Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1989, Side 3
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989.
3
Fréttir
Islenskur námsmaður 1 Stokkhólmi:
Löðrungaður og settur
nakinn í fangaklefa
- lögreglan hefur verið kærð fyrir meðferðina
25 ára gamall maður lenti í mjög
óþægilegum óg niðurlægjandi sam-
skiptum við svokallaða yfirheyrslu-
deild innan lögreglunnar í Stokk-
hólmi fyrir skömmu er bruni kom
upp í Listaakademíunni. Var hann
kaílaður illum nöfnum, löðrungaður,
afklæddur og látinn dúsa nakinn í
fangaklefa. Maðurinn stundar nám í
skúlptúr við Listaakademiuna í
Stokkhólmi og hefur hann kært lög-
regluna fyrir slæma og harðneskju-
lega meðferð.
Bruni kom upp í einni álmu Lista-
akademíunnar er maðurinn vann við
skúlpúr úr málmi í litlu vinnuher-
bergi. Herbergin í þessari álmu eru
viðarklædd og barst neisti frá málm-
inum að veggklæðningu og kviknaði
þá í. Manninum tókst ekki að
slökkva eldinn og gerði hann strax
viðvart.
Kom slökkvilið bráðlega á staðinn
auk svokallaðs yfirheyrsluhðs sem
skipað er átta lögreglumönnum. Þeg-
ar hann reyndi af öllum mætti að
hjálpa til á- vettvangi var hann
skyndilega handjárnaöur af lög-
reglumönnunum og færður á lög-
reglustöðina í Stokkhólmi. Hófu þeir
þá að löðrunga manninn og kalla
hann ýmsum illum nöfnum. Loks
var hann klæddur úr fotum og látinn
dúsa allsnakinn í fangaklefa í heOan
dag.
Faðir mannsins sagði í samtah við
DV í gær að hann hefði haldið að
aðgerðir sem þessar væru ekki við-
hafðar á Norðurlöndum.
„Mér skhst að lögreglan hafi síðan
gefið fjölmiðlum þær upplýsingar að
sonur minn sé Islendingur, veill á
geðsmunum og brennuvargur að
auki. Dagens Nyheter birti samt leið-
réttingu á því skömmu seinna. Ég
veit að þessi lögregludehd hefur oft-
sinnis verið kærð enda mun hún
ekki vera í miklu áliti hjá Stokk-
hólmslögreglunni eða hjá Svíum al-
mennt. Það kom heldur aldrei nein
kæra á hendur drengnum frá lög-
reglunni,“ sagði faðirinn.
„Sonur minn missti allar eigur sín-
ar í þessum bruna og forsvarsmenn
skólans efuðust aldrei um að hann
væri saklaus. Þeir útveguðu honum
ókeypis lögfræðiaðstoð og síðan var
fariö með mótmælaskjal til íslenska
sendiráðsins í Stokkhólmi. Sendiráð-
ið sendir síðan skjalið til utanríkis-
ráðuneytisins á íslandi. Að því loknu
mun málið fara sín leið til sænskra
yfirvalda,“ sagði faðirinn.
-ÓTT
Þarna sérðu Júlíus.
Hann kann að njóta lífsins.
<
Júlíus er lánsamur maður og hann
lítur framtíðina björtum augum.
Hann á íbúð og bíl, er í ágætri
vinnu og lætur ýmislegt eftir sér.
Júlíus lætur sig oft dreyma en ólíkt
mörgum öðrum lætur hann
drauma sína rætast. Eitt af því
skemmtilegasta sem hann gerir er
að ferðast til fjarlægra landa enda
gerir hann mikið af því. Júlíus er þó
ekki hátekjumaður en hann er
skynsamur. Hann er í viðskiptum
við Fjárfestingarfélag íslands hf.
Það gerir gæfumuninn. *
*Júlíus byrjaði ungur að leggja til hliðar
af launum sínum til þess að safna í vara-
sjóð ef eitthvað færi úrskeiðis. Hann var
að vísu ekki ánægður með vextina til að
byrja með en hélt að það tæki því ekki að
kynna sér betri leiðir af því að upphæðin
varsvolítil.
Árið 1985 komst Júlíus hins vegar í
samband við sérfræðinga Fjárfestingar-
félagsins og áttaði sig á því að peningarn-
ir hans gætu margfaldast á stuttum tíma.
Þá átti hann 300.000 kr. í sparifé.
Á rúmum fjórum árum er upphæðin
orðin 1.200.000 kr. og árið 1990 hefur
fjárhæðin líklega tvöfaldast að raun-
gildi. Sannarlega álitlegur varasjóður
það - og hann fer vaxandi! Júlíus heldur
áfram að leggja til hliðar af launum sín-
um og ávaxtar féð hjá Fjárfestingarfé-
laginu. Það gerir hann m.a. til þess að
geta farið í langt sumarleyfi á hverju ári.
Þetta er maður sem kann að lifa lífinu!
Þessar tölur eru raunverulegar en
nafnið ekki.
Hafðu samband, athugaðu hvort við
getum aðstoðað þig.
Q2>
FjÁRFESTINGARFÉLAG
ÍSIANDS HF.
HAFNARSTRÆTI • KRINGLUNNI • AKUREYRI
28566 689700 25000