Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1990, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 1990.
Viðtalið
Fréttir
Anægjulegt
samtal við
drottninguna
Nafn: Hilmar Foss
Aidur: 70 ára
Starf: Löc
andi og dómtúlkur
„Ég hef haft mikil afskipti af
bresk-íslenskri sambúð og er í
ýmsum máifræði- og menningar-
félögum í Bretlandi. Auk þess var
ég búsettur í Bretlandi á stríðsár-
unum. Þar vann ég hjá bresku
ráðuneyti og svo hjá sendiráðinu
á staönum,“ sagði Hiimar Foss
en hann var ásamt Ingu Wendel
og Aðalsteini Jónssyni heíðraður
af Elísabetu II Bretadrottningu á
ferð hennar hér á landi.
„Ég er ekkert fyrir svona heið-
ursmerki en kann vel að meta
þennan virðingarvott. Ég hef
fengið bréf erlendis frá og sé aö
fólk telur þetta mjög mikilsvert
en það er sjaldgseft að taka við
heiðursmerki úr hendi þjóðhöfð-
ingja, Annað ágætisfólk var líka
heiðrað hérlendis. Athöfnin fór
fram í einkabecþergi um borð í
Britanniu en eitt okkar fór inn í
einu. Viðstaddir voru drottning-
in, ritari og mal:i.
Ég haföi hitt drottningu áður
en það var í Luftdúnum i vetur.
Hún lét þá vel að íslenskri Mst-
sýningu sem haldin var í Bret-
landi að tilstilli Ólafs Egilssonar,
fyrrverandi sendiherra í Lund-
únum. Þar fékk hún HtiUega að
kynnast íslenskri náttúrufegurö.
Við áttum iangt samtai og þaö
var aðallega um fyrri störf og ís-
lenska sagnfræöi. Hún er greini-
lega vel aö sér í íslenskri sögu og
þetta var mjög ánægjulegt sam-
tal.“
Starfiö áhugamál
Hilmar fæddist í Englandi „af
tilviljun“ eins og hann orðar þaö.
Hann ólst upp og menntaðist hér
á landi, tók gagnfræðapróf og
verslunarskólapróf. Að því loknu
hélt hann til Bretlands og hóf þar
nám. Stríðið kom í veg fyrir aö
hann lyki þar námi en það braust
út ári eftir aö hann kom utan.
Síðan hefur hann unnið í Lund-
únum og Reykjavík.
„Ég kom heim í miðju stríði og
hef unnið við mitt starf síðan.
Þetta er margþætt starf en er
unnið í kyrrþey og trúnaði. Dreg-
iö hefur úr dómtúlkun eftir því
sem landhelgin hefur veriö færð
utar en áður voru oft réttarhöld
vegna veiöa erlendra skipa hér
viö land.
Starfið er mitt aöaláhugamál.
Ég les lika í frístundum, mest al-
mennar bókmenntir og sagn-
fræði. Halldór Laxness finnst
mér skemmtilegastur íslenskra
rithöfunda. Uppáhaldsrithöfund-
urinn er Winston Churchill en
hann er besti skríbentinn á enska
tungu," sagöi Hilmar.
Hilmar kveðst aldrei hafa fariö
í sumarfrí á ævi sinni og það
stendur ekki til. „Ég fer gjarnan
utan þegar minna er að gera. Ég
á marga vini i Bretlandi sem
maður hittir og heimsækir."
Kona Hilmars er Guðrún Foss,
Eiga þau tvö böm, Hilmar Frið-
rik, 31 árs, og Elísabetu Guð-
Iaugu,26ára. -hmó
Verðlagsráð dregur úr
hækkunum lögmanna
Lögmenn hafa ekki verið undir
verðlagsákvæðum heldur hafa
ákveðið gjaldskrá sína sjálfir. Nú
hefur verölagsráð hins vegar ákveðið
aö gjaldskrá lögmanna skuM hætta
minna en þeir höfðu sjálfir ákveðið.
Lögmenn sendu bréf 15. júní þar
sem þeir tilkynntu Verðlagsstofnun
að þeir mundu hækka gjaldskrá sína
um 3,1% þann 20. júní.
Verðlagsráð hefur áöur fjallað um
útselda vinnu ýmiss konar og mark-
að þá stefnu aö þeir skyldu ekki
hækka meira en sem nemur almenn-
um launahækkunum 1 júní, eða
1,5%. Þeim var gerð grein fyrir þess-.
ari stefnumörkun og beðnir um að
draga hækkunina tM baka þannig aö
hún væri ekki meiri en 1,5%.
Þeir urðu ekki við þeirri ósk og þvi
ákvað verðlagsráð á fundi á fimmtu-
dag að gjaldskrá þeirra hækkaði ekki
meira en 1,5% eftir 1. júní síöastMð-
inn. -pj
Athugasemd
vegna gisti-
staðakorts
Aö geínu tilefni skal tekið fram
að kort það um gististaði á
landinu, sem birtist í ferðablaði
DV síöastiiðinn miðvikudag, er á
engan hátt á vegum Upplýsinga-
miðstöðvar ferðamála á íslandi
þótt hennar hafi veriö getiö sem
heimildar þar sem upplýsing-
anna var leitað í handbók sem
Upplýsingamiðstöðin gefur út.
Kortið var að öllu leyti unnið á
rifjórn DV.
Húsbréf
Einföld og örugg leið
til að minnka við sig
Það er stórt skref að selja hjartfólgna eign og mikilvægt.að það
gerist án skakkafalla. í húsbréfakerfinu geta seljendur fengið
háa útborgun á mjög skömmum tíma og jafnframt verið
öruggir um greiðslur, því fasteignaviðskipti með húsbréfum
eru ríkistryggð.
Kaupendur í húsbréfakerfinu fá umsögn ráðgjafastöðvar um
greiðslumat. Þar kemur m.a. fram hámarkskaupverð íbúðar.
Það er skilyrði frá hálfu húsbréfadeildar, að kauptilboð sé gert
innan umsagnarinnar. Þetta er mikilvægt öryggisatriði fyrir
bæði kaupendur og seljendur.
Húsbréf eru skattfrjáls, ríkistryggð
skuldabréf, jafngildi peninga. }
íbúðaseljendur geta notað þau við
áframhaldandi íbúðarkaup, sem trygga
og óbundna sparnaðarleið eða selt þau á
markaði og fengið reiðufé í staðinn.
■Kí:T)90ÍOOO:
5BRI5P
■V
mHBmB
KYNNINGARMYNDBÖND
Kynningarmyndbönd um húsbréfa-
kerflð liggja frammi á næstu dögum
hjá fasteignasölum og hjá Húsnæðis-
stofnun. Þau eru einnig m.a.
væntanleg á sveitastjórnarskrifstofur
og myndbandaleigur um land allt.
dÍ3 HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFADEILD ■ SUÐURLANDSBRAUT 24 -108 REYKJAVÍK SÍMI ■ 696900