Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1990, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1990, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 1990. .iiniiuiimu nmrnri Mtnmt n Fréttir Biskup íslands, séra Ólafur Skúlason, og biskupsfrúin, Ebba Sigurðardótt- ir, heilsa kirkjugestum eftir messuna. Biskupinn messaði i tilefni 50 ára afmælis Óspakseyrarkirkju. DV-mynd Guðrún Lára Fimmtíu ára afmæli Óspakseyrarkirkju: Fermingarböm frá 1945 öll bú- sett í hreppnum „Það er skemmtileg tilviljun að allur árgangurinn skuli enn vera í sókninni," sagði Einar Mágnússon oddviti en hann er einn þeirra sex barna sem fædd eru 1931 og fermd voru 1945 í Óspakseyrarkirkju. Þau eru enn öll búsett í hreppnum. „Ég er nú ekki fróður um sögu kirkjunnar en hún hefur verið á sama stað síðan á 13. öld. Hún var síðast endurbyggð fyrir 50 árum. Þetta er alger tilviljun að við skul- um búa hér öll enn. Við hittumst nú ekkert reglulega en þetta er lítið sveitarfélag svo við hittumst alltaf öðru hveiju.“ 1. júlí síðastliðinn var haldið upp á 50 ára afmæh Óspakseyrarkirkju. Kirkjukórinn á Óspakseyri söng og Sigmundur og Gunnar Jónssynir, bræðurnir á Gih, sungu dúett. Org- anisti og söngstjóri er Guðrún Kristj- ánsdóttir á Reykjaskóla. Herra Ólafur Skúlason predikaði en hann átti eins árs embættisaf- mæh þennan dag í embætti biskups íslands. Fólk var mjög ánægt að fá tækifæri til þess að samfagna hon- um. Á eftir bauð sóknamefndin og söfn- uður í veislukaffi á Óspakseyri en alls munu hafa sótt afmælishátíðina upp undir 100 manns. Eftir kaffið var aftur gengið th kirkju þar sem bræð- umir á Gih sungu aftur nokkur lög við undirleik Guðrúnar Kristjáns- dóttur. Þess má geta að faðir þeirra, Jón Sigmundsson, söng við kirkju- vígsluna fyrir hálfri öld. -PÍ Endurreist fyrir hálfri öld Óspakseyrarkirkja í Bitrufirði í Strandasýslu stendur við ákaflega gott rekapláss. Þvi hefði kannski ver- ið eðlilegt að hafa áfram timbur- kirkju þegar hún var endurreist fyr- ir hálfri öld. Þá voru hins vegar fall- egu, gömlu timburkirkjumar að hverfa og steinsteypan talin dásam- leg lausn og ákaflega móðins. Við endurbygginguna var Gísh Gíslason, bóndi í Gröf, yfirkirkju- smiður. Hann er enn búsettur í sókn- inni. Nýja kirkjan var risin seint á sumri 1939 og ahri smíði lokið fyrir jól. Hún var svo máluð að innan vor- ið 1940 þegar vígsludagur nálgaðist. Kirkjan var byggð í útfærðum stíl af hinni alkunnu teikningu Guðjóns Samúelssonar húsameistara. Merki- legasta breytingin og hrein undan- tekning em gluggamir en þeir eru koptískir eða íslamskir. i kirkjunni er faheg altaristaha effir Jóhann Briem. Kirkjan tekur 60 manns í sæti. Sóknarbúar eru tæplega 50 en vom hálfu fleiri þegar kirkjan var byggð. Kirkjan hefur verið endurnýjuð nokkuð og máluð í thefni afmælis- ins. Þaö hefur verið gert á vegum sóknamefndar og safnaðarfólks en formaður sóknarnefndarinnar er Einar Magnússon oddvih. Guðjón Jónsson frá Einfætingsgili er eigandi og ábúandi á Óspakseyri. Gamla timburkirkjan var reist 1877. Hún var htlu stærri en núver- andi kirkja. Kirkjusmiður þá var Sig- urður Sigurðsson kirkjusmiður sem talinn er hafa reist 14 kirkjur, þar af 7 í Strandaprófastsdæmi. Sonur hans varStefánfráHvítadal. -pj Haldið var upp á hálfrar aldar almæli Óspakseyrarkirkju 1. júli. Biskup íslands heiðraði kirkju og kirkjugesti með nærveru sinni á eins árs embætt- isafmæli sínu. DV-mynd Guðrún Lára 3 im Vinsælustu barnasnældur síöasta árs, Barnaleiklr 1 og Rokkllngarnlr eru nú aftur fáanlegar. Frábærar barnasnældur frá B.G. útgáfunni fást í hjómplötuverslunum, bensínstöövum og stórmörkuöum um allt land. PÖNTUNARSÍMI: 689440 Globus! Abtmw E Tryggmgafélag bndndismanna VtSA "Topp 20" á leikskólanum, beint í æð í bílinn m Ik 5 SPENNANDI LAGALISTI Sex litlar endur Ég ætla að syngja Það búa litlir dvergar Krummi krunkar útl Ég heiti Keli Með sól í hjarta Ranka Eln stutt, ein löng Nú skal syngja um dýrin Stíllinn sem endaði aldrei Fyrst á réttunni Og nýja lagið með Rokkling- unum "Hjálminn á!" auk fjölda annarra laga. GLEYMUM EKKI GÓÐA SKAPINU HEIMA! Umferðarráöi er ánægja aö ganga enn til samstarfs viö BG útgáfuna um efni sem henta.r yngstu vegfarendunum. Á þessari nýju snældu eru leikir og vinsæl barnalög til þess aö stytta yngstu farþegunum stundir á feröalaginu. Hún er bæöi skemmtileg og fræöandi fyrir börnin og gagnleg fyrir fulloröna, því öö'ru hverju heyristí Edda frænda meö léttar ábendingar um umferöarmál. Umferöarráö óskar ungum sem öldnum góörar og slysalausrar feröar. Óli H. Þóröarson framkvæmdastjóri UMFERÐAR I 3 /V ij útgefandi og dreifing: | Hjómplötuútgáfa Birgis Gunnlaugssonar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.