Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Síða 25
24
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1990.
LAUGARDAGUR 21. APRIL 1990.
33
Pólitískt
villidýr
- kratinn Ámundi Ámundason í nærmynd
Ámundi Ámundason umboðsmað-
ur vann allmikið aö prófkjöri Nýs
vettvangs fyrir stuttu, auk þess sem
hann gaf kost á sér í framboðinu.
Ámundi er tæplega 45 ára gamall og
hann hefur verið krati frá barnæsku.
Ámundi starfar nú fyrir Alþýðu-
flokkinn og skipulagði meðal annars
ferðalag Jóns Baldvins og Ólafs
Ragnars um landið undir nafninu Á
rauðu ljósi. Hann var kosningastjóri
krata fyrir kosningarnar 1987 og hef-
ur tekið að sér ýmis verkefni tengd
flokknum. Þá vann Ámundi um tíma
hjá SÁÁ og sá m.a. um sjónvarps-
bingóið á Stöð 2.
Ámundi er fráskilinn þriggja barna
faðir. Flestir hafa heyrt nafns hans
getið enda hefur hann komið víða
við. Sjálfur segist hann einungis hafa
gaman af að koma hlutum af stað og
síðan langi hann að gera eitthvað
nýtt. Til að forvitnast nánar um
Ámunda haföi helgarblaðið samband
við nokkra sem hann hefur umgeng-
ist á undanförnum árum. Meðal þess
sem Ámundi er þekktastur fyrir er
umboðsstarf fyrir hljómsveitir og
skemmtikrafta en í því starfi var
hann í sautján ár.
Rúnar Júlíusson tónlistarmaður
kynntist Ámunda þegar hann bauðst
til að gerast umboösmaður Hljóma
stuttu eftir að hljómsveitin var stofn-
uö. Ámundi hafði áður unnið í síld
bæði í landi og til sjós og var meðal
annars á Elliða frá Sandgerði. Rúnar
segir að Ámundi hafl alla tíð reynst
sér vel pg þeir hafi oft samband enn
í dag. „Ámundi fann ábyggilega pen-
ingalykt af okkur hér fyrir sunnan.
Hann skipulagði fyrstu tónleika-
hringferð Hljóma um landið og stóð
sig mjög vel, gerði góðan bisness.
Gagnvart mér og mínu liði var hann
alltaf heiðarlegur. Ámundi er marg-
þættur og flókinn persónuleiki.
Hann hefur sína kosti og galla eins
og allir en hefur alltaf reynst mér
vel. Þegar hann fær áhuga á verkefn-
um er hann fljótur að framkvæma,
stundum meira af kappi en forsjá.
Hann er dugnaðarforkur ef hann tek-
ur það í sig og klár,“ sagði Rúnar.
„Ámundi sá um skipulagningu, upp-
gjör og peningamá! fyrir okkur.
Hann reyndi fyrir sér sem skemmti-
kraftur á einum stað sem við komum
á og sagði brandara en sem betur fer
hætti hann því fljótlega. Hann sagði
söguna af þrúna hestinum,“ sagði
Rúnar ennfremur. „Við erum ágætir
vinir og hann hefur alltaf verið mér
hjálplegur. Ámundi var skemmtana-
stjóri hjá Danshöllinni í haust og þá
vorum við í nokkru samstarfi."
Fórsnemma
að vinna
Ámundi Ámundason ólst upp í
Meðalholtinu hjá móður sinni og
tveimur systrum. Kristbjörg systir
hans er nokkrum árum eldri en þau
systkinin voru mjög samrýnd sem
börn. „Ámundi er ósköp góður
drengur. Hann var mikiö mömmu-
barn og ákaflega góður við móður
okkar. Ámundi var mjög ungur þeg-
ar hann byrjaði að bera út blöð og
selja merki. Eg myndi segja að hann
hafi verið glaðlegt barn, dálítill
prakkari sem hafði mjög mikinn
áhuga á íþróttum. Hann var og er
mikill Framari. Sem barn var
Ámundi ekkert sérstaklega skap-
mikill en það breyttist með aldrinum.
Strax í barnæsku var hann athafna-
mikill og þurfti alltaf að vera að.
Hann var ekki hár í loftinu þegar
hann fór að skipta sér af pólitík og
síðan hefur hann verið baráttumað-
ur fyrir Alþýðuflokkinn," segir
Kristbjörg.
Ámundi var í Austurbæjarskóla en
hætti námi til að getafarið á vinnu-
markaðinn. Þegar hann var átta ára
giftist móðir hans aftur en Kristbjörg
segist halda aö Ámundi hafl aldrei
getað sætt sig við fósturföðurinn.
„Hann hefur alltaf sóst eftir vinskap
við eldri menn og ég gæti best trúað
að það væri vegna föðurleysis," sagði
hún. „Ámundi var alltaf duglegur að
vinna. Það var helst að halla færi
undan hjá honum þegar hann byrj-
aði að flytja inn erlendar hljómsveit-
ir en í eitt skiptið varð hann fyrir
miklu tapi," segir Kristbjörg. „Ef
Ámundi veit að eitthvað bjátar á hjá
fólki þá er hann fyrstur manna til
hjálpar. Það versta er hversu ör og
skapmikill hann er og það er áreiðan-
lega verst fyrir hann sjálfan.“
Orginal náungi
Ómar Valdimarsson, fyrrum
fréttamaður, vann mikið fyrir hljóm-
sveitir á sínum tíma og kynntist
Ámunda vel á þeim árum. Ómar
sagði að margt væri hægt að segia
um Ámunda og kannski margt
slæmt. „Það skrýtna er að þrátt fyrir
að margir popparar, sem hann starf-
aöi fyrir, telji sig hafa farið verr út
úr þeim viðskiptum en hann þá er
öllum frekar hlýtt til hans. Hann er
skemmtilega orginal náungi,“ sagði
Ómar. „Ámundi var atkvæðamikill
umboðsmaður í kringum 1970 og
hann var einnig í hljómplötuútgáfu
ÁÁ records. Hann gaf út plötur með
Jóhanni G., Roof Tops, Pelikan, Nátt-
úru og fyrstu Stuðmannaplöturnar."
Ómar starfaði á skrifstofunni hjá
Ámunda í nokkra mánuði og segist
hafa verið lærlingur. „Hann var
rosalega hugmyndaríkur, duglegur
og kunni bransann mjög vel. Ámundi
er útsjónarsamur en samt voru eilíf
illindi í kringum hann. Menn voru
sífellt að koma og rukka. Það var
verulegur umgangur á skrifstofunni
og hljóðfæraleikarar héngu oft þarna
eins og þeir ættu ekki í önnur hús
að venda. Ámundi hefur gott brjóst-
vit og veit nokk hvað gengur í fólk.
Hann er aö vissu leyti fljúgandi
mælskur en með sérkennilegt tungu-
tak. Hann tvinnar saman málshætti
sem enginn annar gæti gert og allt
tómt rugl. Þjófur úr heiðskíru lofti
eða Þjófur úr bæjarlæknum gæti
verið komið frá Ámunda. Stundum
held ég að hann geri í þessu því hann
hefur gaman af að skemmta fólki.
Ámundi var alltaf frægur fyrir
hvernig hann orðaði hlutina. Það
má segja um Ámunda að hann hafi
gott hjarta. Hann heldur með lítil-
magnanum - er sannur krati.“
Orka og sprengi-
kraftur
Alþýðuflokksmaðurinn Birgir
Dýrfjörð er góður vinur Ámunda.
„Ég er búinn að þekkja Ámunda vel
sl. sjö ár og vissi hver hann var þar
á undan í gegnum flokkinn. Ámundi
hefur í sér alveg ótrúlega orku og
sprengikraft þannig að ég hef engu
líku kynnst. Hann hefur mikla og
góða eðlisgreind þrátt fyrir litla
skólagöngu. Það eru í honum inn-
sæiseiginleikar að sjá kjarna atriða
og mála en hefur ekki tamda skap-
gerð, langt frá því. Okkar á milli
köllum við hann pólitíska villidýrið.
Á sumum sviðum hefur hann hæfi-
leika í ríkari mæli en margir aðrir,
t.d. fortöluhæfileika og dugnað.
Kappið er stundum svolítið'a undan
forsjánni. Slysahættan liggur í þeim
sem geta afkastað miklu; ekki þeim
sem gera ekki neitt. Ég hef stundum
sagt að eina leiðin til að komast hjá
að gera afglöp sé að gera ekki neitt.
Ámundi er hugmyndaríkur og fljótur
að hrinda í framkvæmd, stundum of
fljótur," sagði Birgir.
Ekki bera allir Ámunda vel söguna
og Birgir segir það ekkert skrítið.
„Maðurinn er mjög áreitinn í um-
gengni, eins og slíkir karakterar eru,
og það pirrar oft þá sem með honum
eru. Hann getur verið suðari mikill
en tekur rökum þó að það sé í fæstum
tilfellum sem menn komast að með
þau. Ámundi er samt hjálpsamur og
hefur tekiö á sig lykkjur til að leggja
fólki lið og þá óskylt pólitík. En
Ámundi er ótrúlega viðkvæm per-
sóna. Ég veit að hann var snemma
mjög sjálfbjarga og aflaði sér íjár með
blaðasölu," sagði Birgir. „Ámundi er
afkastamikill og hamhleypa og mér
hefur fundist helsti galli hans vera
fljótfærni,“ sagði Birgir Dýrfjörð
ennfremur.
Eftirtektarvert
ungmenni
í Meðalholtinu var Pétur Pétursson
þulur nágranni Ámunda og var hann
heimagangur á heimili Péturs
Ámundi Ámundason hefur komið víða við og flestir eru sammála um að hann búi yfir ófrúlegri orku og sé athafnamaður hinn mesti. Hann á þó bæði vini
jafnt sem óvini innan flokks og utan. DV-mynd Hanna
og Birnu, eiginkonu hans, sem
barn og unglingur.
„Viö hjónin kynntumst Ámunda
sem ákaflega eftirtektarverðum ung-
um manni og góðum dreng. Hann
átti mörg systkini og móðir hans var
alþýðukona sem ekki hafði úr miklu
að spila. Ég ætla ekki að gera
Ámunda að dýrhngi en á þessum
árum bar hann hag móður sinnar og
systkina mjög fyrir brjósti. Mjög
snemma byrjaði hann að afla sér
tekna og var ákaflega duglegur
blaðasali. Hann barðist móti norðan-
storminum með blaðabunkann og
ekkert sást nema lítið nef sem
stakkst undan hettunni,“ segir Pétur
Pétursson.
Fyrir jól og afmæli geymdu Pétur
og Birna fyrir Ámunda gjafir sem
ætlaðar voru móöur hans. „Strax á
ungaaldri hafði hann mikla hugsun
á því að yinna og hjálpa öðrum. Hann
var röskur og duglegur að hverju
sem hann gekk en þrauthugsaði ekki
alltaf hver endalok yrðu á hverju
máli,“ segir Pétur.
Birna Jónsdóttir, eiginkona Péturs,
segir Ámunda einn besta ungling
sem inn á þeirra heimili hafi komið
og lýsir honum sem afskaplega vilj-
ugum dreng.
ívinnuhjá
Pétri þul
Á sínum tíma rak Pétur söluturn í
Hreyfilshúsinu við Kalkofnsveg og
þar var Ámundi við snúninga og
ýmis störf. „Áhugi hans á vinnunni
hjá mér var mikill en þegar hann
eltist dvínaði hann og önnur hugðar-
efni komu í staðinn. Áhugasvið hans
varð strax býsna víðfeðmt og fljót-
lega hafði hann mikið umleikis.
Seinna hvarf Ámundi okkur í reyk-
skýi viðskipta og athafna. Mér hefur
alltaf virst Ámundi knúinn áfram af
starfslönguninni einni saman.“
Pétur sagði sögu af Ámunda og
snertir hún einn starfsmann Péturs
sem Ámunda fannst afar duglegur
og vildi strákur líkjast honum í hví-
vetna. Ámundi sagði: „Hann Villi er
svo duglegur að hann getur afgreitt
fimm í einu og þá er hann með aðra
höndina uppi í hillu en hina í pen-
ingaskúffunni."
Georg Ólafsson verðlagsstjóri er
jafnaldri Ámunda og gamall leik-
félagi. „Það sem einkenndi Ámunda
mjög fljótt var þessi mikli dugnaður
og kraftur. Þegar hann var fimm, sex
ára var hann byrjaður að selja blöð,
aðallega Mánudagsblaðið sem gefið
var út á þessum tíma. Mér sýnist
þessi sami kraftur einkenna hann í
dag þó ég þekki ekki mikið til hans
starfa seinni árin,“ segir Georg.
„Við spiluöum fótbolta með Fram
og á þessum árum vorum við meist-
arar í okkar flokki. Sami krafturinn
einkenndi hann í fótboltanum og
hann var seigur að skora mörk.“
Tekur áhættu
Nokkrir viðmælendur blaðsins
vildu ekki ræða um Ámunda undir
nafni en létu engu síður skoöanir
sínar í ljós. Margir líktu Ámunda við
leikstjóra sem setji menn og atburði
á svið, nánast semji leikrit. Einn lýsti
Ámunda sem ofsalega duglegum og
nánast því manískum í vinnubrögð-
um.
í formannsslagnum innan Alþýðu-
flokksins veðjaði Ámundi á Jón
Baldvin. „Hann hefur lag á því að
veðja á sigurvegara og tekur áhættu
í þeim efnum líkt og í peningamálum.
Hann tók Jón Baldvin aö sér og nú
síðast veðjaði hann á Ólínu," sagði
einn. Ámundi þykir taka mjög ein-
arða afstöðu með eða á móti fólki og
því missir hann tiltrú margra. Hann
er umdeildur innan flokksins og
menn eru annaðhvort með honum
eða á móti, ekkert þar á milli. „Marg:
ir innan flokksins eru mjög ósáttir
með að Jón Baldvin skuli hafa valið
sér Ámunda sem sinn nánasta að-
stoðarmann. Ferill hans sem um-
boðsmanns var æði skrautlegur og
hann skildi víöa eftir sig skuldir. Þær
sögur voru óspart rifjaðar upp af
flokksmönnum þegar hann gerðist
samstarfsmaður Jóns Baldvins,"
segir maður sem þekkir vel til innan
Alþýðuflokksins. Einn sagði að
Ámundi væri erfiður í samstarfi og
nánast því keyrði yfir fólk. „Hann
er duglegur og fær margar hugmynd-
ir. Sumar hafa gefist vel, eins og
fundaherferðin undir heitinu
„Hverjir eiga ísland?“. Aðrar hafa
skilað minna, eins og herferðin sem
kallaðist Á rauðu ljósi.“
Hugsarekki
til enda
Ámundi starfaði fyrir Styrktarfé-
lag SÁÁ og var sjónvarpsbingóið,
sem unnið var i samstarfi við Stöð
2, runnið undan riljum hans. Hug-
myndin þótti góð og margir tóku
þátt í hinu vikulega bingói. Það fór
aö lokum út um þúfur og þykir eitt
dæmið um hugmyndir Ámunda sem
gleymst hefur að hugsa til enda.
Fjáröflunarleiðir hans fyrir flokk-
inn hafa aftur á móti gefist mjög vel.
„Hann er mjög kræfur maður og
duglegur að afla flokknum fjár. Hann
er nánast því uppáþrengjandi og not-
ar forystumenn flokksins óspart,“
sagði einn flokksmaður.
-ELA/-JJ