Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1990, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLl 1990.
27
Lífestm
Allt að 22% verðmun-
ur á sokkabuxum
Sokkabuxur geta orðið ótrúlega
stór hluti af fjárútlátum kvenna til
fatakaupa. Allar konur kannast við
lykkjufallsvandræði og leiðindi þeg-
ar sokkabuxur, sem kosta allt upp í
700 krónur, eyðileggjast við fyrstu
notkun. Peningurinn er þar með
kominn í ruslafótuna því að ekki er
hægt að gera við örþunnar sokka-
buxur svo að vel sé.
Það er sitthvað sokkabuxur
eða sokkabuxur
Sokkabuxur geta verið margs kon-
ar. Sumar eru lagaðar eftir fótunum,
meö þykkari hæl og tá, aðrar eru
örþunnar og glansandi. Flestar eru
með skrefbót og sumar með stífri
teygju. Þykktin er mismunandi og
stærðin einnig. Sumar konur kjósa
sokkabuxur með mynstrum eða
saumrönd aftan á leggnum en aðrar
vilja bara einlitar og einfaldar.
Sokkabuxur með glansáferð eru í
dýrari kantinum en glansinn gegnir
því hlutverki að koma í veg fyrir að
pilsin festist við sokkabuxurnar.
Svokallað lycraefni er einnig komið
í margar sokkabuxur. Það gerir það
að verkum að buxumar halda sér
betur og poka ekki.
16% og 22% verðmunur
í lauslegri verðkönnun, sem DV
gerði á tveimur fínni gerðum sokka-
buxna, kom í ljós að munurinn á
Verðsamanburður á fínni gerðum
sokkabuxna
1100-
1000-
900-
Verð í krónum
<X> <D
o o
- Q_- 9--
tö
O) F
■§-!-
S> i>
■ m-g-
® «5 (O
-Q.-8j-«-CÖ-
£ ö X X
Hudson figurslip glanz
Hudson glamour
'p' 'J
illllilllg
:
DV-mynd JAK
hæsta og lægsta verði á milli versl-
ana var tæp 16% á Hudson figurslip
glanz sokkabuxum en tæp 22% á
Hudson glamour.
Figurslip glanz em fótlagaðar bux-
ur með stífri teygju, skrefbót, hæl og
tá. Þær eru ekki með mjög mikilli
glansáferð. Glamour sokkabuxurnar
eru hins vegar með meiri glitáferð.
Þær eru líka aðeins þykkari, stífari
og sterkari.
Verðið var athugað í sjö verslunum
en sumar þeirra selja aðeins aðra
gerðina af þessum sokkabuxum.
Verslanirnar em Austurbæjarapó-
tek, Vesturbæjarapótek, Snyrtivöru-
verslunin Brá, Snyrtibúðin Top
Class, Snyrtivöruverslunin
Glæsibæ, Hagkaup, Laugavegi, og
Hagkaup, Kringlunni.
Hagkaup með hæsta og
lægsta verðið
Verðið á Hudson figurslip glanz er
lægst í Austurbæjarapóteki á 371
krónur og Vesturbæjarapótek fylgir
fast á hælana með 373 krónur. Síðan
koma snyrtivöruverslanirnar Brá,
Top Class og Glæsibær með 415 krón-
ur en verðið er hæst í Hagkaups-
verslununum eða 429 krónur.
Þegar verðið á Hudson glamour er
athugað bregður hins vegar svo við
að það er lægst í Hagkaupi. Athygli
vekur hins vegar að það munar 100
krónum á milli Hagkaups á Lauga-
vegi, sem selur buxurnar á 599 krón-
ur, og Hagkaups í Kringlunni þar
sem þær kosta 699 krónur. Snyrti-
vöruverslunin Brá selur þessar
sokkabuxur á 703 krónur, Snyrti-
vörubúðin Top Class á 710 krónur
og Snyrtivöruverslunin í Glæsibæ á
729 krónur. Apótekin tvö seldu hins
vegar ekki þessa tegund sokka-
buxna.
-BÓl
Bækling-
ur um
sjóngler
Félag íslenskra sjóntækjafræðinga
hefur gefið út bækling um hinar
ýmsu gerðir sjónglerja. í bæklingn-
um er fjallað um gleraugna gler,
plastgler, breytileg gler, sólgler,
glampafrí gler, les- og vinnugler-
augu, tvískipt gler og margskipt gler.
Sjóntækjafræðingar verslananna
sjá um að veita allar upplýsingar
varðandi val á glerjum og umgjörð-
um, einnig að vinna glerin í umgjörð-
ina sem er mikið nákvæmnisverk.
Fólki er því bent á að snúa sér til
þeirra ef það hefur spumingar varð-
andi gleraugun sín.
Félag íslenskra sjóntækjafræöinga
hefur gefið út bækling sem án efa
mun svara spurningum margra um
sjóngler.
Kortskannar
fyrir
greiðslukort
- spara tíma og fyrirhöfn
Nu hafa verið teknir i notkun
hérlendis svokallaðir kortskannar
fyrir greiðslukort. Þetta er hand-
hæg tækni í greiðslukortastarfsemi
sem sparar bæði tíma og fyrirhöfn.
Kortskannar þessir gera kleift að
nema upplýsingar af segulrönd
greiðslukortanna og tölvuvæða
þannig viðskiptin beint frá sölu-
stað. Kortskanninn veit hvaða kort
eru gild og hvaða reglur gilda um
þau. Heimildarmörk verslana eru
sett inn í skannann og hann leitar
sjálfvirkt eftir heimild þegar úttekt
fer yfir þessi mörk.
Með þessum búnaði styttist sá
tími sem'fer í að útbúa úttektarnó-
turnar og að auki felst engin töf í
því að hringja inn og fá heimild þar
sem skanninn gerir það sjálfvirkt.
Öll færslan er svo geymd inni í
tækinu og sölunótan er send sím-
leiðis til Reiknistofnunar bank-
anna, samdægurs. Verslanir spara
þannig tíma í uppgjöri því óþarfi
er að flokka allar greiðslukortanót-
ur og reikna sérstaklega.
Neytendur
Vákortaeigendur mega núna fara
að vara sig því að um leið og kort-
skanninn hringir inn til að fá heim-
ild er athugað hvort kortið sé á
svörtum lista. Jafnvel þó að upp-
hæðin fari ekki yfir úttektarheim-
ildina hringir kortskanninn með
reglulegu millibih og athugar hvort
viðkomandi kort sé gilt.
Svona kortskannar eru mjög al-
gengir erlendis en það var fyrst í
marsmánuði að slíkt tæki var tekið
í notkun hérlendis. Núna eru rétt
rúmlega 100 skannar í notkun en
örugglega er stutt í það að gamla
strauborðið víki að mestu leyti.
Kortskannamir taka bæði Visa
og Eurocard og Samkortin bætast
brátt í hópinn. Að auki gilda þessi
tæki fyrir öh algengustu greiðslu-
kortíheiminum. -BÓl
Greiðslukortinu er rennt í gegnum vélina sem leitar sjálfvirkt eftir heim-
ild og prentar út nótu. DV-mynd JAK