Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1990, Qupperneq 22
22
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1990.
Handknattleikur unglinga
0931 ;ía(ím/j
Landslið íslands, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, náðu stórgóðum árangri á opna Norðurlandameistaramótinu síðastliðið sumar. Liðið hafnaði
í 2. sæti eftir að hafa tapað með einu marki fyrir Norðmönnum i úrslitaleik.
haldið fyrir 6. flokk karla og 5. flokk
kvenna. A-lið ÍA sigraði í 6. flokki
en Stjarnan bar sigur úr býtum í
5. flokki kvenna. Þá voru einnig
vabn landslið og pressubð úr hvor-
um flokki fyrir sig og sigraði lands-
liðið í báðum leikjunum. Mót þetta
fór vel fram í alla staði.
Nóvember
í byrjun nóvember tryggðu
KR-stelpurnar í 3. flokki kvenna
sér Reykjavíkurmeistaratitilinn
með nokkrum yfirburðum. Víking-
ar urðu í öðru sæti. Þá voru undan-
úrshtaleikirnir í karlaflokkunum
spilaðir en úrslitaleikirnir sjálflr
voru svo spilaðir í desember.
í nóvember hófst svo sjálft ís-
landsmótið. Valsmenn unnu alla
leiki sína sannfærandi eins og við
var búist í 3. flokki karla. Höttur
frá Egilsstöðum vann 2. deildina
og leikur því í 1. deild í næstu törn.
KR-stelpurnar léku eins og sá sem
valdið hefur því þær unnu alla
andstæðinga sína frekar auðveld-
lega. Fram-stelpurnar sigruðu í 2.
deild. KR-strákarnir í 5. flokki
Stórgóður árangur
unglingalandsliðanna
- síðari hluti annáls 1989
Nýtt mótafyrirkomulag var tekið upp á síðasta ári í 6. flokki karla. Þessi
mynd er frá leik ÍR og Gróttu þegar keppnin um Kópavogsbikarinn fór
fram.
Maí
Það vakti athygli í byrjun maí
að engin verðlaun voru veitt fyrir
besta unglingastarf íþróttafélags í
handknattleik fyrir veturinn á
lokahófi HSÍ en þessi verðlaun
voru veitt fyrst 1987 og hafa aðeins
Stjarnan og Fram hlotið þessi eftir-
sóttu verðlaun.
Greint var einnig frá því að í
miklu væri að snúast fyrir ungl-
ingalandshð karla um sumarið.
U-16 færi á Atlantic Cup, U-18 á
Norðurlandamótið í Svíþjóð og U-
21 átti eftir að leika við Sviss um
rétt til aö leika í lokakeppni HM á
Spáni.
Handboltamennirnir og fyrrum
landsliðsmenn í handknattleik,
þeir Geir Hallsteinsson og Viðar
Símonarson, héldu sinn árlega
handboltaskóla í Hafnarfirði og var
hann vel sóttur. Þá var handknatt-
leiksdeild ÍR einnig með handbolta-
skóla fyrir yngstu handknattleiks-
mennina.
Landslið íslands, skipað leik-
mönnum 21 árs og yngri, tryggði
sér farseðihnn til Spánar með því
að gera jafntefli, 18-18, við Sviss-
lendinga og vinna þá í seinni leikn-
um, 28-24. Báðir leikimir voru
leiknir í Sviss og varð sú ákvörðun
'HSÍ til þess að þjálfari liðsins, Jó-
hann Ingi Gunnarsson, sagði af sér
að loknum leikjunum.
Mörg félög héldu lokahóf fyrir
handknattleiksfólk í maí enda hlé
gert yfir sumarmánuðina.
Júní
Hilmar Bjömsson var ráðinn
þjálfari U-21 árs landsliðsins og tók
hann við æfingum af Jóhanni Inga
Gunnarssyni. Ljóst var að hann
átti erfitt verkefni fyrir höndum
þar sem ísland lenti í erfiðasta riöl-
inum en ísland dróst með Spáni,
Vestur-Þýskalandi og Tékkósló-
vakíu.
Júlí
„ísland vann Noreg“ segir DV
og greinir þar frá glæsilegri b'yijun
íslenska drengjalandshðsins á
opna Norðurlandamótinu sem
fram fór í Svíþjóð. ísland vann
Noreg, 16-15, og Eistland, 25-16.
Kuwait mætti síðan ekki til leiks
, gegn íslandi í síðasta leik undan-
riðilsins og tryggöu íslendingar sér
þar með efsta sæti riöilins og rétt
til að leika um efstu sex sætin.
Velgengni hðsins hélt áfram og
tryggði ísland sér rétt til að leika
til úrslita á mótinu meö því að sigr-
aerkifjendurna, Dani, í hörkuleik,
22-21, og var það fyrirhði íslands,
Gunnar Andrésson, sem skoraði
sigurmarkiö á síðustu sekúndu
leiksins af 13 metra færi. ísland
tapaði síðan úrslitaleiknum, sem
var gegn Noregi, 21-20, eftir að
hafa haft sex marka forustu í seinni
hálfleik.
Umsjón
Heimir Ríkarðsson og
Brynjar Stefánsson
ÁgÚSt
Handknattleikssamband ís-
lands ákvað að sækja um að fá að
halda HM U-21 árs 1993 og taldi Jón
Hjaltalín þetta verða góðan undi-
búning fyrir HM 1995.
Víkingur og Stjarnan vora með
handboltaskóla fyrir yngri flokk-
ana og þá var Fram með æfingar
allt sumarið fyrir sína yngri flokka.
DV greinir frá því að UMFN hafi
neitað níu stúlkum í 3. flokk
kvenna um félagaskipti yfir í ÍBK
vegna skuldar stúlknanna við
UMFN.
.Víkingsstrákarnir í 3. flokki
karla ásamt einum „lánsmanni"
úr Fram, unnu lið frá Vestur-
Þýskalandi í úrslitaleik á móti í
Randers í Danmörku, 16-6.
Þá tók 4. flokkur karla ásamt 3.
og 4. flokki kvenna hjá Víking einn-
ig þátt í mótinu.
Hætt var við Atlantic Cup sem
átti að vera í Englandi og varð því
U-16 verkefnalaust allt sumarið.
September
U-21 árs gerði jafntefli við USA
og vann einnig léttan sigur á þeim
í æfingaleik og jafnframt síðasta
leik fyrir HM á Spáni, 30-21.
Liðið hóf síðan keppnina á Spáni
með því að vinna eins marks sigur
á V-Þjóðverjum í spennandi leik,
15-14. Næsti leikur hðsins var gegn
Spáni og tapaði ísland, 18-22, eftir
að hafa haft frumkvæðið framan
af. Með því að sigra Tékka í síðasta
leik undanriðilsins, 25-24, tókst ís-
landi aö komast í milliriðilinn.
Fyrsti leikur þeirra þar var gegn
Ungverjum og vann ísland stórsig-
ur, 30-21 og þá vannst einnig sigur
á Póllandi, 30-20. Tap gegn Svíþjóð
gerði það hins vegar að verkum að
Island lék gegn Frakklandi um 5.
sætið.
Einn besti árangur unglinga-
landsliðs frá íslandi leit síðan dags-
ins ljós er sigur vannst á Frökkum,
24-21, og 5. sætið á HM-21 var stað-
reynd. Þessi árangur landshðsins
tryggði Islandi þátttökurétt í næstu
lokakeppni er fram fer í Grikk-
landi.
Október
Handboltavertíðin hjá yngri
flokkunum hófst fyrir alvöra í
yngri flokkunum í október. Riðla-
keppni Reykjavíkurmótsins hófst
og var víöa hart barist. í karla-
flokkum var leikið í tveim riðlum
en vegna þess hversu fá félög senda
lið til keppni í kvennaflokkunum
léku stelpumar aðeins í einum
riöh. Framarar tryggðu sér Reykja-
víkurmeistaratitla í 4. og 5. flokki
kvenna.
DV greindi ítarlega í máh og
myndum frá vel heppnuðu móti
Sjóvá og Almennra. Mót þetta var
karla höfðu ótrúlega yfirburði í 1.
deild. Þeir unnu alla andstæðinga
sína létt.
En þrátt fyrir að KR hefði mikla
yfirburði í íslandsmótinu í 5. flokki
karla gerðu Valsmenn sér lítið fyr-
ir, slógu þá út úr Reykjavíkurmót-
inu og tryggðu sér réttinn til að
leika til úrshta gegn ÍR.
Valsmenn fengu ekki að leika
undanúrslitaleikinn í 3. flokki
karla því þeir voru kærðir fyrir að
nota ólöglegt lið og voru dæmdir
úr leik. Fram og Víkingur tryggðu
sér réttinn til að leika til úrslita.
Víkingar tryggðu sér réttinn til
að leika gegn Fram í úrslitaleik í
6. flokki karla er þeir unnu Leikni
frekar auðveldlega. En framlengja
þurfti leik Fram og KR til að fá fram
úrsht en Framarar sigruðu að lok-
um.
KR og Valur tryggðu sér réttinn
til að leika til úrslita í 4. flokki karla
en þessi lið unnu bæði andstæðinga
sína. KR sigraði Fram en Valsmenn
sigraðu Víkinga.
12. flokki kvenna unnu Víkingar
1. deildina með yfirburðum en
Stjaman sigraði í 2. flokki karla í
1. deild.
FH sigraði í 1. deild 4. flokks karla
eftir harða baráttu við Stjörnuna.
Hauka-stelpurnar úr Hafnarfirði
sigraöa alla andstæðinga sína í 1.
deildinni þegar 4. flokkur kvenna
áttist við. Þar með var lokið fyrstu
törn íslandsmótsins og lofaði fram-
staða margra hða góðu en önnur
þurfa greinilega að bæta sig mikið.
Desember
Hveragerði vann aha leiki sína
sagði DV í fyrirsögn í byijun des:
ember. Strákarnir í 6. flokki UFHÖ
tryggðu sér Kópavogsbikarinn sem
leikið var um í fyrsta sinn en það
var HK sem hélt veglegt og vel
skipulagt mót fyrir þennan aldurs-
flokk.
Úrslitaleikir Reykjavíkurmótsins
í handbolta fóra fram um miðjan
desember. Eftir framlengdan leik
unnu Víkingar Framara í 6. flokki
karla. Valsmenn sigraðu í 5. og 4.
flokki karla. Víkingar sigruðu í 3.
flokki og Fram í 2. flokki karla.
Þar með lauk keppni yngri flokk-
anna árið 1989.