Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1989, Blaðsíða 8
8
Viðskipti
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1989.
Sjö vikur til jóla og auglýsingahasarinn senn að byrja:
Ekki minna auglýst fyrir
þessi jól en undanfarin ár
- og pantanir fyrr á ferðinni, segja auglýsingastjórar flölmiðla
lölaballfd
Auglýsingahasarinn fyrir jólin hefst þegar líöur á nóvembermánuð.
Auglýsingastjórar DV, Sjónvarpsins
og Stcðvar 2 segja að miðað við eftir-
spurn fyrirtækja og auglýsingastofa
eftir auglýsingaplássi að undanförnu
verði ekki minna auglýst fyrir þessi
jól en áður. Þeir segja jafnframt að
auglýsendur séu fyrr á ferðinni við
að pánta og spyrjast fyrir um
ákveðna auglýsingatíma. Að vísu tel-
ur auglýsingastjóri Stöðvar 2 aö
heildarauglýsingamarkaðurinn
verði aðeins minni en í fyrra en að
auglýsingar á Stöð 2 verði jafnmarg-
ar og í fyrra.
Fyrirtæki eru
óvenjusnemma á ferðinni
„Fyrirtæki eru óvenjusnemma á
ferðinni við að panta og spyrjast fyr-
ir um auglýsingapláss fyrir jólin.
Þegar er mikil eftirspurn eftir ein-
stökum blaðsíðum. Ég er ekki í
nokkrum vafa um að það verður
ekki minna auglýst fyrir þessi jól en
áður,“ segir Páll Stefánsson, auglýs-
ingastjóri DV.
Páll segir að DV bjóði upp á meiri
þjónustu fyrir þessi jól, sérstaklega
hvað varðar litaauglýsingar. „Aug-
lýsendum gefst kostur á mun fleiri
fjórlitum og aukalitum hjá okkur en
áður.“
Að sögn Páls byrja fyrstu jólaaug-
lýsingarnar yfirleitt að birtast upp
úr miðjum nóvember og síðan stend-
ur vertíðin alveg fram að jólum.
Aldrei eins margar
smáauglýsingar í DV
„Ég neita því ekki að á þessu ári
hefur verið nokkur samdráttur hjá
okkur á DV í birtingu stærri auglýs-
inga en hins vegar hafa smáauglýs-
ingar aldrei verið fleiri en á þessu
ári. Það stefnir í að smáauglýsingar
verði um 125 til 130 þúsund á öllu
Nýtt skipulag hefur verið gert fyrir
matvörurisann Kaupstað-Miklagarð.
Helstu breytingar eru þær að inn-
kaupastjórarnir verða ekki aðeins
árinu sem er ótrúleg tala.“
Páll segist ennfremur merkja góða
eftirspum eftir jólaauglýsingum
vegna þeirra aukablaða sem DV
verði með fyrir jólin. „Það eru þegar
mjög góð viðbrögð fyrirtækja við
okkar árlegu jólagjafahandbók, sem
kemur út 7. desember. Sömuleiðis
eru famar að berast fyrirspurnir
vegna bókahandbókar, sem kemur
út 13. desember, og matar- og köku-
blaðs, sem kemur út í lok þessa mán-
aðar, 29. nóvember."
látnir kaupa inn heldur þurfa þeir
líka að selja vöruna, fylgja henni til
kúnnans. Þá hefur Gísli Blöndal ver-
ið ráöinn markaðsstjóri fyrirtækis-
Hemmi Gunn mokar
inn auglýsendum
Helgi Helgason, auglýsingastjóri
Sjónvarpsins, segir að þaö sé ekki
aðeins að fyrirtæki séu fyrr á ferð-
inni við að panta auglýsingar á eftir-
sóttustu auglýsingatímum heldur
nýti þau auglýsingafé sitt miklu bet-
ur en áður og kynni sér þess vegna
mjög vel kannanir um horfun á
ákveðnum tímum og hvað sé vinsæl-
asta dagskrárefnið. „Það er miklu
meira pantað en í fyrra.“
ins og Örn Ingólfsson, sem áður var
kaupfélagsstjóri Kaupfélags Hafnar-
fjarðar, er orðinn fjármálastjóri.
Þröstur Ólafsson situr sem fyrr á
toppnum sem framkvæmdastjóri.
Markaösstjóri er Gísli Blöndal og
starfsmannastjóri ísólfur Gylfl
Pálmason. Fjármálastjóri er Örn Ing-
ólfsson. Þá eru það innkaupastjór-
amir tveir sem nú bera líka ábyrgð
á sölunni. Þeir eru Einar Bridde, for-
stöðumaður sérvörusviðs, og Árni
Björn Skaftason, forstöðumaður
matvörusviðs.
Nóatúnsfeðgarnir, Jón Júlíusson,
kaupmaður í Nótatúni, og synir hans
tveir, Einar Öm og Júlíus Þór, bæta
viö sig þriðju Nóatúnsversluninni á
tæpum tveimur árum um miðjan
þennan mánuð þegar þeir yfirtaka
kjörbúðina Kjörval í Mosfellsbæ.
Þetta verður jafnframt þeirra flmmta
búð.
í febrúar í fyrra opnuðu þeir versl-
unina Nóatún í Hamraborg i Kópa-
vogi þar sem Verslunin Kópavogur
var áður og í maí í fyrra var þaö
Nóatún við Laugaveg 116 en SS var
þar lengi með búð. Fyrir vora þeir
með Nóatún í Nóatúni og Nóatún í
Að sögn Helga er auglýsingatíminn
á undan þætti Hemma Gunn vinsæl-
asti auglýsingatími Sjónvarpsins. En
auglýsingatímarnir á undan Spaug-
stofunni og fyrir fréttir eru einnig
mjög vinsælir.
„Mér sýnist sem menn séu um
mánuöi fyrr á ferðinni að panta aug-
lýsingar miðaö við í fyrra. Þeir sem
komu síðast í nóvember í fyrra og
misstu af auglýsingatímum komu
síðast í október að þessu sinni.“
Minni framleiðslukostnaður-
fleiri birtingar
Helgi segir að aðalvertíðin í jóla-
auglýsingum standi yfir frá því síð-
ast í nóvember til um 20. desember.
„Ég tel að ein áþreifanleg breyting
verði á auglýsingamarkaðnum fyrir
þessi jól og hún er sú að fyrirtæki
leggi minna í kostnað við gerð aug-
lýsinga en meira í birtingakostnað.
Eg veit að stjórnendur fyrirtækja
krefjast þess að gerðar séu ódýrari
auglýsingar en áður.“
Um útvarpsauglýsingar segir Helgi
að þegar hafi margir pantað til jóla
í auglýsingatímanum síðustu tvær
minúturnar fyrir sjöfréttir á kvöldin.
„í stuttu máli má segja að þaö verð-
ur auglýst mjög svipað og í fyrra
þrátt fyrir samdrátt í þjóðfélaginu en
að menn spái miklu meira í það hvort
viðkomandi auglýsing skili sér eða
ekki,“ segir Helgi.
19:19 er að fyllast
Jón Gunnarsson, auglýsingastjóri
Stöðvar 2, segir að sér virðist sem
menn hafi svolítið sparað púðrið að
undanfomu við að auglýsa en ekki
sé nokkur vafi á að auglýsingar á
Stöð 2 verði jafnmargar og í fyrra
þrátt fyrir samdrátt í efnahagslífinu.
„Það er mikið spurt og greinileg
Undir þá heyra deildarstjórar sér-
vöru- og matvörudeilda, svo og allir
verslunarstjórarnir. Það mæðir
greinilega mikið á þeim Einari og
Árna samkvæmt nýja kerfinu.
Þess má geta að Gísli Blöndal
stundaði sjálfstæðan verslunarrekst-
ur á árunum 1972 til 1982 er hann tók
við starfi fulltrúa framkvæmdastjóra
Hagkaups en hann gegndi því starfi
til ársins 1985. Frá þeim tíma hefur
hann starfað viö auglýsinga- og
markaðsmál.
Arbæ.
„Mosfellsbær er vaxandi bær og
engin ástæða til annars en að vera
bjartsýnn á rekstur verslunar þar,“
segir Einar Örn Jónsson.
Að sögn Einars verður Nótatún í
Mosfellsbæ ein stærsta Nóatúnsbúð-
in til þessa eða um fimm hundruð
fermetrar að flatarmáli.
„Við höfum verið með fremur litlar
verslanir og höldum okkur áfram við
þær. Þetta er sú stærð verslana sem
við þekkjum og kunnum að reka,“
segir Einar Öm.
-JGH
eftirspurn eftir jólaauglýsingum í
þættinum 19:19 og auglýsingatíminn
síðustu mínúturnar fyrir fréttir sé
raunar að fyllast."
Styttri og fleiri
Jón segir að stefna Stöðvar 2 í aug-
lýsingamálum fyrir þessi jól sé sú að
fjölga frekar auglýsingatímum og
hafa þá styttri til að koma í veg fyrir
færri og lengri auglýsingatíma. „Þess
vegna skjótum við auglýsingum oftar
inn í dagskrána núna.“
Loks segir Jón að enginn vafi sé á
því að stjórnendur fyrirtækja hugi
meira en áður að auglýsingatímum
og hvenær í dagskránni sé best að
auglýsa.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlánóverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 9-12 Bb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 11,5-13 Ob.Vb
6mán. uppsögn 12,5-15 Vb
12 mán. uppsögn 12-13 Lb
18mán. uppsögn 25 Ib
Tékkareikningar, alm. 2-4 Sp.Vb
Sértékkareikningar 4-12 Bb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 0,75-2 Vb
6 mán. uppsögn Innlán meosérkjörum 2,5-3,5 Ib
21 Lb
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 7,25-7,75 Ab
•Sterlingspund 13,25-14 Bb.lb,- Ab,
Vestur-þýsk mörk 6,5-7 Ib
Danskar krónur 9-10,5 Bb.lb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 27,5 Allir
Viöskiptavíxlar(forv.)(1) kaupqengi
Almennskuldabréf 28-32,25 Vb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupqenqi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 32,5-35 Lb.lb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,25-8,25 Úb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 25-31,75 Úb
SDR 10,5 Allir
Bandaríkjadalir 10-10,5 Allir
nema Ob.Vb
Sterlingspund 16,25-16,75 Ob
Vestur-þýsk mörk 9,25 9,75 Ob
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 38.4
MEÐALVEXTIR
óverötr. nóv. 89 29,3
Verðtr. nóv. 89 7,7
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóv. 2693 stig
Byggingavísitala nóv. 497stig
Byggingavísitala nóv. 15í?.5 stig
Húsaleiguvísitala 3,5% hækkaði 1. okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,36
Einingabréf 2 2,412
Einingabréf 3 2,867
Skammtímabréf 1,497
Lífeyrisbréf 2,196
Gengisbréf 1,940
Kjarabréf 4,333
Markbréf 2,296
Tekjubréf 1,840
Skyndibréf 1,309
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 2,103
Sjóðsbréf 2 1.647
Sjóósbréf 3 1.479
Sjóðsbréf 4 1,240
Vaxtasjóðsbréf 1,4845
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 318 kr.
Eimskip 388 kr.
Flugleiðir 164 kr.
Hampiöjan 168 kr.
Hlutabréfasjóður 158 kr.
Iðnaðarbankinn 170 kr.
Skagstrendingur hf. 228 kr.
Otvegsbankinn hf. 146 kr.
Verslunarbankinn 148 kr.
Tollvörugeymslan hf. 110 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnáðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnír.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
I7
FYRIRGREIÐSLAN
Aðstoð og þjónusta fyrir landsbyggðarfólk
og höfuðborgarbúa, m. a. eftirfarandi:
- viðskiptasamningar
- lánsumsóknir, t.d. Húsnæðisstofnunar
- markaðsfærsla og sölustarfsemi
- kynningarstörf
- undirbúnlngur fyrirlestra og funda
- fyrlrtækjasala
- stutt starfsf ræðslunámskeið í verslunarstörfum.
- stofnun fyrirtækis
- útrelknlngur vlrðisaukaskatts (söluskatts)
vegna skattsklla
- önnur mál sem leysa þarf
Upplýsingar í síma 91-12506 virka daga kl. 13-19.
HRAFNKELL TRYGGVASON viðskiptafræðingur
Nýtt skipurit í Kaupstað-Miklagarði:
Innkaupastjórarnir látnir
fylgja vörunni til kúnnans
-JGH
Nótatún 1 Mosó:
Fimmta búð Nóatúnsfeðga