Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1990, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1990, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1990. Útlönd Eystrasaltsrikin: Samræmdar aðgerðir Forsetar Eystrasaltsríkjanna þriggja, Eistlands, Lettlands og Lit- háens, munu koma saman á morgun til aö samræma aðgerðir sínar í bar- áttunni gegn yfirvöldum í Moskvu. Fundur forsetanna verður haidinn í Tallinn, höfuðborg Eistlands. Að sögn eistlensks fréttamanns munu forsetarnir Landsbergis í Lit- háen, Gorbunovs í Lettlandi og Ruut- el í Eistlandi hleypa nýju lífi í Eystra- saltsráðið, ráðgefandi nefnd sem sett var á laggimar í kringum 1930. í henni áttu sæti þrír háttsettir stjórn- málamenn frá hverju Eystrasalts- ríkjanna fyrir sig. Vestrænir stjórnarerindrekar sögöu að með samvinnu gæti Eystra- saltslöndunum reynst auðveldara að losa sig undan Moskvuvaldinu. Að sögn eins ráöherra Eistlands geta ríkin þrjú saman fullnægt yfir sjötíu prósent daglegra þarfa. Hins vegar væru þau lömuð vegna eldsneytiss- korts. í Litháen er olía skömmtuð og að- gerðir Sovétmanna hafa kostað Lit- háa milljónir dollara, auk þess sem um tuttugu þúsund verkamenn hafa orðið að hverfa frá vinnu. Útvarpið í Litháen greindi frá því í gær að lít- ilsháttar olíuframleiðsla heföi hafist í þessari viku í Kretingahéraði í norðvesturhluta landsins. Reuter Frá mótmælum í Tallinn i Eistlandi Simamynd Reuter Mótmæli vegna fundar öfgasinnaðra hægri manna Nokkur hundrúð mótmælendur köstuðu í gær grjóti og slettu máln- ingu á lögreglumenn sem gættu fundarstaðar öfgasinnaðra hægri manna í Helsingör í Danmörku. Alls sátu sautján þingmenn Evrópu- bandalagsríkja fundinn, þar á meðal Jean-Marie Le Pen, leiðtogi Þjóð- fylkingarinnar í Frakklandi, og Franz Schönhuber, leiðtogi repúblik- ana í Vestur-Þýskalandi. Fundarmenn ræddu meðal annars stjórnmálaástandið í þýsku ríkjun- um, Frakklandi, Ítalíu og í Sovétríkj- unum. Á fundi með fréttamönnum notuðu Le Pen, Schönhuber og flæmski þjóöernissinninn Karel Dil- len tækifæriö til að ráðast harðlega gegn fjölmiðlum og sögðu þá koma á framfæri lygi og röngum upplýsing- um um stefnu samtaka þessara hægri manna. Schönhuber lýsti yflr reiði sinni yfir því að repúbhkanar skuli vera sagðir ólýðræðislegir. Hann þóttist viss um að þeim myndi ganga vel í kosningum í sameinuðu Þýskalandi. Le Pen kvaðst vera andvígur stefnu franskra yfirvalda í innflytjendamál- um en sagði þó sína stefnu ekki vera ómannúðlega. Hann lagöi á það áherslu að Þjóðfylkingin væri ekki öfgasamtök og notaöi tækifærið til að lýsa yfir andúð sinni á þeim sem svívirtu grafir gyðinga í kirkjugarði við Carpentras í suðurhluta Frakk- lands í fyrradag. Sagði hann þaö svipað og það sem átt hefði sér stað í Timisoara í Rúmeníu. Þetta hefði verið sett á svið til þess að menn kenndu honum og flokki hans um. í gær komu reiðir námsmenn af gyðingaættum í langferðabifreiðum til Carpentras. Á margar bifreiðarn- ar höfðu verið límdir miðar þar sem hótað var hefndum. Reuter og Ritzau GP-húsgögn hf. ítölsk borðstofusett Borð úr gleri, stáli og einnig úr viði stækkanleg) HÚSGÖGN Þýsku leðursófasettin komin - einstök gæði Verð frá kr. 148.500 stgr. Flugvallarstarfsmenn bera lik út úr Boeing 737 vélinni á flugvellinum í Manila i gær. Simamynd Reuter Sprenging í farþegavél Að minnsta kosti sjö manns létu lífiö og tugir slösuðust er eldur kom upp vegna sprengingar um borð í flugvél á flugvellinum í Manila á Fihppseyjum í gær. Miðhluti flugvél- arinnar, sem var af gerðinni Boeing 737, sprakk þegar verið var að draga hana út á flugbraut. Hreyflar vélar- innar höfðu ekki verið gangsettir. Um borð í vélinni voru hundrað og þrettán farþegar og sex flugliðar. Þeir sem létust voru allir farþegar, sex konur og eitt barn. Forseti Filippseyja, Corazon Aqu- ino, fyrirskipaði þegar í staö að ör- yggiseftirlit yrði hert umhverfis flug- völlinn. Yfirmaöur flugvallarins segir tæknilega bilun útilokaða. Hins veg- ar gæti sprengja hafa verið um borð eða eldfimt efni. Leit hófst þegar í gær í farangri farþeganna að einhverju sem gefið gæti vísbendingu um hvað olli sprengingunni. Reuter DV Bush hvetur til lendingar á Mars Bush Bandaríkjaforseti hvatti til þess í ræðu í Texas í gær að mannað geimfar lenti á Mars áð- ur en þrjátíu ár væru hðin. Bush vísaöi jafnframt á bug þeirri gagnrýni aö ekki væri til nóg fé til að hrinda áætluninni í fram- kvæmd. Bush hélt ræðu sína samtímis því sem birt var niöurstaða rann- sóknar þingnefndar. Þar var fundið að því aö sérstaka framtíö- arstefnu vantaði i geimferöaáætl- un yfirvalda þrátt fyrir aö sett hefði verið það markmið að kom- ast til Mars. Nefndin benti á að þingmenn þyrftu að taka erfiðar ákvarðan- ir, ekki bara um geimferð til Mars heldur einnig um byggingu geimstöðvar'sem gert er ráð fyrir að kosta muni þijátíu milljarða dohara. Reut< i Peningainarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóösbækurób. 3,0 Allir Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 3-4 Ib.Sb,- Sp 6mán. uppsögn 4-5 Ib.Sb 12mán.uppsögn 4-5,5 Ib 18mán. uppsögn 11 Ib Tékkareikningar, alm. 0,&-1 Allir nema Ib Sértékkareikningar 3,0 Allir Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5 Allir 6mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,- Sb Innlán með sérkjörum 2,5-3 Lb.Bb,- Sb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 7-7,25 Lb.Sb Sterlingspund 13,6-14,25 Sb Vestur-þýsk mörk 6,75-7,5 Lb Danskarkrónur 9,25-10,75 Sb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv.) 13,5-13,75 Bb.Sb Viöskiptavixlar(forv-) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 14,0 Allir Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17,5 Bb Utlán verðtryggð Skuldabréf 7,5-8.25 Lb.Bb Útlán til framleiðslu Isl.krónur 13,75-14,25 Bb SDR 10,75-11 Bb Bandarikjadalir 10,10-10,25 Bb Sterlingspund 16,8-17 Sp Vestur-þýskmörk 9,9-10.5 Bb Húsnæðislán 4.0 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 23,0 MEÐALVEXTIR óverðtr. maí 90 14,0 Verðtr. mai 90 7.9 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala maí 2873 stig Lánskjaravisitala apríl 2859 stig Byggingavísitala maí 541 stig Byggingavisitala maí 169,3 stig Húsaleiguvisitala 1,8% hækkaði 1. april. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4,850 Einingabréf 2 2,652 Einingabréf 3 3,193 Skammtímabréf 1,646 Lífeyrisbréf Gengisbréf 2,123 Kjarabréf 4,808 Markbréf 2,561 Tekjubréf 1,968 Skyndibréf 1,439 Fjölþjóöabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,337 Sjóðsbréf 2 1,752 Sjóðsbréf 3 1,634 Sjóðsbréf 4 1,385 Vaxtasjóðsbréf 1,6500 Valsjóðsbréf 1,55035 HLUTABREF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 500 kr. Eimskip 420 kr. Flugleiðir 145 kr. Hampiðjan 152 kr. Hlutabréfasjóöur 178 kr. Eignfél. Iðnaðarb. 152 kr. Skagstrendingur hf. 320 kr. Islandsbanki hf. 163 kr. Eignfél. Verslunarb. 170 kr. Olíufélagið hf. 415 kr. Grandi hf. 164 kr. Tollvörugeymslan hf. 102 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- Inn birtast i DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.