Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1989, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989. Fréttir__________________________________________________________________________dv Seljendur ráða markaði á kvóta: Verðið gæti farið allt upp í 40 krónur kflóið - þegar líða fer á árið Þar sem margir útgerðarmenn eru nú komnir langt með kvóta sinn eða jafnvel búnir með hann getur svo farið að verð á kvóta fari allt upp í 30 til 40 krónur er líða tekur á árið. Þetta var mat útgerðarmanna sem DV ræddi við. Ástæðan fyrir þessu svimandi verði er aö ef útgerðar- menn fara fram yfir kvóta sinn gerir sjávarútvegsráðuneytið umframaf- lann upptækan. Útgerðarmenn geta því staðið frammi fyrir því að greiða um 30 til 40 krónur fyrir kvóta sem þeir hafa þegar veitt eða greitt 40 til 50 krónur til ráðuneytisins í sektir. Gangverð á kvóta er nú um 15 til 20 krónur. Seljendur kvóta hafa þó sett upp allt að 25 krónur fyrir hann en svo dýr kvóti hefur ekki selst í miklu magni. „Þetta er seljendamarkaður," sagði Sveinn Ingólfsson, útgerðarstjóri Skagstrendings á Skagaströnd. Skagstrendingur auglýsir reglu- lega í blöðunum á miðviku- og sunnudögum eftir kvóta. Það sem af er þessu ári hefur hann keypt um 1.000 tonn. Að sögn Sveins er stefnt að því að kaupa um 1.000 tonn til viðbótar en í fyrra keypti fyrirtækið um 2.000 tonn. Skagstrendingur hefur ekki borgað meira en um 15 krónur fyrir kílóið að meðaltali. Þeir sem hafa svarað auglýsingum blaðsins hafa þó boðið kvótann hærra verði og þá sérstak- lega eftir að hða tók á árið. Fyrirtæk- ið hefur einnig keypt báta með kvóta og greitt um 50 krónur fyrir kílóið af kvótanum með þeim hætti. Þó minna framboð sé á kvóta nú en í fyrra er ekki minna um tilflutn- ing á kvóta milli skipa að sögn Árna Kolbeinssonar, ráðuneytisstjóra sjávarútvegsráðuneytisins. Hann sagði að í ár væri meira um tilflutn- ing á kvótamilli báta sömu útgerðar en undanfarin ár. „Menn reyna enn að ná aflanum með sem minnstum tilkostnaöi," sagði Árni. -gse Úthlutun á félagslegum íbúöum: Verður að breyta lögum um Húsnæðisstofnun - segir Sighvatur Björgvinsson, formaöur fjárveitinganefndar „Samkvæmt niöurstöðu félags- málaráðherra þá er stjórn Húsnæðis- stofnunar sá aðili sem endanlega úrskurðar um þetta mál. Það virðist því ekki vera á valdi ráðherra né Alþingis að breyta henrd. Þá er bara að breyta lögum um Húsnæöisstofn- un,“ sagði Sighvatur Björgvinsson, formaður fjárveitinganefndar Al- þingis, en þingflokkur Alþýðuílokks- ins kom saman í gærkvöldi og ræddi nýlega úthlutun Húsnæðisstofnunar á félagslegum íbúðum. Sighvatur sagði að hann hefði fengið ótvírætt svar um það á fundinum að ráðherra hefði ekki stjórnskipulegt vald yfir Húsnæðisstofnun. Á morgun mun síðan fjárveitinga- nefnd Alþingis koma saman að kröfu Sighvats og ræða þessa úthlutun. Sagði Sighvatur að nefndin hefði enn ekki fjallað um það viðbótarfjármagn sem ríkisstjórnin hefði samþykkt að verja til félagslegra bygginga. Mun það vera fjármagn sem svarar 300 milljónum af þeim 2500 milljónum sem úthlutað var. „Við erum síður en svo að krefjast þess að húsnæði sé byggt í gríð og erg á stöðum þar sem engin þörf er fyrir það. Það eru ólíkar aðstæður á milli byggða á landsbyggðinni. Sums staðar er offramboð á íbúðarhúsnæði en annars staðar er mjög brýn þörf. Þá verður að taka tillit til þess að þetta eru einu íbúðirnar sem eru byggðar á landsbyggðinni,“ sagði Sighvatur. -SMJ Akureyri: Sameining POB og Dagsprents Gylfi Kiisíánsson, DV, Akureyii Aö undanfömu hafa farið fram viðræður á milli Dagsprents á Ak- ureyri og Prentverks Odds Björns- sonar um sameiningu fyrirtækj- anna en þetta eru tvær stærstu prentsmiðjur bæjarins. „Það er lítið um málið að segja á þessu stigi enda má segja aö viö- ræðumar séu á byrjunarstigi,“ sagði Gunnar Þórsson hjá Prent- verki Odds Bjömssonar er DV bar þetta mál undir hann. „Þaö á aö braut verði selt. Sömu heimildir halda þessum viðræðum áfram, DV segja að komi til sameiningar enda áhugi á þvi hjá báðum aöilum, muni talsveröum fjölda starfsfólks en viðræðumar em það skammt á fyrirtækjanna verða sagt upp. veg komnar að það er ómögulegt Prentverk Odds Bjömssonar er aö segja til um hvemig málin muni rótgróið fyrirtæki í prentiðnaði. þróast,“ sagöi Gunnar. Dagsprent er mun yngra fyrirtæki Samkvæmt öðrum heimildum sem uþphaflega var stofnað fyrst DV mun áformað að ef af samein- og fremst til að annast prentun á .ingu fyrirtækjanna verður muni Degi og er að mestu í eigu Kaup- hið nýja fyrirtæki starfa í húsa- félags Eyfiröinga, Kafíibrennslu kynnum Dagsprents við Strand- Akureyrar og fleiri fyrirtæKja. götu en húsnæöi POB við Tryggva- Steingrímur er óþarflega neikvæður „Steingrímur sagði það alveg satt að það er ekki hægt að ráðast í svona verkefni nema að um þaö sé sæmi- lega góð samstaða, bæði innan stjómarandstöðu og stjórnar. Hitt fannst mér hins vegar óþarfi hjá hon- um að vera meö pínulítið neikvæðan tón út í verkið," sagði Skúli Alexand- ersson, þingmaður Alþýðubanda- lagsins í Vesturlandskjördæmi, um viðbrögð samgönguráðherra út af jarðgöngum undir Hvalfjörð. Skúh, sem hefur látið vegamál kjördæmisins mikið til sín taka, sagði að hér byðist athyglisvert og einstakt tækifæri. Skúli sagðist taka mjög undir tillögur og hugmyndir Járnblendifélagsins og Sements- verksmiðju ríkisins um framkvæmd jarðganganna. Skúli sat reyndar í stjórn Sementsverksmiðjunnar þeg- ar málið barst þangað inn. „Mér sýnist hugmyndir þeirra verksmiðjumanna, eftir því sem lagt hefur verið fyrir okkur, vera bæði áhugaverðar og raunhæfar, fljótt á htið,“ sagði Skúli. Hann bætti því við aö verkefniö væri svo stórkostlegt að vissulega þyrfti að gera ítarlegar rannsóknir áöur en í það verður ráð- ist. Þá væri líklega nauðsynlegt að hafa það fyrir utan vegaáætlun Al- þingis ef af því verður þannig að verkið komi ekki niður á öðrum vegaframkvæmdum. -SMJ Frá samkomu Lester Sumrills í Menntaskólanum í Hamrahlíð í gærkvöldi. Fremst til vinstri er fylgdarlið prédikarans. DV-mynd JAK Bandarískur sjónvarpsprédikari með samkomu: lllur andi brottrekinn og endurfæðing í guði „Það er kannski of mikið sagt að ég hafi ekki tekið mér hvíld á þessum 30 ára tíma. Við byrjuðum að prédika 1930 og höfum verið að meira og minna síðan,“ sagði Lester. Sumrhl, 76 ára gamall bandarískur sjón- varpsprédikari, við DV í gær. Sumrih kom til landsins í gær með einkaþotu sinni, Engli 4. Með í fór- inni voru þrjár aðstoðarkonur préd- ikarans. I gærkvöldi var Lester Sumrill með samkomu í hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíö fyrir mihigöngu Orðs lífsins. Var töluvert af fólki mætt til að heyra og sjá þenn- an ötula prédikara, sem að sögn tek- ur aldrei frí frá starfi sínu. í byrjun samkomunnar gat fólk keypt bækur og snældur með prédik- aranum. Þá hóf hann upp raust sína og sagði frá trúarupplifunum sínum og kraftaverkum sem hann sagðist hafa framkvæmt. Þar á meðal sagði hann frá komungri vændiskonu á Filippseyjum. Sú sat í fangelsi „þar sem djöfullinn beit hold hennar“. Mun hún hafa komið fangaverði og öðrum til í gröfma með bölvun sinni. Lester Sumrill hitti þessa vændis- konu og rak úr henni hinn illa anda svo hún „endurfæddist í guði“ og varð betri manneskja. Þá var komið að samkomugestum. Prédikarinn lagði hönd þéttingsfast á höfuð nokkurra þeirra, sagði eitt- hvað hvasslega, og rak úr þeim hlan anda. Voru þeir þar með endurfædd- ir í guði - og fylgdi því nokkur geðs- hræring hjá einstaka snortnum sam- komugesti. Lester Sumrill hélt í morgun til Danmerkur, á trúarráðstefnu. Átti hann síðan eftir að heimsækja Svi- þjóð og Finnland í þessari ferð sinni. Var blaðamanni spurn hvort hann hefði orku í þetta á þessum aldri. „Já, ég hef enn nægan kraft til að prédika.“ -hlh Verður Hannes látinn „afmá“ gagnrýnina? í grein í Alþýðublaðinu í morgun riíjar Sæmundur Guðvinsson blaða- maður upp greinarskrif sín í Vísi um mál Hannesar Jónssonar sendiherra þegar hann gegndi starfi sendiherra hjá EFTA1980. Þá flutti Hannes ræðu sem gekk þvert á stefnu íslendinga hjá EFTA og var ræöan síðar afmáð úr fundarbókum EFTA að frum- kvæði þeirra Tómasar Árnasonar, þáverandi viðskiptaráðherra, og Ól- afs Jóhannessonar, þáverandi utan- ríkisráðherra. Sæmundur segir að Hannes hafl flutt ræðu á fundi EFTA í Genf um beiðni Júgóslava þar sem þeir fara fram á ákveöin tengsl við EFTA. Þrátt fyrir að stefna íslenskra stjórn- valda og flestra annarra EFTA-ríkja hafi veriö sú að veita beiðninni stuðning þá mælti Hannes mjög gegn henni. Sagði Hannes aö ótækt væri aö kommúnistaríki fengju inngöngu í EFTA. Ræðan vakti mikla athygli enda um stefnubreytingu hjá íslendingum að ræða. Fóru fljótlega að berast fyr- irspurnir hingað heim til íslands um meinta stefnubreytingu íslendinga. Að sögn Sæmundar kom ríkisstjórn- in af fjöllum og urðu þeir Tómas og Ólafur felmtri slegnir. Segir Sæmundur að Hannes hafi hundsað öll tilmæli um að afturkalla ræðu sína og hafi málinu lokið með því að Tómas Árnason hafi skrifað bréf til EFTA þar sem beöið var um að ræða sendiherrans væri afmáð. Furðar Sæmundur sig á því að Hann- es skuli hafa sloppið frá málinu og telur að brott'/ikning hefði verið mjöghefðbundinmeðferð. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.