Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1990.
9
Dansmót íslands:
Fjölskyldan
kom heim með
fimm bikara
ingaflokki: Petrea Guðmundsdóttir
og Gunnar Már Sverrisson úr Dans-
skóla Sigurðar Hákonarsonar.
DV-myndir GVA
■ sýndi best áhuga fólks á keppni sem
þessari. Þó fannst honum vanta upp
á að sjónvarpsstöðvarnar sýndu
þessu nægilega athygli. Þess má geta
að keppnin fór nú fram í fimmta sinn
og á þeim tíma hefur keppendaíjöld-
inn flmmfaldast.
Þau Jón Stefnir og Berglind hafa í
vetur æft dans hjá nýjum dansskóla
Jóns Péturs og Köru. Áður voru þau
hjá Sigurði Hákonarssyni. „Dansinn
er skemmtilegt áhugamál," sagði Jón
Stefnir. Yngri dóttir hans varð tvö-
faldur íslandsmeistari árin 1988 og
'89 og sú eldri hefur alltaf utan einu
sinni verið í einhverju af fyrstu sæt-
unum. „Yngri stelpan okkar keppti
í bráöabana í öðrum riðli og lenti þar
í öðru sæti þannig aö við hefðum
getað komið með sex bikara heim í
stað fimm,“ sagði Jón Stefnir.
„Við köllum það skemmtistress að
taka þátt í keppninni en erum að
sjálfsögðu ákaflega ánægð með út-
komuna. Það er mikill félagslegur
andi í kringum dansskólann og sam-
heldni. í kringum keppnina er ýmis-
legt sem þarf að athuga, t.d. dans-
búningar. Konan mín hefur saumað
búninga ásamt vinkonu okkar, Petru
Jónsdóttur."
Dætur Jóns hafa haft sömu dans-
herrana lengi, sú yngri frá því hún
byrjaði að læra og hin eldri frá 88.
Af hverju siðareglur
fýrir borgarfulltrúa?
Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi
Alfreö Þorsteinsson
framkvæmdastjóri
„Við hjónin höfum lært dans frá 1986
en líklegast smituðu dæturnar okkur
því aö þær hafa verið miklu lengur.
Reyndar langaði okkur alltaf í dans-
tíma en gáfum okkur ekki tíma fyrr,“
segir Jón Stefnir Hilmarsson, sem
varð íslandsmeistari í samkvæmis-
dönsum ásamt eiginkonu sinni,
Berglindi Freymóðsdóttur, í dan-
skeppninni á sunnudag sem fram fór
í íþróttamiðstöðinni í Garðabæ. Ekki
urðu þau þó einu íslandsmeistararn-
ir í keppninni því að dætur þeirra
tvær urðu einnig sigurvegarar, þær
Jóhanna Ella, 11 ára, og Anna Björk,
15 ára. Dansherrar þeirra eru Davíð
A. Einarsson, 12 ára, og Svavar
Björgvinsson, 18 ára.
Vaxandi áhugi er á dansmótinu og
má geta þess að fimm hundruð pör
skráðu sig til keppni að þessu sinni,
börn, unglingar og fullorðnir. Kepp-
endur voru frá níu dansskólum
hvaðanæva af landinu. Dómarar
keppninnar voru þrír, Joan Richard
frá Englandi, Marcel De Reyk frá
Hollandi og Jörgen Christensen frá
Danmörku.
Að sögn Jóns Stefnis var alla helg-
ina troðfullt hús af áhorfendum sem
Framsóknarmenn í Reykjavík eru að hefja kosningabaráttuna. Þeir munu á næstu dögum
kynna helstu baráttumál sín. 10 atriði verða sett á oddinn. Hér kynnum við 4 þeirra:
Siðareglur eru nauðsynlegar
Lóðabrask er stundað í stórum stíl í Reykjavík og kemur einn af
borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins þar við sögu. Sömuleiðis
hafa starfsmenn byggingarfulltrúans í Reykjavík hannað og teikn-
að byggingar sem einstaklingar og haft síðan eftirlit með sjálfum
sér sem embættismenn. Þá hefur borgarstjóri skammtað sér bif-
reiðir að eigin geðþótta.
Framsóknarflokkurinn telur brýnt að uppræta slík vinnubrögð og
mun beita sér fyrir samþykkt siðareglna fyrir borgarfulltrúa og
embættismenn til að starfa eftir.
Borgarstarfsmenn við sama borð
Starfsmenn Reykjavíkurborgar eru yfirleitt verr launaðir en starfs-
menn nálægra sveitarfélaga fyrir sambærileg störf. Engin sann-
girni er t.d. í því að slökkviliðsmaður í Reykjavík sé á lægri launum
en slökkviliðsmaður í Hafnarfirði eða að Sóknarkona í Reykjavík
sé á lægri launum en Sóknarkona í Kópavogi.
Framsóknarflokkurinn mun beita sér fyrir því að starfsmenn
Reykjavíkurborgar sitji við sama borð og starfsmenn nágranna-
sveitarfélaganna.
Hætt verði að okra á öldruðum
Borgaryfirvöld hafa stuðlað að okri á húsnæði aldraðra í Reykja-
vík með því að skilyrða lóðaúthlutanir, sem samtök aldraðra fá,
til ákveðinna byggingarverktaka, sem síðan hafa selt öldruðum
íbúðir á óeðlilega háu verði.
Þannig hefur öldruðum reynst jafnvel ókleift að skipta á stærri
húseignum fyrir litlar þjónustuíbúðir.
Framsóknarflokkurinn mun beita sér fyrir því að Reykjavíkurborg
bjóði út íbúðabyggingar fyrir aldraða og selji þær á kostnaðar-
verði til samtaka aldraðra. Jafnframt þessu verði lögð áhersla á
að bæta úr brýnum skorti á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða.
Hjálparsveit gegn fíkniefnum
Sífellt fleiri ungmenni verða vímuefnum að bráð. Borgaryfirvöld
hafa brugðist í baráttunni gegn þessum vanda. Með heilbrigðu
æskulýðs- og íþróttastarfi er best unnið gegn vá fíkniefna og vímu-
efna.
Framsóknarflokkurinn telur forgangsverkefni að borgin beiti sér
fyrir^að stofnuð verði hjálparsveit æskulýðssamtaka, foreldra, skóla
og kirkju sem berjist gegn vímuefnaneyslu unglinga í þeirra eigin
umhverfi með aðferðinni maður á mann.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík
Báðar kynntust þær herrunum sín-
um í dansskólanum. Að sögn Jóns
er áhugi drengja alitaf að aukast á
dansi og hann er sérlega mikill um
þessar mundir. „Það hafa aldrei ver-
iö jafnmargir drengir í dansi og
þennan vetur.“
Dansinn er ein af fjórum greinum
sem koma til greina að keppa um á
ólympíuleikum. „Hann var ekki val-
inn núna en það getur komið að því.
Þess vegna er ég hissa á því hversu
litla umfjöllun danskeppni fær í fjöl-
miðlum,“ sagði Jón.
Þessi dansandi íjölskylda gerir
nokkuð að því að æfa sig heima í
stofu. „Við þurfum oft að æfa okkur
fyrir sýningar og gerum það gjarnan
heima,“ sagði Jón Stefnir Hilmars-
son. -ELA
Jón Stefnir, hárgreiðslumeistari og eigandi Saloon Ritz, eiginkona hans, Berglind Freymóðsdóttir, dæturnar, Anna
Björk og Jóhanna Ella, og dansherrarnir, Davið og Svavar. Sannkölluð dansandi fjölskylda.