Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1990, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 1990.
5
I>v Vidtalid
Hjálparstarfið
köllun
Nafn: Jónas Þórisson
Slaða: Framkvæmdastjóri Hjálp*
arstofnunar kirkjunnar
Atóur:45ára
„Ég tók við nýja starfinu nú um
mánaöamótin og er lítið kominn
inn í mál hérsagði Jónas Þóris-
son sem nýráðinn er fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofhunar
kirkjunnar. „Mér líst vel á starf-
ið. Verkefnin eru næg og mikil-
vægt er að geta fylgt þeim vel eft-
ir. Hjálparstarfið er mikilvægur
þáttur í starfi kirkjunnar og von-
andi njótum við áframhaldandi
stuönings fólks.“
Meira „sjokk“
að koma heim
Jónas er fæddur og uppalinn á
Akureyri. Þar gekk hann í skóla
og iauk gagnfræðaprófi. Eftir það
fór hann eitt ár til Bandaríkjanna
sem skiptinemi og vann svo tvö
ár við verslunar- og bankastörf.
Þá settist Jónas aftur á skólabekk
og nú í Kennaraskólann, las þar
námselhi tveggja ára utanskóla
og lauk náminu á tveimur og
hálfu ári. Árið 1973 hélt jónas svo
með fjölskylduna til Eþíópíu til
kristniboðsstarfa á vegum Sam-
bands íslenskra kristniboðsfé-
laga.
„Ég ólst upp í KFUM og kynnt-
ist hjálparstarftnu þar. Við fund-
um að starfskrafta vantaði í Eþí-
ópíu og tölum um köllun til
starfa. Eg vann aðallega kristni-
boðsstörf á vegum kirkjunnar en
einnig hjálparstörf í hungurs-
neyð, þróunarstörf í samvinnu
við norsku kirkjuna, var skóla-
stjórí og siðustu tvö árin var ég
fjármálaráöunautur.
Þaö var gott að vera í Eþíópíu.
Þetta er gott og krefjandi starf.
Maður er meira upptekinn af
þörfura annarra en eigin þörfum
og það er öllum gott að prófa það.
Okkur leið ágætlega en við vor-
um vel undirbúin áður en við fór-
um ÚL Það er meira „sjokk“ að
koma heim aftur en aö koma til
Eþíópiu. Hér þarf maöur að laga
sig að islensku velferðarþjóðfé-
lagi sem hefur mikið breyst á
þessum tíma og ekki allt til batn-
aðar.
Dætrunum leið vel þama úti og
ef þær mættu ráða færum við
aftur til Eþíópíu. Þær voru í
heimavistarskóla sem var um 600
kílómetra frá heimili okkar. Erá
ágúst tíl jóla komu þær eínu sinni
heim í frí ogsvoumjólogpáska.
Við reyndum svo að fara að heim-
sækja þær. Þær voru í norskum
heimavistarskóla og skólinn var
eins og ein stór fiölskylda.“
Það þarf engum aö koma á
óvart hver áhugamál Jónasar
eru. „Þetta starf er mitt áhuga-
mál og köllun. Maður kynnist
fólki og misjöfnum lifnaðarhátt-
um. Það er fyrst og fremst þetta
sem á mig allan.“
Sumarfrí er ekki fyrirhugað
þettaáriðhíá Jónasi. „Þaðverður
að bfða þangaö til á næsta ári.“
Ingibjörg Ingvarsdóttir er kona
Jónasar. Þau eiga sex böm,
Huldu Björgu, 19 ára, Hönnu
Rut, 17 ára, Hrönn, 16 ára, Höllu,
14 ára, Þóru, sem er 12 ára, og
yngstur er Jónas Ingi en hann er
tveggjaára. -hmó
Fréttir
Saga af mistökum:
Fékk rangt hús sent
á milli landshluta
biga Dan, DV, ísafiröi:
Það kemur fyrir að menn taka hluti
í misgripum, ellegar fá skakka send-
ingu í pósti. En að fá sent rangt hús,
það er nýlunda hér fyrir vestan.
Jóhann Marvinsson í Heimabæ í
Amardal keypti sér á dögunum Við-
lagasjóðshús úr Vestmannaeyjum.
Það var ekki fyrr en búið var að stilla
húsinu upp á grunninum að mistök-
in komu í ljós: Þetta var rangt hús
og innvolsið allt annað en til stóð.
Sendandinn varð auðvitað að leið-
rétta mistökin og Jóhann er um þaö
bil að fá rétta húsið (vonandi) með
skipi.
Blaöamaður spurði Jóhann Mar-
vinsson hinnar klassísku spuming-
ar: - Hvemig tilfinning var það þegar
mistökin komu í ljós?
Skakkt hús sent í Arnardal - kom i Ijós þegar húsið var komið á grunninn
DV-mynd Inga
„Það var algjört „sjokk“,“ svaraði
Jóhann.
„Sjokkiö“ er nú um garð gengið.
Það er eins gott að hér var ekki um
að ræða fjölbýlishús frá Suðurhafs-
eyjum.
Það var friðsælt við bæinn Efri-Núp í Miðfiröi þegar myndasmiður átti þar leið framhjá. Lífið gekk sinn vanagang
og verið að mjólka kúna á bænum úti á túni. DV-mynd G. Bender
Búðahreppur:
gengu af fundi
Óháðir
Ægir Kristmssan, DV, Fáskrúðsfirði:
Fyrsti fundur nýkjörinnar hrepps-
nefndar Búðahrepps var haldinn 25.
júní. Meirihluta eftir kosningamar
1986 mynduðu Alþýðubandalag og
Framsókn en upp úr slitnaði á miðju
kjörtímabih og þá tóku sjálfstæðis-
menn sæti Alþýðubandalags í meiri-
hluta til loka kjörtímabils.
í upphafi fyrsta fundar nýkjörinn-
ar hreppsnefndar óskaði Eiríkur
Stefánsson, efsti maður á lista
óháðra, eftir því að greidd yrðu at-
kvæði um hvort fundinum yrði fram-
haldið þar sem hann hefði ekki verið
auglýstur opinberlega og var það
samþykkt með öllum greiddum at-
kvæðum. Eiríkur spurðist fyrir um
hvort nýr meirihluti lægi fyrir og er
svo var þá neitaði Eiríkur að taka
þátt í kosningum á fundinum.
Meirihluta mynda svo þrír fulltrú-
ar Framsóknar og einn alþýðu-
bandalagsmaður. Oddviti var kjör-
inn Lars Gunnarsson af B-hsta en
Valur Þórarinsson af G-hsta vara-
oddviti.
Síðan gerði Eiríkur Stefánsson að
umræðuefni myndim nýja meiri-
hlutans. Var gerð löng bókun um það
mál og þar m.a. að Eiríkur harmar
þá niðurstööu sem orðið hefur í
myndun meirihluta Alþýðubanda-
lags og Framsóknar í Búðahreppi að
loknum kosningum. Eiríkur lýsti
skömm sinni á fulltrúum Framsókn-
ar í hreppsnefnd vegna þess að þeir
skyldu shta viðræðum við óháða, þaö
er F-lista, á síðustu stundu vegna
embættis formanns hreppsráðs og
varaoddvita og bjóða síðan fulltrúa
Alþýðubandalagsins nákvæmlega
það sama og F-hstamönnum þó Al-
þýðubandalagið heföi tapað 41% af
fylgi frá síðustu kosningum og heföi
nú aöeins 15% fylgi sem væri ekkert
annaö en vantraust á G-hstann en
F-hsti bætti við sig um 54% atkvæða
frá síöustu kosningum og hefði nú
30% fylgi.
F-hstinn vildi fá varaoddvita og
formann hreppsráðs en því neituðu
framsóknarmenn sem stöðugt voru
að minna F-hsta menn á styrk sinn
og mátt eins og segir í bókuninni.
Framsóknarmenn fengu , þessa
kveðju frá Eiríki: „Hafið skömm fyr-
ir þá niðurlægingu sem þið sýnið
kjósendum F-hstans og einnig fyrir
það að hafna eindregnum vilja bæj-
arbúa sem var einfaldlega meirihluti
óháðra og Framsóknar."
Eiður Sveinsson, annar fulltrúi
óháðra, sagði í einni bókun á fundin-
um að íbúum Búðahrepps heföi verið
gróflega misboðið með þeirri máls-
meðferð sem höfö var við myndun
meirihlutans og lýsti síðan yfir van-
trausti á hann. Síðan gengu fuhtrúar
óháðra, Eiríkur Stefánsson og Eiður
Sveinsson, af fundi.
BreiöaQarðarfeijan:
Viðskiptin
blómstra í
Vatnsfirði
Inga Dan, DV, Vestfjörðum:
Nýja Breiðafjarðarferjan Bald-
ur nýtur mikiha vinsælda. Þeim
fjölgar sem fara yfir Breiðafjörð
í stað þess að keyra fyrir hann.
Rútuferðir hafa verið skipulagð-
ar í tengslum við ferðir Baldurs,
bæði á vegum Vestfjarðaleiðar og
Torfa Andréssonar. Á Brjánslæk
í Vatnsfirði er risinn nýr veit-
ingastaður og þjónustumiðstöð,
sem ber nafnið Flakkarinn, og
þar og í Flókalundi blómstra við-
skiptin.
Innar við Breiðafjörðinn er
ekki eins gott hljóð í mönnum.
Jóni í Bæ og Alla í Bjarkarlundi
ber saman um að umferöin væri
þar óvenjulega lítíl. Það þarf
kannski ekki að koma á óvart að
þessir staðir missi eitthvað við
breytingima fyrst í stað.
Vonandi er það þó tímabundið.
Flestir hafa eflaust hugsað sér að
hinnnýi kostur laði fleiri gesti til
Vestfjarða en áður og varla færu
þeir þá allir með Baldri báðar
leiðir. Það er því ekki fráleitt að
ætla aö ferjan geti komið fleirum
tíl góða þegar fram í sækir en
þeim sem næstir henni eru.
Ólafsvlk:
Búið að ráða
bæjarstjóra
Bæjarstjóm Ólafsvíkur hefur
ráðið Stefán Garðarsson, útibús-
stjóra íslandsbanka á Selfossi,
sem bæjarstjóra th næstu fjög-
urra ára. Ekki er ákveðið hvenær
Stefán hefur störf. Stefán er 36
ára gamall.
Meirihluta í Ólafsvík mynda
framsóknarmenn, sjálfstæðis-
menn og Alþýðubandalag. Kristj-
án Pálsson, fráfarandi bæjar-
stjóri, er bæjarfuhtrúi lýðræðis-
sinna og situr í minnihluta ásamt
fyrrverandi forseta bæjarstjóm-
ar, Sveini Þór Elínbergssyni, bæj-
arfuhtrúa Alþýðuflokks.
-sme