Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1990, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1990, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1990. 39 Ólafur Arason: Öllu fómað fyrir eitt flygilhom Ólafur Arason býr á Egilsstöðum og er innheimtustjóri hjá Kaupfélagi Héraðsbúa. Hann er einn þeirra sem er heltekinn af ferðalöngun og ævin- týraþrá. - Hvenær fórst þú fyrst í utanlands- ferð? „Ég fór fyrst þegar ég var lítill polli með fjölskyldu minni til Danmerkur. En áhuginn á ferðalögum vaknaði fyrst þegar ég fór með skólafélögum mínum úr Samvinnuskólanum til Hawaii 1982. Það var mikið ævintýri. Fyrir það fyrsta var þetta svo löng leið og eins og að koma í annan heim og í annan stað þá eyddi ég öllum gialdeyrinum í hljóðfærakaup við komuna til Hawaii. Ég var því alveg peningalaus það sem eftir var ferðar, átti varla fyrir mat en lifði á lánum hjá ferðafélögunum. Þetta er gott dæmi um það hvað græningjar á ferðalögum geta gert mikla skyssu. Til að kóróna allt var hljóðfærið tek- ið af mér í tollinum heima uns ég hafði borgað 100% toll. Viku síðar var aflétt tolli á hljóðfærum." (Þess má geta hér innan sviga að Ólafur spilaði lengi með lúðrasveit á Egilsstöðum og hljóðfærið sem hann keypti var flygilhorn. Það fór þó svo að hann spilaði aldrei á það hljóð- færi.) - Og samt hefurðu haldið áfram að svala ferðalönguninni? „Já, upp frá þessu hef ég farið út á hverju ári nema eitt sumar en ég er búinn að bæta það upp með því að fara tvisvar á ári síðan 1987.“ - Og hvert hefur leiðin legið? „Ég reyni að fara eins víða og ég get. Ég hef farið um Evrópu þvera og endilanga, m.a. tvisvar austur fyr- ir járntjaldið sáluga. Tvívegis hef ég farið til Bandaríkjanna. Það er stór- kostlegt land fyrir ferðamanninn og býður upp á fjölbreytilega mögu- leika.“ - Feröu með skipulögðum hópferð- um? „Yfirleitt geri ég það ekki, heldur fer á eigin vegum. Ég reyni að lesa mér til og skipuleggja ferðina í sam- ræmi við þær hugmyndir sem þann- ig verða til og spinn síðan út frá því þegar ferðin er hafin. Fyrir vikið missir maður eflaust af áhugaverð- um hlutum sem fararstjóri í hópferð kann öll skil á.“ - Og hvað hefuröu reynt áhugaverö- ast? „Það held ég að hafi verið að koma til Moskvu 1985. Þar datt ég hreint inn í ævintýraheim. Fyrst og fremst var ótrúlegt að sjá það harðræði sem fólkið býr við. Óg það var einkenn- ilegt að kynnast því hvað ferðafrelsi almenns ferðamanns var heft. Það var eins og að ganga á vegg. Okkur var t.d. ekki leyft að fara út úr borg- inni og maður fann greinilega hvað allt var undir ströngu eftirliti. Ég ætlaði til Svartahafsins meö íleira fólki. Sú ferð var skipulögð af þar- lendum. En svo var okkur sagt að engin hótelherbergi væru laus og síö- an var ferðinni aílýst vegna ónógrar þátttöku. Þegar við vildum fara á eig- in vegum var það bannað." - Áttu þér draumaferð? „Já, það er að komast til Ástralíu. Þar á ég frændfólk og vini. Þaö stóð til að fara i vor en þetta er svo dýrt að ég verð að fresta því um sinn. Kannski heillar Ástralía mig af því að hún er svo langt i burtu. Við göngum nú sum með þá hugmynd að því lengra sem farið sé því betri LífsstQI „Áhuginn á ferðalögum vaknaði fyrst þegar ég fór með skóiafélögum minum úr Samvinnuskólanum til Hawaii 1982. Það var mikið ævin- týri, segir Ólafur Arason. verði ferðin. Þetta er auðvitað ekki rétt. Okkur sést oft yfir þá möguleika sem næstu lönd bjóða upp á, svo ekki s'é nú talað um okkar eigið land. En svo langar mig líka til Austur- landa fjær til að komast í tæri viö menningu og sögu gerólíka því sem er á Vesturlöndum.“ -SB Lára Ólafsdóttir Kjerúlf: Það jafnast ekkert á við Júgóslavíu Lára Ólafsdóttir Kjerúlf er fædd og uppalin á Hvammstanga á þeim tím- um sem ferð til Reykjavíkur var mik- ið fyrirtæki og ekki farin nema af brýnni nauðsyn. Það tók tvo daga ef farið var landleiðina, fyrst á hesti suður í Borgarfjörð, á bíl í Borgarnes og þaðan með skipi til borgarinnar. Síðan gerðist Lára húsfreyja í sveit á Héraði og bjó þar til ársins 1971. Á þeim árum var utanlandsför svo fá- ránleg hugsun að hún lét sig ekki einu sinni dreyma um shkt. - En hvenær fórstu fyrst utan? „Það var 1978. Það ár gekkst Kven- félagasamband Austurlands fyrir fwð aldraðra til Kanaríeyja. Þegar nalgaðist brottför kom í ljós að ég þekkti engan af tilvonandi ferðafé- lögum. En ég hugsaði með mér aö þetta væri eflaust allt besta fólk og það reyndist líka svo. í þessari ferð eignaðist ég vinkonu sem hefur farið út með mér oft síðan. Og það er ekki að orðlengja það að ég var svo ánægð með ferðina að börnin mín ákváðu að gefa mér ferð til Mallorca árið eftir þegar ég varð sjötug.“ - Og hefurðu farið oft síðan? „Já, já, á hveiju einasta ári hef ég farið eitthvað út.“ - Og hvert hefur leiðin legið? „Ég hef til dæmis farið til Skot- lands, tvisvar til Noregs, þrisvar til Júgóslavíu og oft il Mallorca. Og það er alltaf jafngaman. Þetta hristir upp í hversdagsleikanum.“ - Hvað finnst þér svona skemmti- legt? „Þetta er svo mikil tilbreyting og hvíld. Maður verður allur endur- nærður á sál og líkama. Rútuferðirn- ar eru þó varla hvíldarferðir, en þannig ferðast ég um Skotland og Noreg, en þær eru mjög skemmtileg- ar. Og svo er góða veðrið og hitinn sem bræðir úr manni gigtina, að ógleymdu blómskrúðinu sem mætir alls staðar augum. í Skotlandi gistum við mest í tjöldum. Þá var ég líka svo ung, ekki nema sjötíu og eins.“ - Hvað heldurðu að hafi verið besta ferðin? „Það jafnast náttúriega ekkert á við Júgóslavíu. Þar er svo fallegt og blómahafið ólýsanlegt enda var ég þarna að vori til þegar rósirnar stóðu í blóma. Annars var hver ferðin ann- arri betri.“ - Hvernig ferðu að því að fjármagna utanlandsför á hverju ári? „Það skal ég segja þér. Ég legg til hliðar upphæð sem svarar því að ég reykti einn pakka á dag. Það nægir venjulega fyrir ferðakostnaði. Svo verða alltaf einhver ráð með gjald- eyri. Hann dettur bara niður úr skýj- unum ef ekki vill betur til.“ - Manstu eftir einhveiju skemmti- legu frá þessum ferðum? „Já, heilmörgu. Ég.man til dæmis að þegar við ætluðum að skoða her- togahöllina í Feneyjum gat ekki orðið af því vegna þess að þar stóð þá yfir hundasýning og urðum við frá að hverfa." - Er eitthvaö sem þér finnst að megi betur fara í þessum ferðum á vegum ferðaskrifstofanna? „Ég hef oftast farið í skipulögðum ferðum fyrir eldri borgara og þar hefur yfirleitt ekkert farið úrskeiðis. Við höfum haft frábæra farastjóra og það hefur veriö dekraö við okkur allan hátt.“ - En áttu þér draumaferð? „Já, mig langar að fara enn einu sinni til Júgóslavíu. Maður hvílist best á því að fara þangað sem maður er kunnugur. Svo hefur mig líka allt- gíífííMMö) JARÐVEGSÞJÖPPUR TIL Á LAGER „Það eru fastir liðir eins og venju- lega. Ég fer til Mallorca nú um miðj- an maí og verð i hálfan mánuð,“ segir Lára Ólafsdóttir Kjerúlf. af langað að koma til Rómar.“ - Ætlarðu að fara eitthvað í sumar? „Það eru fastir liðir eins og venju- lega. Ég fer til Mallorca nú um miðj- an maí og verð í hálfan mánuð." -SB Á GÓÐU VERÐI ■G Æ3Í Bh Skútuvogi 12 A, s. 91-82530 FUNDIR MEÐ FJÁRMÁLARÁÐHERRA UM LANDIÐ ..........^nlP.llFSKJÓR-RlKgARMAL ÁRANGURINN framtiðin efnSagsbatinn OG NY nAÐHORF ÍÍSIENSKUMPJÓÐMALUM Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráöherra heldur fund um árangurinn sem náðst hefur í efnahagsmálum og um ný viðhorf í íslenskum þjóðmálum. Fjallað verður um framtíðarhorfur í fjármálum, atvinnulífiog lífskjörum. Fyrirspurnum svarað um nútíð og framtíð. VESTMANNAEYJAR LÁUGARDAGINN12. MAÍ KL. 14:00 í MUNIN, HÓTEL ÞÓRSHAMRI NESKAUPSTAÐUR ÞRIÐJUDAGINN15. MAl KL. 20:30 IEGILSBÚÐ HUSAVIK SUNNUDAGINN13. MAfKL. 15:00 ÍHÓTELHÚSÁVÍK HÖFN MIÐVIKUDAGINN16. MAÍ KL. 20:30 ÍHÓTELHÖFN EGILSSTAÐIR MÁNUDAGINN14. MAÍKL. 20:30 í HÓTELVALASKJÁLF SELFOSS FIMMTUDAGINN17. MAÍ KL. 20:30 (HÓTELSELFOSSI Allir velkomnir FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.