Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1989, Page 9
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989.
9
Útlönd
Fyrstu viöbrögð við mannaskiptunum í forystu A-Þýskalands:
Vantrú á miklar breytingar
Viðbrögð almennings í Austur-
Þýskalandi og fulltrúa stjórnarand-
stöðunnar þar við hinum nýja leið-
toga, Egon Krenz, hafa einkennst af
vantrú um að hann breyti mikið
stefnu austur-þýskra stjómvalda.
„Hvað get ég sagt? Hann er einn af
harðlínumönnunum. Það er ekki
mikilla broytinga að vænta,“ sagði
Austur-Berlínarbúi í samtali við Re-
utersfréttastofuna og yppti öxl-
um.
Egon Krenz tók við af hinum aldna
Erich Honecker, sem verið hefur
leiðtogi austur-þýskra kommúnista í
átján ár, í gær - í því sem fréttaskýr-
endur segja vera mestu uppstokkun
innan forystu austur-þýska komm-
únistaflokksins í nærri tvo áratugi.
Hin opinbera skýring á mannabreyt-
ingunum var sú að Honecker hefði
sagt af sér vegna heilsufarsástæðna.
Kemur afsögn hans í kjölfar þess að
tugþúsundir Austur-Þjóðverja hafa
flúið land og leitað til Vestur-Þýska-
lands og enn aðrir safnast saman á
götum Austur-Berlínar og annarra
borga í mótmælaskyni við harðlínu-
stefnu stjómvalda.
kommúnistaflokksins í ræðu sem
hann hélt í gær. Sagði hann að Aust-
ur-Þýskaland gæti ekki staðið hjá á
meðan breytingar gengju yfir ná-
grannaríkin. Hann gagnrýndi fyrir-
rennara sinn óbeint þegar hann gaf
í skyn að flokkurinn hefði brugðist
of seint við þrýstingi um umbætur.
Hann sagði að Austur-Þýskaiand
gæti ekki haldið sig í fjarlægð frá
þeim umbótum sem Sovétríkin heföu
kynnt og gengju nú yfir A-Evrópu.
Ummæli hans eru ólík ummælum
Honeckers sem hafði haldið A-
Þýskalandi í hæfilegri fjarlægð frá
umbótastefnu Gorbatsjovs Sovét-
forseta. Vestrænir leiðtogar og
stjórnarerindrekar eru varir í yfir-
lýsingum þegar þeir tala um horfur
á raunverulegum breytingum. Vest-
rænir stjómarerindrekar segja að
Krenz teljist án efa til harðlínu-
manna.
í ræðu sinni sagöist Krenz mundu
leiða ríkið í nýjan farveg og að mið-
stjórn flokksins myndi koma saman
til fundar hið fyrsta til að ræða um
umbætur. Gorbatsjov óskaði Krenz
tfl hamingju í gær og kvaðst fullviss
um að hinn nýi leiðtogi myndi „fmna
leiðir tfl tfl úrlausnar... þeirra mikl-
um vandamála sem Austur-Þýska-
land stendur nú frammi fyrir“.
Bush Bandaríkjaforseti sagði að
enn væri of snemmt að segja til um
hvort mannaskiptin á toppnum væru
skref til umbóta. Aöfldarríki Nato,
Atlantshafsbandalagsins, gáfu út
yfirlýsingu þar sem segir að vonandi
sé þessi mannabreyting merki um
frekari hreyfingu í átt umbóta.
Auk þess að tilnefna Krenz í emb-
ætti flokksleiðtoga var áróðurs-
meistara flokksins, Joachim Her-
mann, og yfirmanni efnahagsmála
Guenter Mittag, vikið frá störfum.
Ekki er ljóst hverjir taka við þeirra
embættum. Reuter
ATHUGIÐ
Ný verslun að
Kaplahrauni 5,
Hafnarfirði
SERVERSLUN MEÐ SLIPIVORUR
OGLOÍTVERKFÆRI
„Harðlínumaður“
Sjálfstæðir stjómarandstöðuhópar
segja að Krenz sé engu minni harð-
línumaður en sá sem hann tekur nú
við af. „Það er mjög ólíklegt að Krenz
muni koma af stað umbótum í Aust-
ur-Þýskalandi,“ segir í yfirlýsingu
Nýs vettvangs, stærsta stjómarand-
stöðuhóps A-Þýskalands.
Þar segir að Krenz hafi stutt að-
gerðir kínverskra stjómvalda í júní
síðastliðnum þegar hernum var beitt
gegn mótmælmn námsmanna með
þeim afleiðingum að hundrað ef ekki
þúsundir lágu í valnum. Þá gagnrýna
samtökin miðstjóm kommúnista-
flokksins fyrir aö útnefna Krenz í
embætti flokksleiðtoga, leiðtoga
landsins sem og yfirmann þjóðarör-
yggisráðsins, öll æðstu embætti A-
Þýskalands. „Þetta sýnir að innan
stjómmálaráðsins eða miðstjómar-
innar er enginn vilji tfl þess að defla
völdum, jafnvel ekki innan flokksins
sjálfs," segir í yfirlýsingunni.
Gagnrýnir mistökin
Krenz sjálfur gagnrýndi mistök
Ekki eru alllr á eitt sáttir um eftirmann Erichs Honecker, leiðtoga austur-þýskra kommúnista, og teija hann til
harðlínumanna. Símamynd Reuter
BÍLDSHÖFÐA 18 - SÍMI 672240
KAPLAHRAUNI 5 - SÍMI 653090
Egon Krenz arftaki Erichs Honeckers:
Yngstur í forystuliðinu
Egon Krenz, sem tók í gær við af
Erich Honecker, leiðtoga austur-
þýskra kommúnista, er fyirum yfir-
maður öryggismála í Austur-Þýska-
landi og 52 ára, yngstur allra í for-
ystusveit A-Þýskalands. Hann var
löngum talinn líklegastur arftaki
Honeckers og talinn meðal harðlínu-
manna.
Krenz gekk til liðs við austur-þýska
kommúnistaflokkinn árið 1955 á
meðan hann gekk í kennaraháskóla.
Hann fór hratt upp metorðastigann
flokknum, fyrst í unghðasveitinni
þar til hann var gerður að fullgildum
aðila stjómmálaráðsins árið 1983. Þá
var hann einnig gerður að yfirmanni
öryggismála.
Erich Honecker, sem nú lætur af
öllum opinberum embættum sem
hann hefur haft, er sjötíu og sjö ára.
Hann hélt um stjómartaumana í
landinu í átján ár eða frá árinu 1971
þegar hann tók við flokksleiðtoga-
Erich Honecker, til vinstri, og arftaki hans, Egon Krenz.
Símamynd Reuter
embættinu af Walter Ulbricht.
Fréttaskýrendur telja að Honecker
hafi misst mjög stuðning meðal al-
mennings þegar hann þijóskaðist við
að hleypa af stokkunum umbótum
þegar flóttinn mikh frá Austur-
Þýskalandi hófst og miklar mót-
mælagöngur á götum margra borga.
Hann neyddist tfl að bjóðast tfl að
ræða takmarkaðar umbætur þegar
mikfl mótmæh áttu sér stað í A-
Berhn fyrr í mánuðinum, á fjöru-
tíu ára afmæli austur-þýska ríkis-
ins.
Reuter
Egon Krenz, hinn nýi leiðtogi aust-
ur-þýskra kommúnista.
Simamynd Reuter
MYNDBÖND
Burt Reynolds í
toppformi
ÚTGÁFUDAGUR
18. OKTÓBER
in