Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1990, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1990. Utlönd lon Ratiu, frambjóöandi Bændaflokksins í Rúmeníu, segir undarlega flutninga á kjörkössum hafa átt sér stað aðfaranótt mánudags. Simamynd Reuter Kosningamar í Rúmeníu: Litháen: Sjálfstæðinu frestað? Stjórnvöld í titháen virðast nú komin á fremsta hlunn með að fresta gildistöku sjálfstæðisyfirlýsingar lýðveldisins frá 11. mars um stundar- sakir í því skyni að fá sovéska ráða- menn að samningaborðinu. í fréttum Tass, hinnar opinberu sovésku fréttastofu, í gær sagði að á ríkis- stjórnarfundi lýðveldisins hefði stjórnin lýst yfir stuðningi við tillögu þar sem gert er ráð fyrir frestun gildistöku yfirlýsingarinnar. Vel gæti farið svo að tillagan verði tekin fyrir á litháiska þinginu og jafnvel samþykkt í dag. Gorbatsjov Sovét- forseti hefur sett sem skilyrði fyrir viðræðum við Litháa að þeir falli frá eða að minnsta kosti fresti gildistöku sjálfstæðisyfirlýsingarinnar. í nágrannalýðveldinu Eistlandi lögðu margir Rússar niður vinnu í gær til að mótmæla sjálfstæðisbar- áttu ráðamanna. Rússar, sem eru í minnihluta í Eistlandi, eru andvigir fyrirætlunum ráðmanna í lýðveld- inu. Þeir segjast óttast að réttindi þeirra verði fótum troðin og vilja að Gorbatsjov beiti forsetavaldi í lýð- veldinu. Leiðtogar verkfallsmanna segja að vinna hafi stöðvast í nítján verksmiðjum í höfuðborg Eistlands og tugum annarra víða um lýðveldið. Forsætisráðherra Eistlands vísaði fullyrðingum verkfalfsleiðtoganna á bug og kvaðst telja að verkfallið hefði aðeins náð til örfárra verksmiöja. Vegna sjálfstæðisbaráttu Eystra- saltsríkjanna hafa sovésk stjórnvöld hafið brottflutning kjarnorkuvopna frá svæðinu. Þetta kom fram í máli Hans Binnendijk, vestræns hernað- arsérfræðings í gær. Binnendijk kvaðst telja að sovéskir ráðamenn myndu leita eftir alþjóðasamþykkt er gerði ráð fyrir að Eystrasaltsríkin verðikjarnorkulaustsvæði. Reuter Ásakanir um víðtækt svindl „Við ætlum að berjast fyrir því með öllum ráðum að kosningarnar verði lýstar ógildar," sagði Ion Ratiu, forsetaframbjóðandi Bændaflokks- ins í Rúmeníu, í gærkvöldi. Ratiu flúði Rúmeníu á fimmta áratugnum en sneri aftur eftir fall Ceaucescus í desember síðastliðnum. Ratiu lýsti yflr undrun sinni á ummælum vissra erlendra eftirlits- manna sem sagt höfðu kosningarnar í Rúmeníu stórt skref í átt að lýð- ræði. „Það sem Bandaríkjamennirn- ir segja er fáránlegt. Eftirlitsmenn frá Alþjóðasambandi jafnaðarmanria virðast hafa gert sér betur grein fyr- ir ástandinu." Ratiu sagði að allt benti til víðtæks kosningasvindls og nefndi nokkur dæmi um árásir á kosningastarfs- menn Bændaflokksins og undarlega flutninga á kjörkössum aðfaranótt mánudagsins. Þegar búið var að telja 5 milljónir atkvæða háfði Ion Iliescu, forseta- frambj óðandi Þj óðfrelsishreyfingar- innar, hlotið 87 prósent atkvæða og Ratiu 3 prósent. „Þið skuluð ekki halda að ég dragi mig í hlé þó að all- ar tilraunir okkar til að fá kosning- arnar ógildar mistakist," sagði Ratiu. „Ég mun í staðinn beijast á þingi því við munum hvernig fór þegar sósíal- istar tóku ekki þátt í kosningunum á Ítalíu í mótmælaskyni við Mussol- ini. Það varð til þess að hann var við völd í 20 ár.“ Ratiu sagði að Iliescu gæti ekki komið á lýðræði að sænskri fyrir- mynd því hann vissi ekki hvað lýð- ræði væri. Það eina sem hann vildi væru völd og það eina sem hann gæti gert við Rúmeníu væri að koma aftur á kommúnisma. Eftir stórsigur sinn í kosningunum á sunnudaginn sagðist Iliescu í gær vilja leggja grunninn að lýðræðis- legri framtíð Rúmeníu. Kvaðst for- setinn vilja byija með því að koma á lýðræði að sænskri fyrirmynd. Campeanu, forsetaframbjóðandi fijálslyndra, hlaut um 10 prósent at- kvæða í kosningunum. Hann sakaði stuðningsmenn Þjóðfrelsishreyfmg- arinnar um alvarlegt kosninga- svindl. TT og Reuter Rússar, búsettir í Eistlandi, lögðu niður vinnu í gær í mótmælaskyni við sjáifstæðisfyrirætlanir yfirvalda lýðveldisins. Á myndinni má sjá tvo verk- fallsmenn setja upp skilti við inngang Dvigatel-verksmiðjunnar í Tallin. Simamynd Reuter £1 Inga Backman Svavar P Jóhannes Guðmundur USTA- OG MBtNINGARHATID G-listans ííslensku Óperunni Uppstigningardag, 24. maíkl. 20.30. Húsiðopnarkl.20. Kynnir: RagnheiðurÁsta Pétursdóttir. Stuttávörpflytja: Ástráður Haraldsson, Guðrún Kr. Óladóttir, Sig- þrúður Gunnarsdóttir, Birna Þórðardóttir, Guðrún Ágústsdóttir og SvavarGestsson. Tónlist og söng flytja: Kolbeinn Bjarnason, Bjartmar Guðlaugsson, Inga Backman, ÓlafurVignirAlbertsson, EinarGunnarsson, Hólm- friður Sigurðardóttir, Hreiðar Pálmason og djass-kvartett Guðmundar Ingólfssonar. Eftirhermur: Jóhannes Kristjánsson Ljóðalestur: Viðar Eggertsson Maddama Karen Krusenstjerna og frú Soffía Eggerts komaíheimsókn. FJÖLMENNUM Á BARÁTTUHÁTÍÐINA 1 Sigþrúður Viðar Hp wL~\ H Bjartmar Birna GERUM REYKJAVÍK AD FELAGSLEGRI FYRIRMYNDARBORG!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.