Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1990, Síða 33
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1990.
I>V
Sinn er siður í landi hverju:
41
Lífestm
Kynntu þér venjur og
siði annarra þjóða
Þaö gilda allt aðrar samskiptaregl-
ur manna á meðal í Marrakech en í
Reykjavík, enda er sinn siöur í landi
hverju, eins og máltækið segir.
í ólíkum þjóðfélögum gilda ákveðn-
ar reglur um hvað telst sómasamleg-
ur klæðnaður, góðir borðsiðir,
hvernig menn heilsast og kveðjast,
ljósmyndatökur' og svo framvegis.
Ferðafólk ætti að hafa í huga að það
er gestir í þeim löndum sem það
heimsækir og oft er hægt að forðast
óþarfa ókurteisi með því að kynna
sér venjur og siði íbúanna áður en
haldið er af stað. Með því kunna skil
á hvað er tilhlýðileg framkoma nær
ferðamaðurinn oft mun betra sam-
bandi við íbúa þeirrar þjóðar sem
hann heimsækir og á auðveldara
með að mynda vináttutengsl við þá.
Ef þú ert í vafa hvað telst tilhlýði-
leg framkoma átt þú að leita ráða.
Stundum getur þó síðastnefnda ráðið
verið vafasamt. Kóreubúar eru allir
af vilja gerðir til að aðstoða ferðafólk
og svara spurningum þess, jafnvel
þótt þeir viti ekki rétt svar. Ef þeir
eru spurðir til vegar vísa þeir manni
leiöina, jafnvel þó að þeir viti ekki
hvað er rétt eða röng leið. Þeir ljúga
til að bjarga.andlitinu því þar á bæ
þykir skömm að því að geta ekki
svarað því sem um er spurt.
Tungumál líkamans
Annað sem fólk á ferðalagi ætti að
gera er að veita því athygli hvernig
innfæddir nota bendingar og aðrar
líkamshreyfmgar þegar þeir tjá sig.
Svo þarf aö hafa í huga hvaða líkams-
hreyfmgar eru viðeigandi á hverjum
staö. í Thailandi þykir til dæmis ekki
sæmandi að snerta höfuð annarrar
manneskju. Ástæðuna má rekja til
þess að búddistar trúa að höfuðið sé
mikilvægasti hluti líkamans og þar
búi sál mannanna. Höfuðsnerting
jafngildir þá því að sáhn sé snert.
Eins gildir sú regla þar í landi að
ef þér lágvaxnari eldri manneskja
situr við hlið þér eða stendur á sú
yngri að beygja sig uns hún sýnist
minni en sú eldri. Þetta þykir sjálf-
sögð virðing fyrir ellinni. Búddatrú-
armenn hafa strangar reglur um
hvað séu viðeigandi líkamshreyfing-
ar og stellingar. Þeir hta til að mynda
niöur á þá sem sitja með krosslagða
fætur þvi í þeirra huga teljast fæt-
urnir til óæðri hluta líkamans.
Matur er
mannsins megin
Um borðsiði gilda mismunandi
reglur frá landi til lands. Grönnum
okkar, Finnum, þykir það hrein og
bein ókurteisi ef gestur þeirra þiggur
ekki eftirrétt á eftir góðum mat -
jafnvel þó að viðkomandi sé í megr-
un. Með því að eta eftirréttinn sýnir
gesturinn að hann sé þakklátur fyrir
matinn sem borinn var á borð fyrir
hann. Annars vefst það yfirleitt ekki
fyrir íbúum vestrænna menningar-
samfélaga hvað sé viðeigandi og hvað
ekki í þessum efnum. Allt annað gild-
ir þegar aðrir menningarkimar eru
heimsóttir. Við myndum sjálfsagt
kippast til í sætunum ef við kæmum
inn á fínt veitingahús og fólk sæti
þar og borðaöi með fmgrunum. Það
þykir hins vegar ekkert tiltökumál
að snæða með fíngrunum í Nepal,
Norður-Afríku og Austurlöndum
fjær. Yfirleitt er það hægri höndin
sem er notuð til að borða með vegna
þess að sú vinstri þykir óhrein, enda
oft notuð til að hreinsa óæöri end-
ann. Þessa staðreynd þarf fólk að
hafa í huga þegar það snertir mat,
tekur í hendur fólks eða snertir það
á einhvern hátt.
í ekki fjarlægara landi en Rúss-
landi þykir við hæfi að snæða fisk
með fingrunum í stað þess að nota
hníf og gaffal en víða þar í landi gilda
sérstakar reglur um hvernig fisks
skuli neytt.
Táknmál blómanna
í sumum löndum er táknmál blóma
mjög mikilvægt, til dæmis í Austur-
löndum. Ef gefa á Austurlandabúa
blóm verður að velja þau af mikilh
kostgæfni. Hvítar chrysantemur eru
forboðnar til gjafa í Japan því þær
eru eingöngu notaðar við jarðarfarir.
Og taktu aldrei með þér pottaplöntu
til að gefa sjúkhngi sem hggur á
sjúkrahúsi. I sumum menningar-
samfélögum, til dæmis í Japan, þar
sem blóm eru táknræn, trúa menn
því að eins og plöntur eru gróðurseít-
ar í jörð sé hægt að gróðursetja sjúk-
dóma í líkömum annars fólks.
Verslun og viðskipti
Reglur um viðskipti og þjórfé eru
mismunandi frá landi til lands. í
Malawai er það ókurteisi að ræða
lágt, svo sem Perú, Indlandi og Ma-
rokkó.
Aftur á móti gilda ekki sömu reglur
í Japan. Þar er það ókurteisi að bjóða
þjórfé. Menn inna þar af hendi
ákveðna þjónustu fyrir ákveðiö gjald
og leggja kapp á að hún sé sem bestV
Á móti ætlast þeir til að gesturinn
sýni fullkomna háttvísi og kurteisi
en sé ekki með einhverja óþarfa
heimtufrekju.
Ljósmyndir
Þeir sem taka mikið af ljósmyndum
á ferðalögum sínum ættu að hafa í
huga að ýmsum þjóðflokkum er illa
við að láta taka myndir af sér. Ástæð-
an er sú að þeir trúa því að sá sem
nær að festa þá á mynd eignist sál
þeirra.
Víða í múhameðstrúarlöndum, þar
sem myndatökur eru leyfðar, þykir
samt sem áður sjálfsögð kurteisi að_
spyrja fólk hvort því sé sama hvorf
myndir séu teknar af því eða ekkí.
Annað getur valdið óþarfa uppi-
standi og orðið til þess að fólk fari
að deila um hvort greiöa eigi því fyr-
ir myndatökuna.
Það er sem sagt ekki svo einfalt að
heimsækja aðrar þjóðir þar sem allt
aðrir siðir og venjur gilda. Menn
ættu því að kynna sér vel áður en
þeir leggja í hann hvaöa siðareglur
og kurteisisvenjur gilda á hveiju
menningarsvæði.
armanna.
ekki um daginn og veginn við sölu-
menn á götum úti. Það þýðir lítið að
ætla sér að gera góð kaup á ein-
hveijum hlut og hverfa svo á braut
þegar gengið hefur verið frá viðskipt-
unum því þá þykir innfæddum við
hæfi að viðskiptavinurinn ræði við
þá um daginn og veginn og drekki
jafnvel með þeim úr einum kaffi-
bolla.
Þjórfé, sem sums staðar þykir sjálf-
sagt að gefa, getur veriö hin mesta
ókurteisi að bjóða á öðrum stöðum.
í Egyptalandi þykir sjálfsagt að gefa
dyravörðum, burðarkörlum, þjónum
og yfirleitt öllum þeim er inna ein-
hverja þjónustu af hendi örlítið
þjórfé; annað er ekki kurteisi. Og
sömu reglur gilda í mörgum þriðja-
heimslöndum þar sem kaup er mjög
Takið ekki myndir nema biðja um leyfi til þess áður.
Nú er hægt að kaupa flugmiöa á
fremur hagstæðu verði um víða
veröld.
Flugfargjöld um
víða veröld
Nú bjóöast fremur hagstæð far-
gjöld tíl ýmissa fjarlægra staða í
heiminum og er ýmist flogið héðan
um Kaupmannahöfn og þaðan
áfram með SAS eða frá Amsterdam
og þaðan á áningarstað með KLM
og sömu leið til baka.
Upplýsingar um flugfargjöld
þessi er hægt að fá hjá söldudeild-
um Arnarflugs og Flugleiða svo og
á ýmsum ferðaskrifstofum.
Sem dæmi um þessi flugfargjöld
má faka að flug fram og til baka til
Tel Aviv kostar um 57.000 krónur
sé farið um Amsterdam en um
55.000 krónur sé farið um Kaup-
mannahöfn. Nánast sama verð er
á flugfari til Kaíró, sama hvort flog-
ið er um Kaupmannahöfn eða
Amsterdam.
Til Sao Paulo kostar flugfarið um
95.000 krónur sé farið um Amster-
dam en um 86.000 krónur sé flogið
um Kaupmannahöfn.
Það eru ýmsir á þessum árstíma
sem vilja leggja leið sína til Bang-
kok og þangað kostar flugfar, sé
flogið um Kaupmannahöfn, um
71.000 krónur en ef flogið er um
Amsterdam hækkar verðið um
rúmar 10.000 krónur.
Hong Kong er enn einn fjarlægur
staður og flugfar þangað kostar
rétt rúmar 107.000 krónur ef ferðast
er um Amsterdam.
Loks má svo taka dæmi af verði
á fiugmiða til Buenos Aires. Það
kostar rétt um 100.000 krónur að
fljúga þangað um Amsterdam en
um 90.000 krónur ef ferðast er um
Kaupmannahöfn.
Flugmiðamir gilda í 90 daga og
inni í verði þeirra er ekki innifalinn
flugvallarskattur. -J.Mar
Lausar stöður
Eftirtaldar hlutastöður (37%) í læknadeild Háskóla Islands eru.
lausar til umsóknar:.
Dósentsstaða í geislalæknisfræði.
Dósentsstaða í handlæknisfræði. Staðan er bundin við Borgarspít-
alann.
Dósentsstaða í meinefnafræði.
Dósentsstaða í líffærameinafræði.
Ðósentsstaða í lyflæknisfræði, sérgrein innkirtlasjúkdómar.
Dósentsstaða í lyflæknisfræði, sérgrein gigtsjúkdómar.
2 lektorsstöður í slysalækningum.
Ennfremur er laus til umsóknar 50% staða dósents í lífeðlisfræði
við læknadeild Háskóla íslands.
Gert er ráð fyrir að stöðurnar verði veittar frá 1. júlí 1990.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 12.
febrúar 1990.
Menntamálaráðuneytið