Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1990, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1990, Blaðsíða 43
LAUÖARDAGUR 13. JAXÚAR 1990. 51 Afmæli Magnús Bergsteinsson Magnús Bergsteinsson húsa- smíðameistari, Skaftahlíö 42, Reykjavík, verður sjötíu og fimm ára á morgun, 14. janúar. Magnús fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í foreldrahúsum á Spít- alastíg 8. Hann lauk bamaskóla- námi í Miðbæjarskólanum, prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík og sveins- prófi 1935, en fékk meistararéttindi 1943. Síðan starfaði Magnús sem atvinnurekandi í Reykjavík og víð- ar. Hann hætti sjálfstæðum at- vinnurekstri 1978, en hóf þá störf hjá Háákóla íslands og nú starfar hann sem byggingastjóri Háskól- ans. Eiginkona Magnúsar er Elín Svava Sigurðardóttir húsmóðir, f. 7.8.1920. Foreldrar hennar vom Marólína Guðrún Erlendsdóttir húsmóðir og Sigurður Halldórsson, verkstjóri hjá Reykjavíkurborg. Sonur Magnúsar fyrir hjónaband erRagnar Bergsteinn, f. 11.9.1937, búsetturíNoregi. Börn Magnúsar og Elínar: Óskírður drengur, f. 7.11.1939, d. 18.1.1940. Bergsteinn Ragnar, f. 31.3.1941, byggingameistari í Svíþjóð, og á hann fjögur börn affyrra hjóna- bandi. Marólína Arnheiður, f. 24.7.1942, verslunarmaður, gift Boga Sigurðs- syni vélvirkja, og eiga þau tvö börn. Ragnhildur, f. 29.12.1947, gift Ás- geiri Sveinssyni vélfræðingi, og eiga þaufjögurbörn. Sigrún, f. 4.2.1950. Magnús Svavar, f. 6.1.1954, húsa- smiður, og á hann þrjú börn. Margrét Halla, f. 9.12.1954, verk- stjóri. Systkini Magnúsar: Arnheiður, f. 3.4.1902, látin, var gift Franz Páli Þorlákssyni skipstjóra, látinn, og eignuðust þau sjö börn; Jón, f. 30.6. 1903, byggingameistari, var fyrst kvæntur Mörtu Guðnadóttur, sem nú er látin, og eignuðust þau fjögur börn, en er nú kvæntur Svanbjörgu Halldórsdóttur; Jóhannes Ragnar, f. 3.1.1912, múrarameistari, var kvæntur Dýrleifu Hermannsdóttur, nú látin, og eignuðust þau fjögur börn; Þórir Högni, f. 2.8.1917, nú látinn, múrarameistari, var kvænt- ur Þuríði Sigmundsdóttur, sem nú er látin, og eignuðust þau þrjú börn; og Gunnar Kristinn, f. 29.8.1923, forstjóri Landhelgisgæslunnar, kvæntur Brynju Þórarinsdóttur, og eiga þau fjögur börn. Foreldrar Magnúsar voru Berg- steinn Jóhannesson, f. 6.1.1875, d. 21.5.1940, múrarameistari í Reykja- vík, og Ragnhildur Magnúsdóttir húsmóðir, f. 20.11.1879, d. 29.12.1935. Bergsteinn var sonur Jóhannesar, b. í Litlagerði í Hvolhreppi, Berg- steinssonar, b. á Árgilsstöðum, Sig- urðssonar, b. á Árgilsstöðum, Sig- urðssonar. Móðir Jóhannesar var Þórunn Einarsdóttir, b. á Velli í Hvolhreppi, Ásmundssonar. Móðir Bergsteins var Ragnhildur Þorsteinsdóttir, b. á Minnahofi, Bjarnasonar, b. á Arnarhóli í Land- eyjum, Einarssonar. Móðir Þorsteins var Katrín Jóns- dóttir. Móðir Ragnhildar var Ragn- hildur Sveinsdóttir, b. í Marka-. skarði, Þórarinssonar, og Svanliild- ar Hansdóttur. Ragnhildur, móðir Magnúsar, var dóttir Magnúsar, b. á Holtsmúla á Landi, Magnússonar, b. á Stokka- læk, Guðmundssonar, b. í Króktúni, Magnússonar. Móðir Magnúsar Guðmundssonar var Guðrún Pálsdóttir. Móðir Magnúsar á Holtsmúla var Vigdís Guömundsdóttir, b. á Stokkalæk, Ólafssonar, og Ragnhildar Brands- dóttur. Móðir Ragnhildar Magnúsdóttur var Arnheiður Böðvarsdóttir, b. á Reiðarvatni, Tómassonar, b. í 100 ára: Ása Guðmundsdóttir Theodórs Ása Guðmundsdóttir Theodórs, Droplaugarstöðum, Reykjavík, er hundraðáraídag. Ása er fædd á ísafirði, í Beykis- húsinu, og ólst hún þar upp. Hún gekk í barnaskóla og gagnfræðskóla á Ísaíirði en þegar ritsíminn var stofnaður þar gerðist hún síma- stúlka og var hún hin fyrsta. Þar vann hún uns hún giftist og flutti til Borðeyrar. Þar vann hún öðru hveiju við símann enfjölskyldan flutti til ísafjarðar árið 1930 þar sem eiginmaður hennar gerðist starfs- maður Landsbankans. Eftir lát manns síns árið 1939 flutti Ása til Reykjavíkur og skömmu seinna hóf hún störf við ritsímann í Reykjavík þar sem hún vann til sjötugs. Hún fékk viðurkenningu fyrir frábært starf á löngum starfsferh. Á Drop- laugarstöðum hefur Ása dvalið síð- anl983. Ása giftist þann 21.5.1919 Hendrik E. Theodórs, f. 8.8.1889, d. 17.8.1939, verslunarstjóra við Riis verslunina á Borðeyri. Foreldrar hans voru Theodor Ólafsson, dómkirkjuprests i Reykjavík, Pálssonar, og Arndís Guðmundsdóttir, prests á Borg á Mýrum, Vigfússonar. Sonur Ásu og Hendriks var Ric- hard Pétur Theodórs, f. 22.4.1920, d. 19.1.1988, skrifstofustjóri Reykja- víkurhafnar, sem kvæntur var Dóru Sigurjónsdóttur, dóttur Sigurjóns Jónssonar verslunarstjóra og Guð- finnu Vigfúsdóttur. Fósturdóttir Ásu og Hendriks var Þórunn Björnsdóttir og kom hún til þeirra sjö ára gömul. Systkini Ásu voru: Páll, var bú- settur á Staten Island í New York; Sigríður, var búsett á ísafirði; og Kjartan, var búsettur á ísafirði. Foreldrar Ásu voru Guðmundur Pálssonbeykir, f. 26.8.1850, d. 16.2. 1937, og Guðfmna Rósikransdóttir húsmóðir, f. 29.3.1854, d. 30.7.1923. Guðmundur var sonur Páls, b. að Ósi i Bolungarvík, Halldórssonar, hreppstjóra og b. í Neðri-Hnífsdal, Pálssonar, hreppstjóra og b. í Ytri- Húsum, Halldórssonar. Móðir Halldórs í Neðri-Hnífsdal var Margrét Guðmundsdóttir. Móð- ir Páls að Ósi var Margrét Ólafs- dóttir, Svartssonar, og Elínar Hall- dórsdóttur. Móðir Guðmundar beykis var Sig- ríður Bjarnadóttir, faktors Bjarna- sonar, b. á Sandeyri, Guðmundsson- ar. Móðir Ásu var Guðfinna Róskin- kransdóttir, b. að Tröð í Önundar- firði, Kjartanssonar, b. að Tröð, Ól- afssonar, b. á Eyri, Magnússonar. Móðir Guðflnnu var Guðlaug Páls- Magnús Bergsteinsson. Gunnarsholtshjáleigu, Jónssonar. Móðir Böðvars var Helga Páls- dóttir. Móðir Arnheiðar var Guðrún Halldórsdóttir, b. á Reyöarvatni, Guðmundssonar, og Ingibjargar Halldórsdóttur. Magnús verður að heiman á af- mælisdaginn. Ása Guðmundsdóttir Theodórs. dóttir. Ása getur ekki tekið á móti gestum sökum vanheilsu. Sigurborg Hjartardóttir Sigurborg Hjartardóttir. Sigurborg Hjartardóttir verka- kona, Vífilsgötu 12, Reykjavík, verð- ur sjötíu og fimm ára á morgun, 14. janúar. Sigurborg er fædd í Gröf í Gufu- dalshreppi í Austur-Barðastrandar- sýslu og bjó þar heima hjá foreldr- um sínum til 28 ára aldurs en þá flutti hún lögheimili sitt út í Flatey á Breiðafirði. Til Reykjavíkur flutt- ist Sigurborg árið 1954 og hefur síð- ustu 15 árin starfað sem ganga- stúlka á Dvalarheimili aldraðra, Hrafnistu. Hálfsystkini Sigurborgar, sam- mæðra, voru: Sigríður Matthías- dóttir og Jón Matthíasson. Dætur Jóns eru: Aðalbjörg, gift Skúla Ól- afssyni deildarstjóra; og Lilja Sigur- rós, gift Ægi Geirdal. Foreldrar Sigurborgar voru Hjört- ur Jónsson bóndi, f. 3.4.1875, d. 12.3. 1943, og Valgerður Jónsdóttir hús- móðir, f. 21.3.1869, d. 4.12.1953. Hjörtur var sonur Jóns, b. í Gröf, Björnssonar, b. á Kletti, Björnsson- ar, Arnfmssonar, Jónssonar. Bróðir Arnfinns var Einar, sem Kollsvík- urætt er komin frá, en frá foreldrum þeirra bræðra er komin Grafarætt. Móðir Hjartar var Þrúður Ingi- björg Einarsdóttir, b. á Hofstöðum og Skálanesi, Sveinssonar, og Ingi- bjargar Gísladóttur, hreppstjóra í Brekku í Gufudalssveit, Jónssonar. Valgerður, móðir Sigurborgar, var dóttir Jóns, b. á Kleifarstöðum, Jónssonar, b. á Galtará, Guðnason- ar, Jónssonar. Móðir Jóns á Kleifar- stöðum var Helga Guðmundsdóttir. Móðir Valgerðar var Valgerður Hafliðadóttir, b. á Laugabóli í ísaflrði, Guðnasonar, Jónssonar. Móðir Valgerðar Hafliðadóttur var Valgerður Þórðardóttir, b. á Lauga- bóli, Magnússonar. Hafliði á Lauga- bóli og Jón á Galtará voru bræður. Sigurborg verður að heiman. Andlát Guðjón B. Baldvinsson Guðjón B. Baldvinsson, fyrrv. deildarstjóri og fyrrv. formaður BSRB, Hagamel 27, Reykjavík, lést aðfaranótt laugardagsins 7. janúar sl. áttatíu og eins árs að aldri. Guðjón fæddist að Refsstöðum í Hálsasveit en ólst upp að Barði í Reykholtssveit hjá fósturforeldrum sínum, Lárusi Jónssyni og Ólöfu Grímsdóttur. Hann nam við Alþýðuskólann á Laugum 1926-28 og var síðan á nám- skeiðum í bókfærslu og tungumál- um. Guðjón var verkamaður í Reykja- vík 1931-34, starfsmaður hjá skipu- lagsnefnd atvinnumála 1934-35, hjá Tryggingastofnun ríkisins 1936-46, hjá Skattstofunni í Reykjavík frá 1946 og deildarstjóri þar en í fullu starfi hjá BSRB frá 1969. Guðjón sat í samstarfsnefnd BSRB og ríkisins í fjölda ára og í stjórn BSRB frá stofnun 1942 og í áratugi, ritari þar í fjölda ára og formaður samtakanna í eitt ár. Hann átti sæti í Kjararáði og í Starfsmannafélagi ríkisstofnana 1939-59 og þá ýmist formaður eða varaformaður. Hann var í stjórn FUJ1931-39 og í stjórn SUJ um skeið frá 1932. Þá sat hann í stjórn Jafnað- armannafélags íslands, Alþýöu- flokksfélags Reykjavíkur og Verka- mannafélagsins Dagsbrúnar. Hann var fulltrúi á ASÍ-þingum 1932-38 og var varaþingmaöur 1934-37. Hann var formaöur Sambands líf- eyrisþega ríkis og bæja frá 1981. Þá sat Guðjón í stjórn Guðspekifélags- ins um nokkurt skeið og var forseti félagsinsíeittár. Fyrri kona Guðjóns var Steinunn, f. 29.3.1907, Jónsdóttir, b. að Hóli í Höfðahverfi, Sveinssonar, ogkonu hans Valgerðar Jónsdóttur. Guðjón og Steinunn skildu en börn þeirra eru: Valgerður Jóndís, matráðskona í Kópavogi, f. 1931: Baldvin Lárus, sjómaður í Garðabæ, f. 1933, og Hilmar Gylfi, múrari og eigandi Helluslípunar í Kópavogi, f. 1935. Seinni kona Guðjóns er Anna, f. 12.6.1900, dóttir Guðmundar Ein- arssonar, múrara í Reykjavík. Son- ur Guðjóns og Önnu er Baldur Freyr, tölvufræðingur í Horsholm í Danmörku, f. 1942. Guðjón var þriðji í röð átta systk- ina, en systkini hans eru öll á lífi. Foreldar Guðjóns voru Baldvin Jónsson, f. 21.9.1874, d. 1.7.1964, b. að Grenjum í Álftaneshreppi, og kona hans, Benónýja Þiðriksdóttir, f. 20.11.1872, d. 8.2.1969, húsfreyja. Baldvin var sonur Jóns, b. á Búr- felli í Hálsasveit, Gíslasonar, b. í ' Sarpi, Jónssonar. Móðir Jóns á Búr- felli var Guðrún Pálsdóttir. Móðir Baldvins var Ástríður Guð- rún Halldórsdóttir, b. í Skáneyjar- koti, Þórðarsonar. Móðir Ástríðar var Ingibjörg Samsonardóttir, b. á Rauðsgili, Jónssonar. Móðir Ingi- bjargar var Helga Tómasdóttir frá ÁsgeirsáíVíðidal. Móðir Guðjóns, Benónýja, var dóttir Þiðriks, b. á Háafelli í Hvítár- síðu, Þorsteinssonar, b. á Hurðar- baki, Þiðrikssonar. Móðir Þiðriks á Háafelli var Steinunn Ásmunds- dóttir. Móðir Benónýju var Guðrún, syst- ir Helga, fóður Jóns Helgasonar, skálds og prófessors í Kaupmanna- höfn. Guðrún var dóttir Sigurðar, b. á Háafelli, bróður Guðmundar, b. Sámsstöðum í Hvítársíðu, afa Jóns, b. og skálds á Háreksstöðum, föður Þórðar á Högnastöðum, afa Þórarins Tyrfingssonar yfirlæknis. Jón var einnig faðir Helgu, ömmu Páls Gíslasonar, formanns Ung- mennafélagssambands íslands. Bróðir Jóns var Jóhann, alþingis- maður í Sveinatungu, afi Jóns Sig- urössonar, framkvæmdastjóra Stöðvar2. Sigurður á Háafelli var sonur Guðjón B. Baldvinsson. Guðmundar, b. á Háafelli, Hjálm- arssonar, og Helgu Jónsdóttur, ætt- foreldra Háafellsættarinnar. Móöir Guðrúnar var Þuríður Jónsdóttir, b. á Signýjarstöðum í Hálsasveit og í Deildartungu, Jóns- sonar, hreppstjóra og dbrm í Deild- artungu, ættföður Deildartunguætt-. arinnar, Þorvaldssonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.