Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1990, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1990, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1990. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÚLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91J27022 - FAX: (91 >27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð I lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Arafat viðurkenndur í dag Heimsókn Steingríms Hermannssonar forsætisráð- herra til Jasser Arafat, forsætisráðherra útlagastjórnar Palestínumanna í Túnis, bætir fyrir hvimleiða fram- göngu Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra í garð hinnar ofsóttu þjóðar Arafats í landinu helga. Heimsókn Steingríms til Arafats bætir líka fyrir hvimleiða heimsókn Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, til hryðjuverkaliðs, sem ræður ríkjum í ísrael. íslenzkir stjórnmálamenn eiga ekkert erindi í opinberar heimsóknir til hryðjuverkaríkja. Enginn vafi leikur á, að Jasser Arafat er réttur full- trúi Palestínumanna og mundi verða staðfestur sem slíkur, ef Palestínumenn fengju að kjósa sér foringja. Eina andstaðan við hann er frá hópum róttækari Palest- ínumanna og hópum islamskra trúarofstækismanna. Ef við lítum á ísrael og Palestínu mörg ár aftur í tím- ann, er ekki hægt að sjá, að Jasser Arafat og stuðnings- menn hans hafi staðið fyrir neinum hryðjuverkum. Hins vegar hafa stjórnvöld í ísrael á þessum tíma staðið fyrir óhugnanlegum hryðjuverkum í Palestínu. Þetta hefur allt saman komið fram í fréttum og er stutt rannsóknum alþjóðasamtaka á borð við Amnesty, sem hafa harðlega gagnrýnt framgöngu ísraelsmanna í Palestínu, sem minnir mjög á framgöngu Gestapó í her- numdum löndum síðari heimsstyrjaldarinnar. í rauninni er undarlegt, að lýðræðisríki á borð við ísland skuli halda uppi stjórnmálasambandi við glæpa- ríki, en neita að taka upp stjórnmálasamband við útlaga- stjórn þjóðar, sem glæparíkið ofsækir. Stefna utanríkis- ráðherra okkar er hreint og beint ósiðleg. Það er líka kynlegt, að utanríkisráðherra okkar skuli hvað eftir annað stilla íslandi upp með ísrael og Banda- ríkjunum í einangruðum hópi ríkja, er greiðir atkvæði á alþjóðlegum vettvangi, svo sem hjá Sameinuðu þjóð- unum, gegn réttlátu almenningsáliti á Vesturlöndum. Þáttur Bandaríkjanna er afar slæmur. Þaðan koma peningarnir, sem halda ísrael á floti. Og þaðan kemur stuðningurinn, sem gerir ísrael kleift að hafa stjórn- málasamband við umheiminn. Samt hafa Bandaríkin ekki nein minnstu áhrif á gerðir valdhafa ísraels. Samskipti ísraels og Bandaríkjanna eru á þann veg, að rófan dillar hundinum. Þessi andlega herleiðing Bandaríkjanna í þjónustu ísraels hefur verið þeim og Vesturlöndum dýr í margs konar alþjóðlegri skák. Hún hefur krumpað og skælt utanríkisstefnu Bandaríkjanna. íslendingar hafa löngum talið sig eiga eitthvað í ísra- el vegna aðstoðar okkar sendifulltrúa við að koma rík- inu á fót og vegna gagnkvæmra heimsókna forsætisráð- herra fyrr á árum. En þá var ísrael annað ríki með öðru almenningsáliti og öðrum leiðtogum en nú eru. ísrael hefur afmyndazt eins og Hitlers-Þýzkaland á sínum tíma. Þjóðin hefur endurkosið hryðjuverkamenn- ina, sem eru við völd. Krataflokkurinn, sem áður var manneskjulegur, dregur vaxandi dám af hryðjuverka- bandalagi Likud. Og Herzog forseti náðar morðingjana. ísrael er ekki eina ríki heimsins, sem brýtur mann- réttindi. En það er í hópi hinna verstu. Það er til dæm- is mun illskeyttara en Sovétríkin og fólskulegra en mörg Arabaríki, svo sem hið siðmenntaða Egyptaland, sem Steingrímur Hermannsson var að sækja heim. í þessari stöðu er til bóta, að forsætisráðherra okkar skuh fara til Egyptalands og taka í dag á sig krók til að viðurkenna Arafat óformlega sem leiðtoga Palestínu. Jónas Kristjánsson Ólgan í hemum er eitt viðfangsefna sovéska forsetans Fööurlandsstríðið mikla er opin- ber nafngift Sovétmanna á viður- eigninni við heri Hitlers-Þýska- lands. Sigursins í þeim hildarleik hefur veriö minnst á 45 ára afmæli með miklum hersýningum víða um Sovétríkin, hinum fyrstu af þeim stærðar- og kostnaðarílokki í fimm ár. Eins og vænta mátti kom í ljós við hátíðahöldin að ólgan sem ríkir í soyésku þjóðlífi nær einnig til herfnanna, núverandi og fyrrver- andi. Reynt var að nota fund upp- gjafarhermanna til atlögu gegn frjálsræðinu sem fylgir umbóta- stefnu Mikhails Gorbatsjofs og samherja hans. Sovéski forsetinn svaraði svo fyrir sig fullum hálsi á hátíðafundi með fulltrúum allra greina heraflans í Kreml. En áður en vikið er að því orða- skaki og því sem undir býr er ekki úr vegi að rekja hvað komið hefur fram á síðustu misserum varðandi ástandið innan Sovéthersins og stöðu hans í samfélaginu. Þar hafa mál skipast svo að herinn á við að fást innri kreppu og utanaðkom- andi niðurskurð. Forustuliðið greinir á í grund- vallaratriðum um uppbyggingu heraflans og hlutverk hans. Skipt- ingin fer að verulegu leyti eftir kynslóðum. Eldri foringjar í æðstu stöðum vilja halda sem mest í nú- verandi kerfi, ijölmennisher byggðan á almennri herskyldu. Yngri foringjarnir segja slíkt fá- sinnu á tímum tæknivædds hern- aðar. Atvinnuher, fámennur miðað við það sem tíðkast hefur í Sovét- ríkjunum en háþjálfaður í flóknum störfum, sé það sem koma skal og eina fyrirkomulagið sem ekki íþyngi hagkerfmu úr hófl fram. Þar að auki eru yngri foringjamir ger- samlega mótfallnir því fyrirkomu- lagi að hafa herinn öðrum þræði fyrir pólitíska uppeldisstofnun í þágu Kommúnistaflokks Sovétríkj- anna. Yngri foringjar hafa stofnað eigin hagsmunafélag, illa séð af mörgum yfirforingjum, til að halda fram sínum sjónarmiðum og koma kvörtunum á framfæri. Einkum brennur illur aöbúnaður á ungúm heimilisfeðrum. Fjölskyldum, sem flytjast heim við fækkun í sovésku herjunum í Austur-Evrópu, er ein- att vísað í tjaldbúðir til búsetu eftir heimkomuna. Af sömu ástæðum færist í vöxt að ungir foringjar leiti lausnar úr hernum. Meðal óbreyttra hermanna færist liðhlaup verulega í vöxt og ungir menn reyna í auknum mæli að víkja sér undan herþjónustu. Þar á mikla sök illt viðmót við nýliða, sem bitnar einkum á ungum mönn- um frá lýðveldum þar sem sjálf- stæðiskröfur eru uppi, svo sem í Eystrasalts- og Kákasuslöndum. Eru þess fjölmörg dæmi aö þeim hafi verið misþyrmt til óbóta og jafnvel bana að undirlagi Stór- Rússa í yfirboðarastöðum. Áliti almennings á hemum hefur hrakað stórlega. Yfirstjóm hverrar hergreinar hefur orðið sér til Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson skammar með sínum hætti á síð- ustu árum. Landherinn lét teyma menn sína til slátrunar í Afghanist- an án þess aö gera minnstu tilraun til að læra af ófórum Bandaríkja- hers í Víetnam. Flugherinn skaut niður kóreska farþegaflugvél yfir Japanshafi og vissi ekki af fyrr en vestur-þýskt ungmenni hafði lent flugvél sinni á Rauða torginu. Flotastjórnin kemur afleitlega út úr rannsóknum á orsökum þess að sovéskir kjarnorkukafbátar hafa verið að farast eða bíða stóráfóll á hafi úti. Breytingin hefur orðið sérstak- lega snögg á síðustu misserum. í fyrra voru 59 liðsforingjar myrtir á almannafæri en ekki nema tveir árið áður. Borgaraleg yfirvöld hafa reynst treg í taumi við að hafa uppi á sökudólgum í hermannamorðum, beinlínis vegna óvinsælda hersins. Gamlir jálkar, orðnir að eintrján- ingum af langri undirgefni undir flokksaga og heraga jöfnum hönd- um, kenna auðvitað fyrst og fremst nýbreytni og nýjabrumi um það ástand sem slíkir atburðir votta. Því gekk maður undir manns hönd á fundi uppgjafarhermanna skömmu fyrir sigurdaginn við að úthúða „stjórnleysistilhneiging- um“ og að krefiast þess að „andsós- íalistar" séu umsvifalaust „teknir föstum tökum“. Arbatof, einn af ráðunautum Sovétforustunnar í alþjóðamálum, sem sat upphaf fundarins, sagði í viðtali við breska útvarpið BBC að þangað heföu menn bersýnilega komið meö ræð- ur samdar í stjórnmáladeild hers- ins. Sú stofnun Kommúnistaflokks Sovétríkjanna er ábyggilega ein- hver sú trénaðasta og á á hættu að hverfa úr sögunni við endurskipu- lagningu sovésks vopnavalds. Þarna komu fram sömu viðvaranir og kröfur og Égor Ligatsjof, foringi íhaldsaflanna í flokksforustunni, setti fram á miðstjórnarfundi fyrir skömmu. Gorbatsjof gerði að meginefni ræöu sinnar á fundi marskálka og stríðshetja, að perestrojka, end- umýjunin, yrði að ná til sovéska heraflans og þar væri mikið verk að vinna. Lét hann í ljós óánægju með hve hægt það gengi. En að auki svaraði hann berum orðum kröfunum frá fundi upp- gjafahermanna um valdbeitingu gegn gagnrýnisröddum. „Framtíð lands okkar hlýtur óhjákvæmilega að byggjast á lýðræði og sigri laga og réttar en ekki á því að snúið sé aftur til fortíðarinnar,“ sagði sov- éski forsetinn. Og til að minna menn á hvað for- tíðin fól í sér fyrir Rauða herinn, sem þá hét, og Sovétríkin öll rifiaði Gorbatsjof upp þegar Stalín lét drepa svo til afla herforustuna, treysti Adolf Hitler einum manna og neitaði að taka til greina nokkra af mörgum viðvörunum, sumum með tímasetningu, við þýsku árás- inni. Ógnarstjórn Stalíns og glópska voru meginástæðan fyrir því hve halloka Sovétmenn fóru í upphafi styrjaldarinnar. Fram á þetta vill nú sovéskur forseti sýna herforustunni. Fyrir liggur að fiárframlög til landvarna og mannafli Sovéthers- ins sæta verulegum niðurskurði sem þegar er tekið að framkvæma. í ræðu sinni við hersýninguna á Rauða torginu á miðvikudag boð- aði Dmitri Jasof landvarnaráð- herra „róttæka ummyndun" her- aflans og kvað sameiginlegt mark- mið ríkisstjórnar og herstjórnar vera „hámarks landvarnir með lágmarks tilkostnaði.“ Margt verður álitamálið við framkvæmd þess kjörorðs. Sem stendur er greinilegt að sovéska herstjórnin vill í auknum mæli hafa hönd í bagga við mótun stefn- unnar í sambandi við sameiningu þýsku ríkjanna og afstöðuna til sjálfstæðisbaráttu í Eystrasalts- ríkjunum. Sameinað Þýskaland í óbreyttu NATÓ er ekki á óskaflsta Sovétmanna og er taliö samband þar á milli og að afturkipps hefur þótt gæta af þeirra hálfu nýverið í viðræðum um takmörkun herafla og vopnabúnaðar í Evrópu annars vegar og gereyðingarvopna risa- veldanna hins vegar. Ekki er mörg- um Rússanum síður mótdrægt að ónýta úrslit orrustunnar við Poltava 1709 þegar Pétur mikli Rússakeisari sigraði Karl XII Svía- konung og tryggði Rússaveldi yfir- burðastöðu við Eystrasalt með her- töku strandlengju þess að austan. Magnús Torfi Ólafsson Frá hátíðahöldum á sigurdaginn. Til hægri veifar Mikail Gorbatsjof Sovétforseti til mannfjölda á Rauða torginu í Moskvu. Til vinstri fylgist nýkjörinn forsætisráðherra Lettlands, Ivars Godmanis (sá með skeggið), með hersýningunni i Riga. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.