Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1989, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1989.
Vantraustiö fellt:
Stjórnin
, lifðiaf
Vantrauststlllaga stjómarandstöð-
unnar á ríkisstjóm Steingríms Her-
mannssonar var felld í kosningu í
nótt með 36 atkvæðum gegn 25 en
tveir þingmenn vora íjarverandi.
Fjórir stjómarþingmenn, þeir Hjör-
leifur Guttormsson, Karvel Pálma-
son, Skúli Alexandersson og Stefán
Valgeirsson, gerðu grein fyrir at-
kvæði sinu og lýstu yfir efasemdum
sínum um ágæti ríkisstjómarinnar.
Þeir greiddu henni síðan atkvæði
sitt. -SMJ
Málaferli
" vegna
fjölbýlishúss
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii;
Bústjóri þrotabús byggingarfyrir-
tækisins Híbýbs hf. hefur ákveðið að
höfða mál á hendur Akureyrarbæ,
og er deilt um eignarrétt á fjölbýbs-
húsi sm Híbýb byggði við Helga-
. magrastrætierfyrirtækiðvarðgjald-
•^þrota.
Húsið er metið á um 45 mbljónir
króna. Samkomulag varð um 17
núlljóna króna eignarhluta þess þeg-
ar ákveðið var að halda framkvæmd-
um áfram við húsið, en um hinn
hluta hússins, sem nemur um 30
mibjónum króna, er deilt. Akur-
eyrarbær telur sig eiga húsiö en bú-
stjóri þrotabúsins er á öðra máb og
vill ná eignarhlutanum sem um er
deilt undir þrotabú fyrirtækisins.
Innbrot
í Reykholti
upplýst
Innbrotið, sem var framið í Reyk-
holtsskóla í vikunni, hefur veriö upp-
lýst og hafa tveir ungir menn játað
að hafa farið þar inn og m.a. brotið
upp peningaskáp og stobð úr honum
ávísunum og peningum. Annar
mannanna er fyrrverandi nemandi í
skólanum. Lögreglan í Borgarnesi og
i Keflavík unnu saman að rannsókn
málsins. Náöist til annars mannsins
á Suðumesjum en hinn var í Reykja-
vík. Þýfið komst ekki til skba þar sem
þjófamir höfðu hent ávísununum og
eytt peningunum, auk þess höfðu
_þjófamir gert sælgæti, sem þeir
^stálu, góð skb. -OTT
Akureyri:
Grófu upp bjór
haugunum
Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyxi:
Ungir menn komust heldur betur
í feitt á öskuhaugunum á Akureyri
í fyrrakvöld. Þeir höfðu frétt að þar
hefði verið urðaður bjór frá Sana
og grófu eftir honum. Hafði sá sem
mest fékk um 300 dósir upp úr
krafsinu.
Forsvarsmenn Sana á Akureyri
ogeftirbtsmaður ÁTVR, sem sá um
urðun bjórsins, vilja ekki láta uppi
hversu mbtið magn var um að
ræða, segja að það hafi veriö „ein-
hverjir kassar'*. Frá bjórnum var
þannig gengið aö stór jarðýta
keyrði þvers og kruss yfir dósa-
hrúguna þar tb tabð var að allar
dósimar væru sprangnar og síðan
var mokað þykku malarlagi yfir.
Síöan uppgötvaðist eftir helgina
að einhverjir höfðu grafið niður i
gegn um malarlagið. Þá var enn
hætt á malarlagið og m.a. sett þar
inn í innyfli úr svinum. Þetta nægði
ekki því í fyrrakvöld var enn grafið
niöur á bjórinn. Einn þeirra sem
þar var að verki tjáði DV að sá sem
mest hafði upp hefði haldið heim
með um 300 dósir. Þegar þetta upp-
götvaðist var jarðýtan enn látin
fara yfir, róta öllu upp og nú er
talið öruggt að ekki sé ein einasta
bjórdós þama heil.
Jónas Friðrik Jónsson, formaður stúdentaráðs, leggur blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar í kirkju-
garðinum við Suðurgötu í morgun. Stúdentar minnast fullveldisdagsins með margvíslegum hætti
í dag. DV-mynd Brynjar Gauti
Tveir alvar-
lega slasaðir
- fluttir með þyrlu
Tveir menn slösuðust alvarlega
þegar bbl valt út af veginum skammt
frá bænum Starmýri í Álftafirði fyrir
innan Djúpavog á þriðja tímanum í
nótt. Þyrla Landhelgisgæslunnar
lenti við heilsugæslustööina á Höfn
í Hornafirði um hálftíu í morgun og
flutti þá tb Reykjavíkur. Höföu
mennimir verið fluttir tb Hafnar í
nótt frá slysstað á tveimur sjúkrabíl-
um og var annar mannanna meðvit-
undarlaus er þangað var komið.
Mennimir voru farþegar en þrír
aðrir voru í bílnum þegar slysiö varð
- þeir sluppu að mestu leyti við
meiðsl. Bílbnn er frá Djúpavogi. Þar
sem slysið varð er bundið sbtlag.
Vegagerðin hefur undanfarið unnið
við framkvæmdir nálægt slysstað.
-ÓTT
ísaQörður:
Mannlaus
strætó brunaði
niður hlíðina
Mannlaus strætisvagn rann fimm
til sex hundrað metra niður talsvert
bratta hlíð á ísafirði seint i gær-
kvöldi. Bílstjórinn hafði verið að
vinna í vagninum við Seljalandsveg
og brá sér inn á verkstæði. Þegar
hann kom út hafði strætisvagninn
runnið fram af götunni og niður
brekkuna sem liggur niður að næstu
götu fyrir neðan, Miötúni.
Afturendi vagnsins rakst oftsinnis
í jörðina á leiðinni niður og dró það
talsvert úr ferð. Strætóinn stöðvaðist
síðan á fólksbíl sem var á bbastæði
við Miðtún. Engin slys urðu á fólki
en fólksbbbnn og strætisvagninn
skemmdust allmikið. Tabð er að
hemlabúnaður strætisvagnsins hafi
gefið sig. -ÓTT
Nýja skipið til
Hvammstanga?
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Samningar hafa tekist mbb Sbpp-
stöðvarinnar á Akureyri og útgerð-
arfyrirtækisins Meleyri hf. á
Hvammstanga um kaup Meleyrar á
nýsmíðaverkefni Sbppstöðvarinnar.
Samningurinn er með fyrirvara
um samþykki lánastofnana og sjáv-
arútvegsráðuneytis. Sbppstöðin
mun taka rækjuskipið Glað HU upp
í nýja skipið sem Meleyri hyggst gera
út á rækju. Um fjögurra mánaða
vinna er eftir við skipið hjá Sbpp-
stöðinni.
LOKI
Svínarí aö fara svona
með bjórinn!
Veðrið á morgun:
Él vestan til
Á morgun veröur vestan- og
suðvestanátt, víðast kaldi eða
stinningskaldi. É1 um vestanvert
landið og á annesjum norðan-
lands, en þurrt og sums staðar
léttskýjað austanlands. Hitinn
verður 0-5 stig.
Kentucky
Fried
Chicken
Faxafeni 2, Reykjarik
Hjallahrauni 15, Hafnarfirði
Kjúklingar sem bragö er aö
Opið alla daga frá 11-22
BÍLALEIGA
v/FIugvallarveg
91-61-44-00