Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1990, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 199Q.
7
Fréttir
Norræn ráðstefna um andlegan og félagslegan stuðning við krabbameinssjúklinga:
„Átaks er þörf á
öllum Norðurlöndum“
„Ástandið varðandi aöhlynningu
krabbameinssjúklinga er nokkuð
svipað á Norðurlöndunum. Það er
þó sammerkt með öllum þjóðunum
að félagslegum og andlegum stuðn-
ingi hefur ekki verið sinnt sem
skyldi. Það þarf virkilega að gera
átak í þeim efnum,“ sögðu þær Guð-
rún Agnarsdóttir, þingmaður og
læknir, og Lilja Þormar hjúkrunar-
fræðingur í samtali við DV.
Lilja og Guðrún voru nýlega á ráð-
stefnu um andlegan og félagslegan
stuðning við krabbameinssjúklinga á
Norðurlöndum. Ráðstefnan var
haldin í Finnlandi og hana sóttu 110
þátttakendur frá flmm Norðurlönd-
um, þar af 11 íslendingar. Ráðstefnan
er hin fyrsta sinnar tegundar og þar
hittust fulltrúar flestra heilbrigðis-
stétta, leikmenn, sjúklingar og
stjórnmálamenn.
Umræðurnar snerust aðallega um
þrjú atriði: Krabbameinssjúklinginn,
aðstandendur og syrgjendur, sjálf-
boðaliðastarf einstaklinga og sam-
taka og loks um heilbrigðisstarfsfólk
og fleiri er annast ummönnunarstörf
á vegum hins opinbera.
Markmið ráðstefnunnar var að
setja háan sameiginlegan staðal fyrir
andlegan og félagslegan stuðning við
krabbameinssjúklinga á öllum Norð-
urlöndum og leggja fram skýra fram-
kvæmdaáætlun tO að ná því mark-
miöi.
„Ráöstefnan er fyrsta skrefið í átt
að betri andlegum og félagslegum
Lilja Þormar hjúkrunarfræðingur t.v. og Guðrún Agnarsdóttir, þingmaður
og iæknir. DV-mynd GVA
stuðningi við krabbameinssjúklinga.
Sameiginleg niðurstaða starfshópa
landanna var að í fyrsta lagi þyrfti
að bæta upplýsingaflæði og tjáskipti
við sjúklinga og bæta menntun í
grunnnámi heilbrigðisstéttanna
hvað þetta varðar. Þá þarf að skipu-
leggja andlegan og félagslegan stuðn-
ing á vegum heilbrigðisþjónustunnar
í heild sinni. Loks voru allir sam-
mála um að sérstaklega þyrfti að
bæta þjónustu við sjúklinga með
krabbameinssjúkdóm á lokastigi.
I íslenska starfshópnum höfðu mái
er snúa að almannatryggingakerfmu
einnig forgang en ýmiss konar fjár-
hagserflðleikar geta fylgt í kjölfar
alvarlegra sjúkdóma eins og krabba-
meina.“
Stefnt er að annarri ráðstefnu í
haust þar sem kynntar verða niöur-
stöður rannsókna varðandi andlega
og félagslega aðhlynningu krabba-
meinssjúklinga.
-hlh
Öskjuhlíðarskólinn í Reykjavík
Lóðarlögun
Tilboð óskast í lóðarlögun við Öskjuhlíðarskóla.
Um er að ræða jarðvegsskipti, frárennslislagnir, snjóbræðslulagn-
ir, kantstein og hellulögn. Auk þess á að setja upp girðingar, hlaða
vegg og gróðursetja plöntur.
Verktimi er til 30. júlí 1990 en gróðursetningu plantna skal vera
lokið 20. júní 1 991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík, frá þriðjudegi 15. maí til og með
þriðjudags 22. maí.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 25. maí 1990 kl.
11.30.
IIMIMKAUPASTOFIMUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
HEILSUNNAR VEGNA - GÓÐIR VALK0STIR
Vinsæla C-vítam-
ínið sem allir tala
um. Kröftugt C-
vítamín með kal-
cíum. Ester C-víta-
mín daglega bætir
heilsuna.
Dreifing:
Bio-Selen umboðið
sími 76610
Hár-Pantote'n
ersérstaklega
heilsusamlegt
fyrir: hárið, húð-
ina og neglurn-
ar. Góð vítamín-
og steinefna-
blanda.
Allir þekkja þýska I Ija Rogoff
gæðahvítlaukinn. Alveg lykt-
arlaus. Unninn viö frysti-
þurrkun, með nýrri tækni, og
viðheldur þannig ALLICIN-
INU og öðrum sulfur efnas-
amböndum. Inniheldur440
MCG af ALLICINI íhverjum
100g. Inniheldur einnig
GERMANÍUM.
Fást í heilsubúðum og mörgum apótekum
og mörkuðum.
ÁfSK
byggð á bergi
í kjallara Nausts
Opið öll kvöld
&
Sælustundir
milli kl. 18 og 20 alla daga
Allarveitingar með 100 kr. afslætti.