Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1990, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1990.
Fiskvinnsluvélar
Óskum eftir að kaupa notaðar Baader 99
flökunarvélar og Baader 150 karfaflökunar-
vélar.
Til sölu getum við nú boðið 2 Baader 440
flatningsvélar, önnur ónotuð og hin í mjög
góðu standi. Hagstætt verð.
Einnig getum við boðið flestar tegundir af
Baader fiskvinnsluvélum.
Uppl. í síma 91-46070 og 91-54974 á kvöldin.
ViSA
\WmESSBSSBKM
Nú er hægt að hringja inn
smáauglýsingar og greiða
meó korti.
- — ~ ~ ■ - j
/\/1
Þú gefur okkur upp:
i \//SA■ í
nafn þitt og heimilisfang,
síma, kennitölu og
gildistíma og númer
greiðslukorts.
Hámark kortaúttektar
í síma kr. 6.000,-
•
SMÁAUGLÝSINGADEILD
ÞVERHOLTI 11
SÍMI 27022
VfSA j
—EIMSKIP—
AÐALFUNDUR
HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS
verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu
fimmtudaginn 15. mars 1990
og hefst kl. 14.00.
--------DAGSKRÁ-------
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 14.
grein samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram
á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega
í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö
dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum verða af-
hentir hluthöfum og umboðsmönnum
hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík
frá 8. marstil hádegis 15. mars.
Reykjavík, 14. febrúar 1990.
STJÓRNIN
Útlönd dv
Á miðnætti í nótt var kyrrð fallin yfir i borginni Dushanbe í Tadzhikistan þar sem þjóðernisróstur hafa staðið yfir
síðustu daga. Simamynd Reuter
Gorbatsjov
lætur undan
Gorbatsjov Sovétforseti mátti þola
ósigur í gær þegar æðsta ráðið, sem
er nokkurs konar innra þing Sovét-
ríkjanna, kosið af þingmönnum á
löggjafarþinginu, fékk hann til aö
falla frá því aö leggja fram tillögur
um að löggjafarþingið yrði kallað
saman til sérstaks fundar þann 27.
febrúar næstkomandi til að ræða
breytingar á stjórnarskránni. Tillög-
ur forsetans mættu harðri andstöðu
í gær og róttækir umbótasinnar, með
Boris Jeltsin í broddi fylkingar,
komu fram vilja sínum; atkvæða-
greiðslu um tillögurnar verður fre-
stað.
Umbótasinnar vilja meiri tíma til
að fjalla um tillögur Gorbatsjovs og
fengu forsetann til að falla frá því
að leggja það fram í gær. Þess í stað
lagði forsetinn til að þingmenn í
æðsta ráðinu tækju til umfjöllunar
næstu daga að þingið yrði kallað
saman til fundar. Þessari málamiðl-
un var vel tekið og hún samþykkt.
Gorbatsjov vill auka völd sín sem
forseti. í síðustu viku lögöu ráða-
menn fram tillögu um að það yrði
gert en það var hluti tillagna sem
lagðar voru fyrir miðstjórn komm-
únistaflokksins. Þessar tillögur miða
m.a. að því að kommúnistar afsali
sér einræði sínu. Þingið þarf að
leggja sína blessun yfir þessar tillög-
ur og vildi forsetinn að það yrði kall-
að saman hið fyrsta.
Á meöan ráðamenn funduðu í
Moskvu í gær var barist á götum
Dushanbe, höfuðborgar sovéska lýð-
veldisins Tadzhíkistan. Að sögn íbúa
borgarinnar gripu sovéskir hermenn
til vopna í gær og skutu að mótmæl-
endum, án viðvörunar. Að minnsta
kosti átta létust þegar skotin riöu af,
að sögn sjónarvotta. Ekki hefur feng-
ist staðfesting á þessum ummælum
íbúanna né hversu margir létust í
gær. Samkvæmt fréttum Tass, hinn-
ar opinberu fréttastofu, hafa ellefu
látist í þriggja daga róstum í lýðveld-
inu. Opinberlega er rót ofbeldisins
rakin til þjóðernisrósta sem hófust
þegar armenskir flóttamenn fluttu til
Dushanbe.
Eftir að embættismenn og fulltrúar
almennings í lýðveldinu náðu sam-
komulagi í gær drógu bæði almenn-
ingur sem og hermenn sig í hlé. Sam-
kvæmt því samkomulagi myndu
ráðamenn, bæði stjómar og flokks, í
lýðveldinu segja af sér en ekki liggur
fyrir hvenær það yrði. Þegar leið að
miönætti í nótt haföi fallið kyrrð í
Dushanbe. Reuter
Mandela gefur í skyn mála-
miðlunarsamkomulag
I hvert skipti sem Nelson Mandela hefur komið opinberlega fram frá því
að hann var látinn laus á sunnudaginn hafa hörkulegir ungir blökkumenn
verndað hann. Mandela hefur hafnað lögregluvernd. Símamynd Reuter
Bandaríski blökkumannaleiðtog-
inn Jesse Jackson hóf í morgun við-
ræður við Nelson Mandela á heimili
hins síðarnefnda í Sowéto í Jóhann-
esarborg. Nelson bauð Jackson vel-
kominn sem reyndar hafði hitt þenn-
an frægasta fanga heims eftir að
hann var látinn laus á sunnudaginn.
Jackson mun í dag halda til Namibíu
sem í næsta mánuði verður frjálst
land en það hefur verið undir yfir-
ráðum Suður-Afríku í áratugi.
Blökkumannaleiðtoginn Nelson
Mandela hefur boðist til að reyna að
ná málamiðlunarsamkomulagi um
pólitískar kröfur blökkumanna og
virðist því bilið milh Afríska þjóðar-
ráðsins og hvítu minnihlutastjómar-
innar í Suður-Afríku vera að
minnka. í samtali við bresku sjón-
varpsstöðina BBC í gær sagði Mand-
ela einnig að hvítir íbúar Suður-
Afríku yrðu að styðja tilraunir de
Klerks, forseta Suður-Afríku, til að
skipta valdinu milli hvítra og
svartra. Annars ættu þeir á hættu
nýjar árásir skæruliða.
Mandela hafnaöi enn á ný aðskiln-
aðarstefnu stjórnvalda og sagöi að
Afríska þjóðarráðið væri ákveðiö í
að knýja fram jafnrétti í kosningum.
Sagði hann ráðið reiðubúið til reyna
að ná málamiðlunarsamkomulagi ef
það samkomulag yrði öllum þegnum
Suður-Afríku í hag.
í gær vora sex pólitískir fangar
látnir lausir úr fangelsinu á Robbin
eyju þar Mandela sat lengi inni. Sex-
menningarnir eru alhr félagar í Af-
ríska þj óðarráðinu. Reuter