Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1989, Blaðsíða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR ll! JÚLÍ 1989.
Spumingin
Mundiröu sakna
Spaugstofunnar
ef hún yrði ekki í
sjónvarpinu í vetur?
Auður Magnúsdóttir: Jú, það myndi
ég gera. Hún er svo skemmtileg.
Anna Linda Matthíasdóttir: Já, hún
er svo fyndin. Ef hún yröi ekki ætti
að sýna annan svona grínþátt í miðri
viku.
Guðmundur Sigurðsson: Já, Spaug-
stofan er alveg frábær.
Valur Stefánsson: Já, ég myndi
sakna hennar því hún er svo fyndin.
Ágústa Friðriksdóttir: Já, ég myndi
gera það. Mér fannst Spaugstofan
mjög skemmtileg. Það var gaman að
þessu.
Kristinn Jónsson: Nei, ég hef engan
áhuga á henni. Húmorinn er ekki í
lagi.
Lesendur
Afsláttamiðar
myndu lækka
vöruverð
Kaupandi skrifar:
í aldir máttum við íslendingar búa
við einokunarverslun og enn eimir
eftir af henni á ýmsum sviðum. En
að mestu leyti á að heita að við lifum
nú við markað þar sem samkeppnin
er allsráðandi og á hún að stjóma
verðinu. Því meiri samkeppni sem
er milli framleiðenda og verslana því
lægra ætti verðið að vera, neytend-
um í hag.
En er það nú alveg sannleikanum
samkvæmt? Hér á landi er til fyrir-
bæri nokkurt er nefnist Verðlags-
stofnun. Er stofnunin vörður neyt-
enda gegn óhóflega háu verðlagi en
einnig hefur það borið við að hún
hefur gripið í taumana ef neytendum
hefur verið boðið upp á kjarakaup
og þá iðulega sagt að um ólöglega
viðskiptahætti sé að ræða.
Sérstaklega hefur þetta gerst er
verslanir hafa boðið upp á kaupbæti
eða á einhvern hátt boðið upp á eitt-
hvað sem glætt gæti söluna hjá þeim.
Má í þessu sambandi nefna Vífilfell,
sem var með tappasöfnun í gangi
ásamt Bylgjunni, eða Miklagarð sem
bauð upp á fría matarkörfu fyrir
heppna viðskiptavini.
Það vita það allir að ekkert fæst
ókeypis í þessum heimi og alltaf býr
eitthvað að baki slikum tilboðum.
En ef slíkt kveikir örhtið í samkeppn-
inni, sem er heldur dauf hér á landi,
þá ætti hiklaust að leyfa „fríar“ mat-
arkörfur og kaupbæti. Neytandinn
getur vart farið iha út úr slíku. Ef
eitthvað er ætti samkeppnin að
lækka verðið.
Á erlendum vörutegundum má oft
sjá miða 'er kallast á ensku „coup-
ons“, en mætti kalla afsláttarmiða á
íslensku. Gilda miðarnir við næstu
kaup á sömu vöru eða annarri vöru
frá sama framleiðenda. í Bandaríkj-
unum lækka miðar þessir oft verð
vörunnar um 15 til 50 cent (um það
bil 9 til 30 kr.) Safnast þegar saman
kemur og í stórinnkaupum geta af-
sláttarmiðamir lækkað heildarupp-
hæðina svo um munar.
Væri það vel þess virði fyrir ís-
lenska framleiðendur að veita shkan
afslátt á vörum sínum. Það myndi
koma neytandanum vel og jafnframt
auka sölu vörunnar. Verðlagsstofn-
un væri að hindra samkeppni ef hún
sæi ástæðu til að banna slíkt.
Að lokum skal þess getið að þeir
erlendu afsláttarmiðar sem koma
hingað með vörum eru oft í fuhu gildi
(gildistímabils er alltaf getið), svo ef
fólk er á leið til Bandaríkjanna t.d.
er sjálfsagt að khppa miðana af
Cocoa Puffs pakkanum og nýta sér
afsláttinn.
Afsláttarmiðar gætu lækkað vöruverð verulega.
Öll þurfum við skó á fæturna og þá skiptir verð þeirra máli.
Til Jóhönnu vegna bréfs 4.7.:
Rétt verð er 3.390 kr.
Steinar S. Waage skrifar:
Kæri viðskipta„vinur“. Mikið hefði
ég nú verið þér þakklátur ef þú hefð-
ir notað þægilegri aðferðina, og spar-
að þér að ónáða DV sem síðan fórn-
aði ómældri prentsvertu með þeim
afleiðingum að ýmsir fengu þá hug-
mynd að hjá fyrirtæki mínu væri
rekin harðsvíruö okurstarfsemi, það
er að segja labbaö til baka þessi fáu
skref yfir í verslun okkar til að spyrja
hvort hugsast gæti að verðið á skón-
um, sem þú hefur gert að blaðamat,
væri e.t.v. einhver mistök.
Við hefðum strax hugsað máhð og
þú komist að raun um að vegna lítils-
háttar mannlegra mistaka víxlaðist
verðið og að rétta verðið er kr. 3.390
eða 110 krónum lægra en hjá þeim
aöilum sem þú gerðir kaupin hjá, og
þar að auki hefði verðiö lækkað um
5%, þ.e.a.s. ef þú heföir staðgreitt og
þá hefðu skómir kostað kr. 3.220. Við
erum nefnhega löngu orðin þekkt
fyrir að gefa öhum viöskiptavinum
okkar 5% staðgreiðsluafslátt.
Óneitanlega erum við dálítið sár
þegar látið er að því liggja í fjölmiðl-
um að vörur okkar séu í dýrara lagi.
Hitt er þó huggun að við heyrum
mjög oft frá viðskiptavinum okkar
hrós og viðurkenningu fyrir hversu
sterk við séum í verðsamkeppninni
bæði hér heima og jafnvel saman-
borið við erlent verð. Sér í lagi þegar
um er að ræða þekkt vörumerki.
Meira að segja erum við oft spurð
hvers vegna við bjóðum svo gott
verð, sem við aftur getum svarað að
sé vegna samkaupa með skókaup-
mönnum bæði á Norðurlöndum og í
Vestur-Þýskalandi og vegna nægju-
og útsjónarsemi í rekstri fyrirtækis
okkar. Það er nefnhega ánægja okk-
aö aö eiga góö viðskipti við sann-
gjama viðskiptavini.
Þau leiðu mistök urðu í bréfi frá er aö Styrktarfélagiö Stoð eru sam-
Styrktarfélaginu Stoö í DV 5. júlí tök aðstandenda ungra vímuefna-
að eitt orð féh niöur svo setningin sjúklinga.
varö „Styrktarfélagið Stoð, samtök DV biðst velvirðingar vegna þess-
ungra vímuefhasjúklinga..Rétt ara mistaka.
Um málefni Herjólfs
Magnús Jónasson, framkvæmda-
stjóri Herjólfs hf., skrifar:
Vegna skrifa Sigríðar Ágústsdóttur
í lesendabréfi DV 30. júní sl. óskar
Herjólfur hf. að koma eftirfarandi á
framfæri:
í öhum ferðum Herjólfs er að sjálf-
sögðu fylgst með hversu margir far-
þegar fara með skipinu. Þessu fylgj-
ast skipstjóri og stýrimenn með.
Samkvæmt útreikningum Sigl-
ingamálastofnunar má Herjólfur
flytja yfir sumarmánuðina 360 far-
þega í ferð og yfir vetrarmánuðina
280 farþega.
Að sjálfsögðu hefur Herjólfur hf.
farið í einu og öhu eftir þessum regl-
um og hefur á þetta reynt er fulltrú-
ar yfirvalda hafa gert skyndikönnun
með talningu og ávallt hefur talan
reynst undir hámarksfjölda.
Varðandi öryggismál má fuhyrða
að þau eru í fyllsta samræmi við ghd-
andi reglur. Eftirhtsmenn hins opin-
bera koma reglulega og yfirfara þau
mál. Þá er áhöfnin reglulega þjálfuð
í björgunaraðgerðum.
Utgerðin hefur ávallt haft þá stefnu
númer eitt að öryggis sé gætt í hví-
vetna, bæði hvað varðar tæki og
þjálfun.
Forráðamenn Herjólfs hf. vona að
þessar línur leiðrétti þann mikla
misskhning sem fram kemur í um-
ræddu lesendabréfi.
Að lokum varðandi Þorlákshöfn.
Það er rétt að þar hefur orðið vart
grynninga eftir stórviðrin í vetur.
Eftir því sem við best vitum stendur
th að lagfæra það nú alveg á næst-
unni þannig að sá vandi verði úr
sögunni mjög bráðlega.
Herjólfur má á sumrin flytja 360 farþega i ferð.
Seðlaveski týndist
Guðrún Olga Clausen hringdi:
Svo iha vhdi th að vinkona dóttur
minnar týndi seðlaveski um daginn
með launum beggja. Atburðurinn
hefur átt sér stað fóstudaginn 30. júní
á Laugaveginum, mihi Landsbank-
ans, Laugavegi 77, og Skífunnar,
Laugavegi 33.
Veskið var svart, brotið saman í
þrennt og merkt Landsbankanum. í
því voru skhríki, mihi 10.000 og 12.000
í peningum og ávísun stíluð á aðra
þeirra upp á rúmlega 10.000.
Missirinn er mikih því um var að
ræða hálfsmánaðarlaun tveggja 14
ára unghnga úr unglingavinnunni.
Skhvís fínnandi getur hringt í síma
36718, ef enginn er heima svarar sím-
svaii, eða í síma 35206.