Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1990, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1990.
Útlönd
Ofbeldi varpar skugga á viðræður
Átök hafa staöi milli hvítra manna og blökkumanna í Welkom i Suöur-
Afríku. Níu manns hafa látiö Iffiö I þessum átökum. Simamynd Reuter
Ofbeldi og blóöug átök milli hvítra manna og blökkumanna í námabæn-
um Weikotn i Suður-Afríku hafa varpaö skugga á friðarviöræður í landinu
og fengiö menn til að efast um getu suður-afrískra leiðtoga til aö halda
uppi lögum og reglu. Átök hafa staðið milli hvítra öfgamanna og svartra
íbúa bæjarins í viku. Nú hafa samtök ný-nasista þar heitið því að verja
Welkom með vopnavaldi og blökkumenn hafa lokað af nærliggjandi sveit-
ir fyrir öllum hvitum. Níu manns, sjö blökkumenn og tveir hvítir menn,
hafa látið lífið síðustu viku.
Áður en átökin hófúst haföi spenna verið að magnast milli blökku-
manna og hvítra í bænum frá því í marsmánuöí. Þá settu hvítir öfgamenn
á laggirnar vopnaöar sveitir „eftirlitsmanna“. í mótmælaskyni við eftirlit-
ið og lát tveggja blökkumanna fyrir hendi hvítra ákváðu blökkumenn í
Welkom að sniðganga fyrirtæki hvítra í bænum. Það var fyrir tólf dög-
um. Á sunnudag ákváðu leiðtogar blökkumanna svo að falla frá þessari
ákvörðun og var það gert til að reyna að lægja öldumar.
íbúar Welkom segja að ungir og róttækir blökkumenn í Thabong, bú-
setusvæði blökkumanna, hafi reiðst svo þessari ákvörðun leiðtoganna
að þeir hafi hafið grjótkast að bifreiöum. Þá greip lögregla til vopna. Þrír
blökkumenn létust í gær af sárum sínum. Átök stóðu alla aöfaranótt
mánudags og í gær.
Gorbatsjov fær kauphækkun
Sovéska þingið samþykkti í gær að hækka mánaðarkaup Gorbatsjovs
Sovétforseta um hvorki meira né minna en 160 prósent. Forsetihn fær
nú sem svarar til rúmlega þrjú hundruð ogáttatíu þúsund íslenskra króna
í raánaðarkaup, eða um tvö hundruð og tuttugu þúsund þegar ríkið hefur
tekið sem því ber í skatta. Þetta er sextán sinnum meira kaup en venjuleg-
ur sovéskur verkamaður fær á mánuði.
Hubble sýnir getu sína
Bandariski stjörnusjónaukinn Hubble sendi um helgina Irá sér sína
fyrstu mynd. Sfmamynd Reuter
Bandaríski stjörnusjónaukinn Hubble, sem nú er á ferð í himingeimn-
um, sendi mynd til jarðar í fyrsta sinni um helgina. Myndina til hægri
hér að ofan sendi Hubble til jarðar og er hún af stjörnuklasa i 1.260 ljós-
ára fjarlægð. Myndin til vinstri er tekin úr stjörnusjónauka á jörðu niðri
og er til samanburöar. Á myndinni sem Hubble sendi frá sér má sjá að
tvístimi er þar sem hin myndin sýnir aöeins eina stjömu. Vísindamenn,
sem séð hafa um að koma Hubble fyrir í geimnum, eru ákaflega ánægðir
með árangurinn og segjast fullvissir um aö sjónaukinn muni geta þaö sem
fyrir hann var lagt, þ.e. aö leita uppruna jarðar.
Sovétmenn senda reikninginn
Sovésk yfirvöld, sem nú hafa hafið brottflutning herja sinna frá ríkjum
Austur-Evrópu, hafa lagt fram óhemju háar kröfur á hendur yfirvöldum
þessara fyrrum leppríkja sinna m.a. vegna herstöðva og annarrar aðstöðu
sem sovésku hermennirnir munu skilja eftir þegar þeir fara. Að því er
heimildir dagblaðsins Intemational Herald Tribune herma hafa stjóm-
völd í Moskvu til að mynda krafist svo hárra fjárhæða af Tékkum að
þeir telja slikt óheyrilegt. Ekki er ljóst hversu mikið Sovétmenn fara fram
á en í nýlegri grein í fyrmefndu dagblaöí segir að kröfur þeirra nemi
milljónum dollara bæði í Tékkóslóvakíu og Ungverjalandi og milljöröum
dollara i Austur-Þýskalandi en þar var stærsta og fullkomnasta aðstaða
fyrir sovéska hermenn í öllum austurhluta álfunnar.
Vestur-þýskir embættismenn segja stjómina i Bonn reiöubúna til að
ihuga víðtæka aðstoð til Sovétmanna til að fá samþykki þeirra fyrir sam-
einingu þýsku ríkjanna og tryggja brottflutning sovéskra hermanna frá
Austur-Þýskalandi. Slík aöstoð myndi verða veitt þeim hermönnum sem
fluttir verða á brott. En ríkisstjómir nýju lýðræöisríkja Austur-Evrópu
eru ekki allar á eitt sáttar viö reiknínga Sovétmanna. Efhahagur þessara
þjóða er bágur og margar mega ekki viö því aö greiða Sovétrikjunum
fyrir áratuga dvöl hermanna í álfunni. í Póllandi til að mynda er ástand-
ið mjög slæmt og í ljósi aukinnar pólitísErar umræðu í þjóðfélaginu geta
pólsk yfirvöld ekki gengið að kröfum Sovétmanna án þess að til mikillar
gagnrým komi heima fyrir.
Öryggisráðið
íhugar kröfu
um neyðarfund
Palestínsk kona vopnuð grjóti hrópar ókvæðisorð að ísraelskum hermönn-
Símamynd Reuter
Fjórir Palestínumenn biðu bana í
gær í óeirðum á Gazasvæðinu sem
fylgdu í kjölfar morðanna á sjö arab-
ískum verkamönnum á sunnudags-
morgun. Starfsmenn sjúkrahúsa
segjast hafa tekið á móti átta hundr-
uð manns frá því á sunnudag sem
leituðu til þeirra vegna skotsára. Alls
hafa ellefu látið lífið auk þeirra sjö
sem myrtir voru.
Gífurleg reiði ríkti meðal araba í
gær, ekki bara á herteknu svæðun-
um heldur einnig í ísrael og í Jórdan-
íu. Palestínskir leiðtogar, sem eru í
felum á Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu, lýstu því yfir að „stund
hefndarinnar væri runnin upp“.
ísraelski herinn sendi liðsauka til
herteknu svæðanna og herforingjar
kváðust myndu grípa til aðgerða til
að koma í veg fyrir frekari óeirðir.
Ami Propper, ísraelsmaðurinn ungi
sem myrti sjö palestinska verka-
menn á sunndaginn, fyrir rétti í gær.
Símamynd Reuter
Oryggisráð Sameinuðu þjóðanna
mun I dag fjalla um beiðni araba um
neyðarfund vegna oíbeldisins á her-
teknu svæðunum. Leiðtogar araba
og stjórnir ýmissa Evrópulanda for-
dæmdu ísraelsk yfirvöld vegna þess
um við Jerúsalem.
fjölda sem látið hefur lífið en banda-
rísk yfirvöld lýstu yfir áhyggjum sín-
um yfir því hversu margir heföu beð-
ið bana. Hvöttu þau til að stefnt yrði
að friðarviðræðum milli Palestínu-
mannaogísraelsmanna. Reuter
Kosningum ekki frestað
-vegna morða á frambjóðendum
Stjórnmálamenn í Kólumbíu for-
dæmdu í gær tilraunir til að koma í
veg fyrir forsetakosningarnar á
sunnudaginn eftir að öldungadeild-
arþingmaður var myrtur og tilraun
gerð til sprengjuárásar á fjölskyldu
Barcos forseta.
Federico Estrada Velez, öldunga-
deildarþingmaður Frjálslynda
flokksins, og bílstjóri hans voru
skotnir til bana í gær þegar þeir biöu
við umferðarljós í borginni Medellin
þar sem eru aðalstöðvar stærsta eit-
urlyfjahringsins í Kólumbíu. Morð-
ingjarnir komust undan.
Estrada Velez var kosningastjóri
Gaviria sem er frambjóðandi Frjáls-
lynda flokksins og talinn líklegur til
sigurs vegna harðrar afstöðu sinnar
gegn ofbeldi.
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á
verknaðinum en flkniefnabarónar
hafa tilkynnt að þeir muni beina ár-
ásum sínum gegn stjórnmálamönn-
um í stríði sínu við yfirvöld. Þrír for-
setaframbjóðendur hafa verið myrtir
frá því að stríöið hófst fyrir níu mán-
uðum.
Horacio Serpa innanríkisráðherra
sagði aö verið gæti að með ofbeldis-
aðgerðum væri verið .að reyna aö
koma í veg fyrir kosningamar- en
þær myndu samt fara fram eins og
ráögert hefði verið.
í gær gerði lífvörður dóttur Barcos
Tugir manna hafa látið lífið í tilræðum eiturlyfjabaróna i Medellin i Kólumb-
ÍU frá því í marslok. Simamynd Reuter
forseta óvirka sextíu kílóa dýnamit-
sprengju við bamaskóla í Bogota.
Dóttir forsetans og tvær dætur henn-
ar voru þá inni í skólanum ásamt tvö
hundruð og fimmtíu öðrum nemend-
um.
Estrada Velez var rænt af eitur-
lyfjasölum f síðasta mánuði og sleppt
ósködduðum að tveimur dögum liðn-
um með skilaboð til yfirvalda sem
aldrei vora birt. Eftir ránið kvaðst
hann mótfallinn framsali meintra
eiturlyfjasala til Bandaríkjanna.
Frá því síðla í mars hafa eiturlyfja-
salar hert baráttu sína gegn yfirvöld-
um. Sextíu manns hafa beðið bana í
bílasprengingum og um sextíu lög-
reglumenn hafa verið skotnir til
bana í Medellin.
Reuter