Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1989, Síða 8
8 FIMMÍÚDAGUR 19. OKTÓBER 1989.
Ötlönd dv
Nokkur hús hrundu í jarðskjálftanum.
Simamynd Reuter Eftirlifendum hjálpað úr rústum hraðbrautarinnar. Simamynd Reuter
Búast við jafnstórum eða stærri jarðskjálfta á
næstu áratugum í Kalifomíu:
Hróp og grátur heyrast
ekki lengur úr rústunum
Með risakrönum, sögum og borum
var hafist handa í gær viö að leita í
rústum Nimitz-hraðbrautarinnar í
Oakland að eyðilögðum bílum, öku-
mönnum þeirra og farþegum.
Nokkrum tugum manna var bjarg-
að úr rústunum á þriðjudagskvöld
en í gær heyrðust ekki lengur stunur
og grátur í rústunum og björgunar-
menn kváðust efast um að nokkur
gæti verið á lífi. Átta sporhundar
fundu aðeins einn mann á lífi.
Um áttatíu lík, mörg hræðilega lim-
lest, fundust þegar á þriðjudagskvöld
nokkru eftir að skjálftinn mikli skók
San Francisco og nágrenni.
Vitað er að að minnsta kosti tvö
hundruð sjötíu og þrír fórust í jarð-
skjálftanum og sex hundruð og
fimmtíu slösuöust. Flestir týndu lífi
þegar efri hluti hraðbrautarinnar,
sem liggur frá Bay-brúnni, hrundi á
neðri hluta brautarinnar. Sumar bif-
reiðanna, sem grafnar hafa verið úr
rústunum, eru jafnflatar og númera-
skilti þeirra, að sögn sjónarvotta.
Talið er að það geti tekið vikur að
fjarlæga rústimar.
Jarðskjálftafræðingar í Kaliforniu
sögðu í gær að búast mætti við jafn-
stórum ef ekki stærri skjálfta á
næstu áratugum og þá líklega norð-
an þess svæðis sem verst varð úti á
þriöjudaginn.
Samgönguyfirvöld í Kalifomíu,
segja að vegarkaflinn sem hrundi
hafi verið styrktur í kjölfar jarð-
skjálftans í San Fernando í suður-
hluta fylkisins 1971. Sú styrking var
hins vegar ekki nægileg þegar
skjálftinn reið yfir á þriðjudag. Or-
yggisskoðun á hraðbrautinni fór
fram á þriggja ára fresti, eins og á
öðrum svipuðum mannvirkjum.
Byggingu hraðbrautarinnar var lok-
iö 1955.
Samgöngur í San Francisco urðu
eðlilegar á ný í gær en Bay-brúin var
enn lokuð. Fimm þúsund manns era
sagðir hafa hafst við í bækistöðvum
Rauöa krossins.
Talsmaöur tryggingafélaga sagði
þau búast við aö fá bótakröfur upp á
meira en milljarö dollara. En í kald-
hæðni örlaganna gætu sum trygg-
ingafyrirtæki grætt þegar fram líða
stundir vegna aukinnar ásóknar í
tryggingar í kjölfar jarðskjálftans.
Iðgjöldin gætu nefnilega hækkað.
Aíleiðingar jaröskjálftans fyrir
efnahag Kaliforníu eru taldar verða
meiri en tjónið sem varð er fellibyl-
urinn Hugo gekki yfir suðurríki
Bandaríkjanna í síðasta mánuði.
Vegna stærðar Kaliforniu mun efna-
hagur Bandaríkjanna í heild verða
fyrir neikvæðum áhrifum en þó ekki
nógu miklum til að sá hagvöxtur sem
átt hefur sér stað í bandarísku þjóð-
félagi stöðvist.
Dan Quayle, varaforseti Bandaríkj-
anna, kom til jarðskjálftasvæðanna
í gær. Flaug varaforsetinn í þyrlu
yfir þau svæði sem verst urðu úti í
jarðskjálftunum en hitti ekki að máli
borgarstjóra San Francisco, Art Agn-
os. Borgarstjórinn velti því fyrir sér
til hvers Quayle hafi verið að koma
og gaf í skyn að kannski hefði það
bara verið til að vekja á sér athygli.
Quayle boðaði heimsókn Bush síð-
ar í vikunni en hann minntist ekki á
hvort forsetinn myndi hitta að máli
borgarstjórann í San Francisco eða
einhvem annan borgarstjóra á jarð-
skjálftasvæðinu. Reuter
Hlúð aö slösuðum skömmu eftir jarðskjálftann. Simamynd Reuter
Linda Reed leitar að eiginmanni sínum þar sem Bay-brúin gliðnaði I sundur. Hann var ekki meöal fórnarlambanna.
Simamynd Reuter