Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1990, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1990, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 1990. 25 Sviðsljós Ólyginn sagði... Filip Belgíuprins hélt nýlega upp á þrítugsafmæli sitt. Fjölskyldan kom saman í kafR og ijómatertu til að fagna afmæli Filips sem væntanlega verður næsti konungur Belgíu. Belgíska konungsfjölskyldan hef- ur ekki átt miklum vinsældum að fagna meðal landa sinna að undanfomu. Eftir að Baudouins konungur lét af störfum í einn dag til að þurfa ekki að skrifa undir lög um fóstureyðingar finnst mörgum Belgum hann ekki vera sinn konungur lengur. Beðið er eftir að Fihp kynni krón- prinsessu fyrir þjóðinni en hann hefur ekki látið uppi neitt um að trúlofun sé á dagskránni. Jack Nicholson leikarinn góðkunni, á von á þriðja bami sínu og nú með vin- konu sinni, Rebekku Broussard. í samkvæmi nýlega kom hún Jack á óvart með þessum frétt- um. Hinn verðandi faðir tók frétt- unum eins og karlmanni sæmir og hefur lýst því yfir aö Rebekku og bamið muni ekki skorta neitt. Samband Rebekku og Jack stend- ur föstum fótum en hann hefur alfarið hafnað því að giftast henni. Kveðst hann ekki vilja binda sig til svo langs tíma. Af kvennamálum hans að öðru leyti er það að frétta að Jack og Anj- elica Huston, vinkona hans tíl margra ára, em nú orðin vinir aftur. Hún hefur lýst þvi yfir að hún vilji leika á mótí honum í mynd um Napóleon. Jane Fonda sem þekkt er fyrir leikfimiæfmg- ar og leiklist, hefur nú sagt já við bónorði unnusta síns. Hinn heppni er milljónamæringurinn Ted Tumer og líklega verður brúðkaupið um næstu jól. Jane þarf fyrst að bíða þess að skilnað- ur við næsta eiginmann á undan gangi í gegn. Hún vonar að allt verði klappað og klárt tímanlega svo giftíngin getí farið fram með mikilh viðhöfn. TU stendur að halda brúðkaupið á búgarði Teds í Montanafylki í Bandaríkjunum. Bæði menn og hundar fá útrás fyrir hreyfiþörf á Geirsnefi við Elliðaár. DV-mynd RS Sól, sól skín á mig Undanfama daga hefur sólin glatt íbúa á sunnan- og vestanverðu landinu. Nýr svipur færist yfir bæ- inn. Stuttbuxur og sólbolir em teknir fram og þjóna sínu hlutverki eftir langt frí. Flestir vhja vera úti við og njóta blíðunnar. Sumir fara í bæinn, aðrir í sund og enn aðrir vilja vera úti í náttúnmni. Við vonum að við fáum að njóta sólarinnar sem lengst en farið er að spyija hvort þessari blíðu æth aldrei að ljúka. Það er um að gera að njóta hvers sólargeisla á meðan þeir gefast því ómögulegt er að segja til um hvenær við megum eiga von á svo góðum kafla aftur. Verðir laganna fylgjast með því að allt fari vel fram hjá öndunum á Tjörninni á meðan aðrir njóta veður- blíðunnar. DV-mynd Hanna Kassabílar eru góð farartæki. Þessir hressu strákar óku um við útitaflið í Lækjargötu einn góðviðrisdaginn. DV-mynd Hanna Verðlaunahafinn, Leifur Breiðfjörð, ásamt konu sinni, Sigriði Jóhannsdótt- ur, Vigdisi Finnbogadóttur, forseta íslands, og Peter Bröste (t.v). DV-mynd BG Bjartsýni í fyrirrúmi Bjartsýnisverðlaun Bröste voru afhent nýlega. Leifur Breiðfjörð vann til verðlaijnanna nú er þau voru veitt í tíunda sinn. Verðlaunin eru kennd við Peter Bröste. Þau eru veitt árlega íslensk- um listamanni en þriggja manna nefnd metur hver verðlaunin hlýtur. í nefndinni eru Gunnar J. Friðriks- son, formaður nefndarinnar, Gylfi Þ. Gíslason, fyrryerandi mennta- málaráðherra, og Ámi Kristjánsson píanóleikari. Thlögur nefndarinnar eru svo bomar undir Vigdísi Finn- bogadóttur en hún er vemdari verð- launanna. Hugmyndin að þessum verðlaun- um varð tíl er Vigdís heimsótti Margrétí Danadrottningu árið 1980. Hélt Vigdís þar ræðu sem kveiktí hugmynd Peter Bröste að verðlaun- um til íslenskra listamanna tengdum bjartsýni. Verðlaunin voru nú í fyrsta skiptí afhent hér á íslandi. Af því tilefni kom Peter Bröste hingað tíl lands og afhenti Leifi Breiðíjörð 30.000 dansk- ar krónur í ávísun auk boös th Kaup- mannahafnar. Leifur er þekktur fyr- ir glerhstaverk sín og gerði meðal annars hstaverk í Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar. Brúðkaup sonar Japanskeisara Aya, sonur Japanskeisara, gekk að eiga unnustu sína, Kiko, síðasthðinn föstudag. Japanskir íjölmiðlar hafa mikið velt þessu brúðkaupi fyrir sér og þykir mörgum nóg um umtahð. Það sem mest er um rætt er að Kiko er af alþýðufólki komin og hefur ekki blátt blóð í æðum. í Japan em gamlar hefðir mjög rík- ar og Aya brýtur þær með því að giftast Kiko sem ekki er af aðalsfólki komin. Margir vonast tíl þess að með Kiko komi nýr andi í keisarafjöl- skylduna sem hingaö tíl hefur verið rpjög lokuð. í japönsku þjóðfélagi eru margar óskráðar reglur sem við á Vesturlöndum þekkjum ekki. Sem dæmi um það má nefna mynd sem birtíst í japönskum fjölmiðlum af Kiko og Aya þar sem hún strýkur á honum hárið. Talsmaður keisarafjöl- skyldunnar hefur bannað að myndin verði birt því hún þykir of djörf. Hér hefði ekki þótt thtökumál þó mynd birtist sem sýndi mun meira. Brúðkaupið var að vestrænum sið og margt var um manninn í veisl- unni. Aya og Kiko eru skólasystkini. Aya þykir vera með fijálslega greiðslu og fullmikið hár, auk þess sem hann er með yfirvaraskegg. Hann keyrði um á Volkswagen bjöhu en fær sér trúlega virðulegri bíl nú þegar brúðkaupið er afstaðið. Japanskar konur velta fyrir sér myndinni sem fjaðrafokinu veldur. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.