Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1990, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1990, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1990. - segir Jónas Bjamason efnaverkfræðingur eftir að hafa lamast í slysi „Ég þarf ekki aö telja sjálfum mér trú um að ég standi upp aftur,“ segir Jónas Bjarnason. „Ég á ekki til í mínum orðaforða þau orð eða sambönd þeirra sem geta lýst svartnætti örvæntingarinnar sem stundum hefur gripið mig. Samt hef ég aldrei látið mér detta í hug að gefast upp. Þaö hefur aldrei komið til greina að pakka saman,“ segir Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur sem fyrir rúmu ári varð fyrir slysi með þeim afleiðingum að hann lamaðist fyrir neðan mitti. Hann hefur síöan verið bundinn við hjólastól og verður að sæta því það sem eftir er ævinnar. „Ég þarf ekki að telja sjálfum mér írú um að ég standi upp aftur, það hefur verið mér ljóst alveg frá því ég vaknaði upp á sjúkrahúsinu eftir slysið," segir Jónas. Hann er nú farinn að vinna á ný eftir að hafa verið á sjúkrahúsi og í endurhæfmgu í ár. Enn sem komið er vinnur hann um þrjá fjórðu úr vinnudegi, mætir klukkan 9 á morgn- ana og er til 3 á daginn. fnnan skamms reiknar hann með að vinna fulla vinnu. Jónas er deildarstjóri yfir almennri efnafræðideild hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins. Brá sér uþp áþak aðmála Það var haustið 1987 að Jónas fór upp á þak að mála. Hvernig þeirri vinnu lauk man hann ekki. Það næsta sem hann man er að vakna upp á sjúkrahúsi tveimur dögum síð- ar, lamaður fyrir lífstíð. „Sennilega hefur samspil af ýmsum óheppilegum atvikum komið til,“ segir hann. „Allt sem gerðist er horf- ið úr minninu og ég man ekkert hvað gerðist. Ég var með stiga sem ég krækti yfir mæninn á húsinu. Hann hefur líklega gefið sig því hann lá brotinn á jörðinni við hliðina á mér eftir fallið. Þaö var líka byrjað aö rigna og því sleipt á þakinu og ég runnið til. Líkiega er það þetta tvennt sem hefur ráðið úrslitum." „Ég getekki hreyft fæturna" „Nágrannar mínir urðu sjónarvott- ar aö slysinu. Magnús Jensson bygg- ingameistari, sem býr í næsta húsi, hljóp út og kom mér til hjálpar. Hann sagði mér síðar að ég hefði sagt: „Ég get ekki hreyft fætuma.“ Sjálfur man ég ekkert. Eg fór aö reyna að brölta um og það varð síst til að bæta úr. Ég man fyrst eftir mér á sjúkrahús- inu þar sem ágætur skólabróðir minn, Bjami Hannesson læknir, var að stumra yfir mér. Hann sagði mér hvemig komið var en ég tók tíðind- unum mjög rólega. Hann sagði að ég gæti ekki gert mér mikl'ar vonir um bata því ég lamaðist strax. Þá bókaði ég strax að ég yrði í hjóla- stól það sem eflir væri ævinnar en samt leyndist sú von í brjósti að ég næði mér á ný. Það rann síðan smátt og smátt upp fyrir mér að ég gengi aldrei aftur á tveimur jafnfljótum. Mænan er varanlega sködduð og það er ekki hægt að tengja hana sam- an á ný. Þó eru Rússar að gera til- raunir með að tengja saman taugar en ég veit ekki hvað þeir hafa náö langt. Ég kenndi lífræna efnafræði við læknadeild Háskólans í níu ár þannig að ég er ekki alveg ókunnugur öllum hliðum þessara mála.“ Hraldörunum ekki lokið Hrakförum Jónasar var þó ekki lokið strax því á sjúkrahúsinu varð hann fyrir, ýmsum áföllum og var lengur þar en hann hefði annars þurft. „Þegar ég hafði legið tvær vik- ur á Borgarspítalanum vaknaði ég upp við það eina nóttina að mér var mjög sárt um andardrátt," heldur Jónas áfram frásögninni. „Þetta var svo sárt að ég vildi helst ekki anda að mér. Ég var driflnn í rannsókn og lungun skoðuð með sér- stökum mælitækjum. Bjarni læknir sagði mér að ég væri með blóðtappa í lungunum. Svo mikið var volæðið á mér þá að ég hugsaði aðeins meö mér: „Og hvað með það?“ Mér hefði staðiö á sama þótt hann hefði sagt mér að lungun væru alveg ónýt. Eftir þetta bættist lungnabólga viö og ég var lengi að jafna mig áður en ég gat fariö í endurhæflngu. Þegar ég var svo sendur af Borgarspítalan- um í endurhæfingu á Grensásdeild sagði læknirinn þar aö ég væri hund- veikur og sendi mig til baka á spítal- ann. Þá var enn farið að skoða lungun og í ljós kom að í þau hafði safnast rúmur lítri af blóövatni. Þessi vandræði stöfuðu öll af hreyf- ingarleysi. Upptökin voru í fótunum sem voru vitaskuld alveg hreyflngar- lausir. Þar hafa því myndast blóð- tappar sem náttúran sér um að síist úr í lungunum svo þeir fari ekki til heilans eða hjartans. Þetta eru kvill- ar sem fylgja algeru hreyflngarleysi og síst urðu þeir til að auka bjartsýn- ina hjá mér.“ Á dýpsta botn örvæntingarinnar „Ég var þó ekki beinlínis svartsýnn á framtíðina heldur eins og vonlaus og sama um allt. Ég var þó ekki á lyfjum sem gátu brenglað dóm- greindina. Það var ekki fyrr en síðar að ég sökk niður á dýpsta botn ör- væntingar. Það var skelfileg tilfinn- ing og ólýsanleg. Eg þakkaði þó fyrir að hafa höfuð og hendur og hlaut að viðurkenna að ýmsir hefðu farið verr út úr slys- um af þessu tagi. Hálsbrot hefði þýtt að ég missti allan mátt fyrir neðan háls en ég var þó aðeins lamaður fyr- ir neðan mitti. Mér var líka ljóst að aðstaða mín var öll önnur og betri en margra annarra. Þá á ég sérstak- lega við unga menn sem ekki hafa komið sér fyrir í lífinu og eru svo ef til vill atvinnulausir til viðbótar við allt annað. Mér var strax tjáð að ég gæti haldið vinnu minni hjá Rannsóknastofnun fiskiönaðarins og mætti þar bæði skilningi og vináttu. Þetta skiptir miklu máli og hjálpar mönnum að komast yfir versta áfallið. Samt var það skelfileg tilfinning að vita sig lamaðan. Ég veit það nú að það er ótalmargt sem ég get gert af því sem ég hafði gaman af áður. Þar á meðal er að skrifa greinar í DV sem ég reikna með að byrja á fljótlega. Núna, þegar ég er að komast á full- an skrið á ný, finn ég til þakklætis í garð starfsfólks Borgarspítalans og Grensásdeildarinnar. Sérstaklega ber ég hlýjan hug til starfsfólksins á Grensási þar sem ég var í tíu mán- uöi. Sumir sem þar eru verða beiskir og kröfuharðir í garð þess og ég kann að hafa verið erfiöur á stundum en þetta fólk sýndi mér góðvild í hví- vetna.“ Verð ekki á þeytingi hér eftir í haust kom Jónas úr endurhæf- ingu og hefur síðan verið aö læra að

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.