófst leik- urinn og fer ekki sögum af frammi- stöðu dóm- arans inn- an vallar. En menn veittu því eftirtekt að lögreglan sýndi leiknum óvenjumikinn áhuga og var á staðnum með menn og bíla þótt ekki væri sérstakt út- Ut fyrir miklar óeiröir áhorfenda eða slagsmál leikmanna. Loks flautaði dómarinn til leiksloka og gekk af velli en beint í flas lögregl- unnar sem handtók hann á staðn- um og gerði síðan bifreiðina upp- tæka. Félögum hans þótti miður að hann kæmist ekki akandi til baka heim til sín, umtalsverða vegalengd. Vinurinn hló þá bara og sagði: „Það gerir nú ekki mikið til, ég er hvort eð er próflaus!" Verðunt að seffja mann á hann Það gerð- ist í 4. deild- ar leik í knatt- spyrnu á gervigras- inu í Laug- ardal fyrir skömmu að einn leikmaður úr Augnabliki í Kópavogi fékk slæma byltu og skall á höfuöið. Hann vankaðist nokkuð og var til að byija með alls ekki viss um hvar hann væri staddur. Vigni Baldurssyni, þeim gamalkunna knattspymumanni, sem nú leikur með Augnabliki, varð ekki orða vant frekar en venjulega og kallaði: „Strákar, við verðum að setja mann á hann til að byrja með svo hann fari ekki að skora sjálfsmark!" Marteinn í hjólastólnum Marteinn Geirsson, þjálfari 1. deildar liðs Fylkis, varð fyrir því ó- láni að meiðast illa á fæti fyrir skömmu, rétt fyrir mikilvægan leik gegn KA. Hann þurfti að fara beint á skurðarborðið í aðgerð daginn fyrir leik og hún tók eina fjóra tíma. Venjulega þurfa menn að hafa hægt um sig eftir slíkt en Marteinn tók það ekki í mál. Hann mætti til leiks í hjólastól og stjóm- aði Fylkisliðinu úr honum og hafði síðan bifreið til taks til að flytja sig frá vellinum til búningsherbergja í hálfleik og eftir leik. Fylkir vann leikinn og nú er spurning hvort hjólastóllinn góði verður ekki allt- af hafður við höndina það sem eft- ir er sumars. Umsjón: Víðir Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.