Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1990. Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJ0LFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÚNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SlMI (91 )27022 - FAX: (91 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. ímynd og innihald Þegar ferðalög í flugvélum voru munaður fyrir þrem- ur áratugum, auglýstu vindlingaframleiðendur með myndum af hamingjusömu fólki í flughöfnum. Mark- miðið var að búa í hugum fólks til ímynd tóbaksnotkun- ar sem sjálfsagðrar iðju í unaðslandi flugstöðva. Þegar fólk fór að nota flughafnir og þær fóru að yfir- fyllast, komst fólk að raun um, að þær voru ekki unaðs- land, heldur fremur sóðalegt land hávaða og taugaveikl- unar, þar sem fólk var að bíða eftir, að eitthvað annað betra gerðist en að vera einmitt á þeim volaða stað. Þá var ekki lengur hægt að nota flughafnir sem grunn auglýsinga. Nú eru í tóbaksauglýsingum birtar myndir af töffurum í nýþvegnum gallabuxum, sem eru aleinir að stjaka skítugum jeppa á fleka yfir fljót í ótilgreindum frumskógi við miðbaug. Eða þá í kúrekafötum. Hin nýja ímynd tóbaksreykingamannsins er af ein- staklingshyggjumanni, sem er aleinn úti í náttúrunni og er jafnvel alls ekki að reykja, að minnsta kosti ekki í auglýsingunni. Auglýsingin gefur hins vegar í skyn, að slíkur töffari gæti hugsað sér að reykja. Auglýsingar og kynningar af ýmsu tagi heita núna „markaðssetning“ og fjalla oftar en ekki um eitthvað annað en innihald þess, sem verið er að auglýsa. í tó- baksauglýsingum er ekki sagt, að það sé hollt og gott að reykja, heldur er verið að búa til ímyndir. Ef sækja á með vöru eða þjónustu inn á markað eða verja stöðu vörunnar og þjónustunnar á markaði, er ekki gripið til þess ráðs að útskýra neitt fyrir væntanleg- um notendum, heldur er reynt að vekja ákveðin hug- renningatengsli með tiltölulega óljósum hætti. Stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar eru „markaðs- settir“ á svipaðan hátt og hver önnur vara. Það tekur því ekki að reyna að útskýra efnisatriði mála fyrir kjós- endum, heldur borgar sig að birta auglýsingar af t.d. ölduróti með almennu þvaðri um „klettinn í hafinu“. í byggðakosningunum, sem senn fara í hönd, verða kjósendur því miður ekki mjög uppnæmir fyrir raun- verulegum málum. Fáir gera sér t.d. grein fyrir, að sveit- arfélögum er misvel stjórnað. Sum þeirra skulda til dæmis margfalt meira á mann en önnur gera. í stað þess fara kjósendur meira eftir meintum per- sónuleika þeirra, sem eru í framboði. Þetta mat kann að vera raunhæft í sveitarfélögum, þar sem fólk þekk- ist. En í Reykjavík verður fólk að byggja á einhverju öðru, til dæmis framgöngu frambjóðenda í sjónvarpi. Hér á landi hefur leið fólks til stjórnmála legið í vax- andi mæh um sjónvarpsskjáinn. Ef fólki tekst að búa til af sér notalega og traustyekjandi ímynd í sjónvarpi, standa stjórnmálaflokkar í biðröð við að fá það í fram- boð. Innihaldið að baki ímyndinni skiptir litlu sem engu. Reagan Bandaríkjaforseti geislaði frá sér ímynd nota- legs trausts. í rauninni var hann ekki aðeins afar léleg- ur forseti, sem vissi fremur lítið um það, sem var að gerast í kringum hann. Hann var einnig fremur lélegur pappír, því að hann seldi sig Japönum, þegar hann hætti. Þegar ímyndarfræðingar dáleiða neytendur og kjós- endur með ímyndum, sem standa ekki í neinu sam- bandi við innihaldið og eru jafnvel þveröfugar við inni- haldið, sjáum við fyrir okkur martröð, þar sem fólk framtíðarinnar tekur upp trú á furðusögur og ævintýri. Við erum þegar komin á það stig, að „markaðssetn- ing“ felst ekki í að búa til gott innihald, heldur góða ímynd af hvaða innihaldi eða innihaldsleysi sem er. Jónas Kristjánsson Ævin stórlengd á til- raunastofum með skerðingu hitaeininga Eitt af þvi sem veldur framsýn- um mönnum áhyggjum eru horf- urnar á óhóflegri fjölgun jaröarbúa í fyrirsjáaniegri framtíð. Mann- kyninu hefur fjölgað svo ört síö- ustu aldir, en þó einkum áratugi, að sýna má fram á að með sama áframhaldi blasir við örtröð og öngþveiti í sumum heimshlutum fljótíega á næstu öld. Til huggunar sér haifa ’menn reynsluna af að við iðnvæðingu og tæknivæðingu þjóð- félaga dregur úr viðkomu, og í ýmsum háþróuðum iðnríkjum má nú heita að innfæddur fólksfjöldi standi í stað. En þá streyma að inn- flytjendur frá fjölgunarsvæðunum, og viðkomujafnvægi í Frakklandi eða Þýskalandi er engin huggun óttaslegnum landsstjórnum í Kína og Indlandi, fjölmennustu ríkjum heims. í báðum hafa yfirvöld leitast við aö koma á viðkomutakmörkun- um með fortölum, skattlagningu barneigna, jafnvel framþvinguðum fóstureyðingum og ófrjósemisað- gerðum. Inn í umræðu um fólksfjölgunar- vandann kemur nú nýtt atriði, sprottiö af óvæntum niðurstöðum af dýratilraunum í tilraunastofum. Megi færa vitneskju, sem þar hefur fengist, um samhengi hitaeininga- skerts en bætiefnaríks fæðis og ævilengdar yflr á menn þá blasir við að meðalmannsævi gæti lengst til muna, jafnvel tvöfaldast, og vel að merkja hefðu menn þá fulla lík- amsburði og héldu hreysti fram að þessari háu elli. Skýrt ber að taka fram aö ekkert liggur enn fyrir um áhrifin af til- raunafæðinu á menn, né um mögu- leika til að koma við skammtaná- kvæmni tilraunastofanna í daglegu lífi langa ævi, en öll rök hníga enn að því að þessi möguleiki sé fyrir hendi. Natalie Angier, vísinda- fréttaritari viö New York Times, skýrði nýlega í blaði sínu frá rann- sóicnarstarfinu sem að baki býr. Liðið er á sjötta áratug síðan til- raunamenn veittu því fyrst athygli að tiltölulega rýrt en heÚnæmt fæði virtist hafa tilhneigingu til að lengja líf tilraunadýra. Lengi vel var látið heita svo, að þetta væri bara kynlegt tilraunastofufyrir- brigði. En upp á síðkastið hefur verið beint að því skipulögðum rannsóknum, og niðurstöðurnar hafa vakið feikna athygli. Þær eru á þá leið, að tilraunadýr alin á 60 til 65 hundruðustu af þeim hitaeiningafjölda sem hverri teg- und er talið eðlilegt viðurværi, en Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson fá bætiefni og snefilefni eins vel útilátin og best má verða, lifa mun lengur og við betri heilsu en þau sem fá að éta lyst sína af hliðstæðu fæði. Allar heilsuviðmiðanir, ásig- komulag líífæra, virkni ónæmis- kerfisins, glansinn á húð, roði eða feldi, hélt sér á hreystistigi æsk- unnar löngu eftir að vel öldu sam- anburðarhópamir voru orðnir las- burða, dauflr og óásjálegir - já reyndar dauðir. Mýs hafa komist upp í 55 mánaða aldur á hitaeiningaskerta fæðinu. Samskonar mýs í sömu tilrauna- stofu sem átu lyst sína náðu að meöaltali 35 mánaða aldri. Skýringartilgáta vísindamanna á þeim mikla mun sem kemur í ljós er að hámarksskammtur af vítam- ínum og snefilefnum og takmark- aður skammtur af brennsluefni til að viðhalda líkamsstarfseminni veröi til þess að næringaraðlögun líkamskerfanna verði eins greið og á verður kosiö. Rannsóknir sýna líka að orkuskerta fæöið ver erfða- vísana fyrir áverkum frá umhverf- inu, lætur líkamshvata starfa með fyllstu virkni og heldur niöri myndun skaðlegra niðurbrotsefna frá efnaskiptum í líkamanum. Þessu fylgir að hrörnunarsjúk- dómum er haldið í skefjum. Hita- einingasnauða en bætiefnaríka fæöið reyndist veita vöm við hjarta- og æðasjúkdómum, sykur- sýki, hamlar myndun hvers konar krabbameina, ver nýru og augu fyrir elhkvillum. Sömuleiðis helst heilastarfsemi og líkamslipurð í blóma fram eftir öllum aldri. Þaö kom rannsóknarmönnum meðal annars á óvart að engu máli reyndist skipta hvort tilraunadýrin fengu hitaeiningaskammta sína mestmegnis úr fitu eða kolvetnum. Á hvoru sem alið var lifðu dýrin til hárrar elli, bara aö þau fengju sína nauðsynlegu skammta af eggjahvítu, vítaminum og steinefn- um. Fram til þessa er búið að prófa hitaeiningaskerta fæðið á fjölda dýrategunda, allt frá frumdýrum, köngulóm, vatnsflóm, ormum og fiskum upp í mýs og rottur. Hvar sem borið er niður reynist niður- staðan sú sama, stórlengd ævi frá því sem ella gerist. Nú eru menn að færa sig hærra upp eftir þróunarstiga lifveranna. Gerðar verða tilraunir með áhrif hitaeiningaskerts viðurværis á tvær apategundir, íkornaapa og rhesusapa. Sá verður að jafnaði 35 ára gamall, svo fullnaðarniður- stöðu er langt að bíða. En reynslan til þessa gefur til kynna, að ævilík- urnar aukist hvenær sem hitaein- ingaskert fæði er tekið upp. Einn af þeim sem unnið hafa aö þessum rannsóknum og Natalie Angier ræðir við er Roy L. Wal- ford, prófessor í meinafræði við sjúkrahús Kaliforníuháskóla í Los Angeles. Eftir honum er haft: „Þetta er nú máske of gróft sett fram, en hitaeiningatakmörkun ætti að helminga öldrunarhraðann hvenær sem byrjað er á henni. Byrjir þú fimmtugur, og erfðastill- ingin hjá þér hafi verið á dauða um áttrætt, þá ættu að bætast við önn- ur 30 ár og þú að eiga 60 ár ólifuð.“ Prófessor Walford er 65 ára, og hann tekur niðurstöður rannsókn- anna svo alvarlega að hann sníður fæði sitt að þeim. Hann neytir dag- lega 1500 til 2000 hitaeininga, þar sem meðalneysla karlmanns við kyrrsetustörf er talin 2500 hitaein- ingar. Hjá konum er samsvarandi tala 2100 hitaeiningar. Ekki eru allir starfsbræður próf- essorsins sammála breytni hans þótt þeir viðurkenni að ekkert hafi komið fram sem mæli móti því að sama gildi um um áhrif mataræðis á ævilengd manna og annarra líf- vera. Tilraunirnar með apana ættu að skera úr því með tíð og tíma. Veigameiri er sú mótbára talin að ekki sé auðvelt að færa árangur í rannsóknarstofum, þar sem allt er vandlega mælt og nákvæmlega skammtað, út í eldi húsdýra eða daglegt líf manna. Magnús T. Ólafsson Tilraunir á öpum eru næsta skrefið í rannsókn á ævilengingaráhrifum fæðis með skertan hitaeiningafjölda en með kjörskammt af vítaminum og snefilefnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.