Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1990.
3
dv_______________________________________________________________________________Fréttir
Sprengihætta í áburðarverksmiðjunni:
; Krafturinn á við hálfa
Hiroshima-sprengjuna
- segir Rúnar Bjamason, slökkviliðsstjóri í Reykjavík
Auk þeirrar hættu, sem stafar af
ammoníaki í Áburðarverksmiðjunni
í Gufunesi, getur starfsemi verk-
smiðjunnar svo nálægt íbúðabyggð
skapað hættu á annan hátt. Til dæm-
is er samanlagt sprengimagn þess
ammoníumnítrats, sem geymt er í
Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi,
álíka og helmingur sprengjunnar
sem lagði Hiroshima í rúst undir lok
seinni heimsstyijaldarinnar. Þá geta
og myndast hættulegar eiturgufur ef
eldur kemst í áburðargeymslu verk-
smiðjunnar.
Þessi hætta hefur verið kunn nokk-
uð lengi. í viðtali við DV um mitt ár
1987 sagði Rúnar Bjarnason, slökkvi-
liðsstjóri í Reykjavík:
„Þegar rætt er um hættu, sem
stafar af fyrirtækjum með efnum
sem geta hugsanlega ógnað nálægri
íbúðabyggð ef kviknar í, hefur
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi oft
verið rædd. Þess vegna eru alveg
sérstakar varúðarráðstafanir í gangi
þar, brunalið er á staðnum og örygg-
isreglur hafa verið margfalt hertar á
undanförnum árum. Ef eldur brýst
út þá eru mjög miklar líkur á að það
takist að ráða niðurlögum hans áður
en hann kemst í hættuleg efni.
Það er fyrst og fremst áburður þar
sem eiturefni myndast í reyk ef eldur
kemst í hann og geta þau breiðst yfir
íbúðabyggð sem alltaf er að færast
nær. Reyndar er mikið magn efna,
sem sprengihætta stafar af, geymt í
Gufunesi, um 3 til 4000 tonn af
ammoníumnítrati, en samanlagður
sprengikraftur slíks magns er á við
hálfa sprengjuna sem sprakk í Hiro-
shima 1945. Hins vegar er útilokað
að shkt geti gerst þar sem varúðar-
ráðstafanir í geymslu þeirra eru svo
miklar.
Meira áhyggjuefni eru áhrif sem
reykurinn gæti haft á ört stækkandi
íbúðabyggð á Gufuneshöfðanum.
Áður var lágmarksfiarlægð þar sem
byggja mátti í nánd 1600 metrar,
sama fjarlægð og frá Gufunesi að
Kleppsspítala. Nú er byggt í 1200
metra fjarlægð frá verksmiðjunni
eftir nýju skipulagi og ég var ekki
sérlega hrifinn af þvi á sínum tíma.
Upphaflega átti þó að byggja í 5 til
600 metra fjarlægð en því var sem
betur fer breytt. En það er alltaf sama
sagan. Verksmiðjur eru reistar langt
frá allri mannabyggð en byggðin
teygir sig að þeim smám saman. Allt-
# Lánskjaravísitalan:
6 prósent
verðbólga
Lánskjaravísitalan hækkar um
0,49 prósent um næstu mánaöamót.
Þessi hækkun jafngildir um 6 pró-
sent verðbólgu á ársgrundvelli.
Lánskjaravísitalan verður 2.873 stig.
Stærstan hluta af hækkun láns-
kjaravísitölunnar má rekja til hækk-
unar byggingarvísitölu en hún
hækkaði um 1,1 prósent sem jafngiid-
ir um 14,6 prósent hækkun á árs-
grundvelli. Framfærsluvísitalan
hækkaði um 0,3 prósent eða 3,4 pró-
sent á ársgrundvelli. Launavísitala
hækkaði ekkert.
Þessar hækkanir eru innan marka
kjarasamnings Alþýðusambandsins
og vinnuveitenda. -gse
brosum/
°9 ,
alltgengurbetur •
af er þó haldið lágmarksfjarlægðar-
mörkum," sagði Rúnar í viðtali við
DV árið 1987.
Rúnar Bjarnason þekkir mjög vel
til Áburðarverksmiðjunar í Gufu-
nesi. Áður en hann tók við starfi
slökkviliðsstjóra var hann verk-
fræðingur við verksmiðjuna. -gse
CHARADE
Sedan
‘Grænn bíll” frá Brimborg
Reynsluakstur
á'
a
staðnum
Brimborg hf.
Faxafen 8 • sími (91)685870
Daihatsu Charade Sedan
Sfon smábíllinn
meö störu vélina
Daihatsu Charade Sedan er nýr rúmgóöur 5 manna fjölskyldubill meö sérstaklega stóra
farangursgeymslu (288 lítra) sem mjög auðvelt er að hlaða. Charade Sedan er ríkulega
búinn staðalbúnaði sem talinn er til aukahluta í mörgum öðrum bílum.
Fjölskyldubíll með
skemmtilega öfluga 90 hestafla vél
Daihatsu Charade Sedan er búinn nýrri 90 hestafla, 1.3 lítra,
16 ventla vél meö beinni innspýtingu og mengunarvörn sem
uppfyllir ströngustu kröfur. Þessi vél er ótrúlega kraftmikil og
gerir hún aksturinn auöveldan og skemmtilegan. Vélin er
hljóölát og einstaklega sparneytin eins og ávallt frá Daihatsu.
Þú verður að reyns/uaka kraftmik/um Charade Sedan
Ótrúlega hagstætt verð
Daihatsu Charade Sedan SG 5 gíra kr. 757.000 stgr. á götuna
Daihatsu Charade Sedan SG sjálfskiptur kr. 819.000 stgr. á götuna
f
I
J.J.T13 J