Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Page 21
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1990.
21
Leikarinn Michael Caine lifir frek-
ar rólegu lifi þessa dagana. Hann
flutti fyrir nokkru aftur til Englands
og segist hafa allt sem hann óski sér:
yndislega eiginkonu, tvær dætur og
nóg af peningum. Michael Caine
hafnar fleiri leiktilboðum en hann
tekur. „Það sem skiptir mig mestu
máli um þessar mundir er eiginkona
mín,“ segir leikarinn.
Michael Caine, 58 ára, er kvæntur
Shakiru sem er nokkuð mikið yngri.
Hún er dökk á hörund enda frá Guy-
ana. Hún heillaði leikarann gjörsam-
lega fyrir tuttugu árum og gerir enn,
að hans sögn.
Michael Caine hefur þótt afbragðs-
góður leikari og margoft slegið í
gegn, þó sérstaklega í sjónvarps-
myndinni Mónu Lísu. Hann er fædd-
ur í London og var aðeins unghngur
er hann byxjaði að leika - fyrst sem
áhugaleikari en ekki leið á löngu þar
til hann helgaði sig leikhstinni ein-
göngu. Árið 1956 lék Michael Caine
í fyrstu bandarísku bíómyndinni og
á næstu árum lék hann í að minnsta
kosti einni á ári.
Michael Caine flutti aftur til Eng-
lands til að yngri dóttir hans gæti
lokið skólanámi sínu í fóðurlandinu.
Eldri dóttir hans er gift og farin að
heiman. „Ég ætla að hafa það náðugt
og lifa eins og prins,“ segir þessi
frægi leikari.
DÖMUBINDIN
KVENLEGU
| Llbresgc
i/ y Libresse
og íbúðarkanp
Frá og með 15. maí 1990 stendur húsbréfakerfið
öllum opið við kaup og sölu notaðra íbúða.
Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar fær hjá húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir fasteignaveðbréf, sem
kaupandi íbúðarinnar gefur út.
Hvemig fara íbúðarkaup fram?
A\\°
. Greiðslumat.
Tilvonandi kaupandi verður að
sækja um mat á greiðslugetu sinni til ráðgjafastöðvar
Húsnæðisstofnunar.
\ Skrifleg umsögn.
_A Að fenginni skriflegri umsögn
ráðgjafastöðvarinnar, þar sem m.a. er tilgreint
hugsanlegt kaupverð íbúðar, er tímabært að skoða
sig um á fasteignamarkaðnum.
/\ *X \ íbúð fundin - gert kauptilboð.
*==\ __\ Þegar seljandi hefur gengið að
tilboði, sækir tilvonandi kaupandi um skuldabréfa-
skipti við húsbréfadeildina, þ.e. að skipt verði á
fasteignaveðbréfi, útgefnu af kaupanda og
húsbréfum, sem verða eign seljanda. Fasteigna-
veðbréfið getur numið allt að 65% af kaupverði
íbúðarinnar.
B
i 1 }|
í
A^v~\Afgreiðsla húsbréfadeildarinnar.
______\ Húsbréfadeild metur veðhæfni
íbúðarinnar og matsverð og athugar greiðslugetu
væntanlegs íbúðarkaupanda með tilliti til kaupverðs.
Samþykki hún kaupin sendir hún væntanlegum
kaupanda fasteignaveðbréfið til undirritunar, útgefið
á nafni seljanda.
/\\ ^ \Kaupandinn lætur þinglýsa
kaupsamningnum.
/\^ \Seljandi lætur þinglýsa
fasteignaveðbréfinu.
/\ 'C. \ Kaupsamningur undirritaður -
° \ fasteignaveðbréf afhent
seljanda.
(búðarkaupandi og íbúðarseljandi gera með sér
kaupsamning og seljandinn fær afhent fasteigna-
veðbréfið.
Fram að 15. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að
húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars 1989
og hafa lánsrétt.
SAMÞYKKI HÚSNÆÐISSTOFNUNAR ER SKILYRÐI.
Það er skilyrði fyrir skuldabréfaskiptum, að
greiðslugeta hlutaðeigandi íbúðarkaupanda og
veðhæfni íbúðar hafi verið athuguð áður en
íbúðarkaup eiga sér stað og að húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar samþykki íbúðarkaupin.
/\^ \Seljandi skiptir á fasteigna-
veðbréfi fyrir húsbréf.
^\Greiðslur kaupanda hefjast.
_—\ Húsnæðisstofnun innheimtir
afborganir af fasteignaveðbréfinu af kaupandanum.
Þær hefjast á 2. almennum gjalddaga frá útgáfudegi
fasteignaveðbréfsins, en gjalddagar eru 4 á ári.
U LLLLLU 1
HÚSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD
SUDURLANIDSBRAUT 24 -108 REYKJAVIK ■ SIMI - 696900