Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Page 6
6
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1990.
r
Starfsmenn prentsmiðju i Litháen eftir að sovéskir hermenn
réðust inn t hana i gær. Símamynd Reuter
0TeSTUD3AM
A $ N j *)f\C
^f\0V
”> V f
fötim
Varaforsætisráöherra Litháen um efnahagsþvinganir Sovétmanna:
Moskva hindrar
matarflutninga
- sovéskir hermenn ráðast inn 1 prentsmiðju í Litháen
Um fimmtiu sovéskir fallhlífar-
hermenn réðust inn í prentsmiðju í
Vilníus, höfuðborg Litháen, ,um
miðjan dag í gær og börðu á nokkrum
starfsmönnum. Litháiskur embætt-
ismaður sagði að tólf menn hefðu
slasast, þar af þrir illa. Hermennirn-
ir reyndu að reka starfsmennina út
úr byggingunni en tókst ekki ætlun-
arverk sitt. Embættismenn í Litháen
fengu veður af árásinni áður en hún
hófst og voru á staðnum þegar her-
mennirnir komu. Þúsundir Litháa
söfnuðust saman fyrir framan verk-
smiöjuna og kölluðu „fasistar" að
hermönnunum. Sovéskir hermenn
hafa áður gert árásir á byggingar í
Vilníus og lagt nokkrar þeirra undir
sig.
Varaforsætisráðherra Litháen,
Romualdás Ozolas, sakaði stjórnvöld
í Moskvu í gær um að hindra matar-
flutninga til lýðveldisins og sagði það
þátt í efnahagslegum þvingunum
sem Moskvustjórn beitir nú íbúana.
Ozolas sagði að tveimur kúbönskum
skipum með sykurfarm til Litháen
hefðu verið snúiö frá höfninni í
Kleipeda.
Þrátt fyrir þessa árás sovésku her-
mannanna í gær og harönandi efna-
hagsþvinganir Moskvustjórnarinnar
segjast ráðamenn í Litháen ekki
munu verða við kröfum Gorbatsjovs
Sovétforseta og gefa eftir í sjálfstæð-
isbaráttu sinni. Forsætisráðherra
Litháen, Kazimiera Prunskiene,
sagði að íbúar Litháen væru reiðu-
búnir til málamiðlunar en hún lagði
áherslu á að þeir myndu aldrei falla
frá fullveldisyfirlýsingu sinni frá 11.
síðasta mánaðar. „Viö munum aldrei
draga til baka fullveldisyfirlýsingu
okkar,“ sagði ráðherrann sem í gær
var í Noregi.
Algirdas Brazauskas, fyrrum for-
seti Litháen, hvatti í gær til mála-
miðlunar í deilum lýðveldisins við
stjórnvöld í Moskvu. Forseti Litháen,
Vytautas Landsbergis, sagði að Lit-
háar væru reiðubúnir til að ræða um
málamiölun en ekki uppgjöf.
Spenna fer nú vaxandi í lýðveldinu
og er efnahagslegt stríð hafiö milli
Moskvustjórnarinnar og Litháen.
Sovésk stjórnvöld hafa þegar byrjað
aö beita Litháa efnahagslegum
þvingunum og hafa m.a. stöðvað ol-
íuflutning til lýöveldisins. Brazausk-
as sagöi að birgðir Litháa af olíu,
gasi og rafmagni hefðu minnkað
mjög. Litháar eiga tveggja vikna
birgðir af bensíni, sagði Brazauskas
en forysta lýðveldisins telur að
Moskvustjórnin muni næst beina
athygli sinni aö bensínflutningum.
Reuter
KÓPAVOGSBÚAR
OPID HÚS
- ÓKEYPIS
AFMÆLISVEISLA!
„OPIÐ HÚS" f DIGRANESI
frá kl. 12-16
Breiðablik býður öllum Kópavogsbúum í „opið hús“ í íþróttahúsinu
Digranesi. Hinarýmsu deildir Breiðabliks munu bregða á leik fyrir
áhorfendur, í gangi verður sögusýning og uppskeran af teiknimynda-
samkeppni skólabarna í tilefni afmœlisins lítur dagsins Ijós. Og í tilefni
dagsins verða bornar fram veitingar, m.a. 400 manna afmœlisterta!
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ
frá kl. 20-01
í íþróttahúsinu Digranesi.
Kl. 20 Ávarp Loga Kristjánssonar formanns Breiðabliks
Kl. 20:30 Óvœnt skemmtiatriði
KI.21-22 Bubbi Morthens
Kl. 22-01 Dansleikur með Síðan skein sól.
Aðgangseyrir um kvöldið er 1000 kr. Veittur er ríflegur fjölskylduafsláttur.
Vistfræðilegt
hættusvæði
Evrópa er að öllum líkindum
mengaðasta svæði heims og Pólland
og Austur-Þýskaland halda sameig-
inlega þeim vafasama titli að vera
„menguðustu lönd veraldar". Allur
austurhluti evrópska meginlandsins
er „vistfræðilegt hættusvæði“ segja
sérfræðingar; eftir fjörutíu ára
óstjórn í umhverfismálum er nú svo
komið að íbúarnir þar anda að sér
óhreinu lofti og, oftar en ekki, drekka
mengað neysluvatn.
Niðurstöður rannsókna í Póllandi
sýna að einn af hverjum fjórum íbú-
um þar er líklegur til að fá krabba-
mein fyrir árið 2000, að minnsta kosti
fimmtán prósent vegna mengunar.
Rúmlega níutíu prósent neysluvatns
í landinu er ódrekkandi. í Tékkósló-
vakíu er ástandið vart betra, 50 pró-
sent neysluvatns er ódrykkjarhæft.
Þó merki mengunar megi ekki sjá
eins glöggt í Vestur-Evrópu og í Aust-
ur-Evrópu er ástandið litlu betra
vestra. Sérfræðingar benda einna
helst á Vestur-Þýskaland og segja
það land eiga við mikinn vanda aö
glíma í umhverfismálum. Alvarleg-
asta umhverfisvandamál Vestur-
Evrópubúa er loftmengun í þéttbýli.
Það sem af er árinu hefur átta sinn-
um komið fyrir að brennisteinsdíox-
íð í andrúmsloftinu í frönsku borg-
inni Lyon nálgaðist hættumörk.
Umhverfismálaráðherrar Evrópu-
bandalagsins koma saman til fundar
í írlandi um helgina til aö ræða
mengun Evrópu, bæði í austri og
vestri. Evrópubandalagið áætlar að
verja um 48 milljónum dollara á
þessu ári til baráttunnar gegn meng-
un í Póllandi og Ungverjalandi.
í þessari viku var haldin ráðstefna
um hin svokölluðu „gróöurhúsa-
áhrif ‘ þar sem sátu fulltrúar sautján
þjóöa. Yfirlýst markmið flestra þátt-
tökuríkjanna er að vinna að áætlun
sem miðar að minnkandi loftmeng-
un, sérstaklega af völdum koltvísýr-
ings og annarra gastegunda sem
valda gróðurhúsaáhrifunum. Flest
ríkjanna vilja takmörkun á notkun
jarðefnaeldsneytis og segja að þegar
liggi fyrir næg vitneskja um skaðleg
áhrif gass sem myndast við brennslu
þeirra á umhverflö. Bandaríkja-
stjórn var gagnrýnd á ráðstefnunni
því aö hún vill frekari rannsóknir
áður en hún leggur í slíkar kostnað-
arsamar aðgerðir.
Sumir sérfræðingar segja að verði
ekki dregið úr notkun þeirra efna
sem kalla fram gróðurhúsaáhrif
muni hitastig jarðar hækka um 1,6
til 4,4 gráöur á næstu sextíu árum.
Slíkt myndi síðan meðal annars leiöa
til flóöa og langvarandi þurrka.
Heimildir m.a. Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 3 Allir
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 3-6 Ib
6mán. uppsögn 4-7 Ib
12 mán. uppsogn 4-8 Ib
18mán. uppsögn 15 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 3 Allir
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,-
Innlán meðsérkjörum 2,5-3 Sb Lb.Bb,- Sb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 7-7,25 Sb
Sterlingspund 13,6-14,25 Sb
Vestur-þýsk mörk 6,75-7,25 Sb
Danskarkrónur 10,5-11 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 13,0-13,75 Sb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 14 Allir.
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareiknmgar(yfirdr ) 16,5-17,5 Bb
Utlan verðtryggð
, Skuldabréf 7.5-8.25 Lb.Bb
Utlán til framleiðslu
Isl.krónur 13,75-14,25 Bb
SDR 10,95-11 Bb
Bandaríkjadalir 10,15-10,25 Bb
Sterlingspund 15.85-17 Bb
Vestur-þýsk mörk 10-10,25 Allir nema ib
Húsnæðislán 4.0
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 26
MEÐALVEXTIR
Överðtr. apríl 90 18.7
Verðtr. apríl 90 7.9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala apríl 2859 stig
Lánskjaravísitala mars 2844 stig
Byggingavísitala apríl 535 stig
Byggingavísitala apríl 167,4 stig
Húsaleiguvísitala 1,8% hækkað 1. april.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa veróbréfasjóða
Einingabréf 1 4,817
Einingabréf 2 2,637
Einingabréf 3 3,170
Skammtimabréf 1,637
Lífeyrisbréf
Gengisbréf 2,112
Kjarabréf 4,769
Markbréf 2,541
Tekjubréf 1,953
Skyndibréf 1,428
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,318
Sjóðsbréf 2 1,739
Sjóðsbréf 3 1,620
Sjóðsbréf 4 1,371
Vaxtasjóösbréf 1.6370
Valsjóðsbréf 1.5400
HLUTABRÉF
Soluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 600 kr.
Eimskip 413 kr
Flugleiðir 136 kr
Hampiðjan 190 kr.
Hlutabréfasjóður 176 kr.
Eignfél. Iðnaðarb 185 kr
Skagstrendingur hf. 373 kr
Islandsbanki hf. 158 kr.
Eignfél. Verslunarb. 158 kr
Olíufélagið hf. 415 kr.
Grandi hf. 162 kr.
Tollvörugeymslan hf. 120 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.