Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1989, Síða 13
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989.
Lesendur
13
Staðnað sætabrauð
Ó.L. skrifar
Ég er í þeim hópi sem hefur tals-
vert gert að því að kaupa kökur og
annað sætabrauð í hakaríum. Ekki
er hægt að segja annað en brauð
og ýmislegt í brauðformi, svo sem
rúnnstykki og þess háttar, hafi
batnað verulega á síðustu árum.
Kökurnar og annað sem flokkað er
undir sætabrauð eru hins vegar
orðnar mjög staðnaöar og úrvalið
er ekki mikið.
í bakaríum eru kökur mjög svip-
aðar frá einu til annars og er það
kannski vegna þess að bakaríin
hafa stækkað og framleiða meira
magn en áður og sem er dreift víða
í verslanir. Einnig er áberandi
hvað sætar kökur og jafnvel vínar-
brauð geymast verr en hér áður
fyrr. Vínarbrauð eru varla æt ef
þau eru geymd langt fram yfir há-
degi svo dæmi sé nefnt.
Annað fmnst mér áberandi með
ýmsar kökur hér og það er að í
sumum tegundum kemur fram
eins og þráabragð, sem virðist stafa
af þeirri tegund olíu, smjörlíki eða
fitu sem notuð er við framleiðsl-
una.
Niðurstaða mín af athugun á bak-
aríismálum hér, t.d. á höfuðborgar-
svæðinu, er sú að úrval sé ekki
nógu miídð af fallegum kökum og
góðum í bakaríum og lítill munur
frá einum stað til annars. Vand-
virkni sé ekki mikil við skreytingar
og umbúðir undir kökur afleitar. -
Varðandi þetta síðasta mætti gefa
Danskur bakarameistari, Gert Sörensen, við vinnu sína.
margar lýsingar á vandræðum sem
afgreiðslufólk kemst stundum í við
að finna „heppilega" kassa eða eitt-
hvað undir tertur og viðkvæmar
kökur.
Mér finnst að bakarar ættu að
gera meira aö því að senda starfs-
menn sína (einkum þá bakarana
sjálfa) til góðra meistara eða bakar-
ía erlendis til starfsreynslu og
koma heim með nýjar hugmyndir
um vinnslu og tegundir.
Vonandi aldrei aftur verkfall
Þ.H. skrifar:
Nú er lokið verkfalli rafiðnaðar-
manna, sem betur fer. Ég er einn
þeirra sem áttu undir högg að sækja
vegna þessa verkfalls og ég verð að
segja það að ég varð mjög feginn þeg-
ar þessu stríði lauk. - Ekki það að
ég kæmist ekki af án þjónustu þess-
ara manna eitthvað lengur heldur
vegna þess að það er ömurlegt að
vita af verkfalli sem kemur við mann
sjálfan og vita ekki hvenær starfsemi
hjá manni kemst í eðlilegt horf. Auk
þess sem þetta setti strik í reikning
minn fjárhagslega.
Ég held nú sannast sagna að samn-
ingar hafi tekist, ekki þó síðar en
þetta vegna þess að mennirnir sjálfir
gátu ekki haldið þessu verkfalli úti
mikið lengur vegna tekjutaps. - Og
skyldi nokkurn furða!
Mér finnst þó skrýtið þegar for-
maður rafiðnaðarmanna kemur
fram að samningum loknum og seg-
ist ekki vera ánægður með samning-
ana. Þetta segja raunar allir verka-
lýðsforingjar að samningum lokn-
um. En hvers vegna eru þeir þá að
ganga til samninga ef þeir eru ekki
ánægðir? - Ætli sannleikurinn sé
ekki sá að þeir sem helst verða þol-
endur verkfalla, verkfallsmenn sjálf-
ir, knýja á um að fá samninga sem
fyrst og ganga að því boði sem kemur
upp á borðið í fyrstunni.
En verkfóll hér á landi eru að veröa
óþolandi, svo tíð sem þau eru. Og þau
lýsa engu öðru en félagslegri vanþró-
un og heimsku þeirra sem til þeirra
boða. Samningar nást alltaf án verk-
falla, líka á íslandi. Vonandi verður
þetta verkfall það síðasta um langan
aldur. Ég held að þeir sem hyggjast
boða hér verkföll í næstu framtíð og
láta verða af þeim muni ekki standa
í báða fætur að þeim loknum, að því
er varðar kjarabætur.
AUKABLAÐ
Bílar 1990
Miövikudaginn 1. nóvember nk. mun aukablað
um bíla fylgja DV.
í þessu aukablaöi verður fiallað um nýja bíla af
árgerð 1990 sem bilaumboðin koma til með að
bjóða upp á, auk þess sem ýmsu öðru efni varð-
andi bíla verða gerð skil í blaðinu.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa
í þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband við
auglýsingadeild DV hið fýrsta í síma 27022.
Vinsamlegast athugið.að skilafrestur auglýsinga
er fýrir fimmtudaginn 26. október.
ATH.! Póstfaxnúmer okkar er 27079.
Auglýsingadeild
Þverholti 11, sími 27022
BS
FREEPORTKLÚBBURINN
Fundur verður haldinn fimmtudaginn 19. október
kl. 19.30 í félagsheimili Bústaðakirkju.
Kaffi og meðlæti.
Stjórnin
REYKJAVÍK - AMSTERDAM
ÁN FYRIRVARA
Með viðskiptafargjaldi Arnar-
flugs geturðu sneitt hjá öllu
aukavafstri og fyrirhöfn. Þú færð akstur frá
heimili þínu að flugstöð Leifs Eiríkssonar, þú
ferðast á Gullrými og nýtur margs konar þæg-
inda og þarft ekki að hafa áhyggjur af lágmarks-
dvalartíma. Hámarksdvalartími þegar ferðast er
á viðskiptafargjaldi Arnarflugs er aftur á móti 5
dagar. • Hafið samband við ferðaskrifstofurnar
og söluskrifstofur Arnarflugs.
Verð kr. 35.690,-
ARNARFLUG
Annar kostur — önnur leið
Söluskrifstofur: Lágmúla 7, sími 84477 • Austurstræti 22, sími 623060
og Keflavík, sími 92-50300