Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990. 7 dv Vidtaliö Eitt sinn KR- ingur - alltaf KR-ingur Nafn: Sveínn Bjömsson Starf: Kaupmaður Aldur: 61 árs Glæsilegri íþróttahátíð ÍSÍ er nýlokið. Forseti ÍSÍ er Sveinn Björnsson. „Íþróttahátíðin gekk mjög vel og eiginiega vonum framar," sagði Sveinn. „Þátttak- endur voru rúmlega 30 þúsund þegar allir eru taldir en við það bætast svo áhorfendur. Bæði iðk- endur sumar- og vetraríþrótta tóku þátt í hátíðinni. Keppni í funm greinum er enn ólokið því ekki var hægt að ljúka öllu um helginá. Keppt verður í þeim næstu tvær vikumar. Allir eru mjög ánægðir með hátíðina og veðrið spillti ekki fyr- ir. Aldrei hafa verið svona marg- ir þátttakendur en fjöldinn hefur meira en tvöfaldast frá því á síð- ustu hátíö,“ sagði Sveinn. íþróttahátið ISÍ er haldin á tíu ára fresti og var þetta þriðja há- tíöin. íþróttir og tónlist Sveinn er fæddur í Reykjavík og hefur alltaf búið í höfuðborginni. Hann bjó fyrstu 22 árin í vestur- bænum en hefur flutt sig yfir í austurbæinn. Sveinn gekk ungur í KR og er enn KR-ingur. „Ef menn ganga einu sinni í KR eru þeir alltaf KR-ingar. Það er helst ef menn flytja út á land að þeir fari að starfa meö öðrum félögum en eru þó alltaf KR-ingar innst inni. Synir mínir tveir eru í Val en þaö byggist á þvi hverfi sem þeir ólust upp í. Menn era sem næst sínu heimili og þvi gengu þeir í Val. Þaö er bara eins og gengur og gerist Annars er Geir sonur minn nú á Spáni og dóttir í Bandaríkjunum." Sveinn lauk verslunai-skóla- prófi úr Samvinnuskólanura. Eft- ir það gerðist hann franxkvæmda- stjóri Trípólíbíós en síðan 1954 hefur Sveinn rekið eigin skó- verslun. Ekki er komiö að tómum kofan- um þegar störf Sveins fyrir íþróttahreyfinguna eru skoðuð. Hann hefur verið f stjóm KR í yfir 20 ár, í stjórn ÍSÍ frá 1962 og forseti ÍSÍ frá 1980 og situr í stjórn Ólympiunefndar Islands, svo dæmi séu tekin. „Áhugamál mín eru íþróttir og tónlist. Ég sit í sfjóm Tónlistarfé- lagsins og hef gert í mörg ár. Þeg- ar timi gefst til hlusla ég á tónlist og þá frekar klassiska en popp. Ég var í frjálsum iþróttum í mörg ár. Svo byrjaði ég i badmin- ton, komst upp í meistarailokk og keppti þar. Nú seínni ár hefur maður svo verið meira í trimmi. Ég hef lítíð gert af því aö fara i sumarfrí um ævina. Þaö er helst þegar fundir eru að maður fer í ferðir bæði innanlands og utan. Ég hef mest ferðast i kring um íþróttir." Eigmkona Sveins er Ragnheið- ur Thorsteinsson. Böm þeirra era Bjöm Ingi, 38 ára, Margrét Jóna, 36 ára, Geir, 26 ára og Sveinn sem er 23 ára. Auk þess eiga Sveinn og Ragnheiður fimm barnaböm. -hmó Fréttir Tillögur nefndar um Byggingasjóð ríkisins: Loka ber almenna lána- kerfinu og hækka vexti - greiðslubyrði af meðalláni hækkar um 4 þúsund krónur á mánuði Nefnd, sem gerði úttekt á íjár- hagsstöðu Byggingasjóðs ríkisins, leggur til að almenna húsnæðislána- kerfið frá 1986 verði lagt niður hiö fyrsta og vextir á veittum lánum hækkaðir úr 3,5 prósentum í 5,0 pró- sent. Þeir 5.700 umsækjendur, sem bíða efdr lánsloforðum úr kerfinu, fengju því ekki lán heldur yrðu að snúa sér aö húsbréfakerfinu. Greiðslubyrði þeirra sem fengið hafa lán myndi hækka. Til dæmis þyrfti sá sem fengið hefur um 4 milljóna króna lán hjá Húsnæðisstofnun að greiða um 4 þúsund krónum meira á mánuði í vexti. Nefndin skoðaði hvernig þrír kost- ir myndu leika.sjóðinn til aldamóta. í fyrsta lagi að almenna kerfið og húsbréfakerfið yrðu rekin samhliða. í öðra lagi að almenna kerfinu yrði lokað en þær 8.000 umsóknir, sem hafa borist, yrðu afgreiddar. í þriöja lagi að almenna kerfinu yrði lokað algjörlega með þeirri undantekningu að staðið yrði við þau 2.300 lánsloforð sem send hafa verið út. Yrði gjaldþrota 1999 Ef Byggingarsj óðurinn væri rekinn áfram með almenna kerfinu og hús- bréfakerfinu yrði hann gjaldþrota 1999 og eiginfjárstaðan væri orðin neikVæð um 3,8 milljarða um alda- mót. Munur á vöxtum á lánum lífeyr- issjóðanna til Byggingasjóðsins og útlánum úr almenna kerfmu yrði frá 400 milljónum 1989 til 1.800 milljóna árið 2000 eða samtals um 17 milljarð- ar á ellefu ára tímabili. Þessi munur myndi skapa gífurlegan rekstrar- halla á sjóðnum. Ef honum yrði mætt með framlögum ríkisins þyrfti ríkissjóður að leggja til um 14,7 millj- arða á þessu tímabili eða um 1,4 núlljarða á ári fram til aldamóta. Önnur leið til að mæta þessum halla er að hækka vexti. Ef sú leið yrði farin þyrftu vextir úr kerfinu að hækka úr 3,5 prósentum í 5,5 pró- sent. Ef fjármagna ætti kerfið ein- göngu með lánum úr lífeyrissjóðun- um en engu framlagi ríkissjóðs væri samanlögð lánsíjárþörf Bygginga- sjóðsins um 174 milljarðar fram til aldamóta. Það er um tvöfóld eign líf- eyrissjóðanna í dag. Annar valkostur Annar kosturinn, það er að loka almenna kerfinu en afgreiða allar umsóknir, myndi ekki leika Bygg- ingasjóðinn jafnilla. Hann yrði þó óhjákvæmilega gjaldþrota um alda- mótin en eigið fé hans yrði um 300 milljónir á aldamótaárinu. Vaxta- munurinn fram til aldamóta yrði samtals 10,8 milljarðar. Ríkissjóður þyrfti að leggja til um 8,6 milljarða til að rétta við rekstrarhallann, að öðrum kosti þyrftu vextir að hækka upp í 5,0 prósent. Lánsfjárþörfin myndi lækka úr 174 milljörðum í 52 milljarða. Kynning á Móum: ræður voru fluttar utanhúss svo gestir gæti notið góða veðursins. Heimili fyrir vímuefnaunglinga á Móum á Kjalamesi: Líf undirlagt vímuefnaneyslu „Líf þessara ungmenna er undir- lagt af vímuefnaneyslu sem í all- mörgum tilvikum leiðir til dauða eða varanlegs tjóns.“ Þetta segir í yfirlýsingu frá Ungl- ingaheimili ríkisins um væntanlegt heimili fyrir vímuefnaunglinga á Móum á Kjalarnesi. Búið er að kaupa Móa og þar verð- ur starfrækt heimili fyrir unglinga á aldrinum 13 til 18 ára sem eiga við verulegan vanda að stríða vegna vímuefnaneyslu. Á heimilinu verða 12 til 14 ungling- ar á aldrinum 13 til 18 ára. Sigrún Magnúsdóttir félagsráðgjafi hefur verið ráöin deildarstjóri heimilisins. Starfsfólkið er búið að fara í 12 vikna náms- og kynnisferð til Minnesota í Bandaríkjunum á meðferðarstofnun sem nefnist Fairview Deaconess. Sú stofnun hefur verið starfrækt í fimmtán ár og er ein sú virtasta í Bandaríkjunum. -sme Óvenjuleg brúökaupsferð: Ársdvöl á Hveravöllum Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkröki Hún er heldur betur óvenjuleg brúð- kaupsferðin hjá ungu nýgiftu hjón- unum, Hörpu Lind Guðbrandsdóttur frá Sauðárkróki og Grími Siguijóns- syni, Steiná III í Austur-Húnavatns- sýslu - ársdvöl á Hveravöllum. Þann 1. ágúst munu þau taka þar viö starfi veðurathugunarfólks. 16 pör sóttu um starfið að þessu sinni og er það mjög svipaður fjöldi og síðast þegar starfið var auglýst. Að sögn Hörpu líst þeim báðum vel á aö takast á við starfið á Hveravöll- um. Bæði eru mikið gefin fyrir úti- vist og óttast ekki einangrunina á Hveravöllum yfir vetrartímann. Umferð á hálendinu, jafnt sumar sem vetur, eykst líka stöðugt. Þau Berglind og Grímur voru gefin saman í Hóladómkirkju 24. júní. Fara því nær nýpússuð saman í starfið í hina eftirsóttu veðurathugunarstöð á Hveravöllum. Þriðja leiðin farin? Þriðji kosturinn, það er að almenna kerfinu yrði lokað algjörlega og ein- ungis lánsloforð afgreidd, myndi lækka vaxtamuninn niður í 9 millj- arða. Til að mæta rekstrarhallanum þyrfti ríkissjóður annaðhvort að leggja til tæpa 7 milljarða fram til aldamóta eða vextir á útlánum að hækka upp í 5 prósent. Lánsfjárþörf Byggingasjóðs myndi lækka úr 174 milljöröum í tæplega 30 milljarða. Eins og áður sagði lagði nefndin til að þriðji kosturinn yrði valinn. Al- menna kerfinu yrði lokað og einung- is þeir sem hafa lánsloforð í höndun- um fengju lán. Eftir sem áöur er fyr- irséð að vaxtamunur af veittum lán- um yrði um 9 milljarðar til aldamóta og nefndin leggur til að því verði mætt með hækkun vaxta úr 3,5 pró- sentum í 5,0 prósent í stað tæplegá 7 milljarðá*R-amlags frá ríkissjóði. -gse COMBI CAMP Það tekur aðeins 15 sek. að tjalda. COMBI CAMP er traustur og góður félagi í ferðalagið. Léttur í drætti og auðveld- ur í notkun. COMBI CAMP er hlýr og þægilegur með fast gólf í svefn og íverurými. COMBI CAMP er á sterk- byggðum galvaniseruðum undirvagni, sérhönnuðum fyrir ísienskar aðstæður, á fjöðrum, dempurum og 10” hjólbörðum. COMBI CAMP er einn mest seldi tjaldvagninn á íslandi undanfarin ár og á hann fæst úrval aukahluta. COMBI CAMP er til sýnis í sýningarsal okkar. TÍTANhf LÁGMÚLA 7 SÍMI 84077

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.