Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Page 29
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1990.
37
Handbolti unglinga
• Frá úrslitaleik KR og Gróttu í 6. flokki karla. KR sigraði í leiknum með • Stjarnan sigraði Gróttu í úrslita-
nokkrum yfirburðum og tryggði sér sigur i litlu VÍS-keppninni í flokki A-liða. leik í 5. flokki kvenna og eins og sjá
má var ekkert gefið eftir i leiknum.
Litla VÍS-keppnin
haldin í fyrsta sinn
- hátt í sjö hundruð þátttakendur voru á mótinu
Um síöustu helgi fór fram stærsta
mót vetrarins hjá yngstu flokkunum
í handknattleik. Mótið bar yfirskrift-
ina „htla VÍS-keppnin“. Alls mættu
til leiks um 60 lið víðs vegar af
landinu og má reikna með að þátttak-
endur hafi verið á milli 600 og 700.
Það var Vátryggingafélag íslands
sem var aðalstyrktaraðili þessa móts
en framkvæmdin var í höndum KR-
inga. Keppnin var mjög jöfn og
spennandi og í flestum flokkum réð-
ust úrslit ekki fyrr en á síðustu min-
útunni í mörgum af úrslitaleikjun-
um.
7. flokkurkarla
í 7. flokki karla bar Þór, Ve„ sigur
úr býtum eftir að liðið hafði unnið
Víkinga í úrslitaleik, 7-5. Leikurinn
var mjög jafn og spennandi allan tím-
ann og var það ekki fyrr en á síðustu
mínútunni sem úrslitin réðust. Stað-
an í hálfleik var jöfn, 3-3.
Markahæstir í Uði Þórs voru ísleif-
ur Sigurðsson með 5 mörk og þeir
Jón Helgi Gíslason og Jóhann Hall-
dórsson gerðu 2 mörk hvor.
Hjá Víkingum voru markahæstir
Markús Mich með 5 mörk og Snorri
Guðjónsson sem gerði 2 mörk.
KRa sigraði Gróttu í leik um 3.^4.
sætið, 9-8, og gat leikurinn endað á
hvorn veginn sem var. ÍR lenti í 5.
sæti, FHa í 6. sæti, KRb í 7. sæti, HK
í 8. sæti FHb í 9. sæti og Grótta b í
10. sæti.
6. flokkur karla
í úrslitaleik KR-inga og Gróttu í 6.
flokki A höfðu KR-ingar nokkra yfir-
burði. KR-strákamir léku af miklum
krafti strax í upphafi og náðu fljót-
lega ömggri forystu sem þeir héldu
allan leikinn. KR sigraði í leiknum,
7-2, en staðan í hálfleik var 4-1.
Grótta varð því í 2. sæti.
Markahæstir KR-inga voru Björg-
vin Vilhjálmsson með 3 mörk og
Árni Pétursson með 2 mörk.
Bæði mörk Gróttu gerði Bjarki
Hvannberg.
Framarar tryggðu sér 3. sætið á
mótinu þegar þeir unnu ÍR-inga í leik
um 3. sætið. Framarar skoruðu sig-
urmarkið þegar örfáar sekúndur
vora til leiksloka. ÍR varö þvi í 4.
sæti, Stjarnan í 5. sæti, Haukar í 6.
sæti, FH í 7. sæti, Valur í 8. sæti, UBK
í 9. sæti og HK í 10 sæti. Þór, Ve„
UMFA og Fjölnir lentu í 11.-13. sæti.
í flokki B-liða bar UMFA sigur úr
býtum er liðið sigraði KRa í úrslita-
leik, 6-5. Leikurinn var gífurlega jafn
og spennandi og þurfti að framlengja
tvisvar sinnum til þess að fá fram
úrsht. KR varð því í 2. sæti.
Markahæstur í liði UMFA var Ás-
grímur Sigurðsson með 3 mörk en
Umsjón:
Brynjar Stefánsson
og Heimir Ríkarðsson
hjá KR var Stefán Bjarnason marka-
hæstur og gerði hann einnig 3 mörk.
ÍRa varð í 3. sæti, Stjarnan í 4.
sæti, Víkingur í 5. sæti, ÍRb í 6. sæti,
Valur í 7. sæti, FHa 8. sæti, UBK í
9. sæti og Grótta í 10. sæti, HK í 11.
sæti, FHb í 12 sæti, KRb í 13 sæti og
Fram í 14 sæti.
6. flokkurkvenna
Fimm lið sendu lið til keppni í þess-
um flokki. Leiknar voru tvær um-
ferðir og léku allir við alla. Grótta
vann alla leiki sína á mótinu, nema
einn, þar sem varð jafntefli. Grótta
fékk því 15 stig og varð sigurvegari.
FH fékk 10 stig og hafnaði í 2. sæti.
KR varð í 3. sæti, fékk 9 stig. Fylkir
fékk 4 stig og hafnaði í 4. sæti. KRb
rak lestina en gerði eitt jafntefli og
fékk því 1 stig.
5.flokkurkvenna
Grótta og Stjarnan léku til úrslita
í 5. flokki kvenna. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem þessi lið mætast í
úrslitaleik og eru þeir ávallt jafnir
og skemmtilegir. Stjörnu-stelpurnar
mættu mjög ákveðnar til leiks og
tóku fljótlega forystuna, 3-0. Gr.ótta
gafst þó ekki upp og náði að minnka
muninn í 4-2 rétt fyrir lok fyrri hálf-
leiks. Seinni hálfleikur var mjög jafn
en Stjarnan sleppti ekki forskotinu
sem náðist í upphafi leiksins og
tryggði sér sigur, 7-5.
Markahæstar í liði Stjörnunnar
voru Nína K. Björnsdóttir og Ríkey
Jónsdóttir með 3 mörk hvor en Ellen
Gunnarsdóttir gerði 4 mörk fyrir
Gróttu.
Fram lenti í 3. sæti á mótinu, KR í
4. sæti, FH í 5. sæti, ÍBV í 6. sæti,
Haukar í 7. sæti, Víkingur í 8. sæti,
ÍR í 9. sæti, HK í 10. sæti og UMFG
í 11. sæti.
Einnig var keppt í flokki B-liða í
þessu móti en 5 félög sendu lið til
keppni. FH dró síðan sitt lið úr
keppninni vegna einhverra kæru-
mála sem ekki verður fjallað nánar
um hér. Leiknar voru tvær umferðir
og léku allir við alla. Fram hafði
mikla yfirburði í þessum flokki en
Fram-stelpurnar unnu alla leiki sína
með miklum yfirburðum og fengu 12
stig. ÍR varð í 2. sæti með 6 stig, Vík-
ingur í varð 3. sæti, einnig með 6 stig,
en KR rak lestina því liðið tapaði
öllum leikjum sínum á mótinu að
þessu sinni.
Áfram á þessari braut
Það er alveg ljóst að mót sem þetta
kostar mikla vinnu og skipulagningu
og eiga mótshaldarar þakkir skildar
fyrir að láta það verða að veruleika.
Vonandi verður framhald á þessari
keppni og helst þyrfti að íjölga mót-
um eins og þessum því þessir krakk-
ar hafa fengið of fá verkefni og þá
sérstaklega 5. flokkur kvenna.
• Jón Hjaltalín Magnússon, for-
maður HSÍ, og Ólafur Jónsson,
varaformaður HSÍ, eiga það ekki
bara sameiginlegt að vera báðir
Vikingar og sitja í framkvæmda-
stjórn HSÍ heldur urðu dætur þeirra
meistarar í 5. flokki kvenna með
Fram í litlu VÍS-keppninni um síð-
ustu helgi.
• Stjarnan sigurvegari í 5. flokki kvenna, A-liða.
• Fram sigurvegari i 5. flokki kvenna, B-liða.
• Grótta sigurvegari i 6. flokki kvenna.
• KR sigurvegari í 6. flokki karla, A-liða.
IBR
KRR
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR KARLA
LEIKNIR - KR
í dag kl. 17.00
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
• Þór frá Vestmannnaeyjum sigraði i 7. flokki karla.