Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1990, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1990.
13
Ellihrörnun í
(
skólum landsins
Ég er einn heima, var heiti á sjón-
varpsþætti sem sýndur var fyrir
stuttu. Þarft umræðuefni sem allt
of lítið er rætt um í íslensku þjóð-
félagi. Það er eins og foreldrar
skammist sín fyrir að viðurkenna
að börnin eru ein heima frá því
skóla lýkur þar til mamma eða
pabbi kemur heim. Staðreyndin er
engu aö síður sú að meginþorri
barna á grunnskólaaldri þurfa að
vera einsömul heima þar sem þjóð-
félagið býður ekki upp á annað. í
langflestum tilfellum er ekki hægt
að reka heimilisreikning á eins
manns launum. Lágmarkslaun
duga ekki einu sinni fyrir mat ofan
í fjögurra til flmm manna íjöl-
skyldu og því síður klæðnaði.
Sumir skólar virðast gjörsamlega
líta fram hjá þessari staðreynd.
Skóli sá þar sem börnin mín stunda
nám, Lækjarskóli í Hafnarfirði,
sem er meö elstu skólum landsins,
virðist t.d. enn starfa eftir þeim
reglum sem settar voru fyrir fimm-
tíu árum. Sjö ára börn eiga engan
kost á að vera í skóla á öðrum tíma
en eftir hádegi og tíu ára fyrir há-
degi, Það er því útilokað að systkini
á þessum aldri geti verið samtímis
í skólanum og móðirin unnið utan
heimilis á þeim tíma. Aðeins þetta
htla dæmi er glöggt sýnishorn á því
hvað skólar hunsa óskir foreldra.
Að hægt sé að velja skólatíma, svo
ekki sé talað um samfelldan skóla-
dag, sem virðist alls staðar vera
sjálfsagt mál nema á íslandi. Allir
foreldrar þekkja líka hlaup í og úr
skóla vegna aukatíma á annarleg-
um tímum.
Samfelldur skóladagur
Það er mér hulin ráðgáta að fyrir
hverjar einustu kosningar er sta-
glað á að brýn þörf sé á lagfæring-
um dagvistarmála en sjaldan eða
aldrei minnst á samfelldan skóla-
dag. Dagvistarmál skipta vitaskuld
miklu máli en það er þó fyrst þegar
börn byrja í skóla sem veruleg út-
gjaldaaukning verður á heimilinu
og því'meiri ástæða fyrir báða for-
eldra að vinna úti. Menntamála-
ráðherra impraði á því fyrir stuttu
að lengja veru sex ára barna um
að minnsta kosti einaklukkustund
í skólanum. Nokkuð sem hefði átt
að vera sjálfsagt mál þegar grunn-
skólakerfinu var breytt hér um
árið. Þá kom einnig fram að
kennslustundum hefur fækkað frá
því sem áður var. Þessi fækkun
kennslustunda hefur komið niður
á börnunum. Þau fara hratt yfir
námsefnið og oftar en ekki gleym-
ist að útskýra einstök atriði þannig
að börnin lesa bækur án þess að
skilja þær. Þetta útheimtir aukna
vinnu fyrir foreldra með börnum
sínum þegar farið er yfir heima-
námið. Eðlilegast væri því sam-
felldur skóladagur þar sem heima-
vinnan væri að mestu unnin í skó-
lanum. Manni fyndist að minnsta
kosti að það væri í takt við tíðar-
andann. Honum verður ekki svo
auðveldlega breytt.
Tíðarandinn þarf að breytast
Undarlegt þykir mér þegar fólk
setur sig í dómarasæti og dæmir,
sérstaklega mæður, fyrir að skilja
börnin sín ein heima meðan þær
vinna úti. Það hefur enginn efni á
að dæma aðra. Allflestar mæður
myndu eflaust kjósa að sinna heim-
ili og börnum ef þær hefðu kost á
því. Við getum alls ekki borið sam-
an þjóðfélagið fyrir þrjátíu árum
og nú. Það eru breyttir tímar og
Kjallariim
Elín Albertsdóttir
biaðamaður
aðstæður allt aðrar og þeim verð-
um við að aðlagast hvort sem okk-
ur líkar betur eða verr. Skólarnir
eru eins og gamlar kerlingar sem
geta á engan hátt aðlagast nútím-
anum. Kerlingarnar hafa hrörnað
meö aldrinum og gott ef ekki eru
komin ellimörk á einstaka skóla
landsins.
Vegna mikillar umræðu í þjóð-
félaginu um blessuð börnin sem
skilin eru eftir ein heima hefur
samviskubit foreldra magnast.
Foreldrar saka sig um lélegt upp-
eldi og gera í staðinn allt of mikið
fyrir börnin. Það skal ég skýra nán-
ar. Ef barnið er eitt heima og biður
t.d. um peninga fyrir einhverju þá
er algengt að foreldrar hugsi sem
svo: Greyið er alltaf einn heima.
Ég verð að gera eitthvað fyrir hann
í staðinn. Allt er látið eftir bömum
nútímans og í staðinn verða þau
kröfuharðari á foreldra sína og
frekari. Það er kannski erfitt að
kyngja þessu en svona er þetta.
Börn nútímans þurfa ekki að axla
ábyrgð vegna sektarkenndar for-
eldranna, sem aftur verður til
vegna þjóðfélagsumræðu. Með
breyttu hugarfari fólks og með því
að setja umræðuna fram á skyn-
samari hátt, þar sem litið yrði á það
sem eðlilegan hlut að börn gætu séð
um sig einhverja klukkutíma á
dag, yrði allt viðhorf öðruvísi. Og
þá þyrfti að sjálfsögðu hjálp skól-
anna. Ég er líka sannfærð um að
breyting í þessa átt komi þessum
einstaklingum til góða þegar þau
komast á hin erflðu-unglingsár.
Frægir íslendingar einir
heima
Ekki veit ég betur en að einstæð-
ar mæður, fráskildir, ekkjur og
ekklar, fyrri ára hafi getað komið
góðum borgurum á legg. Margir
þekktir íslendingar ólust upp hjá
einstæðu foreldri. Viðhorfið var
allt annað fyrir t.d. tuttugu árum
gagnvart börnum sem voru ein
heima. Að sjálfsögðu lenda alltaf
einhveijir einstakhngar í ógæfu en
ekkert frekar börn einstæðra en
giftra. Ég á vinkonur sem eru börn
fráskildra foreldra. Þær voru iðu-
lega einar heima á daginn meðan
móðir þeirra vann úti. Þá datt
börnum ekki í hug að kvarta eða
heimta vegna þess að þau þurftu
að vera ein heima. Það var bara
litið á það sem sjálfsagðan hlut.
Þessar vinkonur mínar ólust ekk-
ert öðruvísi upp en ég eða aðrir sem
bjuggum með báðum foreldrum.
Þetta var fyrir tuttugu árum en þá
snerist umræðan ekki um þetta
mál í þjóðfélaginu.
Ég man ekki betur en maður hafi
selt blöð og merki til að eignast
peninga. Ábyrgðin var talsverð hjá
börnum og unglingum enda var
ekki hægt að fá allt upp í hendurn-
ar. Aginn var meiri í skólum og
hver einstaklingur, þó hann væri
ungur, sjálfstæðari. Börn voru
dugleg að vinna í sveitum, í fisk-
vinnslu og þess háttar. Heitir það
ekki barnaþrælkun nú til dags? Nú
kostar stórfé að senda barn í sveit.
Jafnvel íþróttafélögin þurfa
greiðslur mánaðarlega frá börnun-
um. Ekki skal ég lasta áhuga barna
á íþróttum en peningaplokkið er
orðið umhugsunarefni. Allt kostar
mikla peninga og undir þeim
kostnaði þurfa foreldrar að standa.
Sjálfstæðir og ábyrgir ein-
staklingar
Vissulega heyrir maður ótrúleg-
ar sögur eins og þær að börnin
hafi ekki lykla að heimili sínu og
verði að bíða utandyra þar til for-
eldrar koma heim. Slíkt telst til
afbrigðilegra málefna sem þurfa
sérstaka umfjöllun, um það er ég
sammála. Ég get þó ekki ímyndað
mér að þannig tilfelli séu mörg.
Einnig er ótrúlegt að heyra um
vanhirt og vannærð börn. Slík mál
ættu að skoðast á réttum stöðum
og þá er enginn betri til að láta vita
um slíkt nema skólinn. Hann hefur
engan rétt til að þegja yfir slíku og
málin eiga þá að fara til réttra að-
ila.
Ég vil þó leyfa mér að halda því
fram að foreldrar sem vinna úti
hálfan eða allan daginn hugsi vel
um börnin sín og gefi þeim góðan
tíma þegar þeir eru heima. Með
þessari grein vil ég benda á þá stað-
reynd að flest börn eru vel alin
þrátt fyrir útivinnu foreldra.
Kannski hafa þau það of gott. Það
er börnum nauðsynlegt upp á síð-
ari ár að vera sjálfstæðir og ábyrg-
ir einstaklingar. Þau þurfa að læra
að lífið er líka mótstreymi og undir
það verða þau að vera búin.
Þess vegna þurfa skólarnir að
taka sig á. Krafan er samfelldur
skóladagur eða val um skólatíma
fyrir eða eftir hádegi fyrir ólíka
aldurshópa. Almenningur þarf líka
að breyta viðhorfi sínu og foreldrar
eiga ekki aö hafa sektarkennd
vegna vinnu sinnar. Það er ekki
nokkur spurning að allar venjuleg-
ur mömmur og venjulegir pabbar
þurfa bæði að vinna úti til að börn-
in þurfi ekki að svelta og ekki síður
svo þau eigi sér öruggt húsaskjól.
Við eigum að búa þau undir fram-
tíðina í takt við tíðarandann.
Elín Albertsdóttir blaðamaður
„Það er eins og foreldrar skammist sín
fyrir að viðurkenna, að börnin eru ein
heima frá því skóla lýkur, þar til
mamma eða pabbi kemur heim.“
ER SMÁAUGLÝSINGA
BLADID
SIMINNER
Sveitarstjóri
Starf sveitarstjóra Reyðarfjarðarhrepps er laust til
umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. júní nk.
Umsóknum ber að skila skriflega á skrifstofu Reyðar-
fjarðarhrepps, Austurvegi 1, Reyðarfirði.
Sveitarstjórinn, Reyðarfirði.
35-50%
AFSLÁTTUR
Rýmum fyrir nýjum gerðum af gólfdúkum.
Seljum á næstu dögum gott úrval af gólf-
dúkum.
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. Sími 671010
Starfslaun Ríkisútvarpsins
til höfunda útvarps- og sjónvarpsefnis
Ríkisútvarpið auglýsir starfslaun til höfundar eða höf-
unda til að vinna að verkum til frumflutnings í Ríkisút-
varpinu, hljóðvarpi eða sjónvarpi. Starfslaunum geta
fylgt ókeypis afnot af íbúð Ríkisútvarpsins í Skjaldarvík
í Eyjafirði.
Starfslaun eru veitt til 6 mánaða hið lengsta og fylgja
þau mánaðarlaunum skv. 5. þrepi 143. lfl. í kjarasamn-
ingum Bandalags háskólamanna og fjármálaráðherra
fyrir hönd ríkissjóðs.
Umsóknum ásamt greinargerð um fyrirhuguð viðfangs-
efni skal skilað til skrifstofu útvarpsstjóra, Efstaleiti 1,
Reykjavík, fyrir 1. júní nk. Þar eru ennfremur veittar
nánari upplýsingar um starfslaunin.
n'fi#
RÍKISÚTVARPIÐ
20. leikvika -19. maí 1990
Vinningsröðin: 221-11X-211-212
HVERVANN?
3.655.721- kr.
1 var með 12 rétta - og fær hver: 2.874.598- kr. á röö.
44 voru með 11 rétta - og fær hver: 17.752- kr. á röö.
100 milljóna seðillinn,
- er næstur!!
Kosningaskýrslur
1874-1987
★ Alþingiskosningar frá 1874
★ Sveitarstjórnarkosningar frá 1930
★ F orsetakj ör og þj óðaratkvæðagreiðslur
Tvö bindi, 1.160 bls.
Verð 4.800 kr. með vsk.
Ómissandi fyrir spámenn og spekúlanta
um kosningaúrslit.
Hagstofan - Skuggasundi 3
- 150 Reykjavík
Afgreiðsla bóka í síma 609860.