Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1989, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1989, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1989. 5 Prófkjör sjálfstæðismanna í Hafnarfirði: Flestir sammála um fjögur efstu sætin U L J u j> J J 0 NÝ GLÆSDJEG Sjálfstæðismenn í Hafnarflrði verða um helgina með prófkjör vegna bæjarstjórnarkosninganna næsta vor. Tuttugu og átta manns hafa gefið kost á sér til prófkjörsins. Upphaflega var stefnt að því að hafa tuttugu frambjóðendur en áhuginn reyndist vera meiri en búist var við. Sjálfstæðisflokkurinn á nú ijóra bæj- arfulltrúa og af þeim hafa tveir ákveðið að vera ekki lengur í fram- boði'. Annar þeirra er Árni Grétar Finnsson sem hefur verið bæjarfull- trúi lengi. í viðtölum við nokkra hafnfirska sjálfstæðismenn, um hvemig þeir telja að prófkjörið fari, voru nöfn fjögurra frambjóðenda oftast nefnd. Það era Jóhann G. Bergþórsson, framkvæmdastjóri Hagvirkis og bæj- arfulltrúi, Ellert Borgar Garðarsson skólastjóri, en hann er formaður full- trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Hafn- arfirði, Hjördís Guðbjörnsdóttir, bæjaríúlltrúi og skólastjóri, og Þor- gils Óttar Mathiesen, viðskiptafræð- ingur, þjálfari FH og fyrirliði lands- hðsins í handbolta. Aðrir sem voru nefndir til eru Magnús Gunnarsson, skrifstofu- stjóri Hvals hf., Stefanía Víglunds- dóttir, húsmóðir og formaður Vor- boðans, sem er kvenfélag sjálfstæðis- félaganna, og Kristján Jóhannesson tæknifræðingur. Stefnan sett á sex Sjálfstæðismenn setja stefnuna á sex bæjarfuhtrúa. Ef það tekst fær flokkurinn hreinan meirihluta í bæj- arstjórn. Ekki er vitað hvort F-hst- inn, sem var klofningsframboð, býð- ur aftur fram. Það er tahð ólíklegt þar sem foringinn, Einar Mathiesen, er fluttur frá Hafnarfirði. Sjálfstæðismenn virðast vera á eitt sáttir um ágæti Ellert Borgars. Hann er sagður hæfur maður og auk þess hefur hann áður setið í bæjarstjórn - eitt kjörtímabil sem varamaður og sem aðalmaður kjörtímabihð 1982 til 1986. Jóhann G. Bergþórsson virðist tryggur með að verða annar tveggja efstu manna. Sjálfstæðismenn segja hann mjög skipulagðan mann. Þorgils Óttar er tahnn njóta þátt- töku sinnar í íþróttum og éins þykir sjálfstæðismönnum sterkt að hann berjist við Guðmund Árna Stefáns- son meðal íþróttaáhugamanna og ekki síst innan FH. Ekki má gleyma því að Þorgils Óttar er af stærstu sjálfstæðisættum í Hafnarfirði. „Þaö má ekki gleymast aö Þorgils er mjög Fréttaljós Sigurjón M. Egilsson hæfur ungur maður. Hann næði langt, þó svo hann hefði ekki hand- boltann og ættina," sagði einn við- mælenda DV. Framkvæmdir og skuldir Sjálfstæðismenn, flestir hverjir, viðurkenna að erfitt verði að ná aftur stjórn bæjarins. Þeir segja að Guð- mundur Ami sé erfiður andstæðing- ur. Innan raða þeirra eru raddir sem segja að á þessu kjörtímabili hafi ein- göngu verið unnið við það sem sést en hitt látið eiga sig. Einnig er sagt að núverandi meirihluti hafi hlaðið upp skuldum í framkvæmdaæði. Einn frambjóðendanna í prófkjörinu segir að sjálfstæðismenn æth að sigr- a í kosningunum - fyrst og fremst vegna þess að þeir verði með sterkan framboðslista sem geti gert allt það sem vinstri menn geta gert. Þeir frambjóðendur, sem fá 50 pró- sent eða meira í ákveðin sæti, eiga rétt á þeim sætum. Prófkjörið er ekki bindandi að öðru leyti. -sme SERVERSLUN FINUUX Hi-Fi Stereo - Litsjónvörp - Myndbandstæki NEC Myndbandstæki - Sjónvarpsleiktæki (Nintendc) Sjónvarpsleiktæki itnnQ(7n liLJlblil LnJ 8 mm Video-upptöku og afspilunarvélar 35 mm myndavélar OLYMPUS Lögreglan í Kópavogi fékk skyndilega liðsauka í bílaflotann i vikunni þegar þrir sænskir bilar voru fengnir til reynslu frá lögreglunni í Karlstad í Sví- þjóð. Lögreglumenn frá nokkrum stöðum á landinu hafa skoðað og reynslu- ekið bílunum. Einn þeirra er til dæmis útbúinn myndbandsupptökuvél sem getur mælt hraða bíla þegar lögreglubíllinn er á ferð. Bílarnir eru af gerð- inni Saab og eru tveir þeirra lengst til hægri á myndinni. Frá vinstri: Jonas Hafsteinsson, Guðmundur H. Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn, Guðrún Jack, Sigurður Gunnarsson, Valdimar Jónsson yfirlögregluþjónn og Sævar Finnbogason aðstoðarvarðstjóri. DV-mynd S 35 mm ljósmyndavélar YAMAHA Hljómtæki Litsjónvörp - Örbygljuofnar - Hljómtækjasett Ferðatæki - Bíltæki Innf lutningur með f lug- vélum færist í vöxt - er í mörgum tilfellmn oröinn ódýrari en sjóflutningar Margir kaupmenn halda því fram að í mörgum tilfellum sé orðið ódýr- ara að flytja vörur til landsins með flugi en með skipum. Árni Reynis- son, framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra stórkaupmanna, staðfesti í viðtali viö DV að þetta væri rétt. Hann sagði aö svonefndir safn- flutningar, þegar nokkrir innflytj- endur taka sig saman og fylla einn gám af vörum, væru orðnir hagstæð- ari með flugvélum en skipum. Flug- félögin eru farin að gefa umtalsverð- an afslátt í svona flutningum en til þess hafa skipafélögin verið ófáanleg. Þá benti Árni einnig á að í viðskipt- um kostaði tíminn peninga og það munaði um að geta fengið vöruna samdægurs eða daginn eftir að hún er pöntuð í stað þess að þurfa að bíða í ef til vill vikutíma. Það sem menn kalla tískuvörur hafa um nokkuð langan tíma verið fluttar til landsins með flugvélum. Þar má nefna vinsælustu popphljóm- plöturnar, hátískufatnað og fleira í þeim dúr. Eins eru mjög dýrar vörur gjarnan fluttar með flugvélum og hefur svo verið lengi. Árni Reynisson sagði að á því léki ekki vafi að vöruflutningar með flug- vélum til landsins færðust í vöxt. Hann spáði því að þeir myndu enn aukast um leið og drægi saman meö farmgjöldum flugfélaganna og skipa- félaganna. -S.dór sunpoK Videotökuljós Sjónaukar - Smásjár 11JÓMCO FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.