Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1990, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1990, Blaðsíða 44
FR ÉTTAS l< OTIÐ Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1990. r Fundu morð- vopnið i höf ninni Aö sögn Helga Daníelssonar, yfir- lögregluþjóns hjá RLR, er talið full- : víst aö benínafgreiðslumanninum við Stóragerði hafi verið banað með melspíru úr málmi - verkfæri sem sjómenn nota til að splæsa víra. Kaf- ari fann morðvopniö í sjónum, á milli Verbúðarbryggju og Grófarbryggju í Reykjavíkurhöfn síöastliðinn þriðju- dag. Þessar upplýsingar komu fram á blaðamannafundi hjá RLR í gær. Að sögn Helga Danielssonar fóru þeir Guömundur Helgi Svavarsson, 28 ára, og Snorri Snorrason, 34 ára, með vopnið með sér í strætisvagni frá Hlemmi morguninn sem morðið var framið. Þeir fóru úr á Grensás- vegi og héldu síðan að bensínstöð- inni. Þeir komu þangað um svipað leyti og stöövarstjórinn mætti í 9k» vinnu. Að sögn Helga liggur ekki ljóst fyr- ir hvað gerðist síðan. Þó er vitað að Snorri fór í peningagaskáp stöðvar- innar, að loknu ódæðisverkinu, og tók úr honum tæplega þrjú hundruð þúsund krónur auk fjölda ávísana. Snorri og Guðmundur Helgi óku síö- an sem leið lá niður að Smiðjustíg þar sem sá síðarnefndi fór út viö heimili sitt meö peningana. Snorri hélt áfram niður að bílastæði við Vesturgötu, skOdi ávísanirnar eftir og kastaði síðan morðvopninu í sjó- ■^inn. Blóðugum fötum var síðan hent en þau hafa ekki fundist, aö sögn Helga. Önnur blóðug gögn hafa þó fundist og verða þau send til rann- sóknar erlendis. -ÓTT Fjölmiðlabikar Ferðamálaráðs: Hjálmar fékk bikarinn Ferðamálaráð hefur ákveðið að veita Hjálmari R. Bárðarsyni fjöl- miðlabikarinn, sem er veittur fyrir umfjöllun um ferðamál í íjölmiðlum, ___fcfyrir árið 1989. v í tilkynningu frá Ferðamálaráöi segir að Hjálmar hafl verið ötull við störf sín og myndatökur, allt frá ár- inu 1953, um og af íslandi, íslenskri náttúru, sögu, menningu og sérkenn- um. Hjálmar hefur gefið út sex bæk- ur. -SMJ Útflutningsverðlaun Marel hf. fékk útflutningsverðlaun forseta íslands 1990. í greinargerð úthlutunarnefndar segir að Marel hf. hafi unnið mikil- vægt brautryðjendastarf í fram- leiðslu og sölu á hugbúnaði og tækj- um til að auka framleiðni og hag- kvæmni í fiskvinnslu á sjó og landi. -gse LOKI Nú sýnist manni fokið í flest skjól. Öll fangelsi á íslandi eru full í dag: Hegningarhúsinu var lokað í gær - ekki tekiö viö fleiri föngum vegna plássleysis „Ég veit ekki til þess að í neinu landi í heiminum sé ekki hægt að taka við afplánunarfóngum sem hafa hlotið refsidóm. Þessi atburð- ur staðfestir því að fangelsiskerfið á íslandi er sprungið. Ýfirvöld hafa látiö sér þessi mál í léttu rúmi Iiggja, menn hafa lofað og lofað, en ekkert hefur verið aðhafst,“ sagði Ólafur Jens Sigurðsson fangelsis- prestur í samtali við DV um þann atburð aö fangelsismálastjóri og forstöðumaöur Hegningarhússins sáu sig neydda til þess að loka Hegningarhúsinu í gær. Ekki verður tekið við fleiri föng- um þó svo að fjöldi fanga, sem bíð- ur eftir afplánun, hafi verið boðaö- ur. Fangelsiskerfíð á íslandi er því sprungið. 50-60 einstaklingar, sem hafa hlotið refsidóm, og hafa verið boðaðir, geta þvi ekki tekið út af- plánun á næstunni. I Hegningarhúsinu eru nú 19 fangar, þar af margir í tveggja manna klefum. Sex afþlánunar- fangar, sem eru vistaðir í Síðu- múla, bfða eftir að komast að í Hegningarhúsinu -~ þeir eru þvi látnir vera í einangrun. Engin að- staða er fyrir heimsóknir og geta fangarnir þvi ekki séð aðstandend- ur sína. Síðumúlafangelsið er því að hluta til notað sem afplánunar- fangelsi en þar er einungis gert ráð fyrir að menn séu i einangrun á meðan gæsluvarðhaldsvist stend- ur. Hegningarhúsið, Síðumúlafang- elsið, Litla-Hraun, Kviabryggja og fangelsin í Kópavogi og á Akureyrí eru öll fullsetin núna og fjöldi manna með refsidóm bíður eftir að komast í afplánun. „Mér finnst þetta slæmt vegna þeirra sem eru að undirbúa sig fyr- ir afplánun. Menn sem eru búnir að fá frí í vinnu, kveðja aðstand- endur og fá svo að vita við dyrnar að þaö sé ekkert pláss - þeir verði bara að bíða,“ sagði Björk Bjarka- dóttir yfirfangavörður í samtali við DV um lokunina. „Við getum ekki boðið föngum ■ upp á að hafast við og sofa á göngunum - hvorki þeim sem eru í Síðumúla né heldur þeim sem eru að koma í afplánun, þess vegna verður að loka fyrir fleiri. Það er svo yflrfullt að það þýðir ekkert að taka á móti fleirum. f desember sagði dómsmálaráð- herra í samtali við DV að leita þyrfti að húsi í stað Hegningar- hússins. „Ef við fáum ekki húsið á Vífilsstöðum þá er að leita ein- hverju öðru,“ sagði ráðherra. Björk sagði að það versta við bág- borið ástandið fangelsismála í dag væri að yfirvöld virtust ekki einu sinni vera að leita að húsnæði. -ÓTT Vor við smábátahöfnina í Hafnarfirði. Það eru fáar hafnir sem bjóða upp á eins mikla stemningu og Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Ungu veiðimennirnir setja svip á það skemmtilega líf sem skapast við aðstæður sem þessar. Eins og sjá má á veðurkortinu gefst flestum landsmönnum tækifæri til útiveru um helgina. DV-mynd BG Veðrið á sunnudag og mánudag Sumarblíða á höfuðborgar- svæðinu Á sunnudag og mánudag verð- ur austan- og norðaustanátt á landinu. Dálítil. súld við austur- ströndina, skýjað með köflum og sennilega þurrt á Noðurlandi er léttskýjað vestanlands. Hiti á bil- inu 4-11 stig, hlýjast suðvestan- lands. Hlutabréf í Sýn: Ekkert svar borist við bréfi Frjálsrar fjölmiðlunar hf. Hörður Einarsson, framkvæmda- stjóri Frjálsrar fjölmiðlunar hf., segir að ekkert svar hafi borist frá stjórn Sýnar við bréfi Frjálsrar íjölmiðlun- ar þar sem lýst var yfir áhuga á að ganga inn í kaup Stöðvar 2 á hluta- bréfum Sýnar og neyta þannig for- kaupsréttarins. „Hins vegar höfum við fengið fund- arboð um hluthafafund í Sýn 18. maí,“ segir Hörður. „Á dagskrá fund- arins eru meðal annars breytingar á samþykktum félagsins á þá leið að forkaupsréttur hluthafa verði felldur niður. Við teljum af og frá að slíkt standist vegna gerninga sem þegar er búið að gera. Þá teljum viö að það þurfi samþykki allra hluthafa en meirihlutinn dugar ekki til.“ Hörður segist tæplegast búast við svari frá stjórn Sýnar við bréfi Frjálsrar fjölmiðlunar í ljósi þeirra breytinga á samþykktum félagsins sem boðaðar eru í fundarboðinu um SAFARÍKAR GRILLSTEIKUR \liW larlinn TRYGCVAGÖTU SPRENGISANDI BILALEIGA v/FIugvallarveg 91-61-44-00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.