Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1990, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1990, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1990. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI 1990. 17 Iþróttir DV Sport- stúfar I"'™7IM| Úrslit leíkja í úrvals- íps I deildinni í knatt- /r • I spymu í Sviþjóð um ' helgina urðu þannig: Halmstad - Malmö FF..... ..1-2 Örebro-AIK...............3-0 Djurgárden - GAIS........2-1 Göteborg - Hammarby......2-2 Brage - Oster.......... 1-1 • Eftir átta umferðir er Örebro i efsta sæti með 18 stig, Norrköp- ing 16, AIK 15 og Öster 14 stig. Meistaramir frá því í fyrra, Malmö FF, eru í 7. sæti með 9 stig. Detroitvann fyrsta leikinn gegn Chicago ¥ Fyrsti leikurinn í und- anúrslitum NBA- deildarinnar í körfu- knattleik fór fram í fyrrakvöld. Meistaramir í Detro- it lögðu þá Chicago að velli, 86-77, og hafa þannig tekið forystu, 1-0, en það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki leikur til úrslita gegn Phoen- ix eða Portland sem eigast við i hinum undanúrslitaleiknum. Joe Dumars var stigahæstur leik- manna Detroit með 27 stig en Michael Jordan skoraði flest stig Chicago eða 34, þar af voru 26 í fyrri hálfleik. Þjálfari Benfica lét varaliðíð ieika Lokaleikimir í 1. deild portúg- olsku knattspymunnar vom leiknir á sunnudag og urðu úr- slitin þessi: Benfica -Belenenses......1-0 Braga - Madeira..........1-1 Chaves - Tirsense........3-0 Feirense - Boavista......1-3 Maritimo - Amadora.......1-0 Penafiel - Nac.Madeira....0-2 Portimonense - Guimaraes..1-3 Porto - Beira Mar........2-2 Sporting - Setubal.......2-0 Þjálfari Benfica, Svíinn Sven Goran Eriksson, lét flesta af fastamönnum liðsins hvíla þar sem félagið leikur til úrslita gegn AC Milan í Evrópukeppni meist- araliða á miðvikudaginn. Sigur- mark Benfica skoraði angólski leikmaðurinn Abel Campos. Mörk meistaranna frá Porto í jafnteflisleik gegn Beia Mar skorðu þekktir leikmenn. Rabah Madjer, algeríski landsliðsmað- urinn, skoraði fyrra markiö og belgíski landshðsmaðurinn Stef- an Demol það síðara. Fysti sigur Wales i tíu ieikjum Landslið Wales í knattspyrnu sigraði Costa Rica, 1-0, í vináttu- landsleik þjóðanna sem fram fór í Cardiff í Wales á sunnudaginn. Það var Dean Saunders, leikmað- ur meö Derby, sem skoraði eina mark leiksins strax á 10. mínútu. Þetta var fyrsti sigurleikur Wales í síðustu tíu landsleikjum en lið Costa Rica leikur í heimsmeist- arakeppninni á ítalíu sem hefst i næsta mánuði. Besti tími ársins í 400 m grindahlaupi Danny Harris frá Bandaríkjunum náði besta tímanum á þessu ári í 400 metra grinda- hlaupi þegar hann sigraði á Grand Prix móti á Sao Paulo í Brasilíu á sunnudaginn. Harris hljóp á tímanum 48,13 sekúndum og var rúmlega einni sekúndu á undan Kevin Young sem fékk tímann 49,23 sekúndur. í 400 metra hlaupi karla sígraði Kúbu- maðurlnn Roberto Hernandez á tímanum 45,44 sek. Bandaríska stúlkan Dannette Young var sig- ursæl, hún sigraði 100 metra hlaupi á tímanum 1,54 sek. og í 200 metra hlaupi á timanum 23,02 sek. * Iþróttir Körfuknattleikur: Gunnar til Grindvíkinga - þjálfar liðið næstu tvö árin Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Gunnar Þorvarðarson var í gær- kvöldi ráðinn þjálfari úrvalsdeildar- liðs Grindvíkinga í körfuknattleik til næstu tveggja ára. Gunnar hefur þjálfað Keflvíkinga og Njarðvíkinga við góðan orðstír en hefur tekið sér hvíld frá þjálfun síðustu tvö árin. Gunnar var einnig um tíma þjálfari landsliðsins. „Við erum mjög ánægðir að þjálf- aramálin eru komin í farsæla höfn. Við bindum miklar vonir við störf Gunnars," sagði Margeir Guð- mundsson, formaður körfuknatt- leiksdeildar Grindavíkur, í samtali við DV í gærkvöldi. Allar líkur er á því að Darren Folkes leiki áfram með liðinu á næsta keppnistímabili. i Gunnar Þorvarðarson. Albaníuhópurinn tilkynntur í dag - Evrópuleikurinn gegn Albaníu eftir átta daga Bo Johansson, landsliðsþjálfari Is- lands, tilkynnir í dag landsliöshóp- inn fyrir fyrsta leikinn í Evrópu- keppni landsliða - gegn Albaníu á Laugardalsvellinum þann 30. maí. Johansson hefur úr breiðum hópi að velja. Hann notaði 25 leikmenn í landsleikjunum þremur í vor, gegn Lúxemborg, Bermúda og Bandaríkj- unum, en hafði þá ekki tækifæri til að sjá Amór Guðjohnsen, Guðmund Torfason og Sigurð Jónsson. Johansson sá 4 leiki um helgina Auk þess hefur Svíinn verið mjög iðinn við að fylgjast með leikjum hér á landi að undanfórnu. Um helgina sá hann þrjá leiki í 1. deildinni, ÍBV - Fram í Eyjum, FH - KA í Hafn- arfirði og Val-ÍA á Hlíðarenda og auk þess fylgdist hann meö leik ÍK og Breiðabliks á Kópavogsvelli. Ljóst er að Sigurður Jónsson og Pétur Arnþórsson verða ekki með gegn Albaníu vegna meiðsla og tvi- sýnt hefur verið með Gunnar Gísla- son og Guðmund Torfason af sömu ástæðu en þó líklegra að þeir geti spilað. Þá er óvíst um Sigurö Grét- arsson - það fer væntanlega eftir úrslitum í leik Luzern í svissnesku 1. deildinni um næstu helgi. Tapi Luzern er liðið að öllum líkindum úr leik í baráttunni um meistaratitil- inn en með sigri á það mikla mögu- leika og gæti verið að spila hreinan úrslitaleik um titilinn sama dag og landsleikurinn fer fram. Byrjunarliðið? Miðað við stöðuna í dag er ekki ólík- • Bo Johansson landsliðsþjálfari, til hægri, fylgist með einum af vorleikjun- um ásamt Lárusi Loftssyni, aðstoðarmanni sínum. Bo velur landsliðið í dag. legt að byrjunarlið íslands yrði þann- ig skipað: Bjarni Sigurðsson, Val, Ormarr Örlygsson, KA, Viðar Þor- kelsson, Fram, Atli Eðvaldsson, Genclerbirligi, Guðni Bergsson, Tottenham, Ólafur Þórðarson, Brann, Þorvaldur Örlygsson, Nott- ingham Forest, Pétur Ormslev, Fram, Arnór Guðjohnsen, And- erlecht, Pétur Pétursson, KR, og Guömundur Torfason, St. Mirren. Þá eru ótaldir Sigurður Grétarsson, Luzem, Gunnar Gíslason, Hácken, Sævar Jónsson, Val, Rúnar Kristins- son, KR, og Eyjólfur Sverrisson, Stuttgart, svo að einhverjir séu nefndir. Það má búast við því að hópurinn sem Johansson tilkynnir í dag verði að grunni til skipaður ofantöldum leikmörinum. -VS Gott sundmót í Keflavík Ægir Már Káxason, DV, Suðumesjum: Sundmót Sundfélags Suðurnesja var haldið um helgina í Keflavík. Þetta var í fyrsta skipti sem mót er haldið í nýju sundmiðstöðinni í bænum. Þátttak- endur á mótinu voru um eitt hundrað talsins, víðs vegar af landinu. Ágætur árangur náðist í ýmsum greinum. Sigurvegarar í einstökum greinum urðu eftirtaldir: Magnús Már Ólafsson, HSK, i 50 metra skriðsundi á 25,08 sek., Helga Sigurð- ardóttir, Vestra, í 50 metra skriðsundi kvenna á 28,01 sek., Magnús Már Ól- afsson, HSK, í 400 metra skriðsundi karla á 4:13,83 mín. og Helga Sigurðar- dóttir, Vestra, í 400 metra skriðsundi kvenna á 4:35,00. Eðvarð Þór Eðvarösson, SFS, í 100 metra bringusundi karla á 1:07,94 mín., Kristgerður Garðarsdóttir, HSK, í 100 metra bringusundi kvenna á 1:21,16 mín., Ævar Örn Jónsson, SFS, í 50 metra baksundi karla á 29,34 sek., Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir, Ægi, í 50 metra baksundi kvenna á 33,44 sek., Arnar Freyr Ólafsson, HSK, í 200 fjór- sundi karla á 2:16,00 mín. og Helga Sigurðardóttir, Vestra, i 200 metra fjórsundi kvenna á 2:29,71 mín. Ævar Örn Jónsson, SFS, í 200 metra baksundi karla á 2:28,70 min., Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir, Ægi, í 200 metra baksundi kvenna á 2:38,16, Eð- varð Þór Eðvarðsson, SFS, í 50 metra bringusundi karla á 30,89 sek. og Berg- lind Daðadóttir, SFS, í 50 metra bringusundi kvenna á 37,20 sek. Eðvarð Þór Eðvarðsson, SFS, í 100 metra baksundi karla á 1:04,43 mín., Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir, Ægi, í 100 metra baksundi kvenna á 1:11,58 mín., Eðvarð Þór Eðvarðsson, SFS, í 50 metra flugsundi karla á 27,12 sek. og Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir, Ægi, í 50 metra flugsundi kvenna á 31,55 sek. Eðvarð Þór Eðvarðsson, SFS, í 200 metra bringusundi karla á 2:30,35 mín., Helga Svavarsdóttir, Ægi, í 200 metra bringusundi kvenna á 2:55,50 mín., Magnús Már Ólafsson, HSK, i 200 metra skriðsundi karla á 2:00,14 mín., og Helga Sigurðarsdóttir, Vestra, í 200 skriðsundi kvenna á 2:09,28 mín. Karlasveit Ægis í 4x50 metra skrið- sundi á 1:47,59, kvennasveit Ægis í 4x50 metra skriðsundi á 1:59,75 mín., karlasveit SFS i 4x50 metra fjórsundi á 1:56,97 mín., kvennasveit Ægis í 4x50 metra fjórsundi á 2:13,66 mín., karla- sveit Ægis í 4x50 metra skriösundi á 1:47,59 mín. og kvennasveit Ægis í 4x50 metra skriðsundi á 1:59,75 mín. Rúnar í 4-6 leikja bann? - gæti átt yfir höfði sér bann til 4. júlí Flest bendir til þess aö Rúnar Krist- insson, landsliðsmaöur úr KR, verði í dag úrskurðaður í 4-6 leikja bann af aganefnd Knattspymusambands ís- lands. Rúnar gerði sig sekan um ofsafengna framkomu í 1. deildar leiknum gegn Víkingi á laugardaginn þegar hann sló Aðalstein Aðalsteinsson og sparkaði síðan í hatm liggjandi. Jón Kristjánsson fékk 3 leikja bann1988 Haustið 1988 var Jón Kristjánsson, leikmaður með KA, úrskurðaður í þrigga leikja bami fyrir ofsafengna • Rúnar Kristinsson gengur niðurlútur af KR-vellinum á laugardaginn var. DV-mynd GS framkomu. Jón sló þá Guðmund Steinsson úr Fram með olnboganum. Þetta er ákveðið fordæmi fyrir aga- nefnd og brot Rúnars er tvímælalaust alvarlegra en brot Jóns. 1 5. grein starfsreglna aganefndar KSÍ segir meðal annars: „Hafi dómari vísað leikmanni af leikvelli fyrir ofsa- lega framkomu eða alvarlega grófan leik, skal refsa viðkomandi með leik- banni í allt að 6 leikjum. Ef um ítrekun er að ræða skal refsingin vera minnst 6 leikja bann.“ Samkvæmt þessu virðist ljóst að bann Rúnars verði á bilinu 4 til 6 leik- ir. Þetta er að sjálfsögðu mikiö áfall fyrir KR-inga en þeim var spáð góðu gengi í 1. deildinni í sumar og ýmsir sjá þá fyrir sér sem verðandi Islands- meistara. Rúnar getur leikið með KR-ingum gegn Stjörnunni í 2. umferð á fimmtu- daginn en leikbann hans hefst á há- degi á fóstudag. Hann byrjar að taka það út gegn ÍBV þann 2. júní, en síðan leikur KR gegn Þór, Fram, FH, Val og ÍA, í þessari röð. Fái Rúnar hámarksr- efsingu, 6 leikja bann, getur hann ekki byrjað að leika með KR á ný fyrr en í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar þann 4. júlí. -VS Nýtt heimsmet í kúluvarpi Bandaríski kúluvarparinn, Randy Barnes, setti í fyrrinótt nýtt heimsmet í kúluvarpi á frjálsíþróttamóti í Los Angeles. Barnes kastaði kúlunni 23,12 metra en fyrra metið, sem var 23,06 m, átti Austur-Þjóðverjinn Ulf Timmer- man, það var sett á eynni Krít í Grikklandi í maí fyrir tveimur árum. Randy Barnes, sem er 23 ára að aldri, hefur veriö á meðal fremstu kúluvarpara í heiminum undanfarin ár en á ólympíleikunum í Seoul 1988 hafnaði hann í öðru sæti. Barnes á einnig heimsmetið innanhúss, 22,66 metra, og sett var á móti í Los Angeles á síðasta ári. Barnes, sem er frá Virginía, er tröll að burð- um, 1,93 metrar á hæð og vegur um 130 kg. Um síðustu helgi gerði Barnes sér lítið fyrir og kast- aði yfir 24 metra á æfingu og ber það vott um að kappinn á mikið inni ennþá og getur allt eins bætt heimsmetið enn frekar á mótum í sumar. Barnes sagði í samtölum við fréttamenn eftir heimsmetið að risakastið hefði tæknilega séð ekki verið fullkomið. Strangar æfingar á síð- ustu mánuðunum hefðu svo sannarlega skilað árangri. Svo skemmtilega vill til að bílnúmer á bifreið Barnes er 2430 en það er sú lengd sem hann stefnir að aö kasta á næstu misserum. Barnes fékk að launum fyrir heimsmetið um þrjár milljónir íslenskra króna. -JKS Carl meistari Carl J. Eiríksson varð Reykjavíkurmeistari með loftskammbyssu um helgina. Carl hlaut 566 stig sem er nýtt íslandsmet. Björn Birgisson hlaut 550 stig og Árni Þór Helgason 552 stig. í keppni með staðlaðri skammbyssu sigraði Björn Birgisson með 550 stig, Carl J. Eiríksson 536 stig og Karl Kristinsson 468 stig. Carl J. Eiríksson mun á næstunni keppa á þremur heimsbikarmótum. Ef Carli gengur vel á hann möguleika á aö vinna sér þátttökurétt á ólympíuleikunum 1992. -JKS Besta byrjun nýliða í 1. deild - þegar Stjarnan vann Þór á Akureyri Þegar Stjörnumenn sigruðu Þórsara, 0-2, á Akureyri í 1. um- ferð l. deildarinnarí knattspyrnu á laugardaginn brutu þeír blað i sögu deildarinnar. Aldrei áður, síðan deildaskipting var tekin upp árið 1955, hefur félag sem er að leika í fyrsta skipti í deildinni náð að vinna sigur í sínum fyrsta leik. Stjarnan er sem kunnugt er að leika í 1. deild í fyrsta skipti eftir að hafa komið beint úr 3. deild á tveimur árum og byrjun Garð- bæinga er glæsileg. Þeir leika simi fyrsta heimaleik í deildinni á fimmtudaginn þegar þeir fá KR-inga í heimsókn. -VS Pétur Arnþórsson. • Steinar Guðgeirsson. Blóðtaka hjá Fram tveir leikmenn frá næstu vikurnar Framarar verða án sterkra leik- manna í næstu leikjum. Pétur Arn- þórsson og Steinar Guðgeirsson meiddust báðir í leiknum gegn Eyja- mönnum í fyrstu umferð íslands- mótsins á laugardaginn var. Pétur verður frá keppni og æfingum í tvær vikur og meiðsli Steinars er öllu al- varlegri en hann missir af fyrri um- ferð mótsins. „Ég fór til læknis í gær og þá kom í ljós að liðband í ökkla var illa togn- að. Ökklinn verður settur í gifs á miðvikudaginn og það er ljóst að ég verð frá æfmgum og keppni í það minnsta í einn mánuð. Þetta kemur á versta tíma en það þýðir ekkert annað en að bíta á jaxlinn. Leik- mannahópur Fram-liðsins er sterkur þannig að meiðsli leikmanna um helgina eiga ekki að koma niður á árangri liðsins,“ sagði Steinar Guð- geirsson, í samtali við DV í gær. Pétur ekki með gegn Albaníu Pétur Arnþórsson meiddist á hné og verður frá keppni í tvær vikur. Þetta hefur það í fór með sér að Pétur miss- ir jafnvel af þremur leikjum með Fram og landsleiknum gegn Albaníu 30. maí í forkeppni Evrópukeppninn- ar. -JKS Flugleiðamótið í golíi: Ragnar fer vel af stað Flugleiðamótið í golfi og um leið fyrsta stigamót sumarsins, sem gefur stig til landsliðs, var haldið á Hval- eyrarholtsvelli í Hafnarfirði um helgina. Ragnar Ólafsson úr Golf- klúbbi Reykjavíkur sigraði í meist- araflokki. Þátttakendur á mótinu voru 126. Þrjú aukaverðlaun voru í boði fyrir þá keppendur sem fóru næst holu. Sveinn Sigurbergsson, NK, var 1,78 metra frá holu á 6. braut, Guðbjartur Þormóðsson, GK, var 0,76 metra frá holu á 14. braut og Eiríkur Guð- mundsson var 1,82 metra frá holu á 16. braut. Úrslit í einstökum flokkum á mót- inu urðu þessi og höggaijöldi kemur aftast: Meistaraflokkur: 1. Ragnar Ólafsson, GR,.........143 2. Sigurður Sigurðsson, GS.......145 3. Sveinn Sigurbergsson, GK.....145 1. flokkur: 1. Ragnar Guðmannsson, GK,.....151 2. Haukur Óskarsson, NK........151 3. Kristján R. Hansson, GK,....152 2. flokkur: 1. Daníel Ólason, GK, 155 2. Friðfmnur Hreinsson, GK.....160 3. Guðbjartur Þormóösson, GK...161 4. Júlíus Ingason, GK, 161 3. flokkur: 1. Sæbjörn Guðmundsson, GK.....168 2. GuðbjörgSigurðardóttir, GK..173 3. Ólafur Danivalsson, GK......177 4. Svala Óskarsdóttir, GK......177 5. Páll Erlingsson, GK.........177 4. flokkur: 1. Kristmann ísleifsson, GK....175 2. Sigurður Sigurðsson, NK......180 3. Viðar M. Þorkelsson, GK......180 -JKS Rúmenar og Pólverjar sigruðu Rúmenía sigraði Egypta, 1-0, í landsleik í Búkarest í gærkvöldi. Rodion Camataru skoraði mark Rúmena. Á sama tíma sigruðu Pólverjar lið Samein- uðu arabísku furstadæmanna, 4-0, en leikurinn fór fram í Marseille. Samein- uðu arabísku furstadæmin leika í heimsmeistarakeppninni á Ítalíu í sumar. -JKS • Ragnar Ólafsson sigraði á Flugleiöamótinu i Hafnarfirði um helgina en mótið var fyrsta stigamót sumarsins sem gefur stig til landsliðs. FYLKISVÖLLUR - BIKARKEPPNIN Fylkir - Grindavík í kvöld kl. 8.00 Sport- stúfar H Fyrsti leikurinn í 1 umferð mjólkurbikar- keppninnar í knatt- spyrnu fer fram kvöld. Þá leika 2. deildar liðin Fylkir og Grindavík á Árbæjar- velli og hefst leikurinn kl. 20. Fylkismenn féllu úr 1. deild í fyrra og Grindvikingar komu upp úr 3. deild og má örugglega búast við hörkuleik í Árbænum. Aðrir leikir í 1. umferð fara fram í næstu viku. Bandaríska landsliöið i knattspyrnu stendur sig vel Bandariska landsliðið í knatt- spymu sem leikur í heimsmeist- arakeppninni á Ítalíu í næsta mánuði sigraði á sunnudaginn júgóslavneska félagið Partizan Belgrad með einu marki gegn engu og fór leikurinn fram í Connecticut í Bandaríkjunum. Það var Peter Vermes, sem leikur með hollenska 1. deildar liðinu Volendam, sem skoraði sigur- markið á fyrstu minútu síðari hálfleiks. Þjálfaranámskeiö hjá KKÍ u> Körfuknattleikssam- 2v band íslands mun // standa fyrir þjálfara- —námskeiði dagana 24.-29. maí í íþróttahúsi Selja- skóla. Leiðbeinendur á nám- skeiðinu verða Ralph Klein, landsliðsþjálfari ísrael, og Laszlo Nemeth. Nú hefur KKÍ tekíst að fá einn hæfasta þjálfara Sovét- ríkjanna til að koma og kenna á námskeiðinu. Hann heitir Zurab Hgotaev og er aðstoðarþjálfari sovéska karlalandsliðsins og einnig þjálfar hann lið Stroitel Kiev, sem unnið hefur sovéska meistaratitilinn síðustu tvö ár. Hann kemur beint frá Argentinu þar sem sovéska landsliðið er í æfingabúðum til undirbúnings fyrir heimsmeistarakeppnina sem haldin verður í Argentínu í sumar. Tap hjá Brann á útivelli Brann, lið þeirra Teits Þórðar- sonar og Ólafs bróður hans, tap- aði, 3-1, fyrir Start í 1. deild norsku knattspymunnar á sunnudaginn. Önnur úrslit í deildinni urðu þessi: Fy Ihngen-Rosenborg....... 1-1 Kongsv.-Strömsgodset......2-1 Molde-Tromsö..............1-0 Moss-Viking...............1-2 Start-Brann...............3-1 V álerengen-Lillestr......1-0 • Viking, Molde og Kongsvinger eru öll jöfn í efsta sæti með 10 stig. Brann er um miöja deild með 7 stig. Robson velurenska landsliðið í knattspyrnu Landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, Bobby Robson, til- kynnti í gær 22 manna hóp sinn fyrir heimsmeistarakeppina í knattspyrnu sem hefst á ftalíu eftir rúman hálfan mánuð. Liðið er þannig skipað: Markverðir: Peter Shilton, Chris Woods og David Seaman Varnarmenn: Gary Stevens, Paul Parker, Des Walker, Terry Butcher, Mark Wright, Stuart Pearee, Tony Dor- igo Miðvallarleikmenn: Chris Waddle, Trevor Steven, Steve Hodge, Neil Webb, Bryan Robson, Paul Gascoigne, Steve McMahon Framlínumenn: John Barnes, Peter Beardsley, Gary Lineker, Steve Bull og David Platt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.