Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1990, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1990.
Fréttir
íslensk danspör í verðlaunasætum í stórri danskeppni í Englandi:
Áhorfendur fögnuðu
krökkunum óspart
Danspör frá Nýja dansskólanum
uröu í ööru og þriðja sæti í yfir eitt-
hundrað para danskeppni í Black-
pool í Englandi í fyrradag. Keppnin
heitir Berkshire Ballroom and Latin,
þar sem keppt var í standarddönsum
og suður-amerískum dönsum. ís-
lensku dasnspörin tóku þátt í báðum
danskeppnunum og öttu þar kappi
við yíir hundrað önnur pör. í stand-
arddönsum urðu Ingvar Þór Geirs-
son og Heiðrún Svanhvít Níelsdóttir
í öðru sæti en Haukur Ragnarsson
og Ester Inga Níelsdóttir í þriðja. í
suður-amerískum dönsum sneru
pörin röðinni við þar sem Haukur
og Ester urðu í öðru sæti en Ingvar
og Heiörún í þriðja.
„Þetta var gífurleg erfltt fyrir
krakkana og ég hef aldrei séð þau
eins sveitt og eftir þessa lotu. En við
höfðum áhorfendur með okkur. Þeir
fögnuðu krökkunum og hvöttu þá
óspart áfram. Okkur var gífurlega
vel tekið af öllum. Það var alveg frá-
bært,“ sagði Níels Einarsson, einn
af stjórnendum Nýja dansskólans í
Armúla, í samtali við DV í morgun.
Þessi efnilegu pör munu taka þátt
í erfiðri og Ijölmennri danskeppni í
Blackpool um næstu helgi, British
Open Competition. Þar verða um
fjögur hundruð pör frá öllum heims-
hornum auk þess sem þrjú íslensk
pör eru á leiðinni utan til þátttöku.
„Það verður miklu meiri harka í
þessari keppni um helgina heldur en
í fyrradag."
Þessi pör frá Nýja dansskólanum
urðu framarlega í íslandsmeistara-
keppninni í Hafnarfirði í apríl. Þar
sigruðu Ingvar og Heiðrún í suður-
amerískum dönsum og urðu í öðru
sæti í standarddönsum. Haukur og
Ester urðu þá í þriðja sæti í stand-
arddönsum og íjórða í suður-amer-
ískum.
Níels sagði að mikið væri um dans-
keppnir í Englandi og því fengur fyr-
ir krakkana að komast þangað. Hér
á landi væru kannski tvær dans-
keppnir á ári og því ekki eins mikil
keppnisreynsla sem þau öðluöust.
-hlh
Togaraaflinn á Akranesi:
Rúm 6600 tonn fyrstu
fjóra mánuði ársins
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Heildaraíli Skagatogaranna fimm
var 6003 lestir fyrstu fjóra mánuði
ársins. Brúttóverömæti aflans er 265
milljónir króna.
Sturlaugur H. Böðvarsson, sem er
í eigu HB & Co„ er aflahæstur Akra-
nestogaranna með 1864 tonn frá jan-
úarbyrjun til aprílloka en Haraldur
Böðvarsson, hinn togari HB & Co„
kemur næstur með 1430 tonn.
Höfðavík hafði í apríllok borið 1297
tonn að landi, Krossavík 1212 tonn
og Skipaskagi 800 tonn.
Þurfa að greiða Qallskil eftir fasteignamati:
Hef ekki átt kind
í 15 ár en verð
samt að borga
- segir RunólfUr Guðmundsson bóndi að Skáldabúðum
„Eg er kúabóndi og hef ekki átt
kind í 15 ár en samt viröist ég þurfa
að greiða fjallskil. Fyrir þremur
árum neitaði ég að borga á þeim
forsendum að ég hefði engan fram-
leiðslurétt en þá er málið bara
komið til lögfraeðings," sagði Run-
ólfur Guðmundsson, bóndi að
Skáldabúðum í Gnúpverjahreppi,
en hann hefur átt í stríði við
hreppsyfirvöld vegnafjallskila sem
hann neitar að borga.
Fjallskil eru reiknuð með tvenn-
um hætti: 1/3 er greiddur sam-
kvæmt fasteignamati en 2/3 sam-
kvæmt fjölda vetrarfóðraðs fjár.
Þessi fasteignaviðmiðum gerir það
að verkum að fjöldi aðila, sem kem-
ur ekkert nálægt sauðfjárbúskap,
þarf að greiöa kostnað vegna fjall-
skila.
Má þar nefna aðila eins og sumar-
bústaðaeigendur, loðdýrabændur,
svína- og kjúklingabændur, garð-
yrkjumenn og Skógræktina. Run-
ólfur sagði að þessi upphæð væri
vissulega ekki há, þetta væru um
tvö til þrjú þúsund krónur í hans
tilviki. Hann sagöi að þetta væri
því spurning um grundvallaratriði
þó hann gerði sér grein fyrir að
sauðfjárbændur réðu ekki við þetta
sjálfir.
Oþarfi að reka á fjall
Fjallskilagjald stendur undir
kostnaði við að smala afréttinn og
girða hann af. Runólfur sagöist
telja að þessi mál væru á villigötum
því sífellt minni ástæða væri til
þess að reka fé á fjall. Allir vissu
um ástand gróðurs þar en niðri í
sveitum væru víða stór landsvæði
sem lítíð sem ekkert væru nýtt og
færu á kaf í sinu. Þá benti hann á
ýmsar mótsagnir eins og þær að
eftir því sem sauöfjárbændur eiga
meíra land og hafa því meiri mögu-
leika á að hafa það heima, því
meira verða þeir að greiða í fjall-
skil.
Að sögn Steinþórs Ingvarssonar,
oddvita Gnúpveija og bónda í
Þrándarlundi, þá er Runólfur eini
maðurinn sem hefur gert athuga-
semd við þessa greiðslu. „Mönnum
hefur ekki þótt þetta ósanngjamt
en auðvitað má vera að það þurfi
að breytaþessu eitthvaö. Svona eru
hins vegar lögin í dag,“ sagði Stein-
þór en stuðst mun vera við reglu-
gerð frá 1975 í þessu tilviki.
Steinþór sagðist ekki vera sam-
mála hugmyndum um að hætta
upprekstri fjár á afrétti og sagði að
margir sauðfjárbændur teldu það
nauðsynlegt vegna þess aö féð yrði
vænnaþar. -SMJ
Ingvar Þór Geirsson og Heiðrún Svanhvít Níelsdóttir unnu til verðlauna,
ásamt Hauki Ragnarssyni og Ester Ingu Nielsdóttur, í stórri danskeppni í
Blackpool í fyrradag. DV-mynd GVA
Úrtökumót fyrir heimsbikarkeppnina:
Jóhann og Jón L.
tefla í Moskvu
- sterkasta skákmót sem ég
Tveir íslenskir stórmeistarar í
skák, Jón L. Árnason og Jóhann
Hjartarson, eru farnir til Moskvu til
að tefla í úrtökumóti fyrir heims-
bikarmótin. Á þessu úrtökumóti,
sem stendur í tvær vikur, tefla fimm-
tíu stórmeistarar víðs vegar að úr
heiminum.
„Þetta verður mjög sterkt og erfitt
mót, líklega það sterkasta sem ég hef
tekið þátt í,“ sagði Jón í samtali við
DV. „Við erum frekar neðarlega í
stigum en keppt er um tólf efstu sæt-
in sem gefa rétt til þátttöku í næstu
hrinu heimsbikarmótanna."
Jón vann sér þátttökurétt í úrtöku-
mótinu á Mallorca í desember síðast-
liönum en Jóhann af því að hann
keppti í síðustu heimsbikarkeppni.
Tefldar verða ellefu umferðir eftir
Monradkerfi. Ekki vita þeir félagar
við hverja þeir tefla því raðað verður
hef tekið þátt í, segir Jón L.
á borðin á staðnum. Fyrsta skákin
verður tefld á miðvikudag.
„Þama verður fjöldi sovéskra stór-
meistara og nokkrir frá Vesturlönd-
um. Reglurnar em þannig að fjöldi í
vinningssætum frá hverri þjóð er
takmarkaður við fjóra sem gefur
fleirum möguleika á þvi að vera í
einhverju af tólf efstu sætunum."
Engir skákmenn keppa þarna frá
hinum Norðurlöndunum og tveir ís-
lendingar í sama mótinu er nokkuð
hátt hlutfall frá einni þjóð.
„Við gerum okkur ekki alltof mikl-
ar vonir en reynum að standa okk-
ur,“ sagði Jón L. Árnason.
Að þessu móti loknu fara Jón og
Jóhann til keppni í Murcia á Spáni
og munu Helgi Ólafsson og Margeir
Pétursson slást í för með þeim.
-JJ
GuUpálminn i Cannes:
Mynd Sigurjóns
fékk pálmann
Það var mynd bandaríska leik-
stjórans David Lynch, Wild at Heart,
sem vann gullpálmann á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í Frakk-
landi en úrslitin voru tilkynnt í gær.
Framleiðandi myndarinnar er
Propaganda films sem er að hluta til
í eigu Siguijóns Sighvatssonar.
Lynch hefur unnið mikið fyrir
Propaganda films undanfarið og er
það samstarf farið að bera ríkulegan
ávöxt. Má þar nefna sjónvarps-
myndaþættina Twin Peaks sem nú
njóta mikila vinsælda í Bandaríkjun-
um. Lynch er enginn byijandi í fag-
inu en fyrri myndir hans eru Eraser-
head, The Elephant Men, Dune og
Blue Velvet. -SMJ
Stórmeistaramót:
Seirawan
sigraði en
Karpov varð
þriðji
Bandaríski stórmeistarinn
Yasser Seirawan kom mjög á
óvart og sigraði á miklu stór-
meistaramóti í Haninge við
Stokkhólm í Svíaríki, sem lauk á
sunnudag. Hlaut heilum vinningi
meir en Anatoly Karpov, fyrrum
heimsmeistari, sem fyrir mótið
var talinn sigurstranglegastur
keppenda. Karpov varð að láta
sér nægja þriðja sætið. í lokaum-
ferðinni á sunnudag gerði hann
jaftitefli á svart við Ungverjann
Guyla Sax og Seirawan gat þá
leyft sér að semja um jafntefli við
sænska alþjóðameistarann
Jonny Hector á hvítt.
Lokastaðan á mótinu
þessi: 1. Seirawan 8,5 v. 2.
Ehlvest, Eistlandí, 8 v. 3. Karpov
7.5 v. 4. Lev Polugajevski, Sovét,
6.5 v. en hann sigraði á Haninge-
mótinu 1988. 5. Ulf Andersson,
Sviþjóð, 6 v. 6. Sax 5,5 v. 7.-8.
Hector og Lars Karlsson, Svíþjóð,
4.5 v. 9,- 10. Van der Wiel, Hol-
landi, og Ferdinand Hellers, Sví-
þjóð, 4 v. 11.-12. Lubomir Ftacnik,
Tékkóslóvakíu, og Aleksander
Wojtkiewicz, Póllandi, 3,5 v.
Ftacnik sigraði á Haninge-
mótinu í fyrra en varð nú neöstur
ásamt Pólverjanum. Mikið fall
það. Allir keppendumir á mótinu
em stórmeistarar nema Hector
ogWojkiewicz. -hsím
varð
Jaan
Mál ákæruvaldsins gegn for-
svarsmönnum Þýsk-íslenska
veröur tekiö fyrir hjá Sakadómi
Reykjavíkur að loknum sumar-
leyfum. Ein ástæða þess að ekki
var hægt aö hefja meðferð máls-
ins fyrr er sú að verjandi Ómars
Krlsfjánssonar forstjóra, Jón
Steinar Gunnlaugssonhæstarétt-
arlögmaður, er bundinn yfir Haf-
skipsmálinu þar sem hann ver
Helga Magnússon sem var endur-
skoðandi Hafskips.
Helgi I. Jónsson sakadómari er
dómari í málinu. -sme
Eftirspurn
Eftirspurn eftir vinnuafli virð-
ist hafa aukist verulega í apríl ef
miðað er við siðustu könnun sem
gerð var í janúar. Könnunin er
gerð á vegum Þjóðhagsstofnunar
og vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytisins og var leitað
til fyrirtækja í öllum atvinnu-
greinum.
í apríl töldu atvinnurekendur
þörf á að fjölga um 150 störf sem
er um 0,2% af heildarmannafla
atvinnugreina í úrtakinu. í jan-
úar töldu þeir hins vegar þörf á
aö fækka störfum uiri tæplega
400. Þessar niðurstöður gefa til
kynna ákveöin umskipti í viiinu-
aflseftirspurn þar sem atvinnu-
rekendur hafa talið þörf á fækk-
un í öllum könnunum á síðasta
ári sem svarar til tæplega 300
starfa að meðaltali.
Á höfuðborgarsvæðinu ríkti
nokkuð gott jafnvægi í óskum
atvinnurekenda um breytingar á
starfsmannahaldi. Á landsbyggö-
inni telja atvinnurekendur æski-
legt að fjölga um 150 störf í apríl
þegar á heildina er litið. -SM J