Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1990, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 1990.
9
dv____________________________________________Útlönd
Albanía:
Hundruð
leita hælis
Fjöldi Albana hefur síðustu daga
haldið í erlend sendiráð í Albaníu og
leitað hælis sem póhtískir ílótta-
menn. Hópar andófsmanna gerðu sér
htið fyrir og klifruðu yfir veggi og
girðingar við erlendu sendiráðin í
höfuðhorginni Tirana. Fulltrúar
sendiráða í borginni hafa sagt að um
400 manns hafi nú þegar leitað hæhs
og um helmingur þeirra hafi fengið
inni í sendiráðunum.
Flóttamönnum, sem leitað hafa til
sendiráða Búlgaríu, Kúbu og Egypta-
lands, hefur verið synjað um hæli
og þeir færðir aftur í hendur alb-
anskra yfirvalda. Nokkur erlendu
sendiráðanna fordæmdu albönsk
stjómvöld er lögreglumenn kveiktu
elda á múrveggjum við sendiráðin
þar sem flóttafólkið hafði komið sér
fyrir á meðan það beið eftir af-
greiðslu. Nokkrir slösuðust alvar-
lega vegna þessa.
Við þetta ástand, sem nú hefur
skapast, má minnast atburðanna í
Austur-Evrópu í fyrra er fjöldi fólks
flykktist til annarra landa sem póh-
tískir flóttamenn. Sú staðreynd var
svo upphaf gífurlegra breytinga og
sögulegra viðburða eins og öhum er
kunnugt, er kommúnisminn féh í
hverju landinu á fætur öðru.
Albanía er síðasta vígi harðlínu-
kommúnismans í Austur-Evrópu.
Ramiz Alia, forseti landsins og for-
ystumaður kommúnistaflokksins,
hefur lýst því yfir, á vettvangi Sam-
einuðu þjóðanna, að stjórn hans
myndi setja framfarir og breytingar
á oddinn sem stuðla mættu að bættri
stöðu albanskra þegna. Þær breyt-
ingar hafa ekki Utið dagsins ljós. Allt
frá lokum síöari heimsstyrjaldarinn-
ar hefur Albanía verið algerlega ein-
angruð, jafnvel frá næstu nágranna-
löndum við Adríahafið.
Pílagrímar í Mekka:
Yfir 1400 tróðust til bana
Nú er Ijóst að yfir 1400 pílagrímar íu staðfesti í gær þessa tölu látinna og hafi nokkrir verið troðnir til
iétu lífið í troöningi í jarðgöngum einstakhnga en um 50.000 manns bana eftir að hafa fallið niður af
í hinni helgu borg Mekka á mánu- voru inni í göngunum er atburður- brú þar innandyra.
daginn. Slysið varð þegar ijöldi inn gerðist. Þykir sá fjöldi gífurleg- Um þessar mundir er fjöldi mú-
fólks reyndi að komast út úr ur'miðað við stærð ganganna. hameðstrúarmanna í Mekka eða
göngtmum er loftræsti- og hitakerfl Vitni segja að undirgöngin hafl á um ein og hálf milljón manna. Á
i jarðgöngunum brást þegar raf- svipstundu líkst heitum ofni sem þessum árstíma eru pílagrímaferð-
magn fór af í göngunum. aila ætlaði að kæfa. Fólkið iiafi í ir hvaö fjölmennastar og flestar.
Innanríkisráðherra Saudi-Arab- offorsi flykkst að útgöngudyrum
Líbería:
Harðar árásir
uppreisnarmanna
Samuel Ode, forseti Líberíu, kveðst
tilbúinn til að segja af sér í kjölfar
harðrar árásar uppreisnarmanna
inni í höfuðborg Líberíu, Monrovíu,
í gær. Þetta er haft eftir stjórnmála-
mönnum þar í landi.
Uppreisnarmenn bafa haldið sig
mjög nærri forsetahöhinni og hefur
það veikt stöðu forsetans. En tahð
er að hann sé vel verndaður af her
sínum þar inni.
Borgarastyijöld hefur ríkt í
landinu í sex mánuði og hafa þús-
undir manna látið lífið. Forysta í
borgarastyrjöldinni hefur verið í
höndum Charles Taylor sem ásamt
stuðningsmönnum hefur barist gegn
harðstjóm forsetans.
Stjórnarherinn hefur unnið flaust-
urslega og hafa margir hermann-
anna verið drukknir eða undir áhrif-
um annarra vímuefna við störf sín.
Vatnslaust hefur verið í höfuð-
borginni í heila viku og rafmagns-
laust síðan á föstudag.
Fjölmargir hafa flúið landið að
undanfórnu en nú hefur að mestu
verið komið í veg fyrir ahar sam-
gÖngUT. Reuter
Samuel Doe, forseti Liberíu.
4-
<áP\
BROSUM /
í umferðinni ^
— og allt gengur betur! •
||UMFERÐAR
FRÁBART
14" ELTA 2012
LITASJÓNVARPSTÆKI
Á SÉRSTÖKU SUMARVERÐI
VERÐ AÐEINS
kr. ».MO,
* Meðan takmarkaðar birgðir endast.
VISA
Faxafeni 12, sími 670420
• Þráðlaus fjarstýring
• Stafrænn rásarkvarði
• Sjálfvirk stöðvaleitun
• 32 minni
• Monitor útlit
• 120 mín. sjálfvirkur tímarofi
• Video/audio tengi
• Inniloftnet
• Tengi fyrir heyrnartæki
,Jl I ■■ ■ ■ j M ■ ■ | I
■ ■■■■!■ J| ■ | ■ | ■ | | íl |
Þú færð myndirnar á 60 mínútum
Opnum
kl. 8.30
iimiiininiiiniiiiiiiiiiiT
LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF
Laugavegi 178 - Sími 68-58-11 (næsta hús við Sjónvarpið)
111 ■■■■■■!■■■ T1