Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1990, Page 20
20
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1990.
Helgarpopp
Það hefur verið í mörg horn að líta
hjá Megasi að undanfornu. Dag-
skrárgerð fyrir útvarp hefur tekið
sinn tíma. Hann hefur verið með
plötu í smíðum, tvöfalda meira að
segja. Meðgangan að skáldsögu er
hafin og að undanfórnu hefur hann
unnið að bók um ellefu ár ævi
sinnar. Og nú, um það leyti sem
tvöfalda platan er að koma út, er
Megas þegar farinn að huga að
þeirri næstu.
Hættuleg hljóm-
sveit....
„Hvers vegna platan heitir
Hættuleg hljómsveit og glæpa-
kvendið Stella," segir Megas hugs-
andi, „... titillinn er í raun bara
nafnið á hijömsveitinni sem spilar
undir hjá mér. Og hún heitir eftir
hljómsveit sem spilaði í kjallar-
aholu í London á þriðja áratugnum,
„in the roaring twenties“. Það er
skýrt frá þessari hljómsveit í
fimmta hefti Basils fursta. Hún
tengdist alls kyns vondum kókaín-
málum, dreifingu og þess háttar.
Nú, með hættulegu hljómsveit-
inni minni er svo mikið af kven-
röddum að hún varð að fá viðauka.
Samanber BG og Ingibjörg. Niður-
staðan varö sem sagt Hættuleg
hljómsveit og glæpakvendið Stella.
Þetta nafn tæki sig til að mynda
vel út í auglýsingum: Hættuleg
hijómsveit og glæpakvendið Stella
sjá um fjörið.“
Að sögn Megasar voru öll lög
plötunnar nýleg, samin síðastliðið
sumar. Þá uröu velflestir textarnir
einnig til. Megas segist ganga rösk-
Megas á sviði. Hlustendahópurinn spannar allt frá kornabörnum til þeirra sem eru á leið út úr tilverunni.
DV-mynd Haraldur Óskar
„Ég hreinlega nenni ekki að fara
enn eina hringferðina," segir Me-
ags. „Ef einhver vill fá mig er ég
til. En ég er búinn að þræða alla
staðina svo oft að ég held að réttast
sé að láta það ógert nú.
Já, það er skemmtilegt að standa
í þessu. Vera eigin herra að mestu
leyti," heldur Megas áfram. Hann
er samt ekkert viss um að hann
kynnist kaupendum sínum betur
með áskriftarsölunni en ef nýja
platan hefði verið seld á hefð-
bundinn hátt í verslunum. Hverjir
kaupa Megas?
Hann giottir.
„Þeir sem keyptu mig fyrir átján
árum og eru enn á lífi! Nei, ég held
að hlustendahópurinn minn
spanni allt frá kornabörnum og til
þeirra sem eru á leið út úr tilve-
runni. Þetta sé svona sitt lítið af
hveiju."
Hljómleikar Megasar þóttu stór-
viðburður í dægurtónlistarlífinu í
gamla daga. Enn minnast margir
með ánægjuhrolli skemmtilegra
stunda í Félagsstofnun stúdenta.
Megas kemur enn við hjá háskóla-
stúdentum.
„Gamli salurinn heyrir reyndar
sögunni til. Hann var tekinn undir
bóksöluna. En ég er nýbúinn að
spila í Stúdentakjallaranum. Var
þar reyndar einnig með hljómleika
fyrir jól. Þaö gekk ágætlega og
minnti nett á gamla tíma. Það var
sami blær yfir þessum tónleikum
og áður. Ég kem einnig fram í fram-
haldsskólunum ennþá. Reyndar er
áramunur á því hvort ég er beðinn
um að efna til hljómleika í hinum
eða þessum skólanum. Fer eftir því
hvort fólkið sem stýrir tónlistarfé-
laginu hefur gaman af mér eða
Hættuleg hljómsveit
Og
glæpakvendið Stella
sjá iim fjörið
lega til verka þegar hann hefur af-
ráðið að gera plötu um eitthvert
ákveöið efni.
„Reyndar hef ég þann háttinn á
að ef mér dettur efni í texta í hug,
titill eða bara hugmyndarbrot sem
ekki á heima í sérstökum texta
skrái ég það hjá mér í kompu,“
segir Megas. „Síðan þegar ég afræð
að vinna fyrir plötu eða bara ganga
í skrokk á einhverju verkefni tek
ég til í kompunum. Þá vakna ég
snemma á morgnana, byria gjarn-
an á sundinu, og vinn síðan hratt
og vel fram eftir degi. Stundum
kemur fyrir aö ég tek til í hug-
myndahirslunum án þess að vita
beinlínis hvað ég á að gera við út-
komuna, það er nýju lögin og text-
ana. Þá nýtist þetta efni mér á
hljómleikum."
Ekkert skorið niður
Platan Hættuieg hljómsveit og
glæpakvendið Stella er tvöfóld. Og
að sögn Megasar er hún í rauninni
aðeins leið að þeirri sem hann á
ennþá einungis á hugmyndasvið-
inu.
„Platan varð eiginlega svona stór
fyrir slysni,“ segir hann. „Viö tók-
um upp grunnana að öllum þeim
lögum sem okkur þótti við þurfa
að hafa með. Síðan ætlaði ég að
sleppa sumu á plötunni en vera
meö það sem aukaefni á geisladisk-
inum. En svo fórum við að leggja
saman lengd allra laganna og kom-
umst þá að raun um að við vorum
ekki aðeins með of mörg lög fyrir
eina plötu. Þau komust heldur ekki
fyrir á einum diski!
Þá var sest niöur og reynt að
stytta verkið. Sannleikurinn er sá
að það er ærið verkefni fyrir Hjört,
Hilmar og mig að gefa út einfalda
plötu. En við urðum að gefast upp.
Það liggja ákveðnir þræðir gegnum
allt verkið og við vorum á endanum
sammála um að við skærum á
heildarmyndina ef við færum aö
sleppa einhverju."
Platan Hættuleg hljómsveit og
glæpakvendið Stella myndar sem
sagt eina heild en um hvað eru
Megas og félagar að fjalla í þessu
verki?
„Ég er eiginlega að kíkja til baka.
Til áranna upp úr stríði þegar ég
var lítill krakki í Reykjavík; 1945
til '55. Þó er ekki öll sagan sögð
með þessu þvi að í leiöinni er ég
eiginlega að hnita hringi með aðra
löppina í nútímanum og stíg hinni
niöur í fortíðina. Á næstu plötu
verð ég kirfilega í gamla tímanum."
Gamli tíminn er Megasi bersýni-
lega hugstæður. Skemmst er að
minnast plötunnar Loftmyndar þar
sem brá fyrir nokkrum smámynd-
um frá Reykjavík bernsku hans.
„Já, það er rétt.“ Megas hrukkar
ennið hugsi. „Loftmynd var raunar
í því samhengi almenn afmælis-
plata um Reykjavík og ég var ekki
nema að hluta til persóna á henni.
Áhuginn eða löngunin til að fjalla
um þennan tíma kviknaöi kannski
með Loftmyndarplötunni. Alltént
langar mig til að reisa ákveðnum
hlutum minnismerki. Ekkert sem
kemur fyrir mann er einangrað
fyrirbæri. Það sem ég hef upplifaö
Umsjón:
Ásgeir Tómasson
hefur einhver annar upphfað líka
og hann hefur ef til vih gaman af
uppriíjun sem þessari. Nei, hér er
ekki um neitt uppgjör viö gamla
tíma að ræða. Ég er bara aö nota
efni sem mér finnst skemmtilegast
að vinna með um þessar mundir.
Svo getur vel verið að ég snúi mér
að einhverju öðru næst.“
Stríðsástand
Megas tók fyrir nokkru ákvörðun
um að gefa næstu plötu sína út
sjálfur. Hann er óánægöur með það
ástand sem ríkir á hljómplötu-
markaönum. Hann kaus því að
safna áskrifendum að plötunni
Hættuleg hljómsveit og glæpa-
kvendið Stella og selja hana í 2.999
eintökum. Platan kemur ekki til
með aö fást í hljómplötuverslun-
um.
„Allir úr tónhstarbransanum
sem ég hef rætt við eru ánægðir
með þetta andóf við ríkjandi stríðs-
ástand í plötuútgáfunni," segir
hann. „Þetta er þannig að tveir
sterkir pólar bítast um markaðinn,
vilja hvor annan út og alla aðra í
leiðinni.
Þetta var ekki svona hér í gamla
daga. En þegar ég kom aftur til
leiks 1988 fann ég strax fyrir þess-
ari breytingu. Annars nenni ég
ekki að tjá mig um þetta leiðinda-
mál. Ég ákvð bara aö taka útgáfuna
í mínar eigin hendur og ég held að
það endi með því að flestir gefist
upp eins og ég.“
Megas segir það hafa gengið
bærilega að safna áskrifendum
hingað til.
„Auðvitað yrði það þægilegast og
best fyrir mig að platan seldist sem
hraðast. Ég verð sjálfsagt með upp-
lagiö inni á gólfi hjá mér til að byrja
með að minnsta kosti. Nú þó svo
að allt fari vel og upplagiö hreinsist
upp er ég ekki viss um að þannig
muni ég standa að útgáfu næstu
plötu minnar. Það verður tíminn
bara að leiða í ljós.
Ég vil reyndar taka fram að ég
er ekki að vinna neitt brautryðj-
andastarf með þessu fyrirkomu-
lagi„ heldur Megas áfram. „Lýöur
Ægisson seldi sína plötu að miklu
leyti í gegnum síma og gekk bara
vel, skilst mér. Svo er rétt að rifja
upp að þegar fyrsta platan mín kom
út árið 1972 vann ég að miklu leyti
einn aö útgáfunni. Hún var aö vísu
félagsleg í byrjun en svo tók ég plöt-
una í mínar hendur og safnaði
meðal annars áskrifendum. Það
má því segja aö núna, átján árum
síðar, sé ég með svipuð vinnubrögð
og í upphafi við útgáfuna.
Viðskiptavinirnir
Það eru útgáfutónleikar á döf-
inni. Ekki er búið að tímasetja þá
né velja þeim stað. En nú á ekki
að fara hringferð um landið og spha
á hverjum smástað.
ekki. í heildina tekið get ég ekki
annað sagt en áhuginn á tónlist
minni sé jafnmikih og hér áður
fyrr.“
P
Héraðslýsing
Megas þarf ekki að kvíða að-
gerðaleysi næstu mánuðina. Dag-
skrárgerðin fyrir Ríkisútvarpið er
reyndar búin í bili. Frá því um
verslunarmannahelgi og fram á
vor fór Megas yfir feril ekki ómerk-
ari manna en Bobs Dylan, Woodies
Guthries, Hanks Williams eldri,
Elvis Presley, Donovans og hljóm-
sveitarinnar Kinks. Hann er búinn
að leggja drög að skáldsögu og
punkta hana niður í höfuödráttum.
Ritun hennarr hefst væntanlega í
haust. Næsta plata á eftir Hættu-
legri hljómsveit og glæpakvendinu
Stellu er einnig ofarlega í huga
listamannsins og þá má ekki
gleyma verki sem hann er að fást
við með Þórunni Valdimarsdóttir
sagnfræðingi.
„Við erum að vinna saman að bók
um fyrstu ellefu ár ævi minnar,"
segir hann. „Við erum að fialla um
árin 1945 til 1956. Þetta er ekki
ævisaga, langt því frá. Miklu held-
ur héraðslýsing með augum mín-
um. Þetta er athyglisvert verk. Þó-
runn er snillingur." Orðið snilling-
ur hefur reyndar einnig verið not-
aö til að lýsa Megasi svo og mörg
fleiri. Nú bíðum við Hættulegrar
hljómsveitar og glæpakvendisins
Stellu.
ÁT