Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 21. APRlL 1990.
23
„Ég vil vera ein,“ sagði Greta
Garbo í kvikmyndinni Grand Hotel
árið 1933. Engum bauð í grun að þessi
gullvæga setning ætti eftir að ein-
kenna líf leikkonunnar þegar fram
liðu stundir. Hún var að vísu ekki
einsömul það sem eftir var ævinnar
heldur dró hún sig í hlé frá skarkala
heimsins árið 1941. Eftir það hélt
þessi mikilhæfa leikkona íjölmiðlum
í íjarlægð til dauðadags, kom aldrei
fram opinberlega og tók engu tiiboði
um kvikmyndahlutverk. Eitt sinn
sagði hún við blaðamann eitthvað á
þessa leið: „Að vera í blöðunum er
afar kjánalegt. Það er í lagi fyrir
mikilhæft fólk sem hefur eitthvaö til
málanna að leggja. Sjálf hef ég engu
að miðla til annarra." Seinna lét hún
hafa eftir sér að hún bærist áfram
með straumnum en hefði engar áætl-
anir.
Hún átti góða vini sem tóku tillit
til óska hennar um friðhelgi og aldr-
ei lét neinn þeirra neitt uppskátt um
Gretu Garbo. Leyndin, sem hvildi
yfir tæpum fimmtíu árum af lífl
hennar, er jafnmikil eftir dauða
hennar. Dánarorsök hefur ekki verið
látin uppi né greftrunartími og
hinsta hvíla.
Hófleikferilinn
í gamanmyndum
Greta Lovisa Gustafsson fæddist í
Stokkhólmi 18. september árið 1905.
Hún hætti í skóla aðeins fjórtán ára
gömul en um sama leyti lést faðir
hennar. Vinir hafa sagt að hún hafi
alla tíð harmað menntunarskort sinn
en hún var langt frá því að vera
heimsk. Hún vann í fyrstu sem að-
stoðarstúlka á rakarastofu en síðar
í hattaverslun. Þar sýndi hún hatta
og auglýsing gerði það að verkum
að hún komst að í auglýsingamynd.
I kjölfarið fékk hún tilboð um prufu-
mynd frá gamanleikstjóranum Eric
Petschler. Hún kom fram í nokkrum
gamanmyndum og ákvað að taka
leiklistina alvarlega. Hún ávann sér
styrk til náms í Konunglega leiklist-
arskólanum í Stokkhólmi. Þar kom
þekktur kvikmyndaleikstjóri, Maru-
itz Stiller, auga á hana og fól henni
hlutverk í kvikmyndinni Gösta Berl-
ings saga eftir bók Selmu Lagerlöf.
Myndin var gerð á árinu 1924 og þá
var Greta aðeins 19 ára gömul. Stiller
reyndist Gretu góður vinur og að-
stoðaði hana á ýmsa lund. Næsta
kvikmynd hennar hét Gleðisnauða
Dularfullt andlit Gretu Garbo gaf ýmislegt I skyn en lét ekkert uppskátt.
og andlit Gretu setti ekki síst mark
sitt á þær. Sögupersónur eins og
Mata Hari, Anna Karenina og Kam-
elíufrúin urðu ódauðlegar í höndum
Gretu Garbo.
Sérstök andstæða
Fjórði áratugurinn fór í hönd og
Hollywood var draumurinn. Ungar,
fallegar konur ruddust til Kaliforníu
til að verða uppgötvaðar og hljóta
heimsfrægð. Joan Crawford, Claud-
ette Colbert, Betty Grable og Jean
Harlow voru stjörnur í augum al-
mennings. Þær voru fallegar, heill-
andi og kynþokkafullar í hlutverkum
sínum. Greta þótti alltaf öðruvísi.
Hún var fremur hávaxin, stórbein-
ótt, mjög stórfætt og alls ekki ímynd
hinnar veikburða kvenhetju. En
andlit hennar haföi til að bera klass-
íska fegurð og þar gat enginn skákað
henni. Leikstjórinn Clarence Brown
lýsti andliti hennar á þá leið að bak
við augun væri eitthvað sem enginn
gæti séð en allir fyndu.
Misheppnuð
lókamynd
Árið 1941 lék hún í sinni síðustu
kvikmynd. Það var gamanmynd sem
á frummálinu heitir The Two Faced
Woman, undir stjórn George Cukor,
sá hins sama og leikstýrði henni í
Kamelíufrúnni. Myndinni var afar
illa tekið af gagnrýnendum og áhorf-
endum. Síðar voru uppi getgátur um
það að viðtökurnar hefðu gert það
að verkum að Greta hætti kvik-
myndaleik. Önnur tilgáta er á þá leið
að Greta hafi óttast áhrif heimsstyrj-
aldarinnar á kvikmyndaiðnaðinn.
Evrópa var í sárum og Ameríka sog-
aði til sín hæfileikafólk. Hún óttaðist
að framleiðendur myndu „amerík-
anisera" hana og þar með yrðu öll
sérkenni á bak og burt. Sjálf lét hún
aldrei neitt uppskátt um það og hefur
líklegast tekið leyndarmálið með sér
í gröfina.
Átti nóg fyrir sig
Greta var alltaf varkár í peninga-
málum og það kom sér vel síðar.
Þegar hruniö mikla varð árið 1929
slapp hún ótrúlega vel því megnið
af hennar fjárfestingum var öruggt í
Svíþjóö. Hana skorti aldrei neitt og
gat því dregið sig í hlé án þess að
hafa áhyggjur af afkomu sinni. Hún
Greta Garbo látin:
Fimmtíu ára flótti á enda
gatan og þá var Stiller umboðsmaður
Gretu.
Hollywood beið
Stóru framleiðendurnir í Holly-
wood voru á höttunum eftir nýjum
leikstjórum og Metro Goldwin Meyer
bauð í Stiller. Hann vildi koma í
draumaverksmiðjuna með því skil-
yrði að Greta fylgdi með í kaupunum.
Stiller gaf Gretu Gustafsson leikara-
nafnið Greta Garbo og Hollywood og
heimurinn beið. Greta lék í tveimur
myndum árið 1926 og hlaut góðar
viðtökur í Hollywood.
Þetta var tími þöglu myndanna og
Greta lék í tíu slíkum. Andht hennar
þótti eins og hannað fyrir kvik-
myndavélina og hún náði einstæðri
túlkun í svipbrigðum. í einu lokaat-
riði virðist hún ekki hugsa um neitt
en svipur hennar gefur í skyn að hún
sé að hugsa allt.
Talsetning kvikmynda kom til sög-
unnar og margir leikarar þöglu
myndanna fóru illa út úr henni. Hetj-
ur hvíta tjaldsins reyndust sumar
hverjar hjáróma og höfðu ekki vald
á tungumálinu. Greta Garbo missti
ekkert þegar hún fékk setningar til
að túlka. Rödd hennar var frekar hás
og hreimurinn þótti heillandi. Á
næstu árum lék hún í fjórtán tal-
myndum. Margar þeirra teljast til
sígildra verka kvikmyndasögunnar
Síðustu árin var dulúðin hulin bak við dökk sólgleraugu.
bjó á einum dýrasta stað í New York
til dauðadags, átti hús í Klostern í
Sviss og eignir í Svíþjóð.
Greta Garbo giftist aldrei en var
orðuð við marga karlmenn. Mótleik-
arar hennar voru líka glæsilegustu
karlmennirnir í Hollywood og hafa
sögur myndast af minna tilefni. Hún
var í nánu vinfengi við leikarann
John Gilbert og orðrómurinn segir
að þau hafi ætlað að hlaupast á brott
til að gifta sig. Kjarkurinn brást
Gretu og hún stakk elskhugann af
út um baðgluggann.
Lifandi goðsögn látin
Aðdáendur hennar voru tryggir til
dauðadags. Margir áttu þá ósk heit-
asta að sjá goð sitt eigin augum og í
þeim tilgangi héngu þeir fyrir utan
hús hennar í New York. Fáum varð
að ósk sinni og aðeins einstaka
fréttaljósmyndarar urðu það heppnir
að festa andlit hennar á mynd. Henni
brá stundum fyrir á götum í ná-
grenninu en gaf sig að engum nema
einstaka börnum að leik. Augun -
sem létu ekkert uppskátt en gáfu
ýmislegt í skyn - voru hulin bak við
stór, dökk sólgleraugu. Dulúðin, sem
einkenndi hana á hvíta tjaldinu,
hvarf aldrei og nafn Gretu Garbo
verður sveipað henni áfram. .jj
Heimildir: Reuter, TT og fleiri.