Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 6. JÚLl 1990. 3 I>V Fréttir Lífiö getur veriö unaðslegt í sólskininu: legiö í volgu vatni, slappað af og sólargeislarnir látnir leika um kroppinn. DV-mynd JAK Einstakt sólar- tímabil syðra - en þó kaldara en 1 meðallagi Síöustu daga hefur veriö meö af- brigðum gott veöur hér suðvestan- lands. Sérstaklega hvað sólarstuind- ir varðar. Á tímabilinu frá 26. júní til 4júlí hafa sólarstundir aldrei verið færri en 11,6 en farið upp í 17,8. Það er með því allra mesta sem gerist. Annað eins tímabil hefur ekki mælst síðan 1957. Hitastigið hefur hins vegar ekki verið hátt og rétt hangir í meðallagi enda norðanátt rikjandi. Meira að segja var frost við jörðu sumar næt- ur. í júní voru sólarstundir 12 umfram meðaltal eða 186 sem er svipað og í júní í fyrra. 1988 mældust aðeins 88 sólarstundir en árið áður voru 223 sólarstundir í júní. Mest hefur mælst 338 sólarstundir í júní 1928. -PÍ Rafn hf. í Sandgerði: Kröfurnar eru 570 milljónir - búið að selja frystihús og tvo báta Fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtæk- ið Rafn hf. í Sandgerði er til gjald- þrotaskipta. Búið er,að selja frysti- hús fyrirtækisins og tvo báta, Víði annan og Barðann GK.'fyrir 370 milljónir króna. Kaupandi eignanna er útgerðarfyrirtækið Barðinn í Kópavogi. Lýstar kröfur í þrotabúið eru 569 milljónir króna. Hluta þeirra hefur verið hafnaö og eins hafa kröfur ver- ið afturkallaðar. Ekki er búið að selja allir eignir. Eitthvað af afurðum eru óselt og eins á þrotabúið útistandandi kröfur. Fyrsti skiptafundur í þrotabúinu verður hjá bæjarfógetanum í Kefla- vík á morgim. Á fundinum skýrist væntanlega hversu stórt þetta gjald- þrpt er. Áður en Rafn varð gjaldþrota sóttu forsvarsmenn þess um fyrirgreiöslu frá Atvinnutryggingasjóði. Vilyrði fyrir fyrirgreiðslu lá fyrir en það dugði ekki til að bjarga fyrirtækinu frágjaldþroti. -sme Sláttuvélarslys: Táin hékk á skinninu einu saman Emil Thorarensen, DV, Eskifiröi: Togarasjómaður á Eskifirði lenti illa í því á dögunum þegar hann var aö slá garðinn sinn. Hann var rétt byij- aður á verkinu þegar hann rann til í brekkunni og lenti með vinstri fót- inn undir bensínsláttuvélinni með þeim afleiðingum að stóra táin fór nánast af. Hékk á skinninu einu sam- an. Sjómaðurinn var strax fluttur til héraöslæknisins á staðnum og tókst lækninum að tjasla tánni saman. Það var mikiö og vandasamt verk því táin var fjórbrotin og í tveimur pört- um, auk þess sem talsvert var af grasi í sárinu. Tíminn sker svo úr hvort táin tollir á eður ei. Þorvaröur Elíasson sjónvarpsstjóri skarst hættulega á handlegg: „Hjálparhöndin var nærri farin af“ - fyrrverandi sjónvarpsstjóri meö tæmar í sláttuvél ann, það þýðir ekkert annað. Það er bara ólán að hjálparhöndin var nærri farin af.“ Tærnar í sláttuvél Jón Óttar Ragnarsson, fyrrver- andi sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, lenti einnig í óhappi um síðustu helgi. Samkvæmt heimildum DV var Jón Óttar að slá blettinn uppi í sumarbústaö þegar tærnar lentu undir vélinni með þeim afleiðing- um að hann slasaðist nokkuð. Að sögn lögreglu var komið með Jón Óttar á sjúkrahúsið á Selfossi og gert að sárum hans þar. Hann mun vera á batavegi en ekki hefur náðst til hans vegna þessa. -hlh „Ég var að reyna að hjálpa mönnunum svolítið með rúðu en þá vildi svo illa til að rúðan brotn- aði og datt á handlegginn á mér og skar hann næstum í sundur. Ég fór í margra klukkustunda aðgerö á sjúkrahúsi þar sem sauma þurfti saman sinar, taugar og fleira. Núna er ég heima í gifsi og þrír fingur eru tilfinningalausir. Ég verð í gifs- inu í fjórar vikur og verð vonandi góður eftir það,“ sagði Þorvarður Elíasson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, í samtali við DV. Þorvarður var hinn brattasti eftir þetta óhapp sem átti sér stað um síðustu helgi. Þorvarður hefur ver- ið að flytja og var að stússa í nýja húsinu þegar óhappið varð. „Ég hef verið brattur allan tím- Þorvarður Elíasson missti nær handlegginn í slysi heima hjá sér um siðustu helgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.