Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990.
5
Valdimar Guðnason:
„Ég vil ekkert segja um þetta
opinberlega. Ég hef ekki gert þaö
hingað til og ætía ekki að byrja á
því nú, Ég reikna með að málinu
verði áfrýjað til Htestaréttar og
því sé alls ekki lokið,“ sagði
Valdimar Guðnason, löggiltur
endurskoöandi.
Valdimar vann mikið við rann-
sókn Hafskipsmálsins, fyrst fyrir
skiptarétt og síðar við lögreglu-
rannsóknina. Sá hluti ákær-
unnar, sem sneri að reiknings-
skilum, var mikið til byggður á
vinnu Valdimars.
-sme
Fréttir
Albert Guðmundsson um Hafskipsmálið:
Get ekki hugsað
mér meiri glæp
- en að eyðileggja blómaskeið vinnuævi þessara drengja
„Mér finnst að komið hafi í ljós að
málið er ekkert mál. Þetta var bara
sápukúla sem sprakk. Ég hef aldrei
skilið af hveiju málið fór af stað og
skil heldur ekki nú af hveiju verið
er að dæma þessa drengi sem hlutu
dóm. Það er búið að eyðileggja fyrir
þeim blómaskeið vinnuævinnar og
ég get ekki hugsað mér meiri glæp,“
sagði Albert Guðmundsson.
„Ég vona að þetta mál verði víti til
vamaðar. Það má ekki ásækja menn
og ætla þeim síðan að sanna sakleysi
sitt. Ég var kominn í toppvaldastöðu
í þjóðfélaginu og flæmdist þaöan á
fólskum forsendum og upplognum
ásökunum. Þaö er nákvænúega það
sama og þessir drengir, sem voru
starfsfélagar mínir, máttu þola. Þetta
verður bara að vera þjóðfélaginu víti
til varnaðar.
Ég átti þessa drengi sem vinnufé-
laga og þeir urðu vinir út úr því. Ég
hef alltaf sagt, bæði sem vitni, á þingi
og sem prívatmaður, að þetta eru
heiðarlegir og góðir menn,“ sagði
Albert.
-gse
Albert Guðmundsson sagði af sér ráðherradómi vegna Hafskipsmálsins i ársbyrjun 1987. Hér er hann umkringd-
ur blaða- og fréttamönnum á fundinum þar sem hann sagði af sér eftir þingflokksfund sjálfstæðismanna.
DV-mynd GVA
Rannsóknin
eins og til
var stofnað
- sagði Hallvarður Einvarðsson
„Ég hef ekkert um þennan dóm að
segja. Ég hef ekki fengið endurrit af
honum í hendur og þekki ekki þessar
niðurstöður nema af fregnum í fjöl-
miðlum. Ég hef því ekkert um hann
að segja. Það er sérstakur handhafi
ákæruvalds sem fer með ákæruvald-
ið í þessu máli,“ sagði Hallvarður
Einvarðsson ríkissaksóknari.
- Nú tengist þú málinu ekki bara
sem saksóknari sem reyndist van-
hæfur heldur stjórnaðir þú jafnframt
hinni veigamiklu rannsókn sem
rannsóknarlögreglustjóri. Sú mikla
rannsókn hefur nú ekki leitt til mik-
ils:
„Á þessari stundu er ég ekki í að-
stöðu til að fjalla um dóminn sem
slíkan, hvað svo sem síðar verður.
Ég vænti þess að dómurinn tali sínu
máli; að hann sé skýr og forsendur
skýrar. Þessi rannsókn fór fram á
sínum tíma eins og til var stofnað
af hálfu þáverandi ríkissaksóknara.
Ég hef ekkert meira um það að segja.
Síðan fjalla dómstólar um sakarefni
og fella sinn dóm. Og ekkert meira
um það,“ sagði Hallvarður.
AMSTERDAM
HLIDIÐ
AD EVRÓPU
Raunar má segja að hún sé hliðið að allri heimsbyggðinni. Þaðan er greið leið
með bílaleigubílum (þeim ódýrustu í Evrópu) og/eða lestum suður um alla
álfuna. Þaðan flýgur líka KLM til yfir 130 borga í 80 löndum. Á mörgum
* þessara flugleiða getur Arnarflug boðið sérstaklega hagstæð fargjöld.
Hliðið er opið. Gjörið svo vel og gangið inn.
LáS
■ Flui
flw
Lágmúla 7, síml 91-84477.
Flugstöð Lelfs Eiríkssonar, sími 92-50300.